Morgunblaðið - 16.12.1989, Síða 60
M0UGyx\^I^pit),,LA^G4HPA(;pK 16. DESEMBEK 1989 ,,
60 p
KARLAMANNAFÖT
Nýir litir, ný snið. Verð kr. 9.900,-
Terylenebuxur, stærðir uppí 128 cm.
Verð kr. 1.995,-til 2.480,-
Sokkar og bindi. Skyrtur, stærðir 39-46.
Úlpur, blússur, peysur, hattar og húfur.
Mikið úrval, gott verð.
Andrés, Skólavörðustíg 22a, s. 18250.
----------
Borðstofuborð og 4 stólar
Verð kr. 62.000,- afb. Kr. 56.000,- stgr.
Aukastóll kr. 5.700,- stgr. Greiðslukortaþjónusta.
Opiðtil kl. 22.00 íkvöld
Armúla «. símar: 8-22-75
JÓLAGJÖF VÉLSLEÐAMANNSINS
GOÐAR
VETRARVÖRUR
FRÁ
ARCTIC CAT
Samfestingar
..Hanskar
Hjalmar
Einnig mjöggott úrval aukahluta
Opið laugardag frá kl. 9-12
Alll detta og miklu meira
BIFREIÐAR & LaNDBÚNAÐARVÉLAR HF
Ármúla 13 - 108 Reykjavík - s- 681200
Suúiirlanúsiraut 14
Afinæliskveðja:
Kristín Jespersdóttir
Saga áttræðrar konu vestan af
fjörðum er saga frumstæðra bú-
skaparhátta í sveit, saga fiski-
manna við ysta haf, fólks, sem lifði
við kröpp kjör og eilífa baráttu við
náttúruöflin. Sumir dóu fyrir aldur
fram.
Kristín Jespersdóttir fæddist á
Suðureyri við Súgandafjörð 16. des-
ember 1909. Foreldrar hennar voru
Rósinkransa Sveinbjörnsdóttir og
Jesper, ættaður frá frá Önundar-
firði. Stína var aðeins hálfs annars
árs þegar faðir hennar lést. Systir
hennar var aðeins eldri. .Ekkjan
unga kynntist skömmu síðar ungum
skipstjóra, Sigurði Samsonarsyni,
ættuðum frá Breiðarfirði, og stofn-
uðu þau _bú á Suðureyri. Fluttust
síðan á Ísafjörð og bjuggu þar í
nokkur ár. Þaðan fluttu þau að
Selárdal í Súgandafirði. Þar ólst
Stína upp, en 17 ára gömul réðst
hún í vist til útgerðarmanns og
kaupmanns á mölinni, Örnólfs
Valdimarssonar, og konu hans,
Ranghildar. Ári síðar réðst hún í
vist til þingmannsins Ásgeirs Ás-
geirssonar og frú Dóru að Laufási
í Reykjavík. Þessi tvö ár við heimil-
ishjálp á myndarlegum heimilum
komu í staðinn fyrir nám í heimilis-
fræðum , eins og það heitir í dag,
að sjálfsögðu mótað á grunni hins
hefðbundna bændasamfélags, þar
sem ungar stúlkur ólust upp við
þjóðlega hefð í hannyrðum og mat-
argerð.
Stína Jespers giftist ung Þórði
Ljóð eftir Ing-
ólf Jónsson frá
Prestsbakka
SKÁKPRENT hefúr gefið út
Ijóöabókina Litir regnbogans eft-
ir Ingólf Jónsson fi-á Présts-
bakka.
í þessari bók era 33 ljóð frá síðustu
árum, en þetta er sjötta ljóðabók
Ingólfs. Sú fyrsta, Bak við skugg-
ann, kom út 1949. Síðan komu
Feykishólar 1966, Við 1977, Væng-
ir draumsins 1977, og Blikar jóla-
stjarna 1985.
Eini Þórðarsyni á Suðureyri. Þau
gerðu sér hreiður í risherbergi hjá
foreldram Einis á Símstöðinni, sem
nú er hús Sparisjóðs Súgfirðinga,
en höfðu aðgang að eldhúsi á neðri
hæðinni hjá gömlu konunni, Siggu
Einars. Kolavél var í eldhúsinu, en
olíuvél og flautuketill á eldhús-
bekknum. Bekkur fyrir þijá eða
fjóra var áfastur við vegg fjær eld-
húsglugganum. í þessum bekk var
moðkista með hólfum, hæfilega
stórum fyrir pottana. Þarna var
grautnum haldið heitum, þangað til
soðningin var tilbúin.
Brúðarsvíta ungu hjónanna á ris-
hæðinni ilmaði af hreinlæti. Þarna
var tvíbreitt rúm, málað eins og
væri úr eðalviði; servantur, hvar á
stóð feiknarmikil skál úr rósamuns-
traðu postulíni, og í skálinni stóð
gjarnan kanna ein mikil j sama stíl,
full af vatni. Og undir rúminu var
postulínskoppur með rauðum rósum
allt í kring. Fyrir ofan rúmið var
látúnslampi með sveigjanlegum
armi, og í peruhöldunni var keðja
og með henni var hægt að dimma
eða lýsa ljósið að vild. Auk nokk-
urra blóma voru auk þessa í svítunni
fótstigin saumavél og harmon-
ikkubeddi, sem hægt var að koma
fyrir aftan við rúmið, ef gestir
þurftu að fá svefnpláss um lengri
eða skemmri tíma.
í litlu samfélagi við ysta haf þró-
ast gjarnan samkennd meðal
manna, tiltekið hugarþel og
bræðralag, þar sem eigin hagsmun-
Ingólfúr Jónsson
ir víkja fyrir nauðsyn þess að rétta
náunganum hjálparhönd. Þessi
nauðsyn verður að vana. Þessi vani
verður yndi og líf margra sein eitt-
hvað geta af hendi reitt. Að gera
öðrum gott. Hjálpa náunganum,
Veita ofurlítilli gleði inn í líf ann-
arra. Gefa án þess að ætlast til
nokkurs af öðrum.
Þannig hýstu þau hjón þijú 'fóst-
urböm Rósu og Sigurðar í Selár-
dal, hvert á eftir öðru, meðan þau
voru í barnaskólanum á Suðureyri,
þau Jensínu, Sigurlínu og undirrit-
aðan. Fræðin vora lesin við sauma-
vélina hennar Stínu. Gengið var í
gegn um eldhúsið hjá Gústu, mág-
konu Stínu, inn í risherbergið. Þætti
sumum að sér þrengt á vorum vel-
sældardögum. Bót í máli að barna-
skólaveran var stutt í þá daga.
Sveitabörn byijuðu 9-10 ára í skóla,
vel læs, og tóku gjarnan „fullnaðar-
próf“ árið fyrir ferminguna.
Og auðvitað var þetta ekki bara
svefnpláss. Við voru fædd ogklædd.
Á okkur var saumað það sem sauma
þurfti, allt frá fæðingu og fram að
þeim tíma, er maður fór að vinna
sér inn aura og kaupa sér föt á
ísafirði. En oft var saumað úr
gömlu.
Skörhmu eftir stríðið eignuðust
þau Stína og Einir dálitla viðbygg-
ingu við „Stöðina" og tóku sér fóst-
urson, Kristján Karl Norðmann.
EM1414
• 600 Watta meö stiglaus-
um orkustilli
• 21 Itr. með 27.5 cm
snúningsdiski
• 60 mín. tvöföld klukka
• Ryðfrítt stál að innan
KR.21.370.
stgr.
ORBYLGJUOFNAR
EM1614
• 600 Watta með 5 orku-
þrepum
• 21 Itr. með 27.5 cm
snúningsdiski
• 99 mín. klukka og „timer“
• 2 þrepa vinnsluminni, af-
þýðing og forhitun ofl.
KR. 25.630.
stgr.
JAPÖNSK
FRAMLEIÐSLA
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suöurlandsbraut 16 • Sími 680780