Morgunblaðið - 30.11.1989, Side 48

Morgunblaðið - 30.11.1989, Side 48
48 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAQUR 30. NOVEMBER 1989 /rj sl3&.sltz. Sinn... þú á.tt ekJd (X& slá. ut y-fir netgir&inguna." Ást er ... «/*' ... aðlyfta sérá tær. TM Reg U.S. Pat Off.—atl rights reserved ° 1909 Los Angeles Times Syndícate Starrar eru svartir og basta. Skiptir ekki máli þó einhver komi með tískulit. Læknir! Mér finnst það óeðlilegt að í hvert skipti sem ég reyni að rífast við manninn minn fer hann að sýsla við frímerkjasafhið sitt... Við kyssum ekki á vöndinn Til Velvakanda. í tilefni þess, að nokkrir þing- menn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram frumvarp á Alþingi þess efnis, að hinn illræmdi „ekkna- skattur" verði afnuminn, langar mig að senda Morgunblaðinu grein- arstúf til birtingar. Sjálf er ég ein þeirra, sem hafa orðið hart úti vegna þessarar laga- breytingar sl. vetur. Eignarskattur minn margfaldaðist, svo að síðari hluta þessa árs hef ég orðið að greiða nokkra tugi þúsunda króna mánaðarlega í þessa eignar- skattshit. Þetta hefði mér ekki tekist, ef ég hefði ekki strax um áramót reiknað út,_hver skattbyrði mín yrði á árinu. Ég treysti betur eigin útreikningi heldur en fögrum orðum þeirra, sem lögðu á okkur þessa byrði og reyndu síðan, eink- um á vordögum, að telja okkur trú um, að nýju eignaskattslögin breyttu engu fyrir okkur. Þess vegna tók ég ekkert sumarfrí og hef reynt allt árið eftir megni að spara dagleg innkaup. Einnig hafði ég dregið saman ofurlitla flárapp- hæð, sem átti að fara til viðhalds á gamla húsinu mínu á árinu 1989. Þetta viðhald varð að bíða’ til að ég gæti greitt „ekknaskatt- inn“. í þessu sambandi vil ég geta þess, að síðan maðurinn minn dó, hef ég notað þá fjármuni, sem ekki fara til daglegra þarfa og skatt- greiðslna,,til viðhalds á húsi mínu. Peningum hef ég ekki eytt í ferða- lög. Meira en áratugur er síðan ég hef farið til útlanda, þrátt fyrir endurtekin heimboð gamalla vina frá námsárum mínum erlendis. Og til sólarstranda hef ég aldrei lagt leið mína. Þegar rætt hefur verið eða ritað um „ekknaskattinn" hafa nokkur mikilvæg atriði gleymst. Þijú þeirra langar mig að nefna: 1. Mörg hús í gamla bænum, sem nú eru orðin 60-70 ára gömul, eru reist á eignarlóðum, sem metnar eru á milljónir króna. Lóðin mín er ekki stór. Samt er fasteignamat hennar árið 1989 nær 3 milljónir króna. Lóðin gefur ekkert af sér, en hennar vegna hækkar eignarskattur minn mikið. 2. Þessi gömlu hús eru mörg þann- ig hönnuð, að það er nær óger- legt að taka leigjendur til að afla tekna. Nefna má, að víða eru stigar milli hæða í miðjum íþúðum og salerni einnig. 3. Ég er svo heppin að hafa at- vinnu hluta úr degi, þó að mér eins og mörgum öðrum finnist, að kaupið mætti vera hærra. Ef ég vil hafa lengri vinnudag verð ég að skipta um starf. Fyrir fólk á mínum aldri liggur sæmileg vinna ekki á lausu, jafnvel þó að allgóð ménntun og starfsreynsla sé fyrir hendi. Að öllu þessu athuguðu, virðist mér, að þeir alþingismenn, sem greiddu þessari auknu og ósann- gjörnu skattheimt.u atkvæði sitt, hljóti að ætlast til, að við einstæð- ingarnir seljum eignir okkar og flytjum í aðrar minni. Það er alls óvist, að það takist, einkum þegar dýr eignarlóð fylgir með. Við, sem erum ekkjur og ekklar, eram auk þess oft bundin þessari eign okkar þeim tilfinningaböndum, sem mjög sárt er að þurfa að slíta. Margar dýrmætar minningar, sem við vilj- um umfram allt varðveita, tengjast heimili og innbúi. Heimilin eru lika friðhelg. Með ósanngjörnum skattaálögum ætti því engum að leyfast að neyða pkkur til að af- sala okkur þeim. I lýðfijálsu landi hlýtur það að vera viljaákvörðun okkar hvers og eins, hvenær við flytjum úr gamla húsinu okkar eða íbúðinni í aðra minni. Ég vona að þeir, sem við höfum kosið til þingstarfa, skilji þetta og telji okkur, sem misst höfum maka okkar eða erum einstæð af öðrum Hvað er Til Velvakanda. í sambandi við súrefni í hita- veituvatni í Breiðholtshverfi sem ollið hefur tjóni á ofnum vil ég segja eftirfarandi. Hjá mér hafa bilað tveir ofnar og er ég innti viðgerðarmanninn um orsakir spurði hann hvort ég ætti heima í Breiðholti sem og er. Sem sagt, það hefur verið stanslaus straumur í lengri tíma af fólki að koma með ofna í viðgerð sem hafa bilað í Breiðholtshverfi. Samkvæmt þessu mega' íbúar í þessu hverfi eiga von á bilunum af þessu tagi um ókomna framtíð, hve lengi er ekki hægt að segja til um. orsökum, líka menn, með sömu réttindi og hjón eða sambúðarfólk. Mörg okkar, sem höfum lifað meira en hálfa mannsævi, erum að vísu ekki leikin í kröfugerð til annarra. Við ólumst upp við að gera kröfur til okkar sjálfra. Námslán voru þá engin. Við urðum að spjara okkur sjálf, ef við hugð- umst stunda framhaldsnám. Síðan höfum við unnið fyrir því, sem við eigum og borgað skatta og skyldur af tekjum okkar og eignum, áratug eftir áratug, án þess að mögla, því að við höfum talið okkur búa í þjóðfélagi þar sem sanngirni og réttlæti væri í hávegum haft. Ég vona, að eftir allar þær umræður og blaðaskrif, sem átt hafa sér stað um „ekknaskattinn", hafi einhveijir þingmenn, sem greiddu honum atkvæði áður, skipt um skoðun. Við, einstæðingarnir, teljum okkur eiga rétt á slíkri sanngirni, þar sem reynslan er nú búin að sýna og sanna, hvílíkt ok hann er á herðum margra. Að lokum vil ég minna á, að ýms okkar, sem nú erum að sligast undan skattbyrðinni, hafa á liðnum árum greitt atkvæði þeim stjórn- málaflokkum, sem nú beita okkur bolabrögðum. Enn höfum við kosn- ingarétt. Og það hefur aldi'ei samrýmst íslenskri skapgerð að kyssa á vöndinn. Síst af öllu þegar ráðist er að því, sem okkur er kærast. Einstæð ekkja í gamla bænum til ráða? Óvissan er verst, að vita ekki hvænær von er á þessu. í bæði skiptin sem þetta gerðist hjá mér var ég heima og lítill skaði varð. í fyrra skiptið stóð til að fara í ferð til útlanda í þijár vikur sem þó ekki varð af. En daginn eftir að ég hefði farið bilaði fyrri ofn- inn. Hvað hefði skeð ef enginn hefði verið heima og ofninn hefði sprungið? Hversu mikil hefði eyði- leggingin orðið? Hvað á maður að gera? Er fólki ráðlagt að skipa um ofna hjá sér á nokkura ára fresti? Hvað segir Hitaveita Reykjavíkur um þetta mál. Steingrímur HOGNI HREKKVISI Víkverji skrifar * rmorgunþætti á Rás 2 á þriðjudag- inn var rætt við hvunndagshetju, sem svo var nefnd, 11 bama móður úr Borgarfirði eystri. Konan var meðal annars beðin að lýsa venjuleg- um degi í lífi sínu meðan bömin voru að alast upp. Ekki fannst konunni ástæða til að hafa mörg orð um þá daga, þetta var vinna og ekkert sér- stakt til að tala um. Hún lagði áherslu á að hún hefði gefið bömunum tíma, talað við þau og amman á heimilinu hefði gjaman raulað fyrir börnin. Umsjónarmaður þáttarins spurði konuna hvort hún ætti einhver heil- ræði fyrir mæður, sem teldu sig hafa það slæmt og mikið að gera með eitt eða tvö börn. Konan á Borgar- firði svaraði eitthvað á þá leið að í hennar huga væri aðalatriðið að gefa börnunum tíma og tala við þau. Henni virtist mikið skorta á að svo væri og ekki væri nóg að hafa mörg herbei'gi og fylla þau með leikföng- um, meira ináli skipti að gefa börnun- um tíma. Ekki nein ný visindi, en öragglega umhugsunarefni fyrir marga. xxx Atvinnuleysi og gjaldþrot hafa mjög verið til umræðu á þessum haustdögum og hafa nokkrir staðir verið meira í sviðsljósinu en aðrir. Þannig hafa atvinnumál verið of- arlega í huga á Akureyri og þá með- al annars tengst óvissunni hjá Slipp- stöðinni, en einnig standa ýmis önnur fyrirtæki höllum fæti. Fréttamaður á Akureyri hafði á orði við skrifara að svo dauft væri yfir öllu að vart gerð- ist nokkuð fréttnæmt á staðnum þessar vikur annað en í tengslum við erfiðleika og atvinnuleysi. Sagði hún atvinnuleysisdrauginn sem vofði yfir setja svip sinn á allt bæjarf'élagið. Atvinnuleysi í einni fjölskyldu hef- ur áhrif á fjölda fólks í næsta ná- grenni hennar og sömu sögu er að segja um gjaldþrot fyrirtækja. í fjöl- miðlum er yfirleitt aðeins sagt frá annairi hlið slíkra mála, þ.e. sjálfu gjaldþrotinu og hversu mikið tap stærstu lánardrottna hafi verið. I hvetju einasta gjaldþrotamáli tapar Ijöldi fólks og fyrirtækja Ijárhæðum, sem skipta viðkomandi veralegu máli. Þó ríkið bæti launakröfur starfsmanna tekur sinn tíma, snún- inga og stapp að fá slíkar kröfur greiddar. Viðmælandi Víkveija frá Suður- eyri við Súgandaflörð hefur Ijóram sinnum á síðustu fimm árum unnið hjá fyrirtækjum sem orðið hafa gjald- þrota, ýmist á Suðureyri eða annars staðar. Nú á hann veralegra hags- muna að gæta gagnvart fyrirtækinu Freyju á Suðureyri, sem útlit er fyr- ir að takist að bjarga frá gjaldþroti. Hann hefur orðið fyrir þungum bú- siljum vegna fyrrnefndra gjaldþrota- mála, en heldur baráttunni ótrauður áfram og trúir á Suðureyri framtíð- arinnar, sem blómlegan stað í grennd við gjöful fiskimið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.