Morgunblaðið - 21.10.1989, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIB LAUGARDAGUR 21. OKTÓBKR 11989/
41
"I FReTTOTlLKVNNINau FRfi ftÍKJSCTíÓRNlNNI-Hi'l HÍ! HÍ! - FÍRáTTHR HÚN PflNN RSETNIN& SINN- Hl!
HÍ! HÍ'.-tWeÆTT? ÝTftffíTft SPffRNWOR- Hl'. HÍ'. ~ VI6 NeSFER-© OPlMSERS R)dR - Hl'. Ht'. HÍ.< HÍ!»
HJARTAVERND
Dregið var í happdrætti Hjartaverndar
1989 þann 13. október sl.
Vinningar féllu þannig:
Til íbúðarkaupa kr. 1.500.000,-
82178
Bifreið Audi 80 árg. 1990 kr. 1.500.000,-
96124
Til íbúðarkaupa kr. 1.000.000,-
17334
Til íbúðarkaupa kr. 500.000,-
11226 61952
w
Til bifreiðakaupa kr. 350.000,-
41869 59134 82072 98078 105322
Ferð m/Samvinnuf./Útsýn á kr. 200.000,-
26072 32041 35685 41269 90655
Ferð m/Samvinnuf./Útsýn á kr. 116.000,-
17167 60311 72200 85162 107487
Vinninga má vitja á skrifstofu
Hjartaverndar, Lágmúla 9, Reykjavík.
Hjartavernd pakkar landsmðnnum
veittan stuðning.
Þeir eyða o g sóa almannafé
Til Velvakanda.
Stofnuð hafa verið samtök spari-
fjáreigenda vegna stefnu núver-
andi stjórnar að gera að engu
sparnað fólksins, það er að segja
að færa vexti það mikið niður að
þeir verði langt fyrir neðan raun-
vexti, enda var kjörorð hennar að
þeir skyldu keyrðir niður með
handafli.
Fyrir nokkru var haldinn fundur
á Hótel Sögu vegna ætlunar stjórn-
arinnar um að skattleggja sparifé
að auki. Mættu þar tveir úr ríkis-
stjórn til að réttlæta þessi áform.
Annar þessara manna var fjár-
málaráðherra og kvað hann uppúr
með það að það ætti að skatt-
leggja sparifé. Meiningin er að
keyra vexti niður fyrir raunvexti,
svo sparifé brenni smátt og smátt
upp. Ráðherrann reyndi að blekkja
fólk og lét jafnframt í það skína
hversu mikið gæðamenni hann
væri lítilmagnanum.
Nei, næst skyldi gengið að þeim
stofnunum sem tekið hefðu að sér
að gæta hags sparifjáreigenda.
Hvaða fólk er það svo sem þarna
á hlut að máli?. Það er aðallega
eldra fólk sem er annaðhvort að
hætta eða hætt að vinna og hefur
tekist með dugnaði og hagsýni að
draga sér saman nokkurt fé til að
njóta á sínum efri árum.
Ég álít ásamt meirihluta fólks
að þetta sé einhver versta stjórn
sem verið hefir hér á landi. Hún
ræðst á ráðdeildarfólk en hyglar
aftur hinum. Einstæðar ekkjur
hafa ekki hvað síst orðið fyrir barð-
inu á henni. Niðurstaðan er því
þessi: Þeir eyða og sóa almannafé,
ekki síst með ferðalögum út um
lönd, og hafa bætt við tveimur
ráðherrum sem kosta ríkissjóð 15
milljónir króna. Það er gengið á
alla sjóði og lántökur erlendis
auknar. Samkvæmt skoðanakönn-
unum njóta þessir menn ekki
stuðnings nema brots þjóðarinnar.
Því ættu þeir að fara frá sem
fyrst þvi annars stefnir í mikið
óefni. Svo vil ég þakka Þorsteini
Pálssyni fyrir hans málflutning um
þessi efni.
Hilmar Sigurðsson
ARSHATIÐ
Hin óviðjafnanlega árshátíð félagsins verður haldin í
AKOGES, Sigtúni 3, laugardaginn 28. október.
Miðasala og borðapantanir verða fimmtudaginn 26.
október frá kl. 17.00-19.00 á sama stað.
Látum okkur ekki vanta!
Stjórnin.
k ...........------------- -i
Afmælissýning
Hundaræktarfélags íslands
í Laugarúalsholl, sunnuúaginn 22. oktðber 1989
Dómhringur 1.
Kl. 9.00-12.00
Golden Retriever
Kl. 13.00-17.00
Labrador Retriever
Kl. 17.00-17.30
Afkvæmasýning
Retriever
DAGSKRA:
Dómhringur 2.
Kl. 9.00-11.00
íslenskur fjárhundur
Kl. 11.00-11.30
írskur Setter
Kl. 13.30-14.00
Enskur Cocker Spaniel
Kl. 14.00-14.30
Enskur Springer Spaniel
Kl. 14.30-14.45
Afkvæmasýning Poodle
Dómhringur 3.
Kl. 9.00- 9.15 Schaefer
Kl. 9.15-11.15 Poodle
Kl. 11.15-11.25 Maltese
Kl. 11.25-11.35 Pug
Kl. 11.35-11.45
Yorkshire Terrier
Kl. 11.45-12.15 Dachshund
Kl. 13.00-15.30
Hlýðnikeppni í dómhring 3.
Hundafimi Hundaskóla H.R.F.Í. verður í matarhléi og í lok sýningar.
Úrslit og verðlaunaafhending verður klukkan 17.30-18.00.
Við tökum nú við pöntunum á sölubásum til jóla.
Vinsamlegast athugið nýtt símanúmer 687063
milli kl. 16 og 18.
KOLA PORTIÐ
ManKa£iStOfc‘T
— alltaf á laugardögum!
Góðir gestir.
í tilefni íslenskra tónlistardaga munu góðir gestir
lífga upp á Kolaportið í dag:
Ríó Trió verður með ýmiss konar sprell og kynna
hljómplötu.
Stjúpbræður, félagar úr kór Langholtskirkju taka
létt lög.
Félag Harmonikkuunnenda heldur uppi góðri
stemmningu.
Seldir verða happdrættismiðar til styrktar Félagsheimili
tónlistarmanna (dregið 23. okt.) og til sýnis verður
1. vinningur í happdrættinu, glæsilegur Skoda Favorit.
Reyndar geta allir dottið strax í lukkupottinn því ókeypis
hljómplata að eigin vali fylgir hverjum keyptum miða.
Skemmtið ykkur í Kolaportinu og sparið, sparið,
sparið, því á annað hundrað seljendur bjóða
þúsundir vörutegunda á sannkölluðu
Kolaportsverði.