Morgunblaðið - 28.11.1989, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 1989
Skiptikjarareikn-
ingarnir afnumdir
SEÐLABANKINN hefur tilkynnt bönkum og sparisjóðum að frá
áramótum verði óheimilt að bjóða skiptikjör á óbundnum innláns-
reikningum en heimilt verði að verðtryggja innistæður sem standi
óhreyfðar í 6 mánuði. Að sögn Eiríks Guðnasonar, aðstoðarbanka-
sljóra Seðlabankans, hefur viðskiptaráðuneytið nýlegá ítrekað til-
mæli ríkisstjórnarinnar í þessa átt og samþykkt þá leið sem ákveðið
hefur verið að fara. Valur Arnþórsson bankastjóri Landsbankans
segist gjalda verulegan varhug við þessari breytingu.
Að sögn Eiríks Guðnasonar hafa
skiptikjör verið áhættusöm fyrir
bankana. Erfitt hafi reynst að sjá
fyrir hvaða skuldbindingar þeir
tækju á sig með þeim og útkoman
hefði á stnndum komið á óvart. Til
lengdar væru skiptikjarareikningar
til þess fallnir að auka vaxtamun.
Valur Arnþórsson bankastjóri
Landsbanka íslands sagði að hann
hefði talið skynsamlegt að leyfa
skiptikjarareikninga á óbreyttum
grundvelli út næsta ár. Hann sagði
að á þessu ári hefði viðmiðun-
artímabil verðtryggingar á skiptikj-
arareikningum verið sex mánuðir
og hefði við þær aðstæður reynst
DC-8 þota
Flugleiða:
Astæður
yfirliðs
ekkirann-
sakaðar
Loftferðaeftirlitið hóf í
gær að rannsaka ástæður
þess að DC-8 þota Flug-
leiða rak búnað á hreyfli á
vinstri væng í flugbraut við
lendingu í Keflavík á
fimmtudag. Ekki er talin
ástæða til af hálfu loftferða-
eftirlits að rannsaka að í
aðfluginu leið yfir sex far-
þega, þar sem of lítill loft-
þrýstingur var í vélinni.
Trúnaðarlæknir Flugleiða,
sem var um borð, kveðst
ekki hafa orðið var við að
farþegar féllu í öngvit.
Fréttir af því hlyti hann að
telja mjög orðum auknar.
Þessi þota Flugleiða lenti í
óhappi á flugvellinum í New
York á þriðjudag í síðustu
viku, þegar stigi fauk á hana
og gerði gat á hana. Að lok-
inni viðgerð var ákveðið að
hafa jafnþrýstibúnað ekki á
fullum krafti á leiðinni heim,
að því er haft var eftir blaða-
fulltrúa Flugleiða. Hann sagði
að loftþrýstingur hefði þó ver-
ið innan leyfilegra marka. í
aðfluginu leið yfir sex farþega.
Trúnaðarlæknir Flugleiða,
Jón K. Jóhannsson, kveðst
hafa verið staddur um borð í
vélinni af tilviljun. Hann segir
það hafa komið sér mjög á
óvart að heyra fréttir af öng-
viti farþega. „Flugfreyjurnar
um borð þekktu mig og ég er
þess fullviss að þær hefðu
kallað í mig, ef farþegar hefðu
fallið í yfirlið um alla vél,“
sagði hann.“
Við lendingu í Keflavík
straukst búnaður hreyfils á
vinstri væng við flugbrautina.
Skúli Jón Sigurðarson, deild-
arsérfræðingur loftferðaeftir-
litsins, sagði að á vegum eftir-
litsins hefði í gær verið hafin
rannsókn á þessu atviki. Það
stæði hins vegar ekki til að
rannsaka loftþrýstingsmálið,
þar sem það væri upplýst og
þrýstingur hefði verið eðlileg-
ur.
auðvelt að stýra ávöxtun reikning-
anna. Hann sagði að skiptikjara-
reikningar hefðu verið mjög vin-
sælt sparnaðarform og að hann sæi
enga hættu samfara því að bjóða
óbreytt kjör áfram.
Sambandsstjóm ASÍ á fundi sínum á Grensásvegi 1 í gær.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sambandsstjórn ASÍ samþykkir að samningaviðræður verði teknar upp:
Kannaður möguleiki á skamm-
tímasamningi fram í mars eða maí
Kaupmáttur verkakvenna hefiir fallið um 14% á einu og hálfu ári
FUNDUR sambandsstjórnar Alþýðusambands íslands, sem er æðsta
vald í málefnum sambandsins milli þinga þess, samþykkti i gær að
fela formönnum iandssambanda að taka upp viðræður við samtök
atvinnurekenda og ríkisstjóm um niðurfærslu verðlags og nýja kjara-
samninga. Þá samþykkti fundurinn áskomn á ríkisstjórnina um að
virðisaukaskattur verði í tveimur þrepum og skuli neðra þrepið fela
í sér 12-13% skatt. I því þrepi verði helstu lífsnauðsynjar. Einnig
var lýst yfir stuðningi við afstöðu meirihluta Húsnæðismálastjórnar
um að hækka ekki vexti á lánum úr Byggingarsjóði ríkisins. í umræð-
um um kjaramál á fundinum kom fram mikill stuðningur við framan-
greind atriði meðal sambandsstjórnarfulltrúa.
í framsögu sinni um kjaramál ingi yrði að hindra enn frekara
sagði Ásmundur Stefánsson, forseti
ASÍ, að í þeim samningum sem
framundan eru bæri að leggja höf-
uðáherslu á verðtryggingu iauna,
niðurfærslu verðlags og sérstakar
hækkanir lægstu launa. Ganga beri
opið til viðræðna og í fyrsta lagi
fá svar ríkisstjómarinnar við því
hvað hún sé tilbúin til að gera til
að færa niður verðlag og sporna
gegn verðhækkunum. Gagnvart at-
vinnurekendum yrði annars vegar
ræddur möguleiki á skammtíma-
samningi fram í mars eða maí og
hins vegar langtímasamningur
jafnvel til tveggja ára, þar sem
verðtrygging yrði meginkrafan.
Markmiðið með skammtímasamn-
kaupmáttarfall. Ef viðræður fari í
hnút beri að fresta málum fram
yfir áramót og taka þau þá upp af
krafti.
Ásmundur sagði að í þeim sam-
tölum sem hann hefði átt við ein-
staka fulltrúa atvinnurekenda und-
anfarið hafi hann mætt miklum
þunga. Þeir segi að verðtrygging
launa komi ekki til greina og því
aðeins sé hægt að semja að verka-
lýðshreyfingin samþykki að kaup-
máttur falli enn frá því sem nú sé.
Ásmundur nefndi í ræðu sinni
tvær mögulegar leiðir til að hækka
lægstu laun. Annars vegar að
leggja niður lægstu taxtana og hins
vegar að færa aldurshækkanir og
lífaldursviðmiðanir í takt við það
sem gerist hjá opinberum starfs-
mönnum. í erfiðu atvinnuástandi
eins og nú er sé launaskrið minna
en á þenslutímum og því ætti sér-
stök hækkun til lágtekjufólks í
kjarasamningum frekar að skila
árangri þannig að launahlutföllin
breytist.
í samantekt hagdeildar ASÍ um
kaupmáttarþróun, sem dreift var á
fundinum, kemur fram að kaup-
máttur lágmarkslauna nú í desem-
ber hafi fallið um 15% frá því í júní
í fyrra eða á einu og hálfu ári og
kaupmáttur lægra launuðu hóp-
anna hafi fallið meira en kaup-
máttur hærra launuðu hópanna inn-
an ASÍ. Kaupmáttur greidds tíma-
kaups hafi þannig á sama tímabili
fallið um 8% og kaupmáttur heildar-
launa um 7%. Þetta er meðaltal
félaga í ASÍ. Frá júní í fyrra hefur
kaupmáttur verkamanna fallið um
tæp 10%, kaupmáttur verkakvenna
um tæp 14% og kaupmáttur af-
greiðslukvenna um rúm 10%. Iðnað-
armenn og skrifstofumenn draga
meðaltalið upp.
Guðmundur J. „
gekk af fiindi ASI
GUÐMUNDUR J. Guðmunds-
son, formaður Dagsbrúnar,
gekk út af sambandssljórnar-
fúndi ASÍ í gær og sagði hann
að umræður um vaxtamál hefðu
gengið svo fram af sér að hann
Unnið að því að styrkja fjárhag Stöðvar 2:
Verslunarbankinn þrýstir á að
nýir aðilar komi inn í fyrirtækið
UMLEITANIR standa yfir til að styrkja fjárhag Stöðvar 2 og tengdra
fyrirtækja. Fyrirtækið er með neikvæða eiginfjárstöðu og mjög skuld-
sett vegna mikils stohifjárkostnaðar, örrar uppbyggingar og tap-
rekstrar fyrstu tvö árin. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins
hefúr viðskiptabanki Stöðvar 2, Verslunarbankinn, áhyggjur af
skuldastöðu sjónvarpsstöðvarinnar og hefúr þrýst á að fjárhagslega
öflugir innlendir aðilar komi inn í fyrirtækið sem nýir hluthafar til
að unnt verði að grynnka á skuldum og treysta fjárhag þess.
Eftir þeim upplýsingum sem
Morgunblaðið hefur aflað sér mun
Verslunarbankinn leggja kapp á að
lausn hafi fundist á málefnum sjón-
varpsstöðvarinnar áður en bankinn
rennur formlega inn í Islandsbanka
hinn nýja nú um áramótin. í þessu
sambandi hefur hugsanleg þátttaka
Árvakurs hf., útgáfufélags Morg-
unblaðsins, í fyrirtækinu verið
nefnd. Hans Kristján Ámason,
stjórnarformaður íslenska sjón-
varpsfélagsins, móðurfyrirtækis
Stöðvar 2 og Islenska myndversins,
segir að nauðsynlegt sé að afla frek-
ara hlutafjár og staðfestir að for-
ráðamenn fyrirtækisins hafi haft
það til athugunar, bæði erlendis og
hér innanlands. Tilboð liggi fyrir frá
tveimur bandan'skum fjölmiðlafyr-
irtækjum. En einnig er verið að
kanna áhuga frönsku sjónvarps-
stöðvarinnar Canal Plus á þátttöku
í fyrirtækinu, eins og fram hefur
komið. Hans vildi ekki gefa upp til
hvaða innlendra aðila hafi verið leit-
að, en samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins eru í þessu sam-
bandi einkum nefnd fyrirtækin
Hekla hf., Vífilfell og Hagkaup en
Ingimundur Sigfússon, forstjóri
Heklu, sagðist ekkert geta sagt um
þetta mál í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Hans Kristján Árnason vildi ekki
ræða fjárhag eða skuldastöðu fyrir-
tækjanna í samtali við Morgun-
blaðið að öðru leyti en því að hann
kvað ijárhagsstöðuna verða að telj-
ast eðlilega miðað við að þetta
væri fyrirtæki í hraðri uppbygg-
ingu. Hann sagði að fyrstu tvö árin
hefði verið tap á rekstrinum en í
ár væri útlit fyrir verulegan hagnað
af rekstri Stöðvar 2 og tengdra
fyrirtækja eftir að reiknaður hefði
verið fjármagnskostnaður og af-
skriftir. I nóvember væru vergar
tekjur fyrirtækisins hinar mestu í
sögunni eða á annað hundrað millj-
hefði ekki mátt silja undir þeim
lengur. Sagði Guðmundur að á
sama tíma og uppsögnum færi
fjölgandi og næstum hvert ein-
asta fyrirtæki bæri hærri fjár-
magnskostnað en launakostnað
væri verið að gera ályktanir á
sambandsstjórnarfúndi ASÍ um
vexti af húsnæðismálalánum,
sem væru lægstu vextirnir í
þjóðfélaginu.
„Fólkið kemur ekki til mín
vegna þess að húsnæðisvextir séu
að þjaka það heldur eru það vext-
ir af skammtímalánum og lífeyris-
sjóðslánum sem eru 9%. Það er
vaxtakostnaður sem er að sliga
almennjng og fyrirtækin í landinu
og ASÍ kemur þetta ekki við,“
sagði Guðmundur.
Jóhann í sjötta sæti
JÓHANN Hjartarson tapaði skák
sinni við júgóslavneska stórmeist-
arann Popovic á stórmeistaramót-
inu í Belgrað sem lauk í gær.
Jóhann lenti þar með í sjötta sæti
með 5 og hálfan vinning. Sigur-
vegari varð heimsmeistarinn
Garrí Kasparov með 9 og hálfan
vinning af 11 mögulegum. Næstir
komu Timman og Ehlvest með 6
og hálfan vinning og Júsúpov og
Ljubojevic með 6 vinninga. Með
sigri í mótinu náði Kasparov 2.800
Elo-skákstigum fyrstur manna.
Skákum síðustu umferðar lauk
þannig að Kasparov vann Nikolic,
Timman og Ehlvest sömdu um jafn-
tefli og Ljubojevic vann Agdestein.
Biðskák Jóhanns og Kasparovs úr
áttundu umferð var tefld á sunnudag
og sömdu meistararnir um jafntefli.
Saltað í
um 150 þús-
und tunnur
SALTAÐ hafði verið í liðlega
150 þúsund tunnur af síld í
gærkvöldi, þar af rúmlega
80 þúsund tunnur á Rúss-
landsmarkað, en 26. nóvem-
ber í fyrra var búið að salta
í 219 þúsund tunnur. Um
helgina var saltað í um 40
stöðvum.
Búist var við að settur yrði
kvóti á söltunarstöðvarnar í
gærkvöldi, en það er gert þegar
eftir er að salta um 35% af
heildarsöltunarkvótanum.
Kvóti stöðvanna er reiknaður
út frá hlutdeild þeirra í söltun-
inni undanfarin 8 ár.