Morgunblaðið - 24.05.1990, Síða 33

Morgunblaðið - 24.05.1990, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAI 1990 33 Frá vinstri til hægri í Hafnarfirði eftir Ásu Maríu Valdimarsdóttur 26. maí er mikilvægur dagur. H-dagurinn var 26. maí 1968 þegar íslendingar breyttu úr vinstri um- ferð yfir í hægri, og 26. maí 1990 kjósa Islendingar hvort þeir vilja hægri eða vinstri sveitarstjórnir. Framkv.æmdirnar í bænum Fyrir 4 árum tók vinstri meiri- hluti við völdum í Hafnarfirði. A kjörtímabilinu hafa A-flokkarnir lokið við ýmsar góðar framkvæmd- 'ir sem fráfarandi meirihluti sjálf- stæðismanna og óháðra borgara hafði byijað á (sundlaugin, Hafnar: borg, Strandgatan o.fl.). Einnig hafa þeir hrint í framkvæmd mörg- um þeim málum sem sjálfstæðis- menn voru með á stefnuskrá sinni fyrir síðustu kosningar (íþróttahús, æskulýðsheimili, fiskmarkaður o.fl.). Ber að þakka allt sem vel hefur verið gert í þessum efnum. Við þökkum ekki Á hinn bóginn er ekki hægt að þakka þeim fyrir allt sem þeir hafa gert, hvað þá fyrir það sem þeir hafa ekki gert. Við getum ekki þakkað þeim fyrir að hafa hækkað fasteignagjöld og vatnsskatt svo um munar. Við getum ekki þakkað þeim fyrir að hafa veikt stöðu at- vinnurekstrar í bænum með hækk- uðum álögum. Við getum ekki þakkað þeim fyrir að hafa staðið það illa og óskipulega að fram- kvæmdum að þær hafa orðið langt- um dýrari en nauðsynlegt var. Við getum ekki þakkað þeim fyrir að hafa tekið dýr og óhagkvæm lán til framkvæmda og jafnvel rekstr- ar. Við getum heldur ekki þakkað þeim fyrir nauðsynleg verk sem ekki voru unnin, eins og að takast á við vatnsveitu- og frárennsiismál- in svo eitthvað sé nefnt. Nei, vinstri meirihlutinn framkvæmir bara það sem augað fær séð. Skoðanakannanir Ef marka má skoðanakannanir sem birst hafa síðustu daga, virðist Miðasala Listahátíðar; Atriðum hnik- að til vegna fótboltakeppni MIÐASALA Listahátíðar I Reykjavík opnar í dag, fimmtu- daginn 24. maí, uppstigningardag, kl. 14. Miðasalan er að þessu sinni að Laufásvegi 2, í húsi Heimilisiðn- aðarfélagsins, gegnt, Menntaskó- lanum í Reykjavík. Opið verður alla daga frá kl. 14—19. Listahátíð stendur lrá 2.—16. júní í frétt frá Listahátíð segir, að ódýrustu aðgöngumiðar kosti innan við 1000 krónur, en dýrustu miðar 2200 krónur á sýningar San Francis- co ballettsins. í fréttatilkynningu frá Listahátíð segir, að ennfremur megi geta þess að tímasetningum á nokkrum atrið- um á seinni hluta hátíðarinnar hefur verið hnikað til vegna heimsmeist- arakeppninnar í knattspyrnu á Ítalíu. Þannig hefjast til dæmis sýningar hollenska músíkleikhópsins, Mex- íkanskur hundur, í Borgarleikhúsi kl. 21.30, vegna stórleiks Englands og Hollands á heimsmeistaramótinu. Aðaldagskrá Listahátíðar í Reykjavík 1990 er komin út. Hún er óvenju vegleg, í stóru broti, og inniheldur greinargóðar upplýsingar um öll atriði á hátíðinni, bæði á íslensku og ensku. Miðasala Listahátíðar í Reykjavík hefst í dag. Atriðum er hnikað til vegna heimsmeistarakeppninnar í kn^ttapyr-pu., , ,„.,,-1, v .umniR'j)'! sem tekist hafi að slá ryki í augu kjósenda og að stór hluti Hafnfirð- inga telji að allt sé í sómanum. Eg vil ekki trúa því að Hafnfirðingar séu sáttir við að greiða hærri álög- ur en nauðsynlegt er. Ég vil ekki trúa því að Hafnfirðingar telji það í lagi að peningar þeirra fari í bruðl og óráðsíu. Getur það verið að á sama tíma og heimurinn allur er að hafna vinstri öflum ætli Hafn- firðingar að gefa þeim byr? HafnarQörður er fyrirtækið okkar Ég skora á Hafnfirðinga að staldra aðeins við og hugsa lengra „Ég vænti þess að Hafn- firðingar skoði hug sinn vel og skora á þá að gera 26. maí að eftir- minnilegum H-degi. Deginum þegar Hafn- firðingar breyttu úr vinstri stjórn yfir í hægri. Það getum við einfaldlega með því að krossa við D-listann á laugardaginn." Ása María Valdimarsdóttir en fram á næstu helgi. Ég skora á þá að kynna sér stefnuskrá Sjálf- stæðisflokksins og líta á hlutina í víðara samhengi. í framhaldi af því, hvet ég hvern og einn til að velta fyrir sér eftirfarandi atriðum áður en hann gengur að-kjörborðinu á laugardag. Ef þú værir að velja stjórnendur í þitt eigið fyrirtæki, ekki einn held- ur 11, hvaða starfsreynslu og hæfn- iskröfur myndir þú gera til umsækj- enda? Hafnarfjörður er fyrirtæki þitt. Berðu saman fólkið á listanum. Ertu sáttur við ríkisstjórnina og skattastefnu vinstri flokkanna al- mennt? Mundu að hvert atkvæði sem greitt er vinstri flokkunum í bænum er jafnframt stuðningsyfir- lýsing við ríkisstjórnina. Ég vænti þess að Hafnfirðingar skoði hug sinn vel og skora á þá að gera 26. maí að eftirminnilegum H-degi. Deginum þegar Hafnfirð- ingar breyttu úr vinstri stjórn yfir í hægri. Það getum við einfaldlega með því að krossa við D-listann á laugardaginn. Höfundur skipar 6. sæti á lista sjálfstæðismanna í Hafnarfirði. SERA FRIÐRIKS-KAPELLA Hljparenda við Öskjuhlíð Fyrsta skóflustungan í dag, uppstigningar- dag, kl. 16.00 Athöfn við minnis- varða sr. Friðriks: Ávarp: Pétur Sveinbjarnarson, formaður framkvæmda- nefndar. Davíð Oddsson, borgarstjóri, tekur fyrstu skóflustunguna. Söngur: Fóstbræður. Herra Ólafur Skúlason, biskup íslands, flytur bæn. Heiðursstaða félaga úr KFUM/KFUK, Skátum, Val og Fóstbræðrum. Dagskrá í íþróttahúsi Vals: Ræða: „Séra Friðrik“: Gylfi Þ. Gíslason, fyrrv. menntamálaráðherra Söngur: Fóstbræður. Upplestur: Gunnar Eyjólfsson, skátahöfðingi fslands. Lokaorð: Ástráður Sigursteindórsson fyrrv. skólastjóri. Kaffiveitingar. Teikningar og Ukan kynnt. Á líðandi stund stendur öll Evrópa á vegamótum. Hin gömlu, andlegu, lífsverðmæti hafa fengið nýtt gildi í augum þjóðanna. íslenska þjóðin þarf sterk bein til þess að standast í þeim heimi sviftinga, sem fram- undan er. Engin þjóð, sem leggur ekki rækt við hin sterku siðgæðislegu gildi, mun stand- ast samkeppni framtíðarinn- ar. Þess vegna hafa æskulýðs- starf, íþróttir og menningarlíf fengið nýtt vægi í augum allra, sem lengst sjá og dýpst skyggnast. Þú ert vafalaust í þeirra hópi, þar sem þú gefur þér tíma til þess að lesa þetta ávarp og hugleiða boðskap þess. Mörg vandamál steðja að æskulýð allra landa, einnig íslands. Eiturlyf, siðleysi og höfnun siðgæðishugsjóna um vinnusemi, trúmennsku og andlegan jafnt sem líkamleg- an þroska hljóta að vekja okk- ur til þróttmikils starfs og til þess að fylkja okkur um merki þeirra, sem vilja æsku íslands allt. Einn þeirra manna var séra Friðrik Friðriksson. Hann var einstakur í sinni röð og er enn tákn þess vilja, sem býr með okkur öllum, að efla félagsleg tengsl, hlúa að uppvaxandi æsku og styrkja viljakraft, þjálfun og þroska hinna ungu stúlkna og pilta í líkamlegum sem andlegum íþróttum og manndómi. Við ætlum að byggja litla kap- ellu á Hlíðarenda við Öskjuhlíð. Kveðjum við til liðs meðlimi allra iþróttafé- laga í landinu, liðsmenn söng- félaga, kirkjulegra félaga, skátafélaga og annarra æsku- lýðsfélaga, - alla þá, sem notið hafa góðs af starfi séra Frið- riks með einhverjum hætti, - eins konar „landslið"! Þessi litla kapella verður til nota fyrir alla þá, sem vilja eiga þar hljóða stund, auk þess sem hún mun nýtast á margan veg, í íþróttalífinu, með tónleikahaldi, já, jafnvel til giftinga. Hún skal vera lif- andi minnisvarði um lífsstarf og hugsjónir sr. Friðriks. Megi tákn kapellunnar verða okkur öllum áminning um hin eilífu lífsgildi líkamlegs- og andlegs atgervis íslensks æskufólks og þjóðarinnar allrar. Komið hefur verið á fót styrktarmannakerfi. Stefnt er að því að fá tvö til þrjú hundruð einstaklinga til að leggja mánaðarlega fram eitt þúsund krónur. Tékkareikningur samtakanna er í íslandsbanka, Lækjargötu, nr. 1811. Samhliða verður komið á styrktarkerfi fyrirtækja og stofnana. Tekið er á móti framlögum til Séra Friðriks-kapellu I símum 12187 og 678899 alla virka daga frá kl. 9-17. Ég undirritaöur óska eftir aö greiöa kr. 1.000,- mánaöarlega næstu 12 mánuöi til styrktar byggingu Minningarkapellu séra Friöriks Friðrikssonar Kr. 1.000,- Skuldfærist mánaðarlega án vaxta á greiðslukort mitt: o □ • - Gild r til. Kennit.: ->s Má setja ófrlmerkt I póst, buróargjald greióist af viötakanda. Minningarkapella Nafn: Heimili: HS:______ sr. Friöriks Friörikssonar. Pósthólt 1527 121 Fteykjavík
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.