Morgunblaðið - 06.04.1990, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 06.04.1990, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1990 Píslargrátur Jóns biskups Arasonar: Fullkomlega auðskilið hverjum nú- tímamanni - segja lesararn- ir, Gunnar Ey- jólfsson og Bald- vin Halldórsson „ÞAÐ ER alveg óhætt að kalla þetta kvæði gimstein í íslenskum trúarkveðskap,“ segir Gunnar Eyjólfsson leikari um Píslargrát Jóns biskups Arasonar, sem hann les í kvöld ásamt Baldvini Hall- dórssyni leikara i Kristskirkju. „Þetta er afskaplega fallegt trú- arljóð og þrungið af guðsdýrk- un,“ segir Baldvin. Morgunblaðið ræddi við þá í til- efni af lestrinum og þeir voru spurð- ir hvort svo gamalt kvæði væri ekki orðið torskilið í dag. Gunnar segir að þótt kvæðið sé nærri fimm Stytta Jóns Arasonar á Munka- þverá. hundruð ára gamalt sé það fullkom- lega auðskilið hveijum nútíma- manni. íslenskan hefur ekki breyst meira en það á þessum tíma. Bald- vin tekur undir. „Það er ekki blett- ur í því sem maður ekki nær full- komlega," segir hann. Þeir lásu Píslargrát einnig í fyrra fyrir páskana. „Það á svo vel við að lesa það um þetta leyti, í síðustu vikunni fyrir dymbilviku. Þetta er svo réttur tími til að lesa Píslargrát því að þetta er í rauninni tími kvæð- isins,“ sagði Gunnar Eyjólfsson. Föstudaginn langa ber upp á 13. apríl: Tilvalið að nota þenn- an dag til útivistar - segir Árni Bjömsson þjóðháttafiræðingur „HUGMYNDIN um að fóstudagurinn 13. sé óheilladagur er ekki nema um 20 ára gömul hér á landi og hefur iiklega borist til landsins frá Ameríku," sagði Árni Björnsson þjóðháttafræðingur þegar Morgunblaðið spurði hann hvort það væri gömul þjóðtrú á Islandi að 13. dagur mánaðarins væri óheilladagur ef hann bæri upp á fóstudag, en föstudagurinn langi er einmitt 13. apríl næstkomandi. Árni benti á að föstudagur hefur verið talinn gæfudagur frá upp- hafi byggðar á íslandi. í heiðni var hann tileinkaður fijósemis- og ást- argyðjunni Freyju. Sá siður var tekinn upp eftir Rómveijum sem nefndu hann Venusardag. Eftir kristnitöku hélt föstudag- urinn áfram að vera gæfudagur í hugum fólks og má í því sambandi nefna að í þulu um dagana sem margir kannast við er sagt að föstudagur sé til fjár, laugardagur til lukku o.s.frv. „Menn forðuðust að byija hey- skap fyrr en seinni hluta vikunn- ar. Það var af einhveijum ástæðum talið heppilegra. Skýringin er líklega sú að heyskapurinn tók langan tíma og mikilvægt að hann byijaði vel. Menn hafa vafalaust líka fengið harðsperrur eftir fyrsta daginn og þá gott að hafa sunnu- daginn til að hvíla sig.“ Ámi sagðist ekki halda að ástæða væri til að láta það á sig fá þótt nú bæri föstudaginn langa upp á 13. dag mánaðarins. Nú væri dymbilvikan orðin mikil úti- vistarvika hjá landsmönnum og tilvalið að nota þennan dag til úti- vistar. Dymbilvikan hefði verið þrúgandi tími allt fram á 'síðustu ár og sagðist hann vera ánægður með þessa breytingu. Einar Þorgeirsson Lést í um- ferðarslysi MAÐURINN sem Iést í umferð- arslysi á Vesturlandsvegi að kvöldi þriðjudagsins hét Einar Þorgeirsson, til heimilis á Sæ- vangi 28 í Hafnarfirði. Hann var 41 árs gamall rafverk- taki. Einar Þorgeirsson lætur eftir sig eiginkonu og þijú börn. 1/EÐURHORFUR í DAG, 6. APRÍL YFIRLIT í GÆR: Austan- og norðaustanátt á landinu, allhvasst á stöku stað við suðurströndina, kaldi eða stinningskaldi vestanlands en mun hægari annars staðar. Él voru syðst á landinu og á Vest- fjörðum en víðast léttskýjað í öðrum landshlutum. Hiti var víðast nálægt frostmarki. SPÁ: Norðaustlæg eða breytileg átt, víðast gola eða kaldi en stinn- ingskaldi með suðausturströndinni fram eftir degi. Él suðaustan- lands, á annesjum norðanlands og á Vestfjörðum en yfirleitt létt- skýjað annars staðar. Frost 0-8 stig, mildast suðaustanlands, kald- ast í innsveitum. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG: Hæg breytileg átt og léttskýjað á landinu. Frost 2 til 10 stig og víða enn meira næturfrost. HORFUR Á SUNNUDAG: Fremur hæg suðvestlæg eða breytileg átt og léttskýjað á Norður- og Austurlandi en þykknar upp vestan- lands síðdegis með vaxandi suð- eða suðvestanátt. Hlýnandi veð- ur, einkum sunnanlands og vestan. TAKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað y, Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. r r r r r r r Rigning r r r * r * r * / * Slydda r * r * * * * * * * Snjókoma * * * 10° Hitastig: 10 gráður á Celsíus Skúrir * V El — Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur —Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri +2 skýjað Reykjavík 1 skýjað Bergen 4 haglél Helsinki 3 úrkoma Kaupmannah. 7 léttskýjað Narssarssuaq +16 hálfskýjað Nuuk +7 skýjað Osló 6 skýjað Stokkhólmur 5 skýjað Þórshöfn 2 léttskýjað Algarve 15 rigning Amsterdam 6 snjóél Barcelona 10 skýjað Berlín 7 snjóél Chicago 3 alskýjað Feneyjar vantar Frankfurt 7 léttskýjað Glasgow 6 rigning.suld Hamborg 7 skýjað Las Palmas 23 hálfskýjað London 9 léttskýjað LosAngeles 13 alskýjað Luxemborg vantar Madrid vantar Malaga 18 súld Mallorca 18 skýjað Montreal 2 slydda New York 8 skýjað Orlando 11 heiðskírt París 9 léttskýjað Róm 16 skýjað Vín 9 rigning Washington 9 léttskýjað Winnipeg +9 léttskýjað Toshiki Toma leiðir Helgu Soffiu Konráðsdóttur til altaris í Dómkirkjunni í Reykjavík. Kvenprestar gáfii saman prestlært par í DÓMKIRKJUNNI í Reykjavík fór fram all sérstæð gifting s.l. laugardag þegar Helga Soffia Konráðsdóttir og Toshiki Toma voru gefín saman í hjónaband, en þau eru bæði prestlærð. Tveir kvenprestar önnuðust vígsluna, þær Solveig Lára Guðmundsdótt- ir og Myako Þórðarson, sem er af japönsku bergi brotin. Sr. Helga Soffía var prestur Is- lendinga í Svíþjóð í fjögur ár. Hún lét af því starfi um síðustu áramót og hyggst nú flytjast búferlum með eiginmanni sínum til borgar- innar Nagoya í Japan þar sem hánn tekur við prestsembætti. Helga Soffía sagði í spjalli við Morgunblaðið að þau hefðu kynnst á ferðalagi í Jerúsalem. „Solveig Lára gaf okkur saman og henni til aðstoðar var Myako sem lagði spurningarnar fyrir Toshiki á jap- önsku. Þær eru báðar góðar vin- konur mínar þannig að athöfnin varð fyrir vikið enn skemmtilegri," sagði Helga Soffía. Faðir og bróðir Toshiki komu til íslands til að vera við brúðkaup- ið en þeir starfa báðir sem læknar í Japan. „Við höldum til Japans á morgun og þar tekur Toshiki við starfi prests í Nagoya. Ég ætla að leggja stund á nám í trúar- bragðasögu. Fyrsta hálfa árið verð ég þó aðeins í ströngu námi í jap- önsku. Það er mjög forvitnilegt tungumál en ég geri ráð fyrir að það sé dálítið erfitt. Ég verð með- al annars að læra nýtt stafróf," sagði Helga Soffía. Hún sagði að sér litist vel á jap- anskt samfélag, allir væru mjög kurteisir og alúðlegir og mikil virð- ing borin fyrir konum. Hún sagði að það hefði komið sér á óvart þar sem hún hefði heyrt að í Japan væri rótgróið karlasamfélag og til marks um það mætti nefna að í Japan væri enginn kvenprestur. Fjármálaráðherra: Snjómokstur undan- þeginn virðisauka Fjármálaráðherra lýsti því yfir á Alþingi í gær að hann myndi í næstu viku gefa út reglugerð sem veitti Vegagerð ríkisins sem og sveitarfélögum undanþágu frá greiðslu virðis- aukaskatts af snjómokstri. Árni Gunnarsson beindi þeirri fyrirspurn til fjármálaráðherra, hvort hann hefði lagaheimild til að fella niður virðisaukaskatt af snjómokstri. Ef svo er, hyggst ráð- herra nýta þá heimild og þá hve- nær? Þingmaðurinn sagðist ekki átta sig á, hvaða virðisauki væri fólginn í snjómokstri. Af hveiju er snjókoma skattlögð? spurði hann. Hvað um rigninguna? Það kom fram í máli þingmanns- ins að frá áramótum fram til 17. marz sl. hafi Vegagerð ríkisins kostað um 270 m.kr. til snjóruðn- ings. Þar af hafi 52,5 m.kr. verið virðisaukaskattur í ríkissjóð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.