Morgunblaðið - 24.05.1990, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAI 1990
39
Hamborg:
Olafttr Gíslason held-
ur einkíLsýiiingii í XPO
^ Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
OLAFUR Gíslason, listamaður, opnaði nýlega sína fyrstu einkasýn-
ingu í Hamborg í Vestur Þýskalandi. Sýningin er lialdin í XPO gall-
eríinu og mun standa til 16. júní. XPO er eitt af helstu galleríum
borgarinnar. Það hefur tekið Ólaf í hóp nokkurra listamanna sem
það hefur umboð fyrir og mun meðal annars sýna verk hans á
Amsterdam-listaverkamarkaðnum í næsta mánuði. „Sýningin hér í
Hamborg er fyrsta skrefið í samvinnu við galleríið og nú er bara
að bíða og sjá hvaða árangur það hefiir í for með sér,“ sagði Ólafur
í samtali við Morgunblaðið.
að sigrast á erfiðleikunum. Sagan
kennir okkur einnig að allir markað-
ir eru mikilvægir og nauðsynlegt
að leggja rækt við þá alla þótt þeir
gefi mismikið af sér. Einstaklingar,
sem segjast geta fengið gott verð
og í sumum tilvikum betra verð
heldur en sölusamtök, hafa einung-
is áhuga á mörkuðum sem gefa vel
af sér. Þeir fást ekki við heildar-
hagsmuni. En einn góðan veðurdag
er sá markaður veikur sem áður
var sterkur. Þannig hefur þetta
sveiflast til og frá og gæti minnt á
hljóðfall hljómkviðu, þar sem hljóð-
færin gegna mismunandi mikil-
vægu hlutverki á hinum ýmsu stöð-
um í verkinu. En góður hljómsveit-
arstjóri gerir ekki upp á milli hljóð-
færa sinna því þau eru öll mikilvæg
í fyllingu tímans. Þannig starfa
sölusamtökin.
Það er kannski harmleikur
mannsins hve honum reynist erfitt
að miðla reynslu sinni, einstaklings-
réynslu, þjóðarreynslu, sagnfræði-
legri reynslu. Reynsla kemst ekki
til skila og hver kynslóð þarf að
gera sömu axarsköftin og fyrri
kynslóðir. Hugmyndin með gerð
sögulegra kvikmynda var að reyna
að miðla sögulegri reynslu og gera
grein fyrir sögulegum rökum. Ef
til vill var sú hugmynd dæmd til
að mistakast, þótt vonandi megi
hafa eitthvert gagn af þessum
myndum, t.d. í skólakerfinu, þar
sem þær eru að sönnu notaðar.
Hitt er fróðlegt að benda á að sú
heimildarmyndj sem tekin var á 50
ára afmæli SIF og átti að vera
nútímaleg lýsing á saltfiskfram-
leiðslu, útflutningi og markaðsmál-
um saltfisksins, er nú aðeins 8 árum
'seinna orðin fullkomlega úrelt sem
kynningarmynd, en hefur þeim mun
meira gildi sem heimildarmynd, þar
sem nánast allt, sem myndin lýsir,
hefur breyst, framleiðsluhættir
(ormahreinsun, tandurfiskur),
pökkun (brettavæðing & neytenda-
pakkningar), útflutningur (örari
afskipanir, ný flutningatækni með
tilkomu brettanna, vörugeymslur í
markaðslöndum), markaðsmál (nýir
markaðir, nú í öllum heimsálfum).
Því má bæta við að kennslumynd
í saltfiskverkun, sem einnig var
tekin árið 1982, hefur þrívegis ver-
ið endurgerð til að hún úreltist ekki,
svo örar hafa breytingarnar verið.
Þetta ætti að færa okkur heim
sanninn um það að SÍF getur tæp-
ast hafa sofið á verðinum þetta
tímabil, sem líklega hefur haft í för
með sér meiri breytingar í saltfisk-
framleiðslu íslendinga heldur en
orðið höfðu næstu 50 ár þar á und-
an. Sér ekki enn fyrir endann á
þeirri þróun.
Fjöreggið
Kynni mín af samtökum sjávar-
útvegsins við gerð þessara kvik-
mynda hafa leitt til þeirrar niður-
stöðu að þrátt fyrir alla þá gagn-
rýni, sem menn vilja beina að þess-
um sámtökum, þá séu þau okkur
ekkert síður dýrmæt heldur en lýð-
veldið sjálft og menning þjóðarinn-
ar, vegna þess að í gegnum þau
höfum við getað staðið vörð um
efnahagslegt sjálfstæði landsins.
Til að vekja athygli á þessu og rífa
okkur út úr gamla einokunarstagl-
inu hef ég kosið að líkja þeim við
hersveitir, sem leitast við að veija
heildarhagsmuni þjóðarinnar á vett-
vangi viðskiptanna. Eg tel það hik-
laust vera gæfu þessarar þjóðar
hversu margir mikilhæfir menn
hafa valist í gegnum árin til að
gegna trúnaðarstörfum fyrir þessi
samtök sjávarútvegsins. í þeirri
uppbyggingu, sem átt hefur sér
stað í veiðum, vinnslu og markaðs-
málum íslenskra sjávarafurða á
þessari öld, felst f|öregg þessarar
þjóðar. Menn skyldu fara varlega í
að feta í fótspor örlaganornanna
og gera sér að leik að henda þessu
fjöreggi á milli sín.
Það er kannski tilviljun að ein-
mitt það sama ár og Ólafur Thors
flutti ræðu sína um útflutnings-
verslunina árið 1953, skyldi sá
mæti háskólamaður, Þorkell Jó-
hannsson, hafa skrifað merkilega
grein um atvinnumál, þar sem leitt
skyldi í ljós, hversu þjóðin hafi ver-
ið á vegi stödd um atvinnuefni sín
í þann mund er hún lét sig fyrst
dreyma um að taka stjórn .og alla
forsjá innanlandsmálanna í sínar
hendur. Þorkell bendir á að þeim
sem þreyttir eru orðnir á samtökum
og félagsstarfi er hollt að láta hug-
ann reika til þeirra tíma, er hvort
tveggja var með öllu óþekkt í landi
voru. Hér þarf ekki ýkja langt að
leita, segir Þorkell. Fram að árinu
1751 voru engin félög til í þessu
landi og á 19. öld, fram um 1840,
má telja félög hér á landi á fingrum
annarrar handar og þau öll fámenn
og áhrifasnauð yfirleitt. Ég vil gera
orð Þorkels í þessari grein, sem
hann nefnir „Á mótum gamals tíma
og nýs“, að lokaorðum mínum þeg-
ar hann segir: „Meginstoðir at-
vinnulífs á vorum dögum eru fjár-
magn og samtök. I sögu atvinnu-
veganna varðar mestu um samtök-
in, því þangað má rekja upphaf
hinna stærstu átaka og afreka.“
Höfundur er
kvikmyndagerðarmaður.
Ólafur kallaði verk sín rýmisverk.
Hann notar meðal annars hvers-
dagslega hluti eins og handklæði,
skó eða flöskur og skilgreinir þá
með að setja í hólf og raða í eina
heild. Eitt verkanna eru hestastytt-
ur felldar ofan í sökkla og annað
rammar frá endurreisnar- og rokó-
kótímabilinu sem eru felldir inn í
10 metra langan sérbyggðan vegg.
„Hluturinn er forsendan fyrir heild-
inni í verkum mínum,“ sagði Ólaf-
ur. „Ég ákveð frá hvaða sjónar-
horni áhofandinn sér hann með því
að koma honum fyrir á vissan hátt.“
Sýningin er stór en elsta verkið
á henni er ekki nema hálfs árs
gamalt. Listaverk Ólafs ganga ekki
kaupum og sölum mjög auðveld-
lega. Hann bindur vonir við að kom-
ast í sambönd við gallerí í öðrum
heimsborgum í gegnum XPO og
vekja þannig athygli á þeim. Þau
hafa þegar vakið athygli á Norðurl-
öndum. Honum hefur verið boðin
þátttaka í samsýningu á vegum
Norðuriandaráðs sem verður opnuð
í Stokkhólmi í febrúar 1991 og mun
ferðast til sex annarra borga þar á
meðal í Suður-Ameríku og í fyrir-
hugaðri alþjóðlegri sýningu 46 lista-
manna í jafnmörgum héruðum
Nordland-sýslu í Noregi, en undir-
búningur hennar hefst 1991. ís-
lendingarnir Kristinn og Sigurður
Guðmundssynir og Hreinn Frið-
finnsson munu einnig taka þátt í
fyrri sýningunni en Georg Guðni
og Jón Óskar í hinni seinni.
Ólafur er 28 ára Reykvíkingur.
Hann fór til náms við Listaháskól-
ann í Hamborg 1983 og hefur dval-
ið þar síðan. Hann fékk listamanna-
laun frá Hamborg í ár og sagði að
þau nægðu sér fyrir efni. „Eg hef
lítið farið til íslands að undanförnu
en vonast til að komast þangað
oftár í framtíðinni. En ég verð að
búa hér í Hamborg," sagði hann.
BMW 518i GAGNTEKUR EVRÓPU!
Ef þú ert í hópi þeirra sem alltaf hefur langað í BMW þá
er ástæða til að staldra við og kanna hvort ekki sé kominn
tími til að láta ósk þína rætast.
Nú er kominn BMW úr hinni glæsilegu 5-línu með ná-
kvæmlega sömu yfirbyggingu, sömu frábæru aksturs-
eiginleikana, sömu þægindin og sama akstursöryggið og
gert hafa BMW 5-bílana að eftirsóttustu bílum heims. Samt
er verðið lægra en áður og eldsneytisnýtingin betri.
Hvernigmá þaðvera?
BMW í Múnchen tók upphaflega ákvörðun um að setja
aðeins 6 strokka vélar í BMW 5 bílana; þá gerðist það að
tæknideildin fékk vitrun og ný ákvörðun var tekin um að út-
búa a.m.k. eina gerðina með hinni nýju og sérlega vel
heppnuðu fjögurra strokka M40 vél sem knýr m.a. BMW
318i. 0 tkoman varð hreint ótrúleg.
M40 vélin er tæknilega náskyld hinni nýju VI2 vél sem
er aðall BMW 7-bílanna. Þegar hún kom fyrstfram á sjónar-
sviðið vakti hún strax athygli bílaáhugamanna fyrir þrennt:
kraft, sparneytni og þýðan gang. Og stað.reyndin er sú að
M40 vélin er hönnuð sérstaklega með snúningskraft í
huga og í þeim efnum gefur hún 6-strokka M20 vélinni nán-
ast ekkert eftir, einkum á lágum snúningshraða.
Við þetta bætist að BMW 518i er 70 kg léttari en BMW
520 svo að munurinn verður enn minni. Með smávægi-
legum hönnunarbreytingum tókst einnig að ná fram sömu
þyngdardreifingu og er í BMW 520. Allir aksturseigin-
leikar haldast því óbreyttir.
Nú bendir allt til þess að BMW 518i eigi eftir að verða
vinsælasti bíllinn í 5-seríunni og á verðið sinn þátt í því, að
ógleymdri sparneytninni.
Ef þú vilt sjálfur kynnast BMW 518i er tækifæri
til þess einmitt nú.
Vegna mikillar eftirspurnar í Evrópu fæst takmarkaður
fjöldi þessara bíla til (slands, en ef þú bregst skjótt við
þá getur þú orðið meðal hinna útvöldu. . ;
Reynsluakstur færir þig í allan
sannleika um það sem þig grunar
nú þegar: BMW er engum líkur.
Bilaumboðið hf
KRÓKHÁLSI 1,REYKJAVlK,SlMI 686633
Engum
líkur