Morgunblaðið - 30.11.1989, Page 1

Morgunblaðið - 30.11.1989, Page 1
64 SIÐUR B 274. tbl. 77. árg. FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1989 Prentsmiðja Morgunblaðsins Deilan um Nagorno-Karabakh; Armena oef Azera Moskvu. Reuter. ^ AÐ MINNSTA kosti tveir menn féliu í átökum sem brutust út í gær vegna deilu Armena og Azera um héraðið Nagorno-Karabakh. Æðsta ráðið í Sovétríkjunum hafði daginn áður komið nokkuð til móts við kröfúr Azera en yfirvöld í Azerbajdzhan fá þó ekki yfirráðarétt yfir héraðinu fyrr en þau hafa gengið að vissum skilyrðum. Hvorki Armen- ar né Azerar geta sætt sig við ákvörðun ráðsins. Þrír af hverjum fjórum íbúum Nagorno-Karabakhs eru Armenar og vilja að héraðið verði sameinað Armeníu. Stjórnin í Moskvu skipaði sérstaka nefnd í janúar sl. til að stjórna héraðinu og samkvæmt ákvörðun Æðsta ráðsins í fyrradag verður hún leyst upp eftir tvo mán- uði. Hafi yfirvöld í Azerbajdzhan gengið að skilyrðunum að þeim tíma liðnum fá þau yfirráðarétt yfir hér- aðinu. Azerar fögnuðu þessari ákvörðun í fyrstu en mótmæltu síðan skilyrðunum. Stjórnvöld í Moskvu virðast áskilja sér rétt til að grípa í taumana telji þau eitt- hvað fara úrskeiðis í héraðinu. Alræðisvald kommúnistaflokksins afiiumið á þingi Tékkósióvakíu: og verið væri að kanna hvort þær væru réttar. Fregnir frá Armeníu og Az- erbajdzhan herma að efnt hafi ver- ið til fjöldafunda í ýmsum bæjum lýðveldanna til að mótmæla ákvörð- un Æðsta ráðsins. Ennfremur var efnt til verkfalla í Azerbajdzhan. Að minnsta kosti 120 manns hafa beðið bana í átökum vegna deilunnar um Nagorno-Karabakh á undanförnum tveimur árum. 200.000 manns hafa flúið héraðið. Reuter Ung kona veifar tékkneska fánanum í Prag í gær er hún og vinur hennar fognuðu sigri umbótasinna í Tékkóslóvakíu. Krotað hefur verið á vegginn fyrir aftan þau: „Því er lokið! Tékkar eru fijálsir!“ Hörð átök á milli Fyrirheit um frjálsar kosningar innan árs Prag. Reuter. VASIL Mohorita, sem á sæti í stjórnmálaráði kommúnistaflokksins í Tékkóslóvakíu, lofaði í gær frjálsum kosningum í landinu og sagði að þær gætu farið fram innan árs. Þing landsins samþykkti skömmu síðar að afnema alræði kommúnistaflokks landsins. Leikritaskáldið Vaclav Havel og aðrir leiðtogar Vettvangs borgaranna, helstu stjórn- arandstöðusamtakanna, fógnuðu sigri er ákvörðun þingsins var kunn- gerð. Talsmaður Nagorno-Karabakh- nefndarinnar sagði að vitað væri með vissu um tvo sem hefðu fallið í átökum í Azerbajdzhan, skammt frá héraðinu. Hann sagði að fregn- ir hefðu borist af frekara mannfalli Aþena: Ævafornri súlu stolið úr Akrópólis Aþenu. Reuter. SÚLU frá þriðju öld fyrir Krist hefur verið stolið úr háborg Aþenu, Akrópólis. Súlan er metri að hæð, 10 sm breið og með áletrun á latn- esku. Hún var við innganginn að tyrkneskri mosku í róm- verska markaðinum neðst í háborginni. Lögregluyfirvöld sögðu í gær að súlunni hefði verið stolið í fyrri viku og líkleg- ast yrði reynt að selja söfnurum hana erlendis. Þjófarnir gætu fengið sem svarar 20 milljónum ísl. kr. fyrir súluna. Noregur: Vasil Mohorita sagði á blaða- mannafundi skömmu fyrir þing- fundinn að ákveðið yrði síðar í þing- inu hvenær fijálsar og lýðræðisleg- ar kosningar færu fram í landinu. Ríkisstjórnin myndi undirbúa breyt- ingar á kosningalöggjöfinni til að tryggja að kosningarnar endur- spegluðu vilja almennings. Að- spurður sagði hann að kosningarnar gætu farið fram innan árs. Sú ákvörðun þingsins að afnema alræðisvald kommúnistaflokksins kom ekki á óvart þar sem hinn nýkjörni flokksleiðtogi, Karel Urb- anek, tilkynnti í fyrradag að flokk- urinn ætti einskis annars úrkosti en að afsala sér alræðisvaldinu og sýna almenningi fram á að hann væri lýðræðislegur. Varnarmálaráðherra landsins sagði á þingfundinum að herinn styddi flokksleiðtogann og ekkert væri hæft í sögusögnum um að herforingjar hefðu skipulagt valda- • rán til að koma í veg fyrir að flokk- urinn afsalaði sér alræðisvaldinu. „Við höfum brugðist almenningi. Ekkert af því sem við gerum hér í dag breytir því,“ sagði sósíalistinn Blanka Hikova á þessum sögulega þingfundi, sem var sýndur í beinni útsendingu. Önnur þingkona, Jana Pekarova, fór lofsamiegum orðum um námsmenn, er skipulögðu mót- mælafundi sem urðu til þess að harðlínumenn innan flokksforyst- unnar sögðu af sér. „Það er skamm- arlegt að kynslóð okkar skyldi ekki hafa gert það sama,“ sagði hún. Milos Jakes, sem lét af embætti flokksleiðtoga á föstudag, greiddi atkvæði með því að alræði flokksins yrði afnumið. Sovétríkin: Fordæma til- lögur Kohls Moskvu. Reuter. SOVÉTMENN fordæmdu í gær tillögur Helmuts Kohls, kanslara Vestur-Þýskalands, um ríkja- samband þýsku landanna tveggja og sökuðu hann um að kynda undir þjóðernisrembingi. „Við lítum svo á að tilraun hafi verið gerð til þess að breyta um- bótaþróuninni, sem hófst nýlega í Austur-Þýskalandi, og kynda undir þjóðernisrembingi með því að mæla fyrir um markmið umbótanna og hvernig standa beri að þeim,“ sagði Júrí Gremítskíkh, talsmaður sov- éska utanríkisráðuneytisins. Gremítskíkh sagði að Kohl hefði láðst að taka tillit til skoðana ann- arra Evrópuþjóða, einkum Austur- Þjóðveija, og benfi á að leiðtogar Austur-Þýskalands hefðu sagt að sameining þýsku ríkjanna væri ekki á dagskrá. Tillögur kanslai'ans væru í andstöðu við stefnu fjöl- margra ríkja, þar á meðal Sovétríkj- anna, sem væru andvíg því að landamærunum frá seinni heims- styijöldinni yrði breytt. Talsmaður- inn sagði einnig að Kohl hefði gerst sekur um íhlutun í innanríkismál- efni Austur-Þjóðveija með því að setja það skilyrði fyrir efnahags- stuðningi að komið yrði á stjórn- málaumbótum í landinu. Kreflast 21 millj- arðs kr. í styrki Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgunblaösins. SAMTÖK sjávarútvegsins í Noregi, Norges Fiskarlag, krefjast þess af stjórnvöldum að fá 2,5 milljarða norskra króna (21 milljarð ísl. kr.) í styrki á næsta ári. Aðalástæða kröfúgerðarinnar er hrun þorskveiðanna. Eitt af því sem farið er fram á er að vinnutími norskra sjómanna verði styttur úr 3.000 í 1.875 tíma á ári og sé þar með jafnlangur og vinnu- tími iðnverkamanna. Þessi liður einn tekur til sín um 700 milljónir nor- skra króna af kröfuupphæðinni. Þorskkvóti Norðmanna fyrir norð- an 62. breiddarbaug verður um 113.000 tonn á næsta ári, auk 6000 tonna þar fyrir sunnan. Verð á þess- um afla upp úr sjó er 800 millj. nkr., en var í fyrra 2,3 milljarðar nkr., og kvótinn 303.000 tonn. „Þetta tekjutap kemur mjög illa við útgerðarfyrirtækin," segir Arent M. Henriksen, aðalritari Norges Fiskarlag. „Útgerðin lagði út í urn- talsverðar fjárfestingar í fiskiskipum á árunum 1985-88 og stendur því mjög tæpt. Það er aðalástæðan fyrir þessum háu kröfum okkar nú.“ Reuter Beðið eftir leiðtogafundinum Möltubúar veiða fisk á stöng við mynni Marsaxlokk-flóa í gær. Beiti- skipin Slava frá Sovétríkjunum (t.v.) og Belknap frá Bandaríkjunum liggja við akkeri á meðan beðið er eftir því að fundur George Bush Bandaríkjaforseta og Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétforseta hefjist á Miðjai-ðarhafinu 2. desember.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.