Morgunblaðið - 06.04.1990, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1990
47
HESTAMENN SKA
Hreppti verðlaun
í annað sinn
í grímutölti
Sigríður Benediktsdóttir, Fáki, hefur sigrað í
flokki fullorðinna í grímutölti í bæði skiptin, sem
slík keppni hefur verið háð í Reiðhöllinni í Víðidal.
Margir skemmtilegir búningar hafa sést í þessari
keppni og hafa verið veitt verðlaun fyrir tvo bestu
búningana. í flokki barna hlaut þau síðast Inga
Karen Traustadóttir og í flokki fullorðinna, Högni
Gunnarsson. Þá var einnig skeiðað t gegnum höllina
og sá er mesta klappið fékk var Trausti Þór Guð-
mundsson.
Sigríður Benediktsdóttir á gæðing sínum, Árvakri
frá Enni.
' ITC-SEUUR
100 FUNDIR Á 6 ÁRUM
ITC-Seljur á Selfossi héldu nýlega
100. fund sinn og jafnframt upp
á það að sex ár eru liðin frá stofn-
un félagsskaparins á Selfossi.
ITC-samtökin eru alþjóðlegur
félagsskapur og starfar eingöngu á
fræðilegum grundvelli án gróða-
sjónarmiða. Innan samtakanna eru
aðilar frá 25 löndum víðs vegar um
heim. Konur hafa eingöngu verið
félagar í ITC þar til nýlega að opn-
að var fyrir þátttöku karla. Fastir
fundatímar eru tvisvar í mánuði og
hámarksfjöldi í hverri deild samtak-
anna eru 30. Markmið samtakanna
er að efla hæfileika til samskipta
og forystu, auka starfsafköst og
styrkja sjálfstraust félagsmanna
sinna.
Á 100. fundinum var fjöldi gesta,
þar á meðál margir af stofnfélögun-
um. Fundir ITC eru mjög vel skipu-
lagðir og markmið að halda öll sett
tímamörk. Á þessum fundi gáfu
konumar innsýn i ræðukeppni sem
þær hafa''tekið þátt í með góðum
árangri. Forseti ITC-Selja á Sel-
fossi er Jóhanna Þórðardóttir.
— Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
Félagar ITC Selja á Selfossi.
NYR VETTVANGUR -
BORGARSTJÓRN 1990
Ég gef kost á mér í 1. sæti í prófkjöri Nýs
vettvangs fyrir borgarstjórnarkosningarnar.
Helstu stefnumál mín:
• Varðveisla gamla bæjarins og efling hans
sem lifandi og hlýlegs borgarhluta.
• Verndun Fossvogsdals, Öskjuhlíðar,
Nauthólsvíkur og Laugarness sem útivist-
arsvæða.
• Bætt göngu-, útivistar- og leikaðstaða
fyrir alla aldurshópa.
• Bein áhrif borgarbúa á ákvarðanir um
borgarmál.
• Aukin og jöfn aðstaða borgarbúa til að
nýta hvers konar þjónustu sem borgin
lætur í té.
• Skilvirkni og ráðdeild í stjórn og rekstri
borgarinnar.
Guðrún Jónsdóttir,
arkitekt
Meðal stuðningsmanna
Baldvin Halldórsson, leikari.
Guðlaugur Gauti Jónsson, arkitekt.
Guðrún Jónsdóttir, félagsfræðingur.
Hilmar Einarsson, framkvæmdastjóri.
Hrafnhildur Ragnarsdóttir, dósent.
Hrafnhildur Schram, listfræðingur.
Jes Einar Þorsteinsson, arkitekt.
Júlíana Gottskálksdóttir, listfræðingur.
Guðrúnar í /. sæti eru:
Pétur Arason, verslunarmaður.
Ragna Róbertsdóttir, myndlistarmaður.
Ragnheiður Þorláksdóttir, framkv.stjóri.
Ríkharður Hördal, forvörður.
Sigrid Valtingojer, myndlistarmaður.
Stefán J.K. Jeppesen, nemi.
Þorsteinn Ö. Stephensen, leikari.
HAITI - NEW ORLEANS - ORLANDO
lOdaga
CREOLE
Matarkynning 29. mars - 7. apríl
Öil kvöld frá kl. 18-23.30
Beint frá New Orleans
Yves Ambroise
yfirmatreidslumaóur á Royal Orleans veitingahúsinu í Or-
lando eldarCREOLE OG CAJUN mat, sem erengu líkur
Kolasteiking fer þannig fram, að kjötinu eöa fiskinum er
velt upþúr sérstakri kryddblóndu og þvi nœst látið á pónn-
una, sem er nœstum þvi glóandi, maturinn snóggsteiktur
og verður áferðin mjóg dókk. Þaóan er orðið Blackening |
komið.
FORRÉTTIR OG SÚPUR
Blackened Shrimp kr. i90
Kolasteiktar úthafsrœkjur m/Creole sinnepssósu
Cajun Pasta kr. 1,50
Kjúklingur, skinka og hvitlaukur, bœtt meó rjóma,
parmeson, Creolekryddiogtortellini
Eggplant piroques kr. 390
Djúpsteiktur eggaldinbátur
fylltur m/Creole sjávarréttarfyllingu og Hollandaisesósu
Creole Onion kr. 250
Creole lauksúpa
Gumbo with Dirty Rice kr. 270
Gumbo sjávarréttasúpa m/sjúskuóum hrisgjónum
SALÖT OGAÐALRÉTTIR
Blackened Chicken kr. 1,50
Blönduó salatblöð m/vinaigrette og kjúklingakjóti
Blackened Quartetkr. 1390
Sýnishorn afkolakvartet, sem samanstendur affiski, nautakjöti,
kjúklingi og rækjum m/djúpsteiktum kartöflubátum oggufusoðnu
grænmeti.
Barbecue Shrimp and Shrimp Creole kr. 990
Uthafsrækjur, soðnar ipiparsmjöri og úthafsrœkjur soónar í Creole
tómatsósu.
x
Cajun Surf and Turfkr. 1090
Kolasteiktur fiskur, borinnfram meó kartóflubátum
oggufusoðnu grœnmeti
Blackened Fish kr. 1090
Kolasteikturfiskur, borinn fram með kartóflubátum
og gufusoðnu grœn meti
Blackened Prime Rib kr. 11,90
Kolasteikt Prime Ribsteik borinfram með kartóflubátum oggufu-
soðnu grœnmeti
Desert
4ra laga Greole ostakaka kr. 520
Hlaut silfurverðlaun.
Verið velkomin á Hard Rock Cafe
Elskum alla —þjónum öllum.
simi 689888