Morgunblaðið - 28.11.1989, Qupperneq 44
44
MOBGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28; NQVEMBER 1989
t
Gólfbvottavélar
með vinnubreidd frá 43 til 130 cm.
Gólfþvottavélardrifnarmeðrafgeymum. i Gólfþvottavélar með sæti
vélará íslandi
HuHo
IBESTAl
Nýbýlavegi 18,
sími 64-1988.
félk í
fréttum
ROKK
Spring-
steen
leysir
upp
sveit
sína
Ætlar þú að hefja
GOLF
leiki þína næsta vor eins og
á vordegi eða vilt þú aoka frekar við
GOLF
leikni þína með því að æfa öðru hvoru í
GOLF
herminum okkar í vetnr?
KEILU S ALURINN
ÖSKJUHLÍÐ
S: 62 15 99
Ath! Frúartímar - kennslutimar
Betra verð en nokkru sinni fyrr
Dæmi: Leiki 4 menn í tl 2 klst.
greiðir hver um sig aðeins kt. 500,-
Rokkarinn Bruce Springsteen
hefur ákveðið að næsta sóló-
plata hans skuli standa undir því
nafni. Hann ætlar að glamra sjálf-
ur á öli hljóðfæri, rita texta, semja
lög og útsetja. Það er skoðun kapp-
ans að sólóplötur séu það ekki
nema að umræddum skiiyrðum sé
fullnægt. Þetta þýðir í raun og
veru, að hljómsveit Springsteens
verður leyst upp og lögð til hliðar
eftir 15 ára samstarf. Bruce hefur
séð það í hendi sér að tónlistin sé
ekki svo flókin, gripin ekki svo
mörg að hann geti ekki leikið þau
sjálfur inn á plötu og ráðið sér
aðstoðarmenn í hljómleikaferðalög
fyrir brot af þeim launum sem fé-
lagar í E Street bandinu þáðu fyr-
ir greiðann.
Scialfa og Springsteen.
FRAMABRAUT
Lenny brýst úr
skugga Lisu
Auk Springsteens eru félagar í
sveitinni sjö talsins. Foringinn
hringdi samdægurs í þá alla og
greindi frá þróun mála. Engum
sögum fer um viðbrögð, en
Springsteen mun hafa hvatt hvern
og einn til að taka hvaða tilboði
sem gæfist. Það er mál manna að
einn hljómsveitarmeðlimur hafi
fengið að hlýða á tíðindin undir
fjórum augum. Söngkonan Patti
Scialfa, sem er lagskona rokk-
goðsins hin seinni misseri.
Tónlistarmaðurinn Lenný Kra-
vitz hefur náð skammt á ferli
sínum til þessa, en þó er nú að
rofa til, en fregnir herma að nýút-
komin breiðskífa hans „Let love
rule“ seljist eins og heitar lumm-
ur. Kravitz hefur lent í því að gagn-
rýnendur hafa afgreitt tónlist hans
kuldalega, tilkynnt að hún sé svik
og prettir. Að hún sé „ekki nógu
svört“. Til að bæta gráu ofan á
svart giftist hann kunnri leikkonu,
Lisu Bonet, og hefur verið svo
kirfilega negldur í skugga hennar,
að kaldhæðnir hafa kallað vesal-
ings Lenny Herra Bonet.
En nú hefur gæfan snúist- á
sveif með Kravitz og plata hans
fengið 3 til 4 stjörnur af 5 mögu-
legum hjá gagnrýnendum. Hefur
honum verið líkt við nokkur risa-
nöfn poppsins svo sem John Lenn-
on og Prince. Hann er ákveðinn í
því að fylgja meðbyrnum eftir og
er farinn að ástunda hljómleika-
ferðalög í gríð og erg.
Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson.
Leikfélag Hornafjarðar og Ungmennafélag Ármanns á Kirkjubæjarklaustri stóðu fyrir skemmtun í
Hofgarði í Öræfum.