Morgunblaðið - 24.05.1990, Side 28

Morgunblaðið - 24.05.1990, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAI 1990 „Perlan“ á Öskjuhlíð: Uppbygging heitra potta og vatnsfalla Kjörið fyrir gesti og gangandi í tengslum við „Perluna“ Bygging Hitaveitu Reykjavíkur á Öskjuhlíð er sannkölluð perla, því bæði er hún sérstætt og fagurt mannvirki auk þess að bjóða uppá sérstæða möguleika til mannamóta, félagslífs og tómstunda. Það hefur staðið nokkur styrr um þessa byggingu eins og reyndar ráðhúsið á Tjarnarbakkanum og það er ekkert óeðlilegt við slíkt þegar í stórt er ráðist og margir hafa sitthvað til málanna að leggja. Það er hins vegar sannfæring mín að báðar þessar umdeildu bygging- ar eigi eftir að verða stolt Reyk- víkinga og reyndar þjóðarinnar allr- ar. Aræðnir athafnamenn hrundu þeim af stað og tóku af skarið. Mótbárurnar á fyrsta fallinu fara sífellt þverrandi því rökin fyrir ákvörðunum eru sífellt að sanna sig betur og betur, glæsileiki, hag- kvæmni og reisn sem stækkar ásýnd hversdagsbaráttunnar. Á fárra vikna fresti hef ég fylgst með þessum framkvæmdum og þá sérstaklega „perlunnar“ á Öskjuhiíð og það hefur bæði verið fróðlegt og skemmtilegt að fylgjast með hvernig þessi bygging verður til, mótast jafnt og þétt eins og sjálf perlan í skelinni. Veitingastaðurinn undir gler- hjálminum verður staður þar sem „Perlan“ á Öskjuhlíð. gestum gefst kostur á að fara í eins konar útsýnisferð í lágflugi yfir Reykjavík og nágrenni á einni klukkustund, því hringgólf hússins fer einn hring á klukkustund. Þá bendir allt til þess að vetrargarður- inn milli vatnstankanna verði aðlað- andi og sérstæður staður fyrir gesti og gangandi. Astæðan fyrir grein minni er hins vegar aðallega sú að brydda upp á nýjum möguleika í tengslum við „perluna" á Öskjuhlíð. Þeim mögu- leika að byggja upp í tengslum við útsýnishúsið aðstöðu, m.a. með heitum pottum, útfærðum „læk“ í sama dúr og þegar best gerðist í Nauthólsvík, eins konar smekklega Árni Johnsen afmarkað heitavatnssvæði á þess- um stórkostlega stað sem Öskju- hlíðin er. Þarna er slagæð hitaveit- unnar og með stórvirkinu á Nesja- völlum kemur nóg vatn til á næsta ári. Með þessu móti er hægt að auka enn notagildi „perlunnar“ á Öskjuhlíð og nýta kosti sem njóta almennra vinsælda og eru einkar aðgengilegir bæði með tilliti vatns- öflunarinnar og útivistarsvæðisins sjálfs. Það er ekki meiningin með þess- ari hugmynd að óska eftir tilbúnum lækjarsprænum um alla Öskjuhlíð heldur á afmörkuðu svæði nálægt útsýnishúsinu og í nánum tengslum við það, þar sem heita vatnið gæti fossað og bullað í keijum, lækjum og fossum, gestum og gangandi til hollustu og yndisauka, og víst er að margir myndu vilja baða sig við slíkar aðstæður beint úr æð. Málefnafátækt Nýs vettvangs eftir Guðrúnu Zoega Málflutningur Nýs vettvangs í kosningabaráttunni hefur vakið nokkra athygli og einkum fyrir málefnafátækt og fyrir það, að svo virðist sem staðreyndir skipti engu máli. í heilsíðuauglýsingu sem birst hefur í dagblöðum að undanförnu eru svo miklar rangfærslur, að ekki verður hjá því komist að leiðrétta nokkrar þeirra. Umferðaröngþveiti og fleiri slys Nýr vettvangur heldur því fram, að sjálfstæðismenn vilji umferðar- öngþveiti og fleiri slys. Þeir sem ekki kjósa að loka augunum fyrir staðreyndum vita að miklar umbæt- ur hafa verið gerðar á stofnbrauta- A „Aróður Nýs vettvangs minnir á aðferðir kommúnista hér áður fyrr: Eflygin er endur- tekin nógu oft, þá held- ur fólk að hún sé sann- leikur.“ kerfinu, svo sem með lagningu hins nýja Bústaðavegar, breikkun Suð- urlandsbrautar, breytingum á Miklatorgi o.fl. Fjöldi hraðahindr- ana hefur verið settur upp og göng gerð undir akbrautir, auk annarra aðgerða til að auka umferðarör- yggi. Allt þetta dregur úr slysa- hættu. Guðrún Zoega Hver vill loka Fæðing- arheimilinu? í auglýsingunni er því haldið fram að Sjálfstæðisflokkurinn vilji loka Fæðingarheimilinu. Fæðingar- heimilinu hefur ekki verið lokað og eru engin áform um það af hálfu meirihlutans. Þvert á móti hefur verið ákveðið að fjölga þar rúmum. Hins vegar hefur Kristín Ólafsdótt- ir, einn frambjóðenda Nýs vett- vangs, lagt til að því verði lokað. Er þetta ef til vill enn eitt dæmi um ap innan Nýs vettvangs rúmist allar skoðanir? Árás á starfsmenn Rey kj aví kurb orgar í ákafa sínum við að koma höggi á Sjálfstæðisflokkinn hikar Nýr vettvangur ekki við að ráðast á starfsmenn Reykjavíkurborgar og saka þá um spillingu. Hér er lágt lagst í baráttunni gegn meirihlutan- um í borgarstjórn. Hreinsun strandlengjunnar Hreinsun strandlengjunnar hófst fyrir 4 árum undir forystu Sjálf- stæðisflokksins. Lengst af sýndu fáir aðrir þessu átaki áhuga. Það er ánægjulegt hve framkvæmdir hafa opnað augu minnihlutans enda keppist nú hver um annan þveran við að bjóða betur. Lausn á umferðarvandanum? Hvað hefur Nýr vettvangur svo fram að færa? Ef marka má fyrr- nefnda auglýsingu virðist helsta nýmælið vera að hann ætlar að kaupa reiðhjól handa borgarstjóra. Það er erfitt að átta sig á tilgangin- um með því. Kannske á það að minnka mengun eða draga úr um- ferðaröngþveitinu. Óhróður og ósannindi Áróður Nýs vettvangs minnir á aðferðir kommúnista hér áður fyrr: Ef lygin er endurtekin nógu oft, þá heldur fólk að hún sé sannleik- ur. Framboð, sem telur sig þurfa að beita óhróðri og ósannindum til að styðja sinn málstað er ekki verð- ugt trausts kjósenda. Svo virðist sem ósannindin séu það eina sem. aðstandendur Nýs vettvangs geti sameinast um. Reykvíkingar hafa áður sýnt með vali sínu á kjördegi að þeir hafa skömm á slíkum mál- flutningi og þeir munu ekki láta nýjan hentifána blekkja sig. Ilöfundur er verkfræðingur og skipur 9. sæti framboðslista sjálfstæðismanna við borgarstjórnarkosningarnar 26. maínk. ENN UM ÓSANNINDI Haraldi Blöndal svarað eftirArnór Benónýsson í Morgunblaðinu sl. laugardag er stóryrt grein frá Haraldi Blön- dal með fyrirsögninni: „Getur frú Ólína ekki sagt satt?“ Svar: Jú, „frú Ólína“ (sem Har- aldur hefur gert að samnefnara fyrir framboð Nýs vettvangs) get- ur sagt satt og segir satt. Hún semur þó ekki auglýsingatexta Nýs vettvangs. Þeir eru á ábyrgð kosningastjórnar. Haraldur er þarna að vefengja auglýsingatexta framboðsins þar sem segir: „Fleiri slys: Sjálfstæðismenn hafa fellt langflestar tillögur um hraða- hindranir (öldur).“ Nú skulu stað- reyndir málsins hins vegar raktar og taktu nú vel eftir, Haraldur. í formannstíð Valgarðs Briem í umferðarnefnd Reykjavíkur voru samþykktar í nefndinni 77 öldur, og þær samþykktir síðan staðfest- ar í borgarráði. Á fyrrihluta for- mannstíðar Haraldar Blöndal, til áramóta 1988/89 var samsvarandi tala 58 en á seinnihlutanum ein- ungis 10! (Miðað er við þann fjölda sem komið hefur til framkvæmda að undanskildu árinu 1990.) Skýr- ingin á þeim mikla mun sem kem- ur þarna fram, á milli fyrri- og síðarihluta formannstíðar Harald- ar Blöndal er sú, að á fyrrihlutan- um gætti enn áhrifa frá setu Katrínar Fjeldsted í nefndinni, en hún sat þar 1982-1986. Það má því segja að mikið hafi verið búið að „safnast fyrir í pípunum“ þegar Haraldur tók við, en á seinnihlut- anum gætir nær eingöngu áhrif- anna frá andúð Haraldar og félaga hans í meirihluta umferðarnefnd- arinnar. Varðandi fullyrðinguna um að sjálfstæðismenn hafi fellt langf- lestar tillögur um hraðahindranir (öldur) vil ég segja þetta: Á seinni- hluta formannstíðar Haraldar samþykkti umferðarnefnd 10 öld- ur, en felldi 6 beinlinis. Það segir þó alls ekki alla söguna, því að á sama tíma hafa fjölmargar óskir um öldur verið svæfðar (drepnar) með þeirri lymskulegu aðferð að fresta málinu og taka það síðan aldrei upp aftur, eða fresta málinu með því að vísa því til athugunar út og suður í borgarkerfinu. Þetta finnst eflaust Haraldi vera meiri stjórnviska heldur en að fella óskirnar hreinlega, enda hefur hann eflaust lesið skoðanakönnun Neytendasamtakanna sem gerð var fyrir nokkrum árum. Þar kem- ur í ljós að mikill meirihluti fólks á höfuðborgarsvæðinu er eindreg- Arnór Benónýsson ið hlynntur því að fjölga öldum innan íbúðahverfanna stórlega. Þetta eru staðreyndir málsins og gildir einu hvernig Haraldur og félagar reyna að heyja sína kosningabaráttu á persónulegum „Á seinni hluta for- mannstíðar Haraldar samþykkti umferðar- nefiid 10 öldur, en felldi 6 beinlínis. Það segir þó alls ekki alla söguna, því að á sama tíma hafa fjölmargar óskir um öldur verið svæfðar (drepnar) með þeirri lymskulegu aðferð að fresta málinu og taka það síðan aldrei upp aftur, eða fresta málinu með því að vísa því til athugunar út og suður í borgarkerfinu.“ grunni, með því að vefengja ein- stakar persónur úr hópi andstæð- inga. Ilöfundur er starfsmaður Nýs vettvangs.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.