Morgunblaðið - 28.11.1989, Page 1
64 SIÐUR B
272. tbl. 77. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Milljónir manna tóku þátt í allsherjarverkfallinu í Tékkóslóvakíu:
Stj óraarandstæðingar
hætta frekari mótmælum
Ungur Tékki með þjóð-
fána sinn við brjó.stmynd
af Jósep Stalín, fyrrum
einræðisherra í Sovétríkj-
unum, á Wenceslas-torgi
í Prag í gær. A spjaldi sem
hengt hefur veirð um háls
Stalíns stendur: Ekki að
eilífu.
Gorbatsjov viss um yfirburði sósíalismans
laugardag og vísuðu þeim a
sem klækjabrögðum. Sögðu þeir
harðlínumenn vera að ná undir sig
helstu valdastöðum.
Míkhaíl Gorbatsjov, Sovétleið-
togi, ritaði grein í Prövdu, málgagn
sovéska kommúnistaflokksins, á
sunnudag þar sem hann segist jafn
viss og áður um yfirburði sósíal-
ismans og segir vangaveltur um
allar aðrar leiðir tilgangslausa
draumóra. Vísaði hann þar kapítal-
ismanum á bug og sagði að sósíal-
isminn og marxisminn væru skil-
getin afkvæmi siðmenningarinnar.
Sjá „Andófsmenn segja umskipt-
in ...“ og „Gorbatsjov ver marx-
ismann ...“ á bls. 22 og 23.
Prag. Reuter.
JIRI Dienst, einn af leiðtogum Vettvangs borgaranna, samtaka tékk-
neskra umbótasinna, lýsti því yfir á blaðamannafundi samtakanna í
gær, að allsherjarverkfall, sem milljónir Tékka hefðu fyrr um dag-
inn tekið þátt í um land allt, væri ótvíræður dómur þjóðarinnar yfír
alræði kommúnistaflokksins. Leiðtogar samtakanna sögðu að ekki
yrði hvatt til frekari verkfalla eða mótmæla gegn stjórnvöldum nema
sýnt þætti að þau hygðust draga umbætur á langinn. Skömmu áður
en hið tveggja klukkustunda langa verkfall skall á voru þrír harðlínu-
menn reknir úr sfjórnmálaráði tékkneska konnnúnistaflokksins og
tveir umbótasinnar skipaðir í þeirra stað. Á laugardag var tveimur
kunnustu harðlínumönnum flokksins vikið úr ráðinu.
Allsheijarverkfallið í gær var
mjög víðtækt og náði til allra helstu
fyrirtækja og stofnana landsins.
Almenningssamgöngur lágu niðri í
höfuðborginni, kirkjuklukkum var
hringt þegar verkfallið hófst á há-
degi, og sírenur og bílflautur þeytt-
ar. Hálf milljón manna safnaðist
saman í miðborg Prag og hundruð
þúsunda manna fóru í mótmæla-
göngur í öðrum helstu borgum
landsins. Að sögn tékkneska sjón-
varpsins tóku margar milljónir
manna þátt í allsheijarverkfallinu.
Ladislav Adamec, forsætisráðherra,
sagði það réttmætt og tékkneska
alþýðusambandið sagði það lýðræð-
islegan rétt manna að taka þátt í
því.
Talsmenn Vettvangs borgaranna
sögðu að mótmælafundum yrði nú
hætt en ef ekkert breyttist yrði
efnt til aðgerða á ný. Sýnt þætti
að þjóðin öll stæði á bak við kröfur
um lýðræðisumbætur. Hafnar væru
viðræður við stjórnvöld um frekari
tilslakanir og umbætur. Tilgangur
samtakanna væri ekki að valda
efnahagslegu tjóni og því yrði að-
gerðum hætt.
Andófsmenn höfðu litla trú á
mannaskiptum í forystu kommún-
istaflokksins sem skýrt var frá á
Með lögunum hljóta Eistland,
Lettland og Lítháen full yfirráð
yfir lendum sínum og náttúruauð-
lindum frá og með næstu áramót-
um.
Einnig fá Eystrasaltslýðveldin
nánast alla opinbera fjármálastjórn
i sínar hendur.
Fyrst um sinn verða þau að skila
ríkissjóði Sovétríkjanna helmingi
tekna af ríkisfyrirtækjum sem þar
eru.
í Sovétríkjunum er velmegun
mest í Eystrasaltslýðveldunum.
Öflug þjóðernisbylgja reis þar i
sumar og kom frumvarpið um
efnahagslegt sjálfsforræði fram
þegar hún náði sem hæst.
Krafist var sjálfstæðis lýðveld-
Búdapest. Reuter.
FJÓRIR stjórnarandstöðuflokk-
ar í Ungverjalandi báru sigur
úr býtum í þjóðaratkvæða-
greiðslunni, sem fram fór á
sunnudag. Var niðurstaðan sú,
að forsetakosningarnar, sem
áttu að verða í janúar nk., verða
ekki fyrr en nýtt þing kemur
saman að loknum þingkosning-
um í júní.
Úrslitin valda því, að sigurlíkur
Imres Pozsgays, ráðherra i ríkis-
stjórninni og eins helsta frammá-
manns í Sósíalistaflokknum, áður
Kommúnistaflokknum, eru nú litl-
ar sem engar. Tillaga stjórnarand-
stöðuflokkanna var um það, að
forsetinn yrði ekki kjörinn í al-
mennum kosningum, heldur af
þinginu, og talið er fullvíst, að á
næsta þingi verði stjórnarandstað-
an í miklum meirihluta.
Á kjörskrá voru nærri átta millj-
ónir manna og kosningaþátttakan
var 58,2%. Eins og fyrr segir er
niðurstaðan mikill sigur fyrir
stjórnarandstöðuflokkana fjóra en
ekki að sama skapi fyrir þann
fimmta óg stærsta, Lýðræðisvett-,
vanginn, sem hafði hvatt fólk til
að sitja heima í fyrstu fijálsu kosn-
ingunum, sem haldnar eru í Ung-
veijalandi frá þvi kommúnistar
komust þar til valda.
Ungverskar konur í þjóðbúningi
á lyörstað.
Þýsku ríkin:
Kohl með
áætlun um
sameiningu
Bonn. Reuter.
HELMUT Kohl, kanslari Vest-
ur-Þýskalands, mun í dag
mæla á þjngi fyrir áætlun um
sameiningu þýsku ríkjanna í
þremur áföngum, að sögn
áreiðanlegra heimilda.
Áætlunin gerir ráð fyrir fijáls-
um kosningum um sameiningar-
málið í Austur-Þýskalandi og að
í kjölfar þeirra verði stofnaðar
sameiginlegar málefnanefndir er
undirbúi sameininguna.
Kohl kynnti stjórnarþing-
mönnum tillögur sínar í gær og
lagði hann þar áherslu á að úti-
lokað væri að tímasetja einstaka
þætti hennar. Sameining myndi
taka tíma og dagdraumar væru
til einskis.
Talsmaður Kohis sagði í gær
að hann kynni að fara til Aust-
ur-Þýskalands 19. desember.
Eystrasaltslýðveldin öðlast
eftiahagslegt sjálfsforræði
Moskvu. Reuter.
ÆÐSTARÁÐ Sovétríkjanna
samþykkti í gær lög er veita
Eystrasaltslýðveldunum þrem-
ur, Eistlandi, Lettlandi og Lithá-
en, efhahagslegt sjálfsforræði.
Talið er að lagasetningin geti
orðið til þess að draga úr sjálf-
stæðiskröfum lýðveldanna.
Lögin voru samþykkt með at-
kvæðum 296 fulltrúa í æðstaráðinu
gegn 67. Hjá sátu 37 fulltrúar.
Þegar úrslitin lágu fyrir stóðu
fulltrúar Eystrasaltslýðveldanna í
ráðinu upp, féllust i faðma og fögn-
uðu.
anna og var litið á vakninguna sem
ögrun við umbótastefnu Sovét-
stjórnarinnar. Þing lýðveldanna
þriggja hafa á undanförnum vikum
og mánuðum samþykkt ýmis lög
er varða sjálfsákvörðunarrétt
þeirra, tungu og þjóðmenningu.
Þau voru innlimuð í Sovétríkin
1940.
Ungverjaland:
Stjórnarandstaðan vann
þj óðaratkvæðagreiðsluna