Morgunblaðið - 06.04.1990, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1990
2
Umhverfísráðuneytið:
Páll Lín-
dal ráðu-
neytísstjóri
Umhverfísmálaráðherra hefur
ákveðið að skipa Pál Líndal lög-
fræðing í umhverfísráðuneytinu
í starf ráðuneytisstjóra. Hann
hefur þó ekki tilkynnt það form-
lega í ríkisstjórninni enn.
Morgunblaðið náði ekki tali af
Júlíusi Sólnes umhverfísmálaráð-
herra í gær þar sem hann var er-
lendis, en Steingrímur Hermanns-
son forsætisráðherra staðfesti að
frá þessari þessari stöðuveitingu
hefði verið gengið á miðvikudag.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er þessi stöðuveiting
mjög umdeild. Umsóknarfrestur
rann út sl. laugardag og sóttu 20
manns um starfið.
Steingrímur Hermannsson sagð-
ist treysta þvi, að umhverfismála-
ráðherra hefði athugað allar um-
sóknimar mjög nákvæmlega því þar
á meðal væru margar frá afar
hæfum mönnum sem mjög erfítt
væri að ganga framhjá.
Innanlandsflug
Flugleiða:
Hætt við
lh ferða í mars
Endahnútur bundinn á aðgerðir til bjargar Þórshöfii:
Týr afstað á Alparósahátíð
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Áhöfn varðskipsins Tys við brottför til Norfolk í Bandarikjunum í gærkvöldi en þar munu
varðskipsmenn taka þátt í svokallaðri Alparósahátið 17.-22. apríl nk. Helgi Hallvarðsson er
skipherra á Tý í þessari ferð og á innfelldu myndinni sést hann kveðja barnabarn sitt,
Guðnýju Erlu.
vegna veðurs
FLUGLEIÐIR þurftu að fella nið-
ur 20% af áætluðum ferðum
sínum innanlands vegna veðurs
í marsmánuði. Á sama tíma í
fyrra voru 18% af áætluðum ferð-
um innanlands felldar niður af
sömu ástæðu.
Að sögn Einars Sigurðssonar
fréttafulltrúa Flugleiða voru farnar
heldur færri ferðir innanlands í
marsmánuði nú m.a. vegna þess að
í fyrra voru páskamir í mars.
Flug gekk betur í janúar og febr-
úar í ár en sömu mánuði í fyrra.
Vigdís set-
ur ráðstefiiu
í Monaco
FORSETI íslands, Vigdís
Finnbogadóttir, fer áleiðis til
Monaco í dag.
Forseti flytur þar setningar-
ræðu á ráðstefnu, sem haldin
er af ferðamálasamtökum Evr-
ópu í tilefni af Ferðamálaári
Evrópu 1990.
Steingrímur J. Sigfússon,
samgönguráðherra, verður í
fylgd forseta íslands og tekur
þátt í ráðstefnunni.
Kópavogur:
Byggðastofiiun lánar til hluta-
Qárkaupa í Utgerð
STJÓRN Byggðastofiiunar samþykkti í gærkvöldi 70 milljóna króna
lán til Hraðfrystistöðvár Þórshafiiar, til að leggja fram sem hlutafé í
Utgerðarfélagi Norður-Þingeyinga á Þórshöfii. Hraðfrystistöðin tekur
nú yfir rekstur Utgerðarfélagsins og þar með útgerð togarans Stak-
fells. Með þessari afgreiðslu er bundinn endahnúturinn á aðgerðir til
að leysa vanda Þórshaftiar vegna mikilla skulda Útgerðarfélagsins.
Guðmundur Mahnquist forstjóri Byggðastofiiunar segir að eftir þetta
sé Hraðfrystistöðin sæmilega vel statt fyrirtæki.
í aðgerðunum vegna þórshafnar milljóna króna byggðastyrk til Út-
felst að lánardrottnar Útgerðarfé-
lagsins gefí eftir 45-50 milljóna
króna skuldakröfur. Þá mun Hluta-
fjársjóður Byggðastofnunar skuld-
breyta með B-hlutdeildarskírteinum
120 milljónum króna af skuldum
fyrirtækisins. Loks mun Byggða-
stofnun leggja fram samtals 85 millj-
óna króna lán og byggðastyrk.
Stjórn Byggðastofnunar sam-
þykkti í gærkvöldi að 40 milljónir
af skuldum Útgerðarfélagsins yrðu
greiddar með B-hlutdeildarskírtein-
um. Auk þess samþykkti stjómin
heimild til forstjóra að lána allt að
70 milljónir króna til Hraðfrysti-
stöðvar Þórshafnar, eins og áður
sagði, og verði lánið tryggt með veði
í Stakfelli. Loks samþykkti stjómin
að fjármagna til bráðabirgða 15
Samningar undirritaðir
um byggingu íþróttahúss
króki og hefur boðist til að gera það
áfram, að sögn Guðmundar Malmqu-
ist, þar sem skiptar skoðanir séu um
hvort borgi sig að opna Dalvíkurstöð-
ina aftur.
Guðmundur sagði einnig að vanda-
mál fóðurstöðvanna væru óviðráðan-
leg fyrir Byggðastofnun, ef stjórn-
vold tryggi ekki að skuldabréf, sem
bændur hafa gefið út til fóðurstöðv-
anna, komist í verð. Þessi skuldabréf
eru hluti af heildarskuldbreytingu
refabænda og em ríkistryggð að
60%. Alls eru skuldir bænda við fóð-
urstöðvarnar um 100 milljónir króna.
gerðarfélagsins, en í bréfí forsætis-
ráðherra til Byggðastofnunar 21.
mars sl. var frá því skýrt að ríkis-
stjómin sé reiðubúin að beita sér
fyrir útvegun fjármagns til að veita
megi slíka styrki.
Hlutafjársjóður mun einnig skuld-
breyta með B-hlutdeildarskírteinum
um 85 milljónum króna af skuldum
Tanga hf. á Vopnafírði, og hefur
stjórn Byggðastofnunar samþykkt
að taka við 15 milljónum króna í
þeim bréfum.
Stjórn Byggðastofnunar fjallaði
einnig í gærkvöldi um vanda loðdýra-
fóðurstöðva en afgreiðslu var frestað
þar til í dag. Fóðurstöðin á Dalvík
er nú lokuð en Byggðastofnun hefur
greitt kostnað við að flytja fóður í
Eyjafjörð frá Melrakka á Sauðár-
Búlgörum synjað um landgöngu:
Töluvert um að útlend-
ingar sæki í atvinnu hér
HOPUR karlmanna frá Búlgaríu, sem kom hingað til lands á mánu-
dag með flugvél frá Kaupmannahöfii, var sendur úr landi aftur á
miðvikudagsmorgun. í hópnum, sem taldi 12 manns, voru flestir á
aldrinum 30-40 ára. Mennirnir munu hafa ætlað að leita fyrir sér
með vinnu hérlendis, en höfðu ekki til þess tilskilin leyfí. Töluvert
mun um að fólk komi hingað til lands í atvinnuleit án þess að hafa
orðið sér úti um dvalar- og atvinnuleyfí. Þá hefúr borið á því að
Pólverjar sæki í auknum mæli hingað.
Jóhann Jóhannsson, lögreglufull- fyrir og víða í Vestur-Evrópu. Þá
trúi hjá útlendingaeftirlitinu, sagði
að mennirnir hefðu komið hingað
til lands frá Búlgaríu, með viðkomu
í Kaupmannahöfn og verið í at-
vinnuleit. „Þar sem þeir höfðu ekki
tilskilin leyfi voru þeir sendir úr
landi aftur. Það tók einhvern tíma
að koma þeim um borð í vél að
nýju, en héðan fóru þeir á miðviku-
dagsmorgun, áleiðis til Þýska-
lands,“ sagði Jóhann. „Það er tölu-
vert um að fólk komi hingað til
lands í illa grundaðri atvinnuleit,
þar sem erfítt er um atvinnu heima
hefur einnig verið sótt í að flytja
inn vinnuafl. Það datt að vísu niður
að mestu síðastliðið haust, þegar
atvinnuhorfur fóru versnandi hér,
en nú er farið að bera á því í aukn-
um mæli. Sem fyrr er það fólk frá
nágrannalöndum okkar og flestir
fara til starfa í sjávarútvegi og
heilbrigðisþjónustu. Á þessu ári
hefur borið á því að Pólverjar hafi
sótt hingað í auknum mæli og það
er sjálfsagt helsta breytingin í þess-
um málum,“ sagði Jóhann.
UNDIRRITAÐIR voru í gær samningar milli Kópavogsbæjar, ríkis-
sljórnar íslands og Ungmennafélagsins Breiðabliks um byggingu og
rekstur fíölnota íþróttahúss í Smárahvammslandi í Kópavogi.
Jafnframt var undirritaður
samningur milli Handknattleiks-
sambands íslands og Kópavogsbæj-
ar um að íþróttamiðstöðin verði til-
búin fyrir heimsmeistarakeppnina í
handknattleik 1995. í samkomulag-
inu er ákvæði um að síðar verði
samið um leigugjöld og frekara
samstarf HSI og þæjarfélagsins.
Kostnaðaráætlun vegna íþrótta-
hússins hljóðar upp 640 milljónir
kr. Breytingar sem gerðar verða á
húsinu eftir HM ’95 í félagsaðstöðu
fyrir UBK og hluta af grunnskóla
hljóða upp 84 milljónir kr., bygging
2.040 fermetra sambyggðs skóla-
húss hljóðar upp á 173 milljónir kr.
og fullfrágengin bflastæði upp á 63
milljónir kr. Kostnaðaráætlun
vegna alls mannvirkisins hljóðar því
upp á 954 milljónir kr.
Framlag ríkissjóðs til miðstöðv-
arinnar er 300 milljónir kr. sem
greiðast á fjórum árum, hlutur UBK
er 54 milljónir kr. og hlutur grunn-
skóla er 290 milljónir kr. Kostnaður
Kópavogsbæjar er 310 milljónir kr.
sem bærinn fjármagnar með láni
til tólf ára sem fjármálaráðherra
hefur milligöngu um að útvega.
Gert er ráð fyrir að framkvæmd-
ir hefjist í ársbyrjun 1992 og á
miðstöðin að verða fullbúin 1. sept-
ember 1994.
Arkitektar hússins eru Valdimar
Harðarson, Páll Gunnlaugsson og
Árni Friðriksson hjá Arkitektum sf.
Minningargreinar
Að undanförnu hefur það færst
mjög í vöxt, að minningargreinar
berast til birtingar eftir útfarar-
dag og stundum löngu eftir jarð-
arför. Morgunblaðið áskilur sér
rétt til að birta ekki minningar-
greinar sem berast því eftir að
útför hefur farið fram.
Morgunblaðið hefur ekki birt
ný minningarkvæði um látið fólk,
en leyft tilvitnanir í gömul, áður
prentuð kvæði. Blaðið áskilur sér
rétt til að stytta þessar tilvitnanir
eða fella þær niður, ef þær eru
sífellt endurteknar í blaðinu. Þá
mun Morgunblaðið ekki birta heil
kvæði, áður birt, en stundum
fylgja óskir um það.