Morgunblaðið - 25.04.1990, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRIL 1990
5
300 tonn af plasti
verða notuð utan
um rúllubaggahey
ÁÆTLAÐ er að bændur noti allt að 300 tonn af plasti í umbúðir
utan um rúllubaggahey nú í sumar og að sögn Grétars Einarsson-
ar, forstöðumanns bútæknideildar Rannsóknastofnunar landbúnaðar-
ins á Hvanneyri, hafa verið gerðar tilraunir til að bagga plastið með
rúllubindivélum að lokinni notkun. Þá eru uppi hugmyndir um að
endurvinna plastið, en því mun í flestum tilfellum hafa verið brennt
heima við bæi hingað til.
Grétar sagði að svo virtist sem
framkvæmanlegt væri að ITagga
plastið á þennan hátt, en gæta yrði
varúðar þegar því væri mokað inn
í vélarnar þar sem um væri að
ræða langar dræsur sem hætta
væri á að ánetjast. Hann sagði að
hugmyndir væru uppi um að endur-
vinna plastið, en á þessu stigi væri
ókannað hvernig hagkvæmast væri
að standa að því eða hvort það
borgaði sig. Þá væri einn kosturinn
að brenna plastið í sérstökum
brennsluofnum, en slæmur kostur
væri að brenna það heima við bæi
þar sem það hefði í för með sér
mikla mengun.
„Þessi mál þarf að fara að skoða
alvarlega því þetta er mikið magn
sem þarna mun falla til. Ég held
að menn hafi að mestu brennt þetta
heima við fram að þessu og jafnvel
urðað að einhveiju leyti, en þetta
hefur vaxið það mikið á síðustu
tveimur árum, og í sumar er séð
fram á ennþá meiri aukningu, þann-
ig að nauðsynlegt er að fara að
huga að þessu,“ sagði Grétar.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Grétar Einarsson, forstöðumaður bútæknideildar RALA á Hvann-
eyri, við plast sem búið er að bagga með rúllubindivél.
■ KVENNALISTINN hefur
ákveðið að bjóða fram til bæjar-
stjórnarkosninga í Kópavogi í vor.
Kvennalistinn hefur opnað kosn-
ingaskrifstofu í Hamraborg 20A
og verður skrifstofan opin til að
byija með mánudaga til föstudaga
kl. 15—19 og laugardaga frá kl.
11-14.
■ AÐALFUNDUR Landfræðifé-
lagsins verður haldinn að Holiday
Inn hótelinu í kvöld, miðvikudaginn
24. apríl, kl. 20.30. Dagskrá fund-
arins eru venjuleg aðalfundarstörf.
Að lokinni dagskrá mun Páll Ims-
land segja frá Japan í máli og
myndum.
■ MINJASAFN Rafmagnsveitu
Reykjavíkur í Elliðaárdal hefur
verið tekið í notkun. í safninu stend-
ur nú yfir sýning á myndum og
uppdráttum sem segja frá undir-
búningi og framkvæmdum við Raf-
stöðina í Elliðaárdal fyrir um það
bil sjötíu árum. Þá eru sýndir mun-
ir, sem tengjast sögu Rafmagn-
sveitu Reykjavíkur. Safnið verður
opið fyrst um sinn á sunnudögum
frá kl. 14—16. Þá geta hópar pant-
að tíma í safninu. Safnið er stað-
sett á annarri hæð aðveitustöðvar
andspænis við Rafstöðina við Raf-
stöðvarveg.
Þarna sérðu Hauk. Hann er sæll
því nú hefur hann efni ú betri veiðisvæðunum.
Haukur er mikill áhugamaður um
veiðar. Þar til fyrir nokkrum árum lét
hann sér nægja silungsveiðar og að
hlusta á veiðisögur annarra úr „stóru“
ánum. Það var svo fyrir 3 árum, þegar
yngsta bamið flutti að heiman, að þau
hjón minnkuðu við sig húsnæðið og
losuðu þannig um 4.000.000 kr. á
núvirði. Að ráðum ráðgjafa Verð-
bréfamarkaðar Fj árfestingarfélagsins
keyptu þau Tekjubréf fyrir þessa
upphæð. Miðað við 9% raunávöxtun
fá þau 30,000 kr. skattfrjálsar útborg-
aðar mánaðarlega. Þetta þýðir að nú
geta hjónin veitt sér eitt og annað sem
þau áður þorðu ekki að láta sig
dreyma um og nú er það Haukur sem
segir’veiðisögurnar. Ef þeim dytti í
hug að njóta lífsins í enn ríkari mæli
eiga þau þann möguleika að ganga á
höfuðstólinn. Fjóra milljónirnar
þýddu þannig 40.000 kr. mánaðarlaun
í 15 ár miðað við 9% raunvexti. Eða
eins og Haukur orðar það: „Þeir fiska
sem róa“!
VERÐBRÉFAMARKAÐU R
FJÁRFESTING ARFÉIAGSINS HF
HAFNARSTRÆTI28566 • KRINGLUNNI689700 • AKUREYRI10100