Morgunblaðið - 24.05.1990, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 1990
Borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík:
Kosningabaráttan dauf-
leg og fór seint af stað
- segja kosningastjórar framboðslistanna
Garðabær kaupir land
BÆJARSTJÓRN Garðabæjar hefur skrifað undir kaupsamning um
kaup á tveimur spildum úr Arnarneslandi. Landið er samtals rúm-
lega 21,2 hektarar og kaupverðið rúmar 52,5 milljónir króna.
Að sögn Ingimundar Sigurpáls-
sonar bæjarstjóra er gert ráð fyrir
lágri íbúðarbyggð með einbýlishús-
um, raðhúsum og hugsanlega fjöl-
býlishúsum á landinu. Spilda A,
með Bæjarbrautinni að Smára-
hvammslandi, verður fyrst skipu-
lögð en óvíst er hvenær lóðimar
VEÐUR
koma til úthlutunar. I spildu A er
gert ráð fyrir 170 íbúðum og sagði
Ingimundur að nokkuð gæti dregist
að til úthlutunar kæmi. Samkvæmt
aðalskipulagi bæjarins er gert ráð
fyrir að úthluta að jafnaði 65 íbúð-
um á ári.
KOSNINGASTJÓRAR framboðs-
listanna í borgarstjórnarkosning-
unum telja margir að kosninga-
baráttan að þessu sinni hafi farið
seint af stað og verið dauflega.
Kom þetta fram í viðtölum Morg-
unbiaðsins við kosningastjórana í
gær um kosningabaráttuna, en
tekið skal fram að ekki tókst að
ná tali af fulltrúa Flokks mannsins.
Hvert atkvæði skiptir máli
Guðmundur Magnússon, kosn-
ingastjóri Sjálfstæðisflokksins, sagði
að góður andi ríkti í röðum sjálfstæð-
ismanna fyrir kosningarnar.
„Við finnum meðbyr og erum stað-
ráðnir í að vinna sigur í þessum kosn-
ingum. Við munum ekkert slaka á
fyrr en kjörstöðum hefur verið lokað
á laugardaginn. Kosningabarátta
okkar hefur verið í hefðbundnum
farvegi og allt sem við ætluðum að
VEÐURHORFUR I DAG, 24. MAI
YFIRLIT í GÆR: Á Grænlandshafi er 1.027 mb hæð og þaðan
hæðarhryggur austur um ísland, en grunnt lægðardrag við strönd
Grænlands norður af íslandi.
SPÁ: í dag verður hæg, breytileg átt og víðast bjartviðri á landinu.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Hæg breytileg átt, þurrt og víðast bjart-
viðri. Svalt i veðri við norður- og austurströndina, en sæmilega
hlýtt yfir daginn annars staðar.
HORFUR Á LAUGARDAG: Suöaustlæg átt og hlýnandi veður. Rign-
ing víða á Suður- og Vesturlandi, en þurrt og sennilega léttskýjað
norðaustanlands.
Heiðskírt
TÁKN:
ó
a Léttskýjað
Qk Hálfskýjað
Á Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r f r
r r / / Rigning
r r r
* r *
r * r * Siydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
■j 0° Hitastig:
10 gráður á Celsius
\J Skúrir
*
V E1
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 5 léttskýjað Reykjavík 6 léttskýjað
Bergen 8 rigning
Helsinki 11 skýjað
Kaupmannahöfn 15 skýjað
Narssarssuaq 2 þoka
Nuuk +1 þoka
Osló 11 rigning
Stokkhólmur 14 skúr
Þórshöfn 7 alskýjað
Algarve 20 skýjað
Amsterdam 17 léttskýjað
Barcelona vantar
Berlin 22 lóttskýjað
Chicago 11 skýjað
Feneyjar 24 skýjað
Frankfurt 21 skýjað
Qlasgow 13 skúrásíð. klst.
Hamborg 17 skýjað
Las Palmas 24 léttskýjað
London 21 léttskýjað
Los Angeles 14 léttskýjað
Lúxemborg 20 léttskýjað
Madrid vantar
Malaga vantar
Mallorca vantar
Montreal 7 alskýjað
NewYork 12 léttskýjað
Orlando 22 alskýjað
Paris 20 skýjað
Róm 28 skýjað
Vfn 21 léttskýjað
Washington 13 léttskýjað
Winnlpeg 9 léttskýjað
gera hefur verið gert og það hefur
gengið upp. Síðan verður að koma í
ljós á kjördag hvort við höfum náð
til kjósenda. Við höfum fengið hag-
stæðar niðurstöður í skoðanakönn-
unum og erum ánægðir með það, en
um leið höfum við áhyggjur af því á
vissan hátt, og erum að reyna að
koma þeim skilaboðum til kjósenda
að skoðanakannanir og úrslit kosn-
inga hafa ekki farið saman hvað
Sjálfstæðisflokkinn varðar. Þess
vegna leggjum við mikla áherslu á
að fólk mæti á kjörstað.
Kosningabaráttan hefur að sumu
leyti verið svolítið einkennileg og hún
fór seint af stað. Það sem vakið hef-
ur mesta athygli mína er að blöð
vinstri flokkanna hafa verið heldur
máttlítil í þessari kosningabaráttu.
Sérstaka athygli mína hefur vakið
hve Þjóðviljinn hefur verið prúður,
en miðað við kosningabaráttuna
1986 eru andstæðurnar sterkastar
hvað varðar málflutning hans. Þá
var hann helsti sóknarvettvangur
andstæðinga sjálfstæðismanna í
Reykjavík, en núna hefur blaðið ekki
fylgt kosningabaráttunni eftir í
fréttaskrifum eins og áður, og það
sama má reyndar segja um Alþýðu-
blaðið og Tímann."
Átti von á meiri baráttu
Ámundi Ámundason, kosninga-
stjóri Nýs Vettvangs, sagði kosn-
ingabaráttuna hafa gengið mjög vel,
en hann hefði átt von á meiri baráttu.
„Ég er mjög ánægður með það
að Sjálfstæðisflokkurinn fór í kosn-
ingabaráttu. Mér finnst baráttan
hafa verið málefnaleg og ekki hafa
farið í nein leiðindi eins og oft vill
verða, og samstarf flokkanna bak
við tjöldin hefur verið mjög gott. Þar
sem framboð Nýs vettvangs hefur
aldrei verið áður þá bjóst ég við að
erfiðara yrði fyrir okkur að marka
okkur þann bás sem við erum komn-
ir í núna, og ég bjóst við að hinir
flokkarnir myndu heyja harðari
kosningabaráttu.
Mér finnst okkur hafa tekist mjög
vel til, og ég mun alla vega upp-
skera mjög vel. Ég er sannfærður
um að H-listinn fær 25% atkvæða
og fjóra menn kjörna. Ég finn greini-
lega að það hefur verið jafnt og
st.ígandi fylgi frá því að við byrjuð-
um, og það er ljóst að kjósendur
hafa gert það upp við sig að valið
standi eingöngu á milli H-listans og
D-lfstans.“
Lítið um skoðanaskipti
Steinar Harðarson, kosningastjóri
Alþýðubandaiagsins, sagði að kosn-
ingabaráttan að þessu sinni hefði
einkennst af litlum áhuga almenn-
ings í Reykjavík, sem þó hefði vaxið
nú síðustu dagana fyrir kosningar.
„Mér finnst það koma æ betur í
Ijós hvað peningar og auglýsingar
hafa mikið að segja í kosningabar-
áttu. Hún fer æ meira fram í formi
auglýsinga, og minna í formi skoð-
anaskipta um málefni og stefnur.
Framan af kosningabaráttunni hefur
áhugaleysi fólks e.t.v. stafað af því
að mönnum finnist ljóst að Sjálfstæð-
isflokkurinn haldi meirihluta stnum.
í okkar liði er mjög góð samstaða.
Við höfum lagt megináherslu á að
dreifa áróðri á götum úti, og haldið
kostnaði í lágmarki. Félagar okkar
reka þessa baráttu fyrir okkur. Aftur
á móti virðist t.d. kosningabarátta
Sjálfstæðisflokks að verulegu leyti
rekin með stuðningi atvinnulífsins,
þar sem menn skrifa sig fyrir auglýs-
ingum og kosta þær. Að sumu leyti
er þetta því ójafn leikur. Þegar aug-
lýsingar og fjármagn skipta svona
miklu máli í kosningabaráttunni, er
lýðræðið í verulegri hættu.
Það er erfitt að meta stöðuna nú
rétt fyrir kosningar. Skoðanakann-
anir undanfarið hafa stangast mikið
á, og mjög erfitt er að spá í stöð-
una. Síðustu sólarhringarnir geta
haft veruleg áhrif. Miðað við síðustu
kosningar hefur orðið veruleg breyt-
ing í herbúðum Alþýðubandalagsins,
en hér er samhent og baráttuglatt
lið sem er að takast á við þetta erf-
iða verkefni, og andinn er afskaplega
góður. Fyrir íjórum árum var vissu-
lega meiri ágreiningur -í kosninga-
stjóm og í framkvæmd kosningabar-
áttu G-listans, og- að því leyti er
miklu ánægjulegra að vinna í þess-
ari baráttu. Ef maður tekur mark á
skoðanakönnunum eru horfurnar
ekki eins góðar og síðast. Við fengum
þá 20,5% fylgi, og allt undir því er
vissulega hreint tap.“
Ekki örugg með mann inni
Unnur Stefánsdóttir, kosninga-
stjóri Framsóknarflokksins, sagði
kosningastarf á vegum Framsóknar-
flokksins hafa gengið mjög vel, og
allir sem leitað hafi verið til hafi
verið mjög jákvæðir. „Allt sem við
höfum gert hefur gengið að óskum
og síðan kemur í ljós hvað það skilar
sér í atkvæðakassana. Kosningabar-
áttan hefur greinilega færst mikið í
það að fara fram í útvarps- og sjón-
varpsstöðvum og frambjóðendur
okkar haft mest að gera á því sviði.
Mér finnst of mikið hafa verið talað
um Nýjan vettvang, sem ég tel
reyndar bara vera gamla flokka und-
ir nýju nafni. Eðlilega hefur Sjálf-
stæðisflokkurinn verið mikið í um-
ræðunni þar sem hann hefur svo
mikinn meirihluta. Það er áberandi
að hann hefur notað tækifærið og
opnað aha mögulega hluti upp á
síðkastið, sem hefði verið hægt að
gera fyrr, en þeir auðvitað ákveðið
að gera rétt fyrir kosningar. Sjálf-
stæðismenn hafa mikið fylgi, en ég
efast um að þeir fái fleiri en 10
menn kjöma. Við gerum okkur það
alveg ljóst að við þurfum á öllu að
halda til að halda okkar manni inni,
og við erum engan vegin örugg um
það nema fólk sé nógu duglegt að
hjálpa okkur.“
Skoðanakannanir dregið úr
spennunni
Guðrún Erla Geirsdóttir, kosn-
ingastýra hjá Kvennalistanum, sagði
að kosningabaráttan hefði farið mjög
hægt af stað, og framan af hafi
greinilega verið lítill áhugi á kosning-
unum, en það hafi komið sér mjög
á óvart. „Nýr vettvangur er nýtt afl
sem nú kemur inn og vekur athygli,
og við erum frekar óhressar með
hvað fjölmiðlar hafa hoppað á þetta
nýmæli og skilið okkur eftir í umræð-
unni. Annars hefur undirbúningur
okkar og kosningabarátta alveg
gengið upp. Þar sem við höfum ver-
ið að koma fram höfum við mætt
hlýhug og góðvild, og við teljum að
við höldum okkar fylgi.
Ég fylgdist vel með kosningabar-
áttunni fyrir átta árum og þá var
vissulega meiri barátta á ferðinni,
en ég held að skoðanakannanir sem
gerðar hafa verið á undanförnum
vikum hafi dregið verulega úr spenn-
unni. í þeim könnunum er reyndar
ótrúlega há prósenta óvissuatkvæða,
og mér fínnst sjónum hafa allt of
lítið verið beint að því.“
Bragðlítil kosningabarátta
Metúsalem Þórisson, kosninga-
stjóri Græns framboðs, sagði kosn-
ingabaráttuna hafa verið dauflega
og bragðlitla.
„Mér finnst fólk vera áhugalaust
og það telji framhaldið vera nokkuð
öruggt. Hvað okkur varðar þá höfum
við ekki getað kynnt okkur á borð
við aðra sem notað hafa auglýs-
ingar, en við höfum þó fundið það
eftir því sem fleiri vita um framboð
okkar að fólk er jákvætt. Við finnum
því meðbyr, en hvað hann fleytir
okkur hins vegar langt vitum við
ekki. Við teljum þó að fylgi 0kkar
muni aukast mikið frá því sem skoð-
anakannanir hafa gefið til kynna.“