Morgunblaðið - 16.12.1989, Síða 44

Morgunblaðið - 16.12.1989, Síða 44
MéfebtiíjSiÍÁÖíft1 tiÁ'uWÁ'áfyÁbti'á Vb.1 óí§éííöér iW M ATVIN N tMAUGL YSINGAR Húshjálp/„au pair“ Við óskum eftir húshjálp. Við erum hjón með 3 börn, Nicholas 16 ára, Charlotte 8 ára og Camillu 5 ára og búum í nýuppgerðu gömlu húsi í miðbæ Bergen. Æskilegur aldur um- sækjanda er 18-20 ára. Reykingar eru ekki æskilegar. Sérherbergi með baði, útvarpi og sjónvarpi fylgir. Viðkomandi þarf að geta byrjað fljótlega eftir nýárið og ráðningartími fer eftir samkomulagi. Við erum í sambandi við íslendingaféiagið í Bergen. Sendið umsóknir til: Gryog Ole Giæver-Enger, Blauuwsvei 7, 5018 Bergen, Norge. Sími: (5)-312343. Starfsfólk óskast ívaktavinnu Upplýsingar í síma 37737. Múlakaffi. Sjúkrahús Skagfirðinga, Sauðárkróki Ljósmæður Óskum að ráða Ijósmóður til starfa sem fyrsl eða eftir nánara samkomulagi. Húsnæði á staðnum. Allar nánari upplýsingar veitir hjúkrunarfor- stjóri á staðnum eða í síma 95-35270. HUSNÆÐIIBOÐI Til leigu 385 fm iðnaðarhúsnæði við Eirhöfða. Tvenn- ar innkeyrsludyr. Mikil lofthæð. Steypt upp- hituð plön. Laust strax. Upplýsingar í síma 25775 eða 37581. ra BATAR — SKIP Kvóti Karfakvóti óskast til kaups. Upplýsingar í síma 92-46540. Kvóti til sölu 25 tonn af þorski og 12 tonn af ýsu. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir kl. 12.00 miðvikudaginn 20. desember merkt: „Kvóti - 976“. TIL SÖLU Rennibekkur Til sölu MAS-rennibekkur. Heildarlengd 3 metrar. Upplýsingar í síma 45951. FUNDIR - MANNFA GNAÐUR Aðventukvöld í Lágafellssókn Aðventukvöld í safnaðarheimilinu 17. des- ember kl. 20.30. Dagskrá: Doktor Sigurbjörn Einarsson flytur hugvekju. Hornaflokkur skólahljómsveitar Mosfellsbæjar leikur. Kirkjukór Lágafellssóknar flytur ýmis lög. Stjórnandi GuðmundurÓmarÓskarsson. Kaffiveitingar. Sóknarnefnd Lágafellssóknar. TILKYNNINGAR Þrasastaðaætt í Ijós hefur komið að nokkur eintök af bókum, sem sendar-hafa verið til niðjanna, eru með prentsmiðjugalla (auðar síður og brot á síðum). Fólk er vinsamlega beðið um að athuga bækur sínar vel og láta vita í síma 91-68 81 70 ef það hefur fengið gallaðar bækur. Útgáfusjóður niðjatals Bergs Jónssonar og Katrínar Þorfinnsdóttur. ______ Frá Bæjarskipulagi Kópavogs ^7 Smiðjuvegur2 Breitt deiliskipulag Tillaga að breittu deiliskipulagi á lóðinni Smiðjuvegur 2 auglýsist hér með samkvæmt gr. 4.4. í skipulagsreglugerð nr. 318/1985. Tillagan felur í sér byggingu átta hæða at- vinnuhúsnæðis á horni Smiðjuvegar og Skemmuvegar. Uppdráttur, skýringamyndir og greinargerð verða til sýnis á Bæjarskipulagi Kópavogs, Fannborg 2, 3. hæð, frá kl. 9.00 til 15.00 alla virka daga frá 18. desember 1989 til 19. janúar 1990. Athugasemdum eða ábendingum ef ein- hverjar eru skal skila skriflega til bæjarskipu- lags innan auglýsts kynningartíma. Skipulagsstjóri Kópavogs. TILBOÐ - UTBOÐ kSRARIK BmL ^ RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS RAFMAGNSVEITUR RlKISINS Útboð Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirfarandi: RARIK-89007 Aflstrengir, stýristrengir og ber koparvír. Opnunardagur: Þriðjudagur 23. janúar 1990 kl. 14.00. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagns- veitna ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, fyrir opnunartíma og verða þau opnuð á sama stað að viðstöddum þeim bjóðendum, er þess óska. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Raf- magnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með þriðjudegi 19. desem- ber og kosta kr. 300,- hvert eintak. Reykjavík 15. desember 1989. Rafmagnsveitur ríkisins. NAUÐUNGARUPPBOÐ Nauðungaruppboð Þriðjudaginn 19. desember 1989 fara fram nauðungaruppboð á eftirtöldum fasteignum i dómssal embættisins, Hafnarstræti 1, og hefjast þau kl. 14.00: Urðarvegi 66, ísafirði, þingl. eign Halldórs Antonssonar, eftir kröfu Samvinnusjóðs fslands. Annaö og sfðara. Trésmíðaverkstæði og steinaverkstæði við Grænagarð, isafirði, þingl. eign Kaupfélags ísfirðinga, eftir kröfu Iðnlánasjóðs. Annað og síðara. Verksmiðjuhús við Sundahöfn, ísafirði, þingl. eign Niðursuðuverk- smiðjunnar, eftir kröfu Iðnlánasjóðs. Annað og síðara. Bæjarfógetinn á ísafirði. Sýslumaðurinn í Isafjarðarsýslu. 5JALFSTIEDISFLOKKURINN F É L A G-S S T A R F Akureyri - Akureyri Bæjarmálafundur verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 18. des- ember kl. 20.30. Nefndarmenn og varamenn í nefndum eru sérstak- lega hvattir til að mæta. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins. Kópavogur - jólaglögg Sameiginlegt jólaglögg sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi verður hald- ið laugardaginn 16. desember í Hamraborg 1, 3. hæð kl. 20.30. A dagskránni er létt tónlist og piparkökur en einnig er þetta góður tími til að glöggva sig á framboðsmálum í Kópavogi. Félögin. Sjálfstæðismenn Seltjarnarnesi Munið að skila heimsendum seðlum forkönnunar sjálfstæðisfélag- anna vegna væntanlegs framboðslista fulltrúaráðsins fyrir bæjar- stjórnakosningarnar 1990. Seðlunum ber að skila á skrifstofu sjálf- stæðismanna, Austurströnd 3, í dag laugardag og á morgun sunnu- dag milli kl. 16.00 og 20.00. Allir stuðningsmenn á Nesinu geta gerst félagar og tekið þátt í forkönnuninni. Upplýsingar í síma 61-12-20 á opnunartíma. Sjálfstæðisfélögin. Fjölskyldujólafundur sjálfstæðisfélaganna í Keflavík sunnudaginn 17. desember kl. 19.00 á Hringbraut 92. Dagskrá: 1. Jólasnarl „A la Axel“. 2. Fjölbreytt jóladagskrá. Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti. Sjálfstæðisfélögin i Keflavik. FfWij Stefnismenn Hafnarfirði Jólaknall ungra sjálfstæðismanna á Stór-Reykjavíkursvæðinu, verður haldið í kjallara Valhallar laugardaginn 16. desember. Skemmtunin hefst kl. 20.30 og stendur fram eftir nóttu. I boði verða I^Jtar veiting- ar, skemmtun og góður félagsskapur. Stefnismenn fjölmennum. Stjórnin. Jólaknall ungra sjálfstæðismanna Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavik, Huginn í Garðabæ, Týr í Kópa- vogi, Stefnir í Hafnarfirði, Vilji í Mosfellsbæ og Baldur á Seltjarnarnesi halda sameigin- legt jólaknall í kjallara Valhallar, Háaleitis- braut 1 í Reykjavik, laugardaginn 16. des- ember. Sérstakir gestir samkomunnar verða þeir Árni Sigfússon, Davíð Stefáns- son, Ólafur Þ. Stephensen og Sigurbjörn Magnússon. Húsið verður opnað kl. 20.30. Heimdallur, Huginn, Týr, Stefnir, Vilji og Baldur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.