Morgunblaðið - 25.04.1990, Page 30

Morgunblaðið - 25.04.1990, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRIL 1990 Morgunblaðið/Ámi Helgason Flóabáturinn Baldur á leið til hafnar í Stykkishólmi. Fréttabréf úr Stykkishólmi: Flóabátnum vel fagnað o g Saumastofan vinsæl Stykkishólmi. MIKILL mannfjöldi var samankominn til að fagna flóabátnum Baldri er hann kom til heimahafnar. Lúðrasveit Stykkishólms undir stjórn Daða Þórs var mætt og lék meðan skipið þokaðist inn að bryggju. Þar var séra Gísli H. Kolbeins tilbúinn með bæn og blessunaróskir bát og skipshöfn til handa. Stefán Skarphéðins- son, sýslumaður Barðstrendinga, sagði nokkur orð og eins og aðrir ber hann miklar vonir um að ferjan yfir Breiðafjfirð eigi eftir að verða til að festa betur, tengja byggðirnar saman og að straumurinn suður á bóginn snúist við. Bæjarstjórinn bauð skipshöfn og skip velkomna og flutti árn- aðaróskir. Formaður hafnar- nefndar, Pétur Agústsson, opnaði nýju feijuhöfnina fyrir Baldri. Þessi fimmtudagur verður Hólm- urum minnisstæður. Þetta er fjórði Baldur síðan 1940. Sá fyrsti var um 20 lestir og þótti góður. Annar var byggður á Fáskrúðs- firði af Einari Sigurðssyni hinum kunna skipasmíðameistara. Hann var um 45 tonn, einn af svokölluð- um ríkissjóðsbátum en Einar byggði fjóra slíka, en þegar til kom að ætti að nota bátinn til flutninga á Breiðafirði var hann lítið stærri en hinir. Þetta var árið 1947 og þótti stórkostlegt. Næsti Baldur kom svo 1966 og svo kemur þessi. Alltaf stærra og stærra, betra og veglegra. Siglinganámskeið í vetur hefír verið haldið nám- skeið hér í Stykkishólmi, fyrir þá sem vilja fá réttindi á 30 tonna báta. Skólastjóri, kennari og leið- beinandi hefir verið Lúðvíg Hall- dórsson, skólastjóri. Samskonar námskeið hefir verið haldið áður hér og kom að góðú haldi. Það er mikilvægt að geta haft þessi námskeið hér heima því þeir eru ekki fáir sem á þessum lærdómi þurfa að halda og hefir námskeið- ið verið fjölsótt. Sýning á málverkum og skúlptúr Undanfarna daga hefir staðið yfir hér í Stykkishólmi, listasýn- ing á málverkum og skúlptúr. Er þessi sýning í verslunarhúsi Sig- urðar Ágústssonar sem nýlega hefur verið endumýjað. Sýning þessi er frá Listasafninu Nýborg og eru þarna málverk margra ljstamanna auk skúlptúra Sverris Ólafssonar. Hjónin Rakel Oisen og Ágúst Sigurðsson hafa veg og vanda af uppsetningu sýn- ingarinnar. Þetta er fyrsta sýn- ingin í þessum húsakynnum og vel þess virði að fólk líti inn. Grímnir sýnir saumastofúna Fyrir skömmu frumsýndi Leik- félagið Grímnir í Stykkishólmi leikritið Saumastofuna eftir Kjartan Ragnarsson fyrir troð- fullu húsi í Félagsheimilinu hér og miklar og góðar undirtektir áheyrenda. Þetta er 22. leikár félagsins en það var stofnað árið 1947. Leikstjóri var Guðjón Ingi Sigurðsson. _ Leikmynd annaðist Þorvaldur Ólafsson og lýsingu Þorsteinn Sigurðsson. Undirleik sá um þeir Hafsteinn Sigurðsson og Jón Svanur Pétursson, auk annarra starfsmanna á leiksviði. Leikfélagið bauð öllum eldri borg- urum í Stykkishólmi á sýningu. Leikarar eru 9 talsins og mátti ekki á milli sjá, svo var fólkið samæft og sýndi góðan og athygl- isverðan leik enda mikið lagt á sig. Leiksviðið og búnaður þess ásamt ljósabúnaði var okkur hér framandi en stórkostlegur og gerði sýninguna meira lifandi, og ljósunum var beitt af þekkingu og æfjngu, sem sagt; sýningin var leikfélaginu til sóma. Einn gestanna sagði eftir sýn- ingu:„Það er varla að maður trúi þessu“. Elsti gesturinn sem var á sýninguni var Jón í Brokey, 95 ára og naut þess verulega. Og hinn síungi Ágúst Lárusson, 86 ára, var mættur í sínum hjóla- stól, hress að vanda. Félagar í Aftanskin sáu um að koma eldri borgurunum fram og tilbaka. For- maður Grímnis þetta leikár er Eydís K. Björnsdóttir. Skíðalyfta í Grímsfjalli Skíðalyfta var vígð í fallegu veðri og miklum snjó í Kerlingarskarði, eða Grímsíjalii fyrir skömmu. Það voru margir sem lyftu sér upp og fóru á skíði. Þetta er talsverður spotti frá Stykkishólmi, en fólk lætur það ekki á sig fá. Skíðaráð Ungmennafélagsins Snæfells hef- ir haft veg og vanda af þessari framkvæmd. Lyftan reyndist vel og nægur var snjórinn. Fjöllín hér fyrir ofan eru fagurlega hvít, bæði í sói og skafrenningi og sér ekki í dökkan díl. Tíðarfar hefir verið mjög rysjótt frá áramótum. Við bundum vonir okkar við að öskudagurinn ætti ekki nema 18 bræður, en það brást því fyrir utan þessa 18 eru margir hálf- bræður. „Emblurnar“, félag kvenna í Stykkishólmi, buðu bæjarbúum til sérstakrar kvöldsamkomu föstu- dagskvöldið 6. apríl sl. Málfreyju- félaginu sem hafði starfað í 9 ár hér og gengið vel var breytt í félagið Emblur, í haust og er kjarni þess mikið sami og áður. Þessi kvöldstund var hjá þeim Rakel og Ágúst Sigurðssyni, sem nú hafa gert upp „Sigurðarbúð" í Hólminum svo vel að til mikillar fyrirmyndar er. Þar sem verslunin var er nú kominn salur með ýmsu því gamla sem þá var notað og munu hafa verið milli 80—90 manns sem sóttu fagnaðinn og var þetta verulega fróðleg _ og ánægjuleg kvöldstund. Rakel Óls- en bauð gesti velkomna og kynnti efni kvöldsins sem hófst með því að Sexhópurinn sem getið hefir sér gott orð hér um þessar mund- ir söng. Sigurlína Sigurbjörns- dóttir, bókasafnsfræðingur og bókavörður hér, hétt fyrirlestur um Júlíönu Jónsdóttur frá Aku- reyjum sem mun fyrst kvenna á íslandi hafa gefið út ljóðabók. Hún fluttist til Vesturheims og gaf þar út aðra. Þá flutti Hrafnhildur Schram erindi sem hún nefndi: Aldamóta- konur í íslenskri myndlist. Tók hún fyrir 5 konur sem allar voru listakonur á því sviði, sýndi lit- myndir af þeim og málverkum sem þær höfðu unnið. Var þetta eitt besta efni kvöldsins og dáðust menn að þessum listaverkum sem unnin voru í upphafi og lok aldar- innar. Félagar í Emblu kynntu síðan Breiðfirskar skáldkonut', þær Herdísi og Ólínu og Theodóru Thoroddsen, lásu upp og skýrðu þeirra lífsferil. Lárus Hallfreðsson og Björgvin Þorvarðarson kváðu síðan rímnaþætti eftir þær kon- urnar og þótti ágætlega til takast og loks söng Sexhópurinn kvæði eftii' systurnar ásamt fleiru og þannig lauk dagskránni. Síðan var öllum boðið upp á efri hæð til að þiggja góðgerðir sem Emblurnar höfðu útbúið og það ekki af verri endanum. Þetta fróðleikskvöld stóð í meira en 2 tíma og allir sammála um að vel hefði tiltekist. Þökk sé Emblunum fyrir þetta góða framtak. Formað- ur Emblu í Hólminum er Jóhanna Guðmundsdóttir, tónlistarkennari hér í Stykkishhóimi. Hjólbarðavinnustofa Hólmur hf. og Eyjaferðir í Stykkishólmi, hafa komið sér upp verslun með bifreiðahjólbarða og einnig aðstöðu til viðgerða á hjól- börðum. Er þetta gott húsnæði og þar er fyrir þessari þjónustu Roy Shannon sem gerir við barð- ana skiptir um og felgar. — Árni s aumastot Frá sýningu Leikfélagsins Grímnis í Stykkishólmi á „Saumastofunni“ eftir Kjartan Ragnarsson. Hitnar í kolum á heitum degi Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Laugarásbíó: Breyttu rétt — „Do the Riglit Thing“ Leikstjóri og handritshöfundur Spike Lee. Aðalleikendur Danny Aiello, Spike Lee, Ossie Davis, Joie Lee, John Savage. Bandarísk. Universal 1989. Það húmar hægt að kveldi í hinni ágætu götulífsmynd „Breyttu rétt“, sem snýst öðru fremur um sambúð- arvandamál hvítra og svarta á löng- um, heitum degi í Brooklyn. Nánar tiltekið í Bedford-Stuyvesant-hverf- inu sem á mektardögum sínum var byggt hvítum. Nú er öldin önnur, við götuna sem myndin gerist eru íbúar allir litaðir en á horninu stend- ur pizzastaður hins ítalskættaða Sal, (Aiello), einsog minnismerki um frumbyggja þessa niðurnídda borgarhluta. Og myndin gengur útá árekstra á milli hinna þeldökku og Sal og sona hans. Einn litaðra vill hlut síns kynþáttar meiri í mynd- skreytingu matsölustaðarins og verður þetta lítilræði til að hleypa að iokum öllu í bál og brand. Lee er herskár sem fyrr þó er einsog búið sé að sverfa ögn vígtennurnar í þessum athyglis- verða kvikmyndagerðarmanni, því þó hann líti á Sal og syni sem nátt- tröll frá liðinni tíð, njóta þeir vissu- Iega nokkurs sannmælis. Og gerir grín að ofstækinu á báða bóga. Manngerðirnar eru margar og Ijós- Iifandi. Hér er að finna óða negra og rólynda, gáfaða, heimska, drífandi og drullusokka. Vandræða- fólk og vinnandi. Sal er af gamla skólanum, ítalskur „macho“ sem hvergi hvikar frá sínum grundvall- arsjónarmiðum. Hinsvegar eru syn- irnir gjörólíkir. Annar vil! blanda geði sínu við nágrannana, hinn er negrahatari. Þessi skrautlegi mannsöfnuður er í fyrsta lagi fyndinn frekar en gagnrýninn. Og Lee dregur upp ansi ljósa mynd af kynbræðrum sínum. Ekki er að sjá að vandamál- in bagi þá. Allir virðast hafa nóg á milli handanna, hressir og krakkið og önnur sligandi þjóðfélagsböl lit- aðra eru hvergi í augsýn. Þessi sýn inní jaðargötu svartra og hvíta er því engan veginn hlutlaus, enda pólitísk. En það er vandaiaust að njóta hennar og hrífast af hæfileik- um Lee, auðugu skopskyni hans og leiftrandi frásagnargáfu og ein- stakri leikni í að segja af mörgum ljóslifandi persónum í einu. Hvort sem er í texta eða leikstjórn. Nýtur þar aðstoðar úrvals leikaraliðs þar sem tæpast er hægt að gera uppá milli manna að Aiello undanskild- um, enda er manni spurn - er hægt að njóta meiri virðingar en að vera í hópi útvaldra í augum þeirra beggja, Allens og Lee? Og þó að Breyttu rétt skilji eftir beiskt bragð í munni er hún fyrst og fremst einstök skemmtun þar sem áhorfandinn fær að kynnast við- horfum eins efnilegasta kvik- myndaskálds vestan hafs í dag. ri I j ___________Brids______________ Arnór Ragnarsson Bridsfélag Breiðfirðinga Síðastliðinn fimmtudag var áætlað að hefja hraðsveitakeppni en þar eð aðeins 7 sveitir mættu til leiks, var henni frestað til 26. apríl. Enn er mögulegt að skrá sig í þessa keppni (í síma 689360) og skt'áning stendur yfir til kl. 17.00 26. apríl. í stað hraðsveitakeppninnar síðastliðinn fimmtudag var spilaðut' eins kvölda tvímenningur í 16 para riðli. Efstu skor hlutu (meðalskor 210): 1. Skúli Einarsson - Friðþjófur Einarsson 251 2. Ingvi Guðjónsson - Júlíus Thorarensen 246 3. Óskar Þráinsson - Albert Sigurðsson 239 4. Gróa Guðnadóttir - Guðrún Jóhannesdóttir 237 5. Elís Helgason - Jörgen Halldórsson 221 6. Guðmundur Kr. Sig. - Björn Svavarsson 218 7. Sigríður Pálsdóttir - Eyvindur Valdimarsson 215 Bridsfélag Akureyrar Þriðjudaginn 17- apríl lauk minn- ingarmóti Bridsfélags Akureyrar um Alfreð Pálsson, en Alfreð spilaði í áratugi hjá BA. Spilakeppnisformið í minningarmótinu var sveitakeppni með nýstárlegu sniði, þar sem stiga- hæstu pör félagsins drógu með sér í sveit þau stigalægstu. Gunnlaugur og Magnús voru heppnir er þeir drógu með sét' þá nafna Hauk J. og Hauk H., nýbakaða Akureyrarmeist- ara í sveitakeppni. Alis spiluðu 12 sveitir 3 spilakvöld, 6 spila leiki, all- ir við alla. Lokastaðan varð þannig: 1. Magnús Aðaibjörnsson 388 2. Tryggvi Gunnarsson 373 3. Soffía Guðmundsdóttir 371 4. Sturla Snæbjörnsson 316 5. Jakob Kristinsson 303 6. Jón Á. Hermannsson 300 Með Magnúsi í sveit voru Gunn- iaugur Guðmundsson, Ilaukur Jóns- son og Haukur Hat'ðarson. Með Tryggva í sveit voru Reynir Helga- son, Stefán Stefánsson og Skúli Skúlason. Aðstandendur Alfreðs gáfu vérðlaun í 3 efstu sætin og auk þess farandbikar þar sem nöfn spil- ara í sveitinni eru skráð. Þakkar Bridsfélag Akureyrar þeirra framlag. Næsta keppni félagsins er firma- keppni og stendur yfir 3 næstu kvöld. Spilaður er einmenningur og eru allir spilarar velkomnir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.