Morgunblaðið - 16.12.1989, Page 53

Morgunblaðið - 16.12.1989, Page 53
4 « f f u f f ■ j f + esei wmmsasi æi HuoAcraAouAj ðraMawuofloií- MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1989 53 Loðnubresturinn: Hátt afiirðaverð kemur bræðslum að litlu gagni MARKAÐSVERÐ á loðnuafurðum er nú með allra hæsta móti. Lýsistonnið selzt á um 18.000 krónur, en mjöltonnið á 34.000. Þetta háa verð kemur að litlu gagni fyrir framleiðendur hér á landi, þar sem veiði og um leið framleiðsla er lítil sem engin. Eftirspurn eft- ir mjöli er umfram framboð og lýsisalan gengur vel þeim, sem lýsi eiga. Skýringar eru að mestu tvær. Nánast engin veiði hér og hjá Norðmönnum og miklir erfiðleikar í Perú vegna verkfalla. Vegna aflabrestsins hafa íslenzkar fiskimjölsverksmiðjur misst af mögulegum útflutningi svo nemur tugum tonna, en til haustsins var útflutningur meiri en undanfarin ár og verð hátt. Um síðustu mánaðamót höfðu verksmiðjurnar flutt út um 70% af útflutningi síðasta árs og er þá átt við alla framleiðslu þeirra, ekki aðeins loðnuafurðir, sem þó vega langmest í framleiðslunni. Alls fluttu verksmiðjurnar utan 172.427 tonn af mjöli á síðasta ári, en um mánaðamótin nú höfðu 121.000 tonn farið utan. Lýsisút- flutningurinn hefur dregizt meira saman. í allt var hann í fyrra 87.296 tonn, en er nú 45.671 eðá 52%. Samkvæmt upplýsingum Jóns Ólafssonar, framkvæmda- stjóra Félags íslenzkra fiskmjöls- framleiðenda, hafa verksmiðjurnar misst af tæplega 10.000 tonna mjölútflutningi miðað við sama mánuð í fyrra og nær 8.000 tonn- um af lýsi. í desember í fyrra voru flutt utan 23.500 tonn af mjöli og 17.300 tonn af lýsi. Jón segir enga von til að vinna það magn upp í desember og því sé ljóst að tekj- utap þessa mánuði sé, samanborið við sama tíma í fyrra, gífurlegt. Hvort úr rætist með mikilli veiði eftir áramót viti auðvitað enginn. Fiskifélag íslands hefur unnið upp tölur yfir allan útflutning loðnuafurða árin 1986 til ’88 og til septemberloka í ár. Athyglivert er hve mikill útflutningur hefur verið þetta tímabil í ár. Alls voru flutt utan með ýmsum hætti 226.500 tonn að verðmæti 4,9 milljarðar króna. Það er meira að virði en allur útflutningur síðasta árs, sem skilaði 4,7 milljörðum króna. Mestu munar um mikla aukningu á frystingu loðnu og loðriuhrogna. í fyrra voru flutt utan 301.800 tonn alls, 155.900 tonn af mjöli, 99.300 af lýsi, 42.900 fersk, 1.900 af frystum hrognum og 1.600 af heilfrystri loðnu. Loks má nefna 55 tonn af söltuðum hrognum. Andvirðið var 4,7 milljarðar. Til loka september í ár voru flutt utan 109.700 tonn af mjöli, 51.000 af lýsi, 58.000 fersk, 4.400 heilfryst og 3.300 af hrognum. Andvirðið er 4,8 milljarðar. Sé útflutningur- inn árin frá 1986 tekinn til loka september, kemur í ljós að þetta ár er magnið næstmest, en verð- mæti langmest, enda töluverðar gengisbreytingar milli ára. Loðnuvinnslan 1988: SR, Austfirðing’ar og Eyjar bræða mest Móttekið hráefiii á loðnuvertíð 1988 Nafn fyrirtækis Síldarverksmiðja ríkisins, Sigluf irði Fiskimjölsverksm.Hraðfr.húss Ólafsfjarðar Síldarverksmiðjan Krossanes, Akureyri Síldarverksmiðja ríkisins, Raufarhöfn Fiskimjölsverksmiðja H.Þ., Þórshöfn Fiskimjölsverksm. Tanga hf. Vopnafirði Síldarverksmiðja ríkisins, Seyðisfirði Hafsíld, Seyðisfirði Síldarvinnslan hf., Neskaupstað Síldarverksm. Hraðfrhúss. Eskifj. hf. Síldarverksmiðja ríkisins, Reyðarfirði Fiskimjölsverksmiðja Hornafjai-ðar hf. Fiskimjölsverksmiðjan hf., Vestmeyjum Fiskimjölsverksmiðja E.S., Vestmeyjum Fiskimjöl & lýsi hf., Grindavík Njörðurhf., Sandgerði Valfóður (MELTA), Njarðvík Lýsi & mjöl hf., Hafnarf irði Síldar- & fiskimjölsverksm. hf., Reykjavík Síldar- & fiskimjöisverksm. hf., Arnarnesi Síldar- & fiskimjverksm. EG, Bolungarvík Færeyjar Noregur Skotland Danmörk Fryst í beitu og til f iskeldis Til frystingar vegna útflutning Fryst hrogn Urgangur vegna hrogna í Grindvíkingi Samtals Samt. vertíð 94.998 5.145 44.952 55.521 32.771 10.134 71.090 38.351 84.180 93.491 29.972 26.294 69.085 56.929 38.647 9.293 3.566 5.512 26.042 38.950 26.867 22.104 10.804 7.161 3.494 333 3.092 1.910 1.150 911.838 SHIRLEY MACLAINE LEITIN iríN AVIÐ Leiðsögn til innri þroska Enn kemur shirley maclaine LESENDUM SÍNUM Á ÓVART MEÐ ÓTRÚLEGUM FRÁSÖGNUM AF FÓLKIER FRAMKVÆMIR HLUTISEM ERU 0FAR MANNLEGUM SKILNINGI. LEITININN Á VIÐ ER ÆVINTÝRALEG FERÐ Á VIT OKKAR SJÁLFRA 0G LEIÐSÖGN HVERJUM ÞEIM ER LEITAR LEIÐATIL BETRALlFS. BOKAFORLAGIÐ BIRTINGUR LISTAJÓL BORG Pósthússtræti 9, Austurstræti 10, sími 24211.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.