Morgunblaðið - 28.11.1989, Side 40

Morgunblaðið - 28.11.1989, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUJt 28: NÓVRMBER 1989 Stjörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson Karl og kona Ég hef upp á síðkastið velt því fyrir mér að lítill greinarmunur er gerður á því í lýsingum á stjörnumerkjunum hvort um karlmann eða kvenmann er að ræða. Að sumu leyti er í lagi að lýsa merkjum og segja að upplag þeirra sé hið sama hvort sem um karl eða konu er að ræða. Önnur atriði eins og til dæmis ólíkt hlutverk kynjanna í þjóðfélaginu og líffræðileg sérstaða þeirra skapar hins vegar mun sem vert er að huga að. BogmaÖurinn Þegar talað er um Bogmanninn (22. nóvember — 21. desem- ber) er í fyrsta lagi sagt að hann sé jákvæður, bjartsýnn, hress í skapi og léttur í lund. Í öðru lagi er talað um að hann sé eirðarlaus og þurfi töluvcrða hreyfingu, sé ævmtýragjam og á sífelldum þeytingi milli staða og landa. Hann hefur yndi af ferðalögum og er Stöðugt að skipta um umhverfi. Breyting- ar, frelsi, spenna og nýjungar einkenna líf hins dæmigerða Bogmanns. Hann þolir illa vanabindingu. Einn veikleiki Bogmannsins er aftur á móti fólginn í ábyrgðarleysi. Það cr eðlilegt, því þörfinni fyrir frelsi og fjölbreytta reynslu fylgir að hann getur ekki bundið sig nið- ur á einn ákveðinn stað eða dvalið of lengi við eitt af- markað mál. Léttur í lund Það er reynsla mín að Bog- menn, bæði karl- og kvenkyn, eru jákvæðir og léttir í lund og eru blessaðir með eðlislægri bjartsýni og léttri skapgerð, burtséð frá umhverfi og ytri aðstæðum, þó slíkt hafi að sjálfsögðu sitt að segja. Frelsi og karlar Þegar eirðarleysi og þörf fyrir freisi og breytingar er annars vegar fer að verða sjáanlegur munur á kynjunum, a.m.k. . hvað varðar hegðun og það sem snýr út á við. Astæðan fyrir því er líkast til fólgin í hlut- verkaskiptingu kynjanna, í því að konur hafa þurft að sinna heimili og barnauppeldi í ríkari mæli en karlar. Slík störf gefa lítið svigrúm fyrir brcytingar og frelsi. Karlmenn eiga á hinn bóginn mun auðveldara moð að losa sig undan ábyrgð vegna heimilis og fjölskyldu, geta til dæmis notað mikla vinnu sem afsökun fyrir afskiptaleysi á því sviði. Ábyrgð og konur Það er því svo að hin meinta eirðarlausa og óábyrga hlið Bogmannsins verður meira áberandi hjá karlmönnum í merkinu. Konur i Bogmanni verða aftur á móti fastari fyrir og ábyrgari, ekki endilega vegna persónulegs upplags, heldur líffræðilegra og félags- legra aðstæðna. Þegar karl- maður leyfir sér að fara út á land eða llytja erlendis vegna atvinnu, þarf konan að láta sér nægja að snúa við húsgögnum á heimilinu. Þjóðfélagiö Það er auðséð þegar upplag merkja er skoðað, að það er auðveldara fyrir karlmenn að þtoska með sér upplag sumra merkja. Það er auðveldara að vera í eldsmerkjunum, í Hrútn- um, Ljóninu og Bogmanni, og sömuleiðis að einhveiju leyti þegar Tvíburi og Vatnsberi eru annars vegar. Eðli þessara merkja fellur ekki sérlega vel að hinni stöðluðu og „mjúku" kvenímynd eða þeim tækifær- um sem konum bjóðast í at- vinnulífinu. Þjóðfélagið býður körlum upp á fleiri tækifæri, t.a.m. er tiltölulega auðvclt fyr- ir karlmenn að fá störf sem fylgir hreyfíng og ferðalög. Á hinn bóginn er oft erfitt fyrir karlmenn að þroska alla eigin- leika vatnsmerkjanna, Krabba, Sporðdreka og Fisksins. Þessu fylgir að hegðun karls og konu verður oft ólík, þó merkið sé hið sama. GARPUR Gorr, þ'AER. \a/e/, l/inos - Þ/fiO ÞKVEDlO. \&!£>mu JfcCrtf ÉQ V/L GTAZM//, 15 A/HAH UAA - spyn?4 0KC4/? NV-Ue> 1AN/>H? þ/ÐMUDU WNKONU J G£7=/ NOkXUPeA SPURM-Jslu EFTIK /N&4- HMt/£>/KaI GRETTIR ^ I K KÖTTU/e ER. ENN ( HUÓAWieEINS \^ö& &LEI?S«€Ri \r ~NÖ ( HZlN&PU Á LÖ&&UNA BRENDA STARR I ÞU VE/S7; sT&fZA/? STE/SEds&srjuP I 'oh/Se/n/r d/skar. , D/acszT a/euma IB3ÓRCX3SINHEPi l'sSk&PNUM. SATTHD SEGDA \"o,/-UÓFA/J.þAB HLEyPTt HANN \e/Z8AZA HANS /néeetjc/ /a/n. I h'attdr. ’a ad HANN ERAB / DAÐHA U/Ð l/E/ZDA /E \ Þk3 OULA/eryLLEJ LJÓSKA FERDINAND Það er hundur hérna við dyrnar með teppið þitt eins og slaufu. Þakka þér fyrir, ég var hrókur alls fagnaðar. SMÁFÓLK I WA5 THE OklLV ONE NOT 0JEAR1N6 A CLIP-ON í Ég var sá eini sem ekki var með klemmuslaufu. BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Austur sér fimm slagi í vörn gegn tveim spöðum suðurs. Hvar á hann að fá þann sjötta? Norður gefur; enginn á hættu. Norður ♦ KD2 VDGIO ♦ K3 ♦ KD1082 Vestur ♦ 65 ♦ 2 ♦ G109654 ♦ 9743 Austur ♦ ÁG ♦ÁK6543 ♦ Á2 ♦ G65 Suður ♦ 1098743 ♦ 987 ♦ D87 + Á Vestur Norður Austur Suður — 1 lauf 1 hjarta- 1 spaði Pass 2 spaðar Pass Pass Pass Útspil: Hjailatvistur. Vörnin á fjóra slagi í toppspil- um og eina hjartastungu. Þótt austur sjái ekki allar hendur verður hann að gefa sér að makker eigi eitt hjarta — annars er vonlaust að hnekkja spilinu. Síðan verður hann að leita leiða til að virkja spaðagosann. Fyrsta hugdettan er að spila þrisvar hjarta og panta tígul til baka. Spila síðan enn hjarta út í þrefalda eyðu í þeirri von að vestur sé með tromptíuna. Þá uppfærist spaðagosinn. Þetta er ágæt áætlun, en við sjáum að hún gengur ekki upp. Annar möguleiki er að und- irbúa uppfærsluna með því að spila tígli strax í öðrum slag. En það má ekki taka tígulás og spila meiri tígli, því þá getur sagnhafi kastað bjarta úr blind- um niður í tíguldrottningu. En með því að spila SMÁUM tígli frá ásnum nær austur stjórn á spilinu. Hann drepur strax á spaðaás, tekur tígulás og síðan hjarta tvisvar. Vestur spilar tígli og spaðagosinn er orðinn að slag. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Á alþjóðlegu móti fyrir ungl- inga 16 ára og yngri sem Taflfé- lag Garðabæjar gekkst fyrir í ágúst kom þessi staða upp í skák þeirra Alfreðs Haukssonar, Tafllfélagi Garðabæjar, sem hafði hvítt og átti leik og Kristian Glans, Svíþjóð. Svartur lék síðast 24. - Rd5 - c3? 25. Hxg7! - Kxg7, 26. Hgl+ - Kh7, 27. D15+ - Kh8, 28. Df6+ — Kh7, 29. Dg7 mát. Úrslit á mótinu urðu þessi: 1. RagnarFjal- ar Sævarsson, TR v. af 7 mögu- legum, 2. Heígi Áss Grétarsson, TR 6 v. 3. Henrik Lönnqvist, Finn- landi 5 v. 4.-6. Alfreð Hauksson, TG, Sveinn Reynisson, TG og Kristján Eðvarðsson, TR 4 v. 7.-9. Brynjar Jóhannsson, SH, Steinn A. Jónsson, TA og Óli Steindórsson, TA 4 v. Þátttakend- ur voru 25 talsins, þar af þrír Svíar og einn Finni. Búnaðarbanki íslands studdi Taflfélag Garða- bæjar til mótshaldsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.