Morgunblaðið - 06.04.1990, Side 41
41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1990
ATHUGASEMD
FRÁ PORTÚGAL
eftir Illuga Jökulsson
Þegar þessi athugasemd birtist
mun ég væntanlega vera að sóla
mig suður á strönd Portúgals í ferð
sem skipulögð var af ferðaskrifstof-
unni Úrval-Útsýn. Þetta mun koma
þeim á óvart sem lásu grein er ég
skrifaði í Morgunblaðið nýlega og
sagði mínar farir ekki sléttar í við-
skiptum við ferðaskrifstofuna sem
hefði haft af mér ferðavinning er
ég átti inni hjá Útsýn síðan í spurn-
ingakeppni Sjónvarpsins fyrir
tveimur árum. Því tel ég rétt að
taka fram opinberlega að eftir að
greinin birtist tjáði Knútur Óskars-
son framkvæmdastjóri Úrvals-
Útsýnar, mér að þessi uppákoma
stafaði af mistökum og misskilningi
innan ferðaskrifstofunnar; hann
kvaðst harma þessi mistök og aldr-
ei hefði annað verið ætlun Úrvals-
Útsýnar en standa við sitt ferðalof-
orð. Þar eð hver maður á leiðrétt-
ingu orða sinna og gjörða taldi ég
enga ástæðu til að draga þessa
skýringu í efa og hófst nú handa
um að skipuleggja á vegum Úrvals-
Útsýnar ferð suður til Portúgals.
Það tókst með miklum ágætum og
ástæða er til að ljúka lofsorði á
þann starfsmann ferðaskrifstofunn-
ar, Önnu Siggu Ellerup, sem lagði
mér lið við undirbúning ferðarinnar.
Ef til vill er líka rétt að taka
fram að ég hef ekki verið „keypt-
ur“ til að rita þessa athugasemd,
þar eð ég hef ekkert þegið frá Úr-
val-Útsýn, utan það sem ég átti
rétt á frá byijun og ferðaskrifstofan
hugðist standa við, að sögn Knúts
Óskarssonar, ef ekki hefði komið
til þessi leiði misskilningur. Loks
tek ég fram að strax og grein mín
birtist hringdi til mín ðmar Krist-
jánsson sem átt hafði Útsýn er ég
vann ferðina margumræddu og vildi
leggja sitt af mörkum til að leysa
málið. Það gerði hann siðan snöfur-
mannlega og á því sinn þátt í að
Illugi Jökulsson
ég og mín litla fjölskylda sleikjum
nú sólina suður í Portúgal.
Höíundur er útvarpsmaður og
rithöfundur.
M SÝNING á tréskurðarverkum
nemenda Hannesar Flosasonar
myndskurðarmeistara verður í
smíðahúsi Hlíðaskóla við
Hamrahlíð í Reykjavík á morgun,
laugardag, kl. 14—18. Á sýning-
unni verða menn að störfum við
tréskurð. Skurðlistarskóli Hann-
esar hefur starfað frá árinu 1972.
■ FÉLAG sálfræðinema við Há-
skóla Islands gengst fyrir málþingi
á morgun, laugardag. Það nefnist
„Verða sálfræðingar sérfræðing-
ar?“ og verða þar kynnt drög að
reglugerð um veitingu sérfræði-
leyfa sálfræðinga. Auk dr. Arnórs
Hannibalssonar sem sér um þá
kynningu hafa frámsögu sálfræð-
ingarnir Málfríður Lorange um
starfssvið_ uppeldissálfræðings,
Eiríkur Orn Arnarson um starfs-
svið klínísks sálfræðings og Krist-
ján Sturluson um starf félags- og
skipulagssálfræðings og sálfræð-
ingur frá Greiningar- og ráðgjafa-
stöð ríkisins kynnir starf fötlunar-
sálfræðings. Siðareglur sálfræð-
inga verða einnig á dagskrá, og um
þær ræðir Ingi Jón Hauksson sál-
fræðingur. Að loknum framsöguer-
indum verður kaffihlé og síðan fyr-
irspurnir og umræður. Málþingið
hefst kl. 14 og er haldið í Tækni-
garði, Dunhaga 5. Það er öllum
opið, en áhugasamir sálfræðingar
og sálfræðinemar eru sérstaklega
hvattir til að koma.
(Fréttatilkynning)
■ RANGT var farið með nafn
eins frambjóðanda í prófkjöri
nýstoíiiaðs bæjarmálafélags á
Seltjarnarnesi í frétt hér í blaðinu
síðastliðinn þriðjudag. í fréttinni
var Siv Friðleifsdóttir sögð vera
Þorleifsdóttir. Þetta leiðréttist hér
með og eru hlutaðeigandi beðnir
afsökunar á þessum mistökum.
GOÐAR
FERMINGAR
GJAFIR
SILFURHALSMEN
Verð frá kr. 2.150,-
HAPP
v DRÆTTI
SLYSAVARNAFÉLAGS
ISLANDS
- fti
SILFURHRINGIR
Verð frá kr. 2.580,-
BÓMULLARPEYSUR
Verð frá kr. 4.450,-
RAMMAGERD1N
HAFNARSTRÆT119
OG KRINGLUNNI
c
HEILDARVERÐMÆTI VINNINGA KR. 18.000.000.
DREGIÐ VERÐUR FÖSTUDAGINN 6. APRÍL 1990.