Morgunblaðið - 25.04.1990, Síða 34

Morgunblaðið - 25.04.1990, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 1990 Vilbergur Péturs- son - Minning Fæddur 6. ágúst 1904 Dáinn 12. apríl 1990 Okkur langar til að kveðja hann elsku „pabsa“ okkar, en það var Vilbergur Pétursson, kallaður af okk- ur öllum, þó afi væri. Allar munum við eftir því, þegar hann var húsvörður í Sjómannaskól- anum, þar sem við áttum sem litlar stúlkur margar ógleymanlegar stundir hjá honum. Sú elsta okkar minnist að sjálf- sögðu einnig góðu stundanna á Njálsgötunni, þar sem hann bjó ásamt „hallú“ ömmu, áður en þau fluttu í „Sjómó". Hann vildi alltaf öllum svo vel og þar sem við vorum annars vegar var hann alveg yndislegur afi. Uppi í „Sjómó“ áttum við margar góðar stundir, enda nóg að gera hjá „pabsa“ við alls konar störf. Hann gat ætíð fundið eitthvað við okkar hæfi, svo við gætum verið sem mest saman. Þar má til dæmis nefna það, að sendast um húsið með lykla, „heyja“ að sumrinu og sinna ýmsum störfum. Það var ljóst, að „pabsi“ naut þess, að hafa okkur í kringum sig og það sama gilti um okkur, við nutum þess að vera hjá honum. Nú, þegar hann er farinn elsku „pabsi“ viljum við þakka „pabsa“ allar þessar stundir og allt góða við- mótið í okkar garð. Fari hann í friði og guð blessi minningu hans. Anna, Edna, Linda og Ásta Fregnin um andlát tengdaföður míns barst ok'kur hjónum suður til Englands á skírdag. Ekki er hægt að segja, að þessi sorgartíðindi komi óvænt, þar sem lífsþrótturinn hafði farið þverrandi síðustu vikurnar. Langir lífdagar voru að baki og þráin eftir hvíld og friði orðín tíma- bær. Vilbergur Pétursson var eftir- minnilegur persónuleiki þeim er hon- um kynntust. Þar kom maður til dyranna eins og hann var klæddur, glöggskyggn og skemmtilegur í sam- ræðum og talaði tæpitungulaust um menn og málefni. Vilbergur hafði óvenju næmt skopskyn og virtist ávallt sjá björtu hliðamar á tilver- unni, jafnvel þótt á móti blési. Hann var hrókur alls fagnaðar á manna- mótum, enda orðheppinn og kunni skemmtilega frá að segja. Vilbergur fæddist að Víðilæk í Skriðdal og var tekinn kornabam í fóstur og fluttist til Reyðarfjarðar. Snemma hneigðist hugurinn til - starfa, og 14 ára gamall er hann farinn að stunda sjóinn, enda varð sjómennska hans ævistarf. Árið 1928 kvæntist Vilbergur Sigríði Tómasdóttur, dugmikilli myndarkonu ættaðri frá Austfjörð- um. Hún stóð við hlið manns síns í blíðu og stríðu, þótt fjarvistir sjó- mannsins væru oft á tíðum langar. Sigríður og Vilbergur eignuðust tvær dætur, Svövu Sigríði og Margréti. Sigríður lést árið 1976, öllum hennar ættingjum og vinum mikill söknuður. Svo sem fyrr greinir varð sjó- mennskan að lífsstarfi Vilbergs. Hana stundaði hann í nærfellt hálfa öld, eða þar til hann gerðist húsvörð- ur við Sjómannaskólann. Húsvörsl- una annaðist hann í 12 ár með dyggri aðstoð Sigríðar konu sinnar. Vilbergur var lengst af á togurum og þá aðallega á Tryggva gamla og Hvalfellinu með þeim ágæta skip- stjóra, Snæbirni Olafssyni, sem Vil- bergur minntist ætíð með hlýhug. t JÓN V. GUÐVARÐSSON kaupmaður, lést á heimili sínu Hverfisgötu 82 15. mars. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. t Sonur okkar og bróðir, JÓN ÖRN ÁSBJÖRNSSON, Njálsgötu 59, Reykjavík, lést að morgni hins 16. apríl sl. Útförin hefur farið fram f kyrrþey, að ósk hans sjálfs. Margrét Einarsdóttir, Ásbjörn Jónsson, Einar Ásbjörnsson. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, UNNUR VALDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR, Heiðmörk 69, Hveragerði, áður til heimiils á Laufásvegi 58, Reykjavík, lést í Landspítalanum laugardaginn 21. apríl. Útförin auglýst síðar. Kristfn Kristinsdóttir, Kristján Kristinsson, Nína Hafstein, Guðmundur S. Kristinsson, Ása Ásgeirsdóttir og barnabörn. Innilegt þakklaeti fyrir samúð og hluttekningu vegna fráfalls sonar míns og bróður okkar, HALLDÓRS GUNNARSSONAR, Sambýlinu Vesturgötu, Akranesi. Álfdfs Gunnarsdóttir, Gunnar H. Gunnarsson, Óli Gunnarsson, Ingi Þórir Gunnarsson, Bjarni Einar Gunnarsson, Ingibjörg Óladóttir, Þorsteinn Ingimundarson, Jónina Melsteð, Ingibjörg Gfsladóttir, Ragnheiður Jósuadóttir, Olga Lárusdóttir. Skömmu eftir að þau Sigríður og Vilbergur létu af húsvörslu í Sjó- mannaskólanum, fluttu þau í Hrafn- istu, dvalarheimili aldraðra sjómanna í Laugarási. Ekki naut Sigríður þess að búa þar lengi, því hún veiktist snögglega skömmu eftir að þau flutt- ust í Hrafnistu og heilsan kom ekki aftur. Fyrir 10 árum missir Vilbergur sjónina. Þá kom best í ljós æðruleysi hans og innri maður. Ekki gat mað- ur merkt biturleika hjá Vilbergi út í tilveruna. Hann virtist taka sjónleys- inu sem orðnum hlut og hélt áfram að líta á björtu hliðar tilverunnar og slá á létta strengi. Nú þegar vinur minn og tengda- faðir er kvaddur hinstu kveðju, minn- ast sumir þess, er Vilbergur vitnaði stundum í síðustu orð Hemingways í „Vopnin kvödd“, „Það snjóar". Það hefur stytt upp hjá Vilbergi og birta framundan. Myrkur undanfarins ára- tugs er að baki. Það snjóar ekki meir. Ég þakka Vilbergi samfylgd og vináttu liðinna ára. Megi birta lýsa honum um ókomnar slóðir. Njáll Símonarson Rakel B. Davíðs- dóttir - Kveðjuorð Fædd 2. september 1974 Dáin 18. marz 1990 Eg vil kveðja elskulega bróður- dóttur mína, Rakel, eins og hún var ætíð kölluð, með þessum orð- um þó fátækleg séu. Þó sex ár væru á miíli okkar þá gátum við samt ætíð leikið okkur og talað saman. Sérstaklega minnist ég sumarferða minna til Akraness þar sem hún bjó ásamt foreldrum sínum, Davíð Þór Guð- mundssyni og Hrafnhildi Þorleifs- dóttur, og systur sinni Þórhildi Söndru sem vartveimur árum eldri en hún. Dvaldi ég þar oft í viku- tíma eða lengur og var þá yfirleitt að leika mér við þær og passa. Oftast var það hún Rakel sem fann upp á allskyns leikjum og öðrum uppátækjum en hún var bæði mjög hugmyndarík og ákveð- in lítil stúlka. Alltaf gat maður hlegið að henni þegar hún stóð pínulítil og kallaði á okkur til að sýna okkur eitthvað nýtt og spenn- andi. Síðan liðu nokkur ár og lítil systir bættist í hópinn, Sunna Rannveig. Fóru þau svo til Svíþjóð- ar haustið ’86 þar sem þau bjuggu í rúm þijú ár en komu aftur til landsins í september ’89 og fluttu þá til Stokkseyrar. Rakel var kom- in heim stuttu áður. Þó hún hefði eignast fjölda vina úti þá líkaði henni alltaf betur við sitt heima- land. Mér finnst svo sorglegt að hugsa til þess að hún Rakel mín sé farin frá okkur. Það eru aðeins nokkrar vikur síðan hún var í heimsókn hjá mér í nokkra daga. Þá sátum við saman fram eftir nóttu og töluðum um heima og geima. Hún var að hugsa til þess þegar hún væri komin með barn eins og ég. Einn daginn var hún, ásamt kunningja sínum, að skoða gamlar myndir sem ég átti af henni og þau veltust um af hlátri og hún vildi helst að þær yrðu fjar- lægðar. Og nú sit ég hér ein eftir með albúmið og hver mynd af Rakel, þessari brosmildu og fal- legu stúlku, er eins og fjársjóður fyrir mér. Þó Rakel hafi aðeins verið fimmtán ára gömul þegar hún var hrifin frá okkur þá var hún mjög þroskuð andlega og líkamlega. Hún var skemmtileg og alltaf fróðlegt að tala við hana og fylgjast með því hvað hún breyttist á þessum árum, úr lítilli stúlku í glæsilega unglingsstúlku sem virtist eiga framtíðina fyrir sér. Hún var ætíð að tala um fjöl- skyldu sína og leit mikið upp til Söndru eldri systur sinnar en þær Pétur Sigurðs- son - Kveðjuorð Pétur Sigurðsson, fyrrverandi kaupmaður í Reykjavík, er látinn. Pétur helgaði líf sitt verslunarstarf- inu, hóf ungur afgreiðslustörf og gerðist síðar kaupmaður. Pétur var snemma kjörinn til trúnaðarstarfa fyrir stétt sína og gekk þar í forystusveit til margra ára, sat um tíð í framkvæmdastjórn Kaupmannasamtaka íslands og var kjörinn formaður þeirra 1968, enda naut hann mikils trausts kaup- manna. Hann gegndi formennsku í lánasjóði skó- og vefnaðarvöru- kaupmanna um árabil. Hann var sæmdur gullmerki Kaupmanna- samtaka íslands á 25 ára afmæli samtakanna árið 1975. í félags- starfi naut hann mikils trausts. Pétur var sannur „sjentilmaður“ sem hafði þann hæfileika að laða allt það besta fram úr samstarfs- fólki sinu, enda með fáum betra að vinna að félagsmálum en honum. + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTJANA E. ÓLAFSDÓTTIR, dvalarheimilinu Hrafnistu, Laugarási, lést í Landakotsspítala 6. apríl. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Einn- ig minningarathöfn um dótturson hennar Kristján Árnason. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Óli Rafn Sumarliðason, Inga S. Vigfúsdóttir, Jóhanna Edda Sumarliðadóttir, Hrafnhildur Sumarliðadóttir, Gunnar Valdimarsson, Þóra Sumarliðadóttir Gersinsky, Leo Gersinsky, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og úrför eiginmanns míns og föður okkar, ÞORGILS BENEDIKTSSONAR, læknis, Kársnesbraut 47, Kópavogi. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Vífilsstöðum. Emma Benediktsson, Björn Þorgilsson, Baldur Þorgilsson, Guðmundur Hjörtur Þorgilsson. Sem kaupmaður hafði Pétur ein- staka þjónustulund. Hann var fag- urkeri og kunni vel að meta fegurð listarinnar og átti ágætt safn mál- verka. Það er mörgum viðskiþtavin- um minnisstæð sú þjónusta sem hann veitti í verslun sinni, hann tók á móti viðskiptavinum sínum með brosi og viðskiptavinurinn lauk er- indinu og fór brosandi út. Að leiðarlokum vill stjórn og starfsfólk Kaupmannasamtaka ís- lands færa fram þakkir fyrir mikil og vel unnin störf. Aðstandendum flytjum við hugheila samúð okkar. Magnús E. Finnsson Kransar, krossar og kistuskreytingar. Sendum um allt land. GLÆSIBLÓMIÐ GLÆSIBÆ, Álfhcimum 74. sími 84200

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.