Morgunblaðið - 30.11.1989, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1989
-----j--1l j ■—-:-----..... ..i-......... ■ ;-i .• í. j ■ ....---J--
23
Forsætisráðherra Indlands segir af sér:
Minnihlutastjórn Þjóðfylk-
ingarinnar talin sennilegust
Nýju Delhi. Reuter.
Rúmenska fimleikastjarnan Nadia Comaneci leikur sér á slánni í
meistarakeppninni á Wembley 1979.
Ungverjaland:
Nadia Comaneci bið-
ur um pólitískt hæli
Búdapest. Reuter.
RÚMENSKA fimleikastjarnan Nadia Comaneci, sem vann þrenn gull-
verðlaun á Ólympíuleikunum í Montreal 1976, þá 15 ára gömul, flúði
til Ungverjalands á þriðjudag og hefur beðið þar um pólitískt hæli,
að sögn ungverska innanríkisráðuneytisins.
RAJIV Gandhi, forsætisráðherra
Indlands, sagði af sér embætti í
gær og lét völdin í hendur stjórn-
arandstöðunni. Er búist við, að
minnihlutastjórn Þjóðfylkingar-
innar taki við á næstu dögum og
ætla forystumenn hennar að
koma saman á morgun til að
kjósa forsætisráðherra úr sínum
hópi.
Kongressflokkur Gandhis, sem
hefur verið við völd í Indlandi næst-
um óslitið frá árinu 1947, beið mik-
inn ósigur í þingkosningunum í
síðustu viku og hefur nú enginn
einn flokkur styrk til að mynda
stjórn. Nokkuð víst er þó talið, að
Þjóðfylkingin myndi minnihluta-
stjórn með stuðningi Janatabanda-
lagsins og ýmissa vinstriflokka. Er
Vishwanath Pratap Singh, fyrrum
bandamaður Gandhis, líklegur til
að hreppa forsætisráðherraembætt-
ið en úr því verður skorið á morg-
un, föstudag.
Rajiv Gandhi gekk í gær á fund
forseta Indlands, Ramaswamy
Venkataraman, og aflienti honum
lausnarbeiðni sína en mun fara
áfram með völd þar til ný stjórn
hefur verið formlega mynduð. Hann
óskaði jafnframt væntanlegri stjórn
góðs gengis en lagði áherslu á, að
Kongressflokkurinn yrði harður í
horn að taka í stjórnarandstöðu.
Beindi hann sérstaklega spjótum
sínum áð Janatabandalaginu, flokki
heittrúaðra hindúa, sem vill meðal
annars nema burt úr stjórnar-
skránni ákvæði um réttindi minni-
hluta, til dæmis múslima. Kvaðst
hann óttast, að Þjóðfylkinging yrði
að kaupa stuðning Janatabanda-
lagsins hættulega dýru verði.
Gandhi hélt sæti sínu í þing-
kosningunum og í gær var hann
einróma endurkjörinn leiðtogi Kon-
gressflokksins. Áður hafði verið
talið, að hann yrði janfvel settur til
hliðar biði flokkur hans mikinn ósig-
ur eins og raun varð á.
Comaneci, sem nú er 28 ára göm-
ui, og sex aðrir Rúmenar fóru yfir
landamærin í nágrenni bæjarins
Mezogyan í suðausturhluta Ung-
verjalands og höfðu engin vegabréf
meðferðis. Hún tjáði yfiiwöldum í
borginni Szeged að hún óskaði eftir
að fá að setjast að í Ungveijalandi,
að sögn ríkisfréttastofunnar MTI.
Ekki er vitað um verustað Comaneci
nú.
Ungverska ólympíunefndin, HOC,
hefur heitið að veita Nadiu Comneci
alla hugsanlega hjálp. „Við erum fús
að styðja við bakið á henni og að-
stoða hana fjárhagslega við að heija
nýtt líf hér í Ungveijalandi,“ sagði
formaður HOC og bætti við að nefnd-
inni hefði borist íjöldi tilboða frá ein-
staklingum og samtökum þar sem
Gomaneci væri heitið stuðningi.
Nadia Comaneci komst í sviðsljós
heimsins í Evrópumeistarakeppninni
í fimleikum 1975. Þar vann hún til
gullverðlauna í öllum skyldugreinun-
um nema gólfæfingum. Á Olympíu-
leikunum í Montreal ári seinna varð
hún fyrst fimleikamanna til að fá 10
í einkunn fyrir einstakar æfingar.
Ungverska útvarpið sagði að Com-
aneci hefði tjáð landamæravörðum
að hún hefði undirbúið flóttann. Tug-
ir þúsunda Rúmena hafa flúið til
Ungveijalands undanfarin tvö ár.
V. P. Singh, leiðtogi Þjóðfylkingarinnar og liklegur forsætisráðherra
(t.v.), og L. K. Advani, formaður Janatabandalagsins. Búist er við
nýrri ríkisstjórn í Indlandi nú um helgina.
Færeyjar:
Flughaftiardeilan leyst
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
MEIRA en mánaðarlöng vinnudeila á flugvellinum í Vogum í Færeyj-
um hefur nú verið til lykta leidd. I gærmorgun skrifuðu fulltrúar
Verkamannasambands Færeyja og Vinnuveitendasamtaka Færeyja
undir þrjá sérkjarasamninga vegna starfsfólks Flugfélags Færeyja.
Þar með hefur verkfollunum, sem lamað hafa mestalla uinferð um
flugvöllinn í næstuin þrjár vikur, verið aflýst.
Flugvöllurinn lokaðist þegar að. gerðir yrðu sérkjarasamningar
slökkviliðsmenn þar fóru í samúðar- fyrir það.
verkfall 7. nóvember. Venjuleg Það var svo ekki fyrr en vinnu-
flugumferð komst á aftur þegar veitencíasamtökin lýstu því yfir á
deiluaðilar hófu samningaviðræður mánudag að þau væru fús að gera
á ný fyrir síðustu helgi. sérkjarasamninga að skriður komst
Flugfélag Færeyja sér um hleðslu
og losun flugvéla á flugvellinum,
auk þess sem félagið rekur veitinga-
húsið þar og Hótel Voga. Nú hafa
verið gerðir sérkjarasamningar fyr-
ir starfsfólkið á þessum stöðum.
Samningaviðræðurnar hófust í júní-
mánuði, en þegar þær sigldu í
strand hinn 25. október síðastliðinn
fór starfsfólk Flugfélags Færeyja í
verkfall. Sama dag gekk flugfélagið
í Vinnuveitendasamtök Færeyja og
gerði það stöðuna enn flóknari.
Vinnuveitendur kröfðust þess.að
aðalkjarasamningur- þeirra og
verkamannasambandsins gilti einn-
ig fyrir starfsfólk á flugvellinum,
en verkamannásambandið heimtaði
■ LOS ANGELES. Tollverðir á
flugvellinum í Los Angeles fundu í
gær tímasprengju í tösku sem
fara átti með þotu kólumbíska flug-
félagsins Avianca Airlines. Var þot-
an á leið til Kólumbíu með millilend-
ingu í Mexíkóborg. Aðeins tveir
dagar eru frá því Boeing 727-þotu
Avianca með 107 mönnum innan-
borðs var grandað með sprengju.
m DZAOUDZI. Lífvörður forseta
á Comoro-eyjum, sem eru í Ind-
landshafi við Afríku, hefur tekið
öll völd í landinu í sínar hendur,
að sögn erlendra stjórnarerindreka
í höfuðborginni, Moroni. í liðinu eru
um 650 manns og er hvítur mála-
liði, Bob Denard, yfirmaður þeirra
og sagður ráða mestu í landinu í
reynd. Síðastliðinn mánudag bárust
fréttir af því að forsetinn, Ahrned
Abdallah, hefði verið myrtur en
óljóst er hver var þar að verki.
Þú
sparar
með
= HÉÐINN =
VÉLAVERSLUN, SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER
0HITACHI
Stereo sjónvarp
25“ 2 x 20 wött með
fjarstýringujlatskjá
og teletext. Fyrir SUPER-VHS.
Verð frá: 116.200*
Stereo sjónvarp
21 “ 2 X 20 wött, fjarstýring,
flatskjár og stafrcenar
upplýsingar á skjá.
Verð frá: 93.900*
* Miðað við staðgreiðslu.
,K í i:n- v lUKUve
Fyrir stórar VHS spólur,
í tösku með öllum fylgi-
hlutum, m.a. tölvu.
Verðfrá: 168.600*
Tökuvél
í tösku
Fyrir stórar 111S spólur.
Afar Ijósnœm, einstakt verð.
'erö frá: 128.200*
RONNING
Myndbandstœki
Með 69 stöðva minni og
fjarstýringu
Verðfrá: 54.600*
Viö erurn ekki bara hagsUeðÍr... KRINGLAN ...við ertm betri. S: 68 58 68