Morgunblaðið - 24.05.1990, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 24.05.1990, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAI 1990 21 Að loknu kosninga- # sjónvarpi í Kópavogi eftirÞorvald Veigar Guðmundsson Það fer ekki á milli mála að höll- in sem á að byggja í Kópavogi fyrir næsta heimsmeistaramót í hand- bolta hefur verið mál málanna í kosningabaráttunni hér í bæ. í kosningasjónvarpi sl. sunnudag bentu sjálfstæðismenn á, að alvar- legir gallar væru á þeim hönnunar- hugmyndum sem fram hafa verið lagðar, húsið væri of lítið. Fulltrúa framsóknarmanna leiddist karp um íþróttahúsið og taldi að með upplýs- ingum sínum væru sjálfstæðismenn að „yfírbjóða" stærð hússins. Full- trúi kvennalistans vildi ekki „eyða svona miklú púðri á þetta hús“ hún vildi heldur ræða um leikvelli og barnaheimili og gerði sér enga grein fyrir því að um leið og verið er að tala um þessa miklu framkvæmd er verið að tala um að byggja ekki leik- velli eða bamaheimili, þótt óbeint sé. Fulltrúi Alþýðubandalagsins flutti góða vamarræðu og reyndi að drepa málinu á dreif, en svaraði engu og fulltrúi Alþýðuflokksins gerði svipað nema hann sagði að samningurinn byggðist á „hugmynd að húsi“. Samt var samið um fast framlag ríkisins! Varðandi stærð hússins þá skildi ég sjálfstæðismanninn svo, að ekki væri verið að tala um yfírboð, heldur hversu stórt húsið þurfi að vera til þess annarsvegar, að uppfylla þær kröfur sem alþjóðahandboltasam- bandið gerir um fjölda áhorfenda- sæta, stærð leikvalla, aðstöðu fyrir sjónvarp og fréttamenn o.s.frv., og hinsvegar til þess að uppfylla ís- lenskar öryggiskröfur um breidd á milli sæta, stærð útidyra, fordyri o.fl. Þessar kröfur verður að upp- fylla, annars verður heimsmeistara- keppnin einfaldlega ekki haldin í húsinu. Hér er um að ræða geysistóra framkvæmd fyrir bæjarfélag eins og Kópavog. Jafnvel þótt kostnað- aráætlun sú sem gerð hefur verið standist, á Kópavogur að leggja fram um 600 milljónir kr. Þetta er meira en allt framkvæmdafé Kópa- vogs í ár og þetta er hlutfallslega verulega meira en samanlagður kostnaður við að byggja bæði Perl- una og ráðhúsið í Reykjavík. Nú er það alkunna að áætlanir hafa mikla tilhneigingu til að fara úr böndunum, enda segja þeir sem gerðu umrædda áætlun, að kostnaðurinn muni liggja á bilinu 8-1100 milljónir. Þó er greiðsla ríkisins óbreytanleg. Þar við bætist að flýta verður ýmsum gatna- framkvæmdum, gerð bflastæða og fleiru sem Kópavogur verður ábyrg- ur fyrir að byggja áður en heims- meistarakeppnin fer fram, þ.e. á komandi kjörtímabili. Ofan á allt þetta kemur svo í ljós að stærð húss- ins er verulega vanreiknuð. Það er líklegt að Kópavogur verður að borga milljarð eða meira í þessa einu framkvæmd. Allur þessi aukni kostnaður plús ijármagnskostnaður kemur á Kópavogsbæ einan, en ekk- ert á ríkið samkvæmt núverandi samningi. En það er ekki bara bygging húss- ins sem þarf að hyggja að, það þarf að reka húsið að lokinni heimsmeist- arakeppninni. Nú er tap á rekstri „Otvíræð forsenda fyrir að taka upp samninga við ríkið eru alvarleg mistök í frumhönnun. Hér er ekki verið að ræða um smáupphæð, heldur nokkur hundruð milljónir króna. Því er svo komið að eina leiðin fyrir okkur félags- hyggjufólk, sem viljum halda áfram félagslegri uppbyggingu í Kópa- vogi, er að kjósa Sjálf- stæðisflokkinn.“ íþróttahússins Digraness í Kópa- vogi. Tap á rekstri Laugardalshallar- innar á síðastliðnu ári var yfir 20 milljónir. Laugardalshöllin hefur þó fram til þessa verið eina stóra húsið Þorvaldur Veigar Guðmundsson á höfuðborgarsvæðinu. Handbolta- höllin í Kópavogi verður miklu stærri og dýrari í rekstri. Það er mikil þörf fyrir íþróttahús í Kópavogi, en það er ekki þörf fyrir 4.000 áhorfenda- sæti eins og verður í húsinu á loka- stigi. Hitunarkostnaður, viðhald og allur rekstur svo stórs húss verður mikill, svo mikill að þótt húsið verði í stöðugri notkun vegna æfínga- flokka, þá hlýtur að verða mikið tap á því, ekki minna en á Laugardals- höllinni, þ.e.a.s. milli 20-30 milljónir á ári. Þessum peningum væri betur varið í að styrkja íþróttafélögin til ýmiskonar starfsemi heldur en að greiða viðhald og hitunarkostnað fyrir 4.000 áhorfendasvæði, sem sjaldnast væri setið í. Það virðist svo sem margt áhuga- fólk um íþróttir í Kópavogi geri sér vonir um, að eitt mjög stórt og veg- legt íþróttahús í bænum muni gera Kópavog að stórveldi í íþróttum, eða a.m.k. í handbolta. Góð aðstaða er aðeins hluti af því sem þarf til að ná góðum árangri, mörg áhorfendasvæði eru enginn hluti af því. Það var ekki aðstaðan sem gerði Akranes að stórveldi í knattspymu á sínum tíma né Hafn- arfjörð að stórveldi í handbolta. Góða aðstaðan kom seinna. Það þarf að styrkja innviði íþróttahreyf- ingarinnar í Kópavogi en ekki að byggja um hana gullramma. Sjálfstæðismenn eru þeir einu sem gefið hafa yfirlýsingu um að þeir muni gera kröfu urn bættan hlut Kópavogs. Þeir ætla að fá ríkið til að greiða eðlilega stóran hlut af kostnaði þessarar byggingar og taka á sig stærri hluta af áhættunni en Kópavogur. Ótvíræð forsenda fýrir að taka upp samninga við ríkið em alvarleg mistök í frumhönnun. Hér er ekki verið að ræða um smáupp- hæð, heldur nokkur hundruð milljón- ir króna. Því er svo komið að eina leiðin fyrir okkur félagshyggjufólk, sem viljum halda áfram félagslegri uppbyggingu í Kópavogi, er að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Höfundur eryfírlæknir & Landspítala. „Æ, ég nenntí ekki aö kjósa“ eftirFriðrik Sophusson Ég hitti kunningja minn á götu kvöld eitt í síðustu viku. Við röbbuð- um saman stutta stund. Talið barst að borgarstjórnarkosningunum. Hann sagðist hafa rætt við fjölda fólks. Allir virtust sammála um að Sjálfstæðisfiokkurinn ynni yfír- burðasigur. í lok samtalsins tjáði hann mér að hann væri á fömm til útlanda snemma næsta morgun. Af rælni spurði ég hann hvort hann hefði ekki kosið utankjörstaða. Hann svaraði: „Æ, ég nennti ekki að kjósa. Það munar hvort eð er ekkert um eitt atkvæði.“ Að sjálfsögðu spá langflestir Sjálfstæðisflokknum stórsigri í komandi borgarstjórnarkosningum. „Sá, sem segist ekki nenna að kjósa, er í raun að taka afstöðu með andstæðingunum. Þess vegna skiptir mestu máli að við not- um kosningaréttinn.“ Staða Sjálfstæðisflokksins er sterk, ríkisstjórnin óvinsæl og minnihluta- flokkamir sundraðir og málefna- snauðir. Slíkt ástand hlýtur að gefa óskabyr. Það er því óhætt að vera hæfilega bjartsýnn á hagstæð kosn- ingaúrslit. Of mikil sigurvissa er hins vegar ekki góður förunautur í kosningabaráttunni. Við höfum margfalda reynslu af Friðrik Sophusson því að fylgi Sjálfstæðisflokksins er ofmetið í skoðanakönnunum. Stuðningsfólk D-listans veit hvað það vill. Fjölmargir hinna óákveðnu em að velta fyrir sér hvern vinstri flokkanna skuli velja. Mikið fylgi f skoðanakönnunum getur valdið andvaraleysi. Við verð- um að hafa hugfast að skoðana- kannanir era ekki kosningaúrslit. Það eru atkvæðin í kjörkössunum sem gilda. Við getum því ekki leyft okkur að treysta eingöngu á aðra kjósendur. Sá, sem segist ekki nenna að kjósa, er í raun að taka afstöðu með andstæðingunum. Þess vegna skiptir mestu máli að við notum kosningaréttinn. Það munar um sérhvert atkvæði. Einnig þitt. Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Lækkun fasteignaskatta í Keflavík: Bæj arslj órinn fór með rangt mál eftir Ellert Eiríksson í útvarpsumræðum á Rás 2 á þriðjudagskvöldið sl. spurði Broddi Broddason fréttamaður Jónínu Guðmundsdóttur fulltrúa Sjálf- stæðisflokksins um kosningaloforð okkar um lækkun fasteignaskatta um 10%. Jónína gat þess að hægt væri að gera það samkvæmt fyrirliggj- andi heimildum. Bæjarstjórinn, full- trúi Alþýðuflokksins, fullyrti að það væri rangt, og ef það yrði gert, mundi framlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga lækka til Keflavíkur- bæjar, um tugi milljóna. Staðreyndir málsins eru eftirfar- andi: Þann 14. desember 1989 sam- þykkti bæjarráð Keflavíkur að leggja á fasteignaskatta sem hér segir: A. af íbúðarhúsi 0,4%. B. af öðra húsnæði 1,0%. Þann 27. febrúar 1990 í sam- bandi við þjóðarsátt og kjarasamn- inga breytti félagsmálaráðherra og varaformaður Alþýðuflokksins álagningarreglum og heimilaði 10% lækkun frá fyrri samþykkt án þess Ellert Eiríksson að skerða framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Ríkisstjórnin sendi sveitarfélög- „Hér með lofar Sjálf- stæðisflokkurinn því að strax um næstu áramót verði fasteignaskattar Keflvíkinga lækkaðir um 10%.“ unum tilmæli um lækkun skatta, því var hafnað í Keflavík. Launþegar ættu að veita þessu sérstaklega athygli. Til staðfesting- ar er hér birt bréf félagsmálaráð- herra frá 27. febrúar 1990 þar sem fram koma eftirfarandi álagningar- reglur: A. Af íbúðarhúsnæði 0,36%. B. Af öðru húsnæði 0,9%. Það er sörglegt til þess að vita að núverandi meirihluti ogtalsmenn hans vita ekki betur eða fara vísvit- andi með rangt mál. Sérstaklega þegar þjóðarsátt við launþega er gerð um takmarkaðar launahækk- anir og skattalækkanir í staðinn. Enn furðulegra af Alþýðuflokknum að taka ekki mark á ráðleggingum eigin ráðherra. Samband íslcnskra svcltarfélaga b.t. Magniisar E. Ouöjónssonar, framkv.stj. Háaleitisbraut 11 108 Reykjavík. FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ - 1111 Hiyntf 27. febriiar 1990. í sambandi viö nýgeröa kjarasamninga aöila vinnumarkaöarins átti rlkisstjórnin í því skvni aÖ grciöa fyrir kiarasamninaum samþykkti ríkisstjórnin ýmsar róöstafanlr. M.a. ákvaÖ hún aö beita sér fyrir endurskoöun á hundraöshluta mcöalnýtingar tckjustofna svcitarfélaga sem skilvröi fyrir framlögum úr Jöfnunarsjóöi sveitarfélaga, enda er ljóst aö í kjarasamnlngunum felst ventlegur fjárhagslegur ávinningur fyrir svcitarfélögin. AÖ fenginni umsögn stjórnar Sambands ísl. svcitarfélaga hefur félagsmálaróöhcrra ákvcöiö aö breyta ákvöröun fró 30. nóv. sl. um eölilega nýtingu tckjustofna sveiturfélaga á órinu 1990 þannig aö hún vcröi eftirfarandi: Útsvör AÖstöÖugjaJd 7,5% 65% ilnýting aöstööugjaldsstofns. Fastcignaskattur; 1. Fasteignir samkv. liö a í 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga 0,36% <P. 2. Fastcignir samkv. liöb í 3. gr. laga um tckjustofna sveitarfélaga 0,9%. /.<£> Þetta tilkynnist yöur meÖ ósk um aöþessarí breytingu veröi strax komiÖ á framfæri vlö svcitarfélögin. Hér með lofar Sjálfstæðisflokk-' urinn því að strax um næstu ára- mót verði fasteignaskattar Keflvík- inga lækkaðir um 10%. Þessu mark- miði er auðvelt að ná, aðeins með því að koma lagi á fjármál bæjar- ins, og hætta greiðslu dráttarvaxta af langtímalánum, en þær námu 8,3 milljónum króna 1989. Höfundur er sveitarstjóri í Garðinum og er fyrsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins í Keflavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.