Morgunblaðið - 16.12.1989, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 16.12.1989, Qupperneq 64
wmpAmw- m. Kveðjuorð: Bjarni F. Halldórsson fyrrv. skólastjóri Fæddur 6. mars 1922 Dáinn 6. desember 1989 Vinur minn, Bjarni F. Halldórsson, var kvaddur í gær. Lát hans kom mér mjög á óvart. Tilvera mannsins er víst þannig að enginn veit sín örlög fyrirfram né heldur hvenær hann hverfur úr þessum heimi yfir á lendur óendanleikans. Leiðir okkar Bjarna lágu fyrst jaman haustið 1962 þegar stofnaður var gagnfræðaskóli í Keflavík og ég var ráðinn þar skólastjóri, en Bjarni kennari. Þennan nýja skóla sóttu fyrst í stað unglingar aðallega úr Keflavík og Njarðvíkum. Bjarni var þá kennari við barnaskólann í Njarðvíkum. En við þá fækkun sem varð er unglingarnir úr Njarðvíkum fóru í nýja skólann í Keflavík fluttist staða sú sem Bjarni hafði í Njarðvík að nýja skólanum og þar með hófst samstarf okkar Bjarna sem stóð um 20 ára skeið. Ég hygg að hvorugan okkar hafi grunað haustið 1952 að við ættum framundan svo náið sam- starf sem síðar varð. Og það yrði okkar hlutskipti meira en annarra að móta og byggja upp Gagnfræða- 'Skólann í Keflavík. Bjarni sem fyrst var kennari gerðist síðar yfirkennari við skólann um langt árabil. Hann varð þar áhrifamikill í ýmsum málum er snertu skólann beint og óbeint. Hann var skólastjóri skólans veturinn 1962-63, en þá var ég í ársleyfi frá störfum. Bjarni var viðskiptafræðingur að mennt, gáfaður og fróður á ýmsum sviðum utan sérgreinar sinnar. Hann var glaðlyndur og félagslyndur mað- ur að eðlisfari, Ijúfur í skapi og til- yögugóður sem vildi öllum vel og hafði lag á að miðla málum þegar þess þurfti með. Hann var góður kennari og vel liðinn af nemendum sínum. Hann stjórnaði meira með lagni og festu en hörku og nemend- um skynjuðu góðsemina í fari hans og Virtu hann fyrir það. Þeir vissu að hann vildi veg þeirra sem mestan, en rétt skyldi þó farið að hlutunum. Undirferli og baktjaldamakk var Bjarna lítt að skapi. Ég á Bjarna mikið og margt að þakka. Ég þakka honum fyrir sanna vin- áttu sem ekki er hægt að meta vegna þess að hún er ómetanleg. Einnig þakka ég honum fyrir samstarf og samvinnu í gegnum árin. Hann var mér góður aðstoðarmaður, ráðhollur og traustur í vandasömum málum sem upp komu og var ótrauður að taka á sig ábyrgð að sínum hluta er af þeim leiddi. Það var mikil eftir- sjá í honum er hann hvarf frá gagn- fræðaskólanum til þess að gerast skólastjóri við barnaskólann í Njarðvíkum árið 1973. Góðir og nýtir menn vinna góð störf hvar sem þeir eru. Þeirra er alls staðar þörf. Eftirsjá okkar er mikil þegar þeir hverfa á braut. Bjarni F. Halldórsson var einn slíkur maður. Blessuð sé minning hans. Við hjónin vottum Guðrúnu konu hans, börnum þeirra, tengdabörnum og barnabörnum okkar dýpstu sam- úð. Rögnvaldur J. Sæmundsson fyrrverandi skólastjóri Gagn- fræðaskólans í Keflavík. Tíminn, hlýðinn þjónn örlaganna, vinnur verk sitt skilvíslega, án til- finninga, án manngreinarálits. Hann skilar okkur öllum af kaldri blindni til áningarstaða og að síðustu til leið- arloka, eftir því sem hveiju okkar er fyrirbúið, og enginn í’æður sjálfur sólsetri eða næturstað. Þessu verðum við að una, eigum ekki annars kost. Hins vegar trúum við því og treyst- um, að forsjónin kunni alltaf bestu lausn allra hluta, þó að ýmsum þyki hart undir að búa um sinn og dyljist rétt rök í svip. Kallið kom snögglega til vinar míns og bekkjarbróður, Bjarna F. Halldórssonar. Vel má segja, að hon- um hafi verið dæmdur fagur og mild- ur dauði, að mega kveðja jarðvistina á heimili sínu og í návist konu sinnar, meira að segja í fullu fjöri og án langra harmkvæla, énda varð hann drengilega við dauða sínum að hætti fornra garpa. Sjálfur var hann garpur mikill og vaskleikamaður, hnellinn og hnar- reistur, og kominn var hann af sæ- görpum Hornstranda og Snæfjalla í ættir fram. Hann fæddist á Hesteyri í Jökulfjorðum 6. mars 1922, en ólsfc—' upp á ísafirði. Fundum okkar bar fyrst saman, þegar hann þreytti próf utanskóla upp í 3. bekk Menntaskól- ans á Akureyri vorið 1938, en síðan vorum við fjóra vetur saman í bekk. Bjarni var ágætur námsmaður, en sérstaklega var hann elskur að mál- fræði og þá einkum íslenskri mái- fræði og málsögu. Ég minnist þess, að veturinn, þegar við vorum í 4. bekk, las hann Norron Grammatikk eftir Ragnvald Iversen sér til skemmtunar á kvöldin, og öll menntaskólaárin var hann meðal bestu og hörðustu íslenskumanna skólans. Þó fór svo eftir stúdentsprófið 1942, að hann lagði ekki fyrir sig málvísindi, heldur hóf hann nám í viðskiptadeild Háskóla íslands og lauk prófi í þeim fræðum með heiðri og sóma árið 1947. Öll þessi skólaár vorum við góðir vinir og félagar og tókum m.a. marg- ar góðar borðtennissyrpur saman í kjallaranum á Nýja Garði. Alltaf var Bjarni glaður og hláturmildur, ljúfur og lundgóður. Aldrei varð neitt illt eða Ijótt fundið í fari hans, því að hann var samiur maður og heill og drengur hinn besti. Svo fór, að Bjarni fékkst ekki lengi við viðskiptastörf, þó að hann hefði menntast til þeirra. Eðlið sagði til sín, maðurinn var rakinn húmanisti og menntastefnumaður. Eftir ársvist sem skrifstofustjóri í Reykjavík gerð- ist hann kennari suður með sjó, og veit ég ekki betur en hann hafi lengst af haft dönsku að aðalkennslugrein. Hann lagði sig allan fram við að verða fyirmyndarkennari í þeirri tungu og tókst það. Bæði stundaði hann dönskunám við heimspekideild Háskóla íslands og þar að auki var hann orlofsár við dönsku- og uppeld- isfræðinám í Kennaraháskólanum í Kaupmannahöfn. Bjarni var piýðis- vel að sér og kennari af köllun og guðs náð. Slíkir uppfræðarar eiu blessunar- og þakkarefni íslenskri þjóð og ómetanlegir ungri kynslóð, sem foreldrarnir hafa gefið sér tak- markaðan tíma til að ala upp. Þeir eiga þó ekki allir upp á pallborðið hjá einstrengingslegum skólastefnu- mönnum nútímans, ef þeir hafa ekki pappírana og leyfisbréfin sín í lagi, mega ékki einu sinni kalla sig kenn- ara. Suðurnesjamenn sáu fljótt, hvílíkan hvalreka þeir höfðu fengið á fjörur sínar, og mátu Bjarna mik- ils. Hann var kennari við Miðskólann í Njarðvík 1949-1952, Gagnfræða- skóla Keflavíkur 1952-1962, skóla- stjóri 1962-1963 og yfirkennari 1963-1973. Þá gerðist hann skóla- stjóri Grunnskólans í Njarðvík og gegndi þeirri stöðu í 10 ár eða til 1983. Munu það sannmæli kennara, foreldra og nemenda, að hann hafi unnið tii og notið þakklætis, virðing- ar og vinsælda fyrir störf sín að skólamálum í þessum byggðarlögum og að þeirri muni þar verða lengi minnst. Til að drýgja tekjur heimilisins rak Bjarni hin síðari ár fasteignasölu í Keflavík, og síðustu árin mun hann eingöngu hafa haft framfæri af henni. Ma segja, að loksins hafi gamla viðskiptabókvitið verið í askana látið. En Bjarni stóð ekki einn. Hann átti góða konu, sem var honum mik- ill félagi og studdi hann með ráðum og dáð. Hún heitir Guðrún S. Björns- dóttir, ættuð frá Breiðafirði. Þau gengu í hjónaband 22. febrúar 1947 og hafa alið upp 6 börn sín og kom- ið til manns. Húsakynnin voru þröng stundum framan af og efnin eftir því, en ánægjan og lífsgleðin aldrei af skornum skammti. Sumarið 1953 vann ég við bikbræðslu á Keflavíkur- flugvelli, oft langan vinnudag, og hélt til við óhijálegar aðstæður í Landshafnarhúsinu í Njarðvík, við áttunda mann í herbergi. Mér leidd- ist mjög, og það vissu Guðrún og Bjarni. Þau bjuggu þá ekki allfjarri í lítilli kjallaraíbúð og börnin orðin fjögur, að heita mátti sitt á hveiju árinu. En það var alltaf hægt að bæta við einum í kvöldkaffi, og þess naut ég oft, var alltaf velkominn á þetta litla, hlýja heimili þessara glað- væru, hjartagóðu hjóna og barnanna þeirra til að spjalla yfir kaffibolla við eldhúsborðið. Og stundum vildi teygjast á þessu spjalli fram á sumar- bjarta nóttina, því að við Bjarni vor- um þá báðir eldheitir þjóðvarnar- menn, þó að við ynnum á Vellinum eða kannski vegna þess. En ég verð þeim Guðrúnu og Bjara ævinlega þakklátur fyrir atlætið þetta sumar. Án þess hefði þessi Suðurnesjadvöl fjarri mínu fólki orðið mér býsna þungbær. Bjarni var góður og traustur bekkjarbróðir og rækti vel samband- ið við hópinn frá MA 1942, sótti vel samkomur bekkjarins og var þar hrókur alls fagnaðar. En nokkuð hefir kvistast úr þeim græna skógi, enda langt liðið á fimmta áratuginn, frá því að við hlupum frá prófborði út í vordaginn langan með hvíta kolla í miðri heimsstyijöld. Tíminn hefir.þegar skilað mörgum okkar á leiðarenda. Og nú var röðin komin að Bjama Fertram. Fyrir fáum árum átti ég stutt símtal við Bjarna á afmælisdegi hans og spurði þá, eins og menn spyija oft hver annan, hvernig honum liði. Svarið var stutt og laggott: „Hvernig ætti mér að líða öðmvísi en vel, við- góða heilsu og með hreina sam- visku?“ Þarna tjáði hann á nútímamáii þá hugsun, sem höfundur Hávamála orðaði svo á sinn hátt á sínum tíma: „.. .heilyndi sitt, ef maður hafa náir, án við löst að lifa.“ Og þarna var Bjarna Fertram rétt lýst. Þannig tókst honum að lifa. Þess vegna leið honum vel, meðan lifði. Bestu kveðjur okkar bekkjarsystkinanna fylgja honum á leið, farsældaróskir og þökk fyrir löng og glöð kynni. Blessuð sé minning góðs vinar. Sverrir Pálsson Minning: * Sigurbjörg Asgeirs- dóttir Seyðisfírði Fædd 23. ágúst 1909 Dáin 8. desember 1989 „Dáinn, horfinn, harmafregn". Þegar ég heyrði lát Sigurbjargar fyllist hugur minn söknuði og trega, þó þakka ég Guði fyrir að hún fékk að sofna svefninum langþiáða, því hennar þrek og kraftar voru búnir, þó ég hefði viljað óska að okkar sam- verustundir hefðu getað orðið fleiri. Sigurbjörg var ein af hinum miklu hetjum okkar lands, sem þó bar lítið á. Hún ólst upp með móður sinni í vinnumennsku hingað og þangað, sem vinnu var að fá í þá daga. Sem barn og unglingur kynntist Sigur- björg þrotlausri vinnu, þegar hún svo sem ung stúlka giftist og fór að búa, hélt sú vinna áfram við fátækt, basl og erfiðleika ýmiskonar. Hún rnissti mann sinn frá fjórum börnum og erfiðleikarnir héldu áfram. Það voru oft erfíð spor hennar gegnum lífið, svo erfið að fáum hefði tekist eins vel og henni að axla þær byrðar allar. Allt það lífs- og sálarþrek sem Sigurbjörgu var gefið er aðdáunar- yert. Hún eignaðist fimmtán börn, en missti tvö á unga aldri. Hún reyndist bömum sínum góð móðir og var vakin og sofin yfir velferð þeirra. Það getur hver maður séð hvort ekki hefur verið langur vinnu- dagurinn hjá Sigurbjörgu með börnin sín öll í iitlu húsnæði og sárri fá- tækt, en aldrei kvartaði hún, aldrei , heyrðist æðruorð, hún vann verk sín í hljóði í orðsins fyllstu merkingu. Strax þegar börnin komust á legg fóru þau að vinna fyrir sér og eru öll hinir nýtustu borgarar. Sigurbjörg stóð fyrir búi sínu og seinni manns síns, Kristjáns Þórðarsonar, þar til fyrir fáum ámm að hún varð fyrir áfalli og varð að fara á sjúkrahús Seyðisfjarðar. Það var henni sár raun, en hún bar harm sinn í hljóði eins og oft áður. Það var ákaflega erfitt fyrir hana eftir þetta áfall að hún gat ekki nema takmarkað tjáð sig, en hún fylgdist vel með hvað var að gerast í kringum hana og skildi allt hvað talað var við hana mjög vel. Fótavist hafði hún fram á það síðasta og henni fannst mjög gaman að fara í bíltúr með manni sínum, Kristjáni, sem reyndist henni mjög umhyggjusamur enda mat hún hann mikils. Ég fór austur í sumar með syni hennar, Gesti, en milli þeirra ríictu miklir kærleikar alla tíð. Hún var glöð og hress, þetta var rétt fyrir áttatíu ára afmælið hennar. Hún kom með okkur í bíltúr, hún benti okkur á bátana á firðinum, kindumar við vegkantinn og lækina sem runnu niður hlíðina, hún brosti og gleðig- lampi var í augunum. Þessi ánægju- stund tók enda sem var sú síðasta sem við áttum saman. Við kvöddum hana, hún sat í stól út við glugga sem vísar út á planið sem við lögðum bílnum, ég stóð dálitla stund við bílinn og sá að hún sneri sér við og veifaði okkur. Þessi og aðrir sam- fundir okkar Sigurbjargar eru mér ógleymanlegir. Þetta eru mér dýr- mætar perlur í mínum minningasjóð. Sigurbjörg var stórbrotinn persónu- leiki, góð eiginkona, móðir og amma. Ég þakka henni fyrir alla þá blíðu og umhyggju sem hún sýndi mér frá því ég kynntist henni. Eiginmanni hennar, börnum, tengdabömum og barnabörnum sendi ég samúðarkveðjur. „Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt.“ (V. Briem.) Ásta Gunnarsdóttir Föstudaginn 8. desember síðastlið- inn lést í Sjúkrahúsi Seyðisfjarðar Sigurbjörg Ásgeirsdóttir, Lönguhlíð, Seyðisfirði. Þar með lauk alllöngu sjúkdómsstríði tengdamóður minnar. Er ég sest niður og minnist Sigur- bjargar nokkrum orðum, minnist ég hennar fyrst og fremst fyrir einlægni hennar, kraft og ótrúlegan dugnað í gegnum lífið, sem var henni oft og tíðum ekki neinn dans á rósum, en hún átti sína gleði fyrst og fremst í afkomendum sínum. Sigurbjörg fæddist 23. ágúst 1909 í Loðmundarfirði, foreldrar hennar voru Ásgeir Sigurðsson, ættaður frá Þerney, og Guðrún Sigurðardóttir, ættuð frá Yijum á Rangárvöllum. Sigurbjörg giftist Magnúsi Friðriks- syni árið 1930 og bjuggu þau á Þráhdarstöðum, Eiðaþinghá. Magn- ús lést árið 1937 og fluttist Sigur- björg þá til Seyðisfjarðar. Síðar gift- ist Sigurbjörg Kristjáni Þórðarsyni frá Seyðisfirði, er lifir konu sína. Hjónaband þeirra var alla tíð einlægt og saman var barist í lífsbaráttunni, sem ekki var ávallt svo léttbær, því ekki voru hin veraldlegu efni svo mikil. Sigurbjörg eignaðist 15 börn, tvö dóu ung og eru 13 á lífí, en þau eru: Sigurður bankastarfsmaður, Eskifirði, hann á 3 börn, Sigurborg, hjúkrunarfræðingur, Hafnarfírði, en hún á 5 börn, Magnús Hörður, verka- maður í Keflavík, sem á 2 börn, Guðrún Ása, bankastarfsmaður, Reykjavík, hún á 5 börn, Knútur, sjómaður á Seyðisfírði, hann á 3 börn, Kjartan, sjómaður á Seyðis- firði, hann á 3 börn, Gestur bensínaf- greiðslumaður í Reykjavík, á 1 barn, Kristbjörg, kaupmaður, Reykjavík, á 4 börn, Gunna Sigríður, húsmóðir á Seyðisfirði, en hún'á 4 börn, Sveinn trésmiður á Seyðisfirði, á 2 börn, Kristín húsmóðir í Landeyjum, hún á 4 börn, Hjörtur vélvirki í Reykjavík, hann á 3 börn, Sigurbjörn rafvirki á Seyðisfírði, hann á eitt barn. Nú eru langömmubörnin orðin 24 og afkom- endur Sigurbjargar eru því orðnir 79 samtals. Vissulega er þetta stór barnahópur, og oft var þröngt í búi er börnin voru að alast upp, en kröf- urnar þá voru líka ekki eins miklar og nú tíðkast. En börnin fengu aftur á móti það veganesti með sér sem mölur og ryð fá ei grandað. Og vissu- lega hafa þau ávaxtað það „pund“ er þau fengu á heimili sínu, ekki síst frá móður sinni, er var ótrúlega ósér- hlífín og dugleg. Ekki var hún bless- unin að klæða sig eftir neinni tísku heldur gekk í því sem hentaði henni til inni- og útiverka í sveitinni. Ég minnist þess hve lærdómsríkt var að heimsækja hana heim f litla húsið hennar fyrir utan Seyðisfjörð, það var hennar yndi að vinna í úti- verkum við heyannir og annað sem til féll. Þær stundir man maður best er hún ræddi við fullorðna og börn í heyskap. Þar leið henni vel og þar var hún í því umhverfi sem hún dáði mest. Nú síðustu tvö árin dvaldi Sigur- björg að mestu á Sjúkrahúsi Seyðis- fjarðar og hrakaði henni sérstaklega ört síðustu mánuðina. Þó virtist helst birta yfir henni er yngsta kynslóðin heimsótti hana, þá var sem hún átt- aði sig á hlutunum og kannaðist við þau. Vil ég hér með koma á fram- færi innilegu þakklæti til starfsfólks Sjúkrahúss Seyðisfjarðar fyrir alla þá umönnun og fórnfýsi er þar var í té látin til að gera henni lífið léttara. Nú er Sigurbjörg er látin er gott og lærdómsríkt að minnast hennar sem hinnar dæmigerðu íslensku al- þýðukonu sem ekki gerði miklar kröfur til lífsins, var sátt við allt og alla og öllum þótti innilega vænt um. Ég vona að nú þegar Sigurbjörg hefur kvatt þetta tilverustig megi hún ávallt hafa það sem best.á Guðs vegum. Guð blessi minningu Sigurbjargar Ásgeirsdóttur. Jón Kr. Óskarsson Leiðrétting I fyrirsögn á minningargrein um Steinþór Ó. Siguijónsson á fimmtu- daginn var, slæddist með starfs- heitið bifreiðastjóri, án þess að geta átt við um hann. Starfsvettvangur Steinþórs var annar. Er beðist vel- virðingar á þesum mistökum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.