Morgunblaðið - 24.05.1990, Page 20
ÍS
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 1990
Akranes:
Slök fjármálastjórn
eftir Benedikt
Jónmundsson
Meirihlutaflokkarnir í bæjar-
stjórn Akraness, Framsóknarflokk-
ur og Alþýðubandalag, hafa tekið
undir stefnuskrá sjálfstæðismanna
hvað varðar fjármálastjóm bæjar-
ins. Þeir viðurkenna hinsvegar ekki
að þeim hefur mistekist að hafa
stjórn á fjármálum og framkvæmd-
um bæjarsjóðs á kjörtímabilinu sem
nú er að ljúka.
Hér verða nefnd nokkur dæmi
úr ársreikningum bæjarsjóðs sem
bera þess glögglega merki hvernig
fjármálastjórn á ekki að vera.
Lántökur
Lántökur fóru fram úr fjárhags-
áætlun á hverju ári kjörtímabilsins,
þ.e.a.s. árið 1986 um 17,9 mkr.
1987 um 8,9 mkr., 1988 34,9 mkr.,
1989 um 5 mkr., eða samtals um-
fram áætlun 66,7 mkr., og hefur
þetta í för með sér að heildarskuld-
ir bæjarins hafa á kjörtímabilinu
hækkað um 31 mkr. umfram verð-
bólgu. Heildarskuldir bæjarins eru
því 87% af árstekjum og er það
áhyggjuefni fyrir bæjarbúa.
Framkvæmdir
Sjálfstæðismenn gagnrýndu
mjög hvemig meirihlutinn stóð að
verklegum framkvæmdum og verk-
eftirliti.
Ýmsar framkvæmdir á kjörtíma-
bilinu fóm verulega fram úr fjár-
hagsáætlun og má þar t.d. nefna
eftirtaldar:
Framkvæmdir við Brekkubæjar-
skóla fóru fram úr áætlun árið 1986
6,1 mkr., 1988 4,8 mkr. og 1989
4,6 mkr., eða samtals 15,5 mkr.
Framkvæmdir við Grundaskóla
fóru árið 1986 7,3 mkr. fram úr
áætlun. Framkvæmdir við Jaðars-
bakkalaug fóru árið 1988 29,8
mkr. fram úr áætlun.
Gatnagerð
í gatnagerð var ástandið ekki
betra hvað fjármálastjórn meiri-
hlutans viðkemur, því á hveiju ári
kjörtímabilsins fóru gatnafram-
kvæmdir fram úr áætlun svo millj-
ónum skipti, jafnvel þótt sumum
framkvæmdum samkvæmt áætlun
hafi verið kippt út.
Alögur á bæjarbúa
Til að klóra í bakkann hefur
meirihlutinn með dyggri aðstoð AI-
þýðuflokks hvað eftir annað hækk-
að álögur á bæjarbúa í formi stór-
hækkaðra fasteignagjalda, útsvars
og aðstöðugjalda á undanfömum
árum.
Fjárhagsáætlun
Eins og bæjarbúum er kunnugt
Benedikt Jónmundsson
„Til að klóra í bakkann
hefiir meirihlutinn með
dyggTÍ aðstoð Alþýðu-
flokks hvað efitir annað
hækkað álögur á bæj-
arbúa í formi stórhækk-
aðra fasteignagjalda,
útsvars og aðstöðu-
gjalda.“
þá var ijárhagsáætlun bæjarins fyr-
ir árið 1990 byggð á röngum for-
sendum hvað varðar tekjur, þar sem
í ljós kom að Akraneskaupstaður
hafði fengið ofgreiddar 24 mkr. frá
ríkissjóði vegna staðgreiðslu árið
1989, sem þýðir 32 mkr. of háa
tekjuáætlun ársins 1990.
Góður fjármálastjómandi hefði
bmgðist skjótt við og endurskoðað
fjárhagsáætlun og endurskipulagt
fjármálin með tilliti til fram-
kvæmdagetu, en það var öðm nær
hjá meirihlutanum, því hann hafn-
aði tillögu sjálfstæðismanna um
endurskoðuri á fjárhagsáætlun árs-
ins sem lögð var fram í bæjarráði
nú nýlega.
Lokaorð
Af því sem hér hefur verið rakið
má ljóst vera að fjármálastjórn
núverandi meirihluta hefur bmgðist
gjörsamlega á kjörtímabilinu. Það
em því öfugmæli meirihlutans að
tala um góða fjármálastjórn og að
skynsamlega hafí verið unnið að
framkvæmdum.
Höfundur er bæja.rfulltrúi og
skipar 1. sætilista
Sjálfstæðistlokksins á Akranesi
við bæjarstjórnarkosningarnar.
Neyðaróp frá ráðherra
eftirPál V.
Daníelsson
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra er farin að óttast mjög
um gengi ríkisstjórnarinnar í sam-
bandi við sveitarstjómarkosningarn-
ar. Gengur svo langt að hún tekur
þau tvö sveitarfélög á höfuðborgar-
svæðinu, þar sem vinstri menn hafa
verið í meirihluta, út úr og gefur
þeim í krafti ráðherravalds vottorð
um góða fjárhagsstöðu, að vísu
byggða á gömlum reikningum,
síðasti frá árinu 1988. Þannig er
hún farin að reyna að hafa áhrif á
kosningarnar í sveitarfélögum þar
sem hún á hvorki atkvæðisrétt né
búsetu og virðist því ekki hafa
áhyggjur af því hvaða skuldabaggi
og fjármálaóreiða skellur yfir íbú-
ana.
Fjárnám og uppboð á
ráðhúsinu
Hvað Hafnarfjörð snertir þá fór
„ Allir sem til fjármála
þekkja vita að hér er
um blekkingar að ræða,
bæjarstjórinn ber fiilla
ábyrgð á fjárnámi í ráð-
húsinu og uppboðsaug-
lýsingunni og hefði sýnt
nokkurn manndóm ef
hann hefði viðurkennt
sannleikann og beðið
afsökunar á þeirri
hneisu, sem hann hefur
valdið bæjarbúum.“
allt á hvolf í fjármálum bæjarins á
árinu 1989. Skuldir meira en tvö-
földuðust, skuldabréf, sem bærinn
fékk upp í gatnagerðargjöld o.fl.,
voru seld jafnvel áður en blekið þorn-
aði á undirskriftinni, í verðbréfa-
markaði Fjárfestingarfélagsins með
miklum afföllum og á ábyrgð bæjar-
sjóðs og svo þegar ábyrgðin verður
virk þá er málum ekki sinnt af hálfu
bæjarins, heldur er Iátið gera
fjámám í sjálfu ráðhúsi bæjarins.
Það sýnir lítil tök á fjármálum bæjar-
sjóðs. Og miskunnsemin gagnvart
skuldara bréfsins er ekki mikil að
láta innheimtu- og lögfræðikostnað
hrúgast upp á þennan hátt.
Bæjarstjórinn í felum
Þegar svo allt er komið upp þá
sést ekki mynd af bæjarstjóranum
heldur reynir hann að skýla sér á
bak við embættismenn og fær vott-
orð frá verðbréfamarkaði Fjárfest-
ingarfélagsins til að reyna að koma
ranglega sök á embætti bæjarfógeta
í þessu efni. Allir sem til fjármála
þekkja vita að hér er um blekkingar
að ræða, bæjarstjórinn ber fulla
ábyrgð á íjámámi í ráðhúsinu og
Páll V. Daníelsson
uppboðsauglýsingunni og hefði sýnt
nokkum manndóm ef hann hefði
viðurkennt sannleikann og beðið af-
sökunar á þeirri hneisu, sem hann
hefur valdið bæjarbúum.
Verðbréfamarkaður Fjárfesting-
arfélagsins lýsir svo yfír ánægju með
viðskiptin við Hafnarfjarðarbæ og
skyldi engan undra því hann hefur
keypt margt skuldabréfið með háum
afföllum eins og fjármagnskostnað-
ur bæjarsjóðs segir til um. En ekki
er vottorðsgjöfin traustverkjandi
fyrir verðbréfamarkaðinn.
Stuðningur við ríkisstjórnina
Þótt félagsmálaráðherra í sam-
vinnu við flokksmenn sína í Kópa-
vogi og Hafnarfirði vilji halda stöðu
ríkisstjórnarinnar utan við þessar
kosningar, þá ætti fólk að sjá um
hvaða samspil er að ræða. Félags-
málaráðherra, Jóhanna Sigurðar-
dóttir, hefði ekki farið að skipta sér
með óeðlilegum hætti af innanbæjar-
málum í öðmm sveitarfélögum en
sínu eigin ef hún legði ekki það mat
í þessar kosningar að í þeim kæmi
fram álit fólks á ríkisstjórninni og
atkvæði ríkisstjórnarfiokkunum
greidd væru stuðningur við hana.
Þess vegna lætur hún slá upp nafni
sínu í Alþýðublaði Hafnarfjarðar.
Höfundur er viðskiptafræðingur.
BURI
í bitaformi en traustur sem fyrr
MUNDU EFTIR OSTINUM