Morgunblaðið - 30.11.1989, Page 38
3$
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1989
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Sól ogskuggi
Það að allri Sól fylgir skuggi
er eitt af lögmálum lífs okk-
ar. Við getum orðað þetta
öðruvísi og sagt að öllum
hæfileikum fylgi neikvæðar
hliðar. Ef við höfum hæfileika
þurfum við sjálfkrafa að var-
ast skuggahlið þeirra. Maður
sem hefur skipulagshæfiieika
lendir óhjákvæmilega í því að
vera stundum ofskipulagður.
Ef hann temur sér alltaf að
skipuleggja fyrirfram getur
hann orðið stífur. Þegar
óvæntar aðstæður koma upp
og þess er krafist að teknar
séu ákvarðanir einn, tveir,
þrír, lendir hann í vandræð-
um. Hann getur tapað hæfí-
leikanum til að bregðast sjálf-
krafa og fljótt við. Þegar hann
hefur ekki kerfí til að styðjast
við er hann handalaus. Marg-
ir sem eru fordóm ilausir geta
hæglega lent í siðferðilegri
baráttu. Hvar á að setja mörk-
in, hvað á að viðurkenna?
Áður en hann veit af er hann
farinn að leggja biessun sína
yfir vafasamt athæfi. Hin
hliðin á frelsis- og sjálfstæðis-
þörf er ábyrgðarleysi. Get ég
ekki hæglega lent í því að
bregðast ábyrgð, í vinnu,
gagnvart fjölskyldu eða börn-
um, þegar ég krefst þess að
vera fijáls og óháður?
Skipulagsárálta
Við segjum kannski sem svo:
„Jú, ég hef þessa hæfíleika
og það getur vel verið að ég
hafí einhverjar skuggahliðar.
Og hvað með það? Eg tek þá
áhættu, enda mitt mál. En er
það einungis okkar mál?
Hugsum okkur fjölskyldufóð-
ur, skipulagða Steingeit.
Kona hans er eirðarlaus og
tilbreytingarþurfí Bogmaður.
Steingeitin vill hafa vaðið fyr-
ir neðan sig og skipuleggur
allt sitt líf og jafnframt líf
fjölskyldunnar. I sumarfríi er
ákveðið að taka „flug og bíl“.
Og Seingeitín liggur yfír
Jandakortinu vikum saman og
teiknar inn leiðina sem þau
ætla að fara. Við höndina
hefur hann „Guide to Europe-
an Hotels and Hostels — for
30$ a day“. Það er vissara
að vera búinn að fínna öll
bestu og ódýrustu hótelin áð-
ur en lagt er upp. Og hvað
er svo sem rangt við það?
Ekkert að mati Steingcitar-
innar. En hefur þú tekið eftir
því að konan ,er orðin ansi
þung á brúnina?
Annaö sjónarhorn
Það sem skiptir máli í framan-
sögðu er að þegar við þurfum
að starfa með öðrum verðum
við að gera okkur grein fyrir
því að það sem er okkur eðli-
legt getur verið neikvætt fyrir
annan aðila. Ef við ætlum að
starfa saman verðum við að
gera málamiðlanir. í dæminu
hér að framan fór konan í
heimsókn til vinkonu sinnar.
Þar fór eftirfarandi fram: .„Ég
bókstaflega þoli hann Guð-
mund ekki. Nú er hann búinn
að eyðileggja ferðina með
þessu skipulagsbijálæði sínu.
Ég er alveg að kafna. Skipu-
leggja þetta og skipuleggja
hitt.“
Þarfir annarra
Það er málið. Þegar Tvíburi
og Bogmaður dansa á milli
blóma í leit að hunangi, gcta
þau sært Naut, Krabba og
Steingeitur þessa heims. Þeg-
ar þau síðartöldu liggja á
gleðinni og hreyfast ekki úr
sporunum særa þau Bogmenn
og Tvíbura. Margar styijaldir
þessa heims og ekki síður
skilnaði og eyðilögð börn má
rckja til hugsunar- og skiln-
ingsleysis. Þegar við þvingum
orku okkar yfír á konu, böm
og samstarfsfélaga, hljótum
við að launum hatur fyrir. Við
þurfum því að skoða gerðir
okkar. Og þar á meðal eðlileg-
ar athafnir, með tilliti til þarfa
annarra.
GARPUR
PPjOFESSöR 77l~DeH,/WRAND4 06
J/SNOm NAt-GAST SENOIneiSKA
GÖSTAÐINN-
TANOHl, HáR. Efit 9U
STADUK. þ/AIAI - -
VANHAGAE. Þ/6
U/M EITTHVAÐ ? . T
7 /WNNSIC/
E/NHVEKJAR.
/HANNKyNSfOdO
] GEWgéSA
/HAR6T'OUEZT(//H
HEIM yacAP
GRETTIR
HH. BOTTÖMLINE, STAH.FS-
i FÉOA6AK.. ÞlÐGBT/D EEJCf
//VryNDAÐ vkjcue hveaa/k/Ð Þess/
VEÞOLAON KCVHA /HÉK 'A óhaet/
AÐ kJKTA / KaRL-
/HANNSVESK/ £/?
fiLVEG S/VS
spennano / OS/B
K/kJA i BADHEH-
BEEG/SSHApiNN hans
HVERN/6
ÞÍKAD/ ÞÉR.
pAD EEE/NHVEH
KbTADl / HHND.
TÖSKUNN/
þ/NN! 7*
i ^ ~
{,<r.
TALANDI U/H
TÖSKU/Z _ F4NN
LÖ6&AKN GAUFHNN
SEM STAL HANO -
w ^/ ] s- \ \ ^ 1
ÞtANN LIKUST
FÖÐUK SÍNUAt
/VieiR.
OG /MEIR
MtmT II ul /0-7
rcnuiivMiMU
SMAFOLK
UJI4V ARE YOU ALUIAYS 50
ANXI0U5 TO CRITICIZE ME ?
rzc
© 1989 United Feature Syndicate. Inc.
I Jl)5T THINK I HAVE A
KNACK FOR 5EEIN6 OTHER
PEOPLE'5 FAULT5..
UJHAT V I MAVE A
A60UT YOUR f KNACK FOR
OUUN 10VERL00KIN6
FAULT5? A THEM..
*
Af hverju ertu alltaf svona áfjáður Ég held bara að ég hafí lag á að sjá En hvað um þína eigin galla?
í að gagnrýna mig! íralla annars fólks . s ...,.
galla annars fólks ...
Ég hef lag á að leiða þá hjá mér ...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Samingurinn er þijú grönd
og útspilið hjartakóngur. Þar á
sagnhafi lOx í blindum og ÁGx
heima. Það þykir ekki sérlega
gáfulegt að dúkka með slíka
samsetningu, en allt í brids á
sér undantekningar:
Suður gefur; NS á hættu.
Vestur
♦ K6
VKD982
♦ D52
+ 853
Norður
♦ D1073
¥ 103
♦ K84
+ ÁG92
II
Suður
♦ ÁG5
¥ ÁG6
♦ ÁG3
+ D1076
Austur
♦ 9842
¥754
♦ 10976
+ K4
Vestur Noröur Austur Suður
— — — 1 grand
Pass 2 lauf Pass 2 tíglar
Pass Pass 3 grönd Pass Pass
Útspil: hjartakóngur.
Spilið er fjallsterkt, en gæti
þó tapast ef báðir svörtu kóng-
amir liggja til andskotans og
hjartað 5-3. Segjum að sagnhafi
drepi á hjartaás, fari inn á blind-
an á tígulkóng og spili spaða á
gosann. Vestur drepur og spilar
litlu hjarta. Sagnhafi sér aðeins
átta slagi og fær aldrei þann
níunda í þessari legu.
Suður fórnar hugsanlega slag
með því að dúkka hjartakónginn.
En hann græðir á móti tíma til
að bijóta báða svörtu litina. Og
ef vestur heldur hjartasókninni
áfram rofnar sambandið í litnum
þegar hjartanu er spilað í þriðja
sinn. Fallegur stílbijótur.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Hollenski stórmeistarinn Jan
Timman (2.635) býr sig nú af
kappi undir úrslitaeinvígi áskor-
endakeppninnar gegn Anatoly
Karpov fyrmm heimsmeistara
sem fram fer í London í marz.
Dagana 10. og 11. nóvember tefldi
hann tvær skákir við Júgóslavann
Ljubomir Ljubojevic (2.625) í
Delft í Hollandi. Fyrri skákinni
lauk með jafntefli, en í þeirri
seinni fórnaði Timman snemma
peði og hafði síðan svart. og
átti leik í þessari stöðu:
28. — Re6!, 29. dxe6 (Þetta leið-
ir beint til taps, en það var heldur
ekki glæsilegt að hafna fórninni
og hleypa riddaranum til g5 eða
d4. Bezti möguleiki hvíts var
líklega 29. Dxc3l?) 29. - Hxf3,
30. Rcl - De3+, 31. De2 - c2,
32. Hd2 — Dc3! (Nú getur hvítur
ekki varist báðum hótunum
svarts, 33. — Db2 og 33. — He3.
Hann reyndi:) 33. e7 — He3, 34.
Bh3 — He8 og þar sem hvíta
drottningin er fallin vann Timman
auðveldlega. Hann hefur gott tak
á sínum gamla félaga Ljubojevic.
Þeir byijuðu um svipað leyti að
verða fastagestir á alþjóðlegum
mótum, eða upp úr 1970. Timman
er tæplega 38 ára gamall, en
Ljubojevic 39. Fyrir tæpum tveim-
ur árum tefldu þeir sex skáka ein-
vígi og sigraði þá Timman 4 — 1