Morgunblaðið - 24.05.1990, Side 42

Morgunblaðið - 24.05.1990, Side 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 1990 Fatlaðir vilja að hér sé eitt samfélag eftirJónu Gróu Sigurðardóttur Velferðarþjóðfélag sem vill rísa undir nafni hlýtur að leitast við að tryggja öllum þegnum sínum bestu möguleg lífsskilyrði. Starfslöngun er flestum mönnum í blóð borin og því forsenda lífshamingju að þeir eigi þess kost að hafa starf með höndum. Þetta á jafnt við um fatl- aða sem ófatlaða. Nútímastefna er að aðgreina einstaklinga ekki í hópa, heldur að stuðla að því að hér sé eitt samfélag. Aðgengi og ferilmál fatlaðra er stórmál í þessu samhengi. Vinnumiðlun fatlaðra á vegum Reykjavíkurborgar Á vegum Ráðningarstofu Reykjavíkurborgar er starfandi vinnumiðlun fyrir fatlaða og sér- hæfð vinnuleit. Samningar em við Múlalund um að vinnumiðlunin ráð- stafí þeim 30 hálfsdags starfsþjálf- unarplássum sem þeir hafa til ráð- stöfunar, og fer fjöldi fólks í gegn- um starfsþjálfunina á Múlalundi á ári hveiju. T.d. var um að ræða 125 ráðningar á sl. ári. Auk þess hafði vinnumiðlunin milligöngu um 142 ráðningar á vemdaða vinnustaði og 65 ráðningar á hinn almenna vinnu- markað, en 10 urðu sér úti um vinnu sjálfir. Af þessum 65 sem fóm á hinn almenna vinnumarkað fóru 48 til Reykjavíkurborgar á meðan að- eins 1 fékk vinnu hjá ríkinu. Þá hefur vinnumiðlunin ráðið töluverð- an fjölda fatlaðra ungmenna í úti- vinnu á sumri hveiju, sem hefur gefíst mjög vel. Nýlega er hafið námskeið á vegum vinnumiðlunar- innar fyrir fatlaða um atvinnulífíð og námsleiðir. Tilgangurinn er að auðvelda fötluðum sjálfum að leita sér atvinnu. Starfshópur í atvinnuleit Nefnd er starfandi um atvinnu- mál fatlaðra og er borgarstjórinn í Reykjavík formaður hennar. Auk aðila frá Reykjavíkurborg eru í nefndinni fulltrúar atvinnulífsins og fulltrúar frá félögum fatlaðra. Á vegum nefndarinnar er starfandi stafrshópur sem hefur heimsótt um 120 fyrirtæki í Reykjavík og kynnt atvinnumál fatlaðra og kannað möguleika á störfum í fyrirtækjum. Heimsóknir þessar hafa borið árangur og aukið skilning á málefn- inu. Þá stendur vinnumiðlunin fyrir kynningu á myndbandinu „Atvinna óskast“ sem starfshópurinn vann að, og er nú að fara af stað kynn- ing á myndbandinu meðal fyrir- tækja, stofnana og almennings. Einnig hefur starfshópurinn unnið að gerð upplýsingabæklings í tengsium við myndbandið um at- vinnumál fatlaðra í Reykjavík, sem dreift verður jafnhliða sýningu á myndbandinu. Þá hefur verið unnið að öðrum bæklingi í samvinnu við félagsmálaráðuneytið sem er ætlað- ur atvinnurekendum og nefnist „Við viljum vinna“. Fleiri störf fyrir fatlaða Óhætt er að slá því föstu að ástandið í atvinnumálum fatlaðra hefði verið lakara en raun ber vitni, ef atvinnumálanefnd Reykjavíkur- borgar hefði ekki með fulltingi Ráðningarstofunnar og samþykki borgarráðs beitt sér fyrir samstarfí við fyrirtækið Glit hf., með því að taka þátt í kostnaði af 16—18 hálfs- dagsstörfum fatlaðra að sérstökum tímabundnum verkefnum. I þessu sambandi er einnig rétt að geta þess að tekist hefur gott samstarf með atvinnumálanefnd, Ráðningar- stofunni og Múlalundi um að greiða fyrir ráðningu fatlaðra í störf hjá Gliti hf. Ljóst er að gera þarf sér- stakar og oft meiri kröfur til starfs- umhverfís fatlaðra en þeirra sem ganga heilir til skógar. Leggja skal áherslu á að viðleitni atvinnumála- nefndarinnar í sambandi við þetta „Á vegum neftidarinnar er starfandi starfshóp- ur sem hefur heimsótt um 120 fyrirtæki í Reykjavík og kynnt at- vinnumál fátlaðra og kannað mögnleika á störfum í fyrirtækjum.“ sérstaka verkefni hefur á sér til- raunablæ. Þá má geta þess að Reykjavíkur- borg styrkti Múlalund á sl. ári til þess að auðvelda fyrirtækinu rekst- ur vinnustofu þess í leiguhúsnæðinu í Skeifunni 3c hér í borg. Jóna Gróa Sigurðardóttir Tvö kosningaloforð sjálfstæðismanna varða aðgengi og ferilmál fatlaðra Sjálfstæðismenn í Reykjavík hafa sett fram 25 kosningaloforð, tvö þeirra varða aðgengi og feril- mál fatlaðra. Fyrra loforðið er að sett verður snjóbræðslukerfi í allar götur í mið- bæ Reykjavíkur, og liggur í augum uppi hve hér verður um gífurlegan ávinning að ræða í ferilmálum fatl- aðra, ef snjór og klaki á vetrum hamlar ekki lengur för þeirra um gamla miðbæinn. Seinna loforðið er að stofnaður verður lánasjóður fyrir þá sem breyta vilja húsnæði sínu til að bæta aðgengi fatlaðra. Hér er um mikið hagsmunamál fatlaðra að ræða, sem vafalaust á eftir að auð- velda þeim sem vilja og geta búið meðal ófatlaðra, en það er sú stefna sem fatlaðir sjálfír hafa markað. Útivist fyrir fatlaða Það má til gamans geta þess að á Elliðavatnssvæðinu við Helluvatn hefur Reykjavíkurborg komið upp aðstöðu fyrir fatlaða til að stunda silungsveiði. Lögð hefur verið braut fyrir hjóastóla frá akveginum og niður að vatninu og settar upp bryggjur. Þetta er viðleitni Reykjavíkurborgar til að stuðla að frekari möguleikum fatlaðra til úti- veru, og vísar vonandi veginn að fleiri möguleikum og aðgerðum. Hiifundur er formaður atvinnumálanefndar Reykjavíkurborgar ogskipar 11. sætiá lista Sjálfstæðisflokksins til borgarstjórnarkosninga 26. maí nk. Fjármál Kópavogs Svar til Signrðar Helgasonar frá Jóhönnu Sigurðardóttur í Morgunblaðinu í gær beinir þú til mín fyrirspurn varðandi skuldir Kópavogskaupstaðar árin 1986- 1989. Þú tilgreinir ákveðnar tölur í því sambandi og spyrð, hvort þær séu ekki réttar. Félagsmálaráðu- neytið telur ekki eðlilegt að fjalla með þessum hætti um einstakar tölur úr ársreikningum sveitarfé- laga, enda eru ársreikningar sveit- arfélaga öllum opnir og upplýsingar um fjármál sveitarfélaga er einnig að fínna í árbók sveitarfélaga. Að auki var í starfi nefndarinnar sem gerði úttekt á fjárhagsstöðu sveit- arfélaganna miðað við tölur úr árs- reikningum sveitarfélaga 1988. Ársreikningar fyrir 1989 liggjaekki fyrir nema hjá fáum sveitarfélög- um. Varðandi það hvort grípa þurfi til meiri fyrirhyggju í fjármálastjórn Kópavogs þá vil ég taka fram að ráðuneytið blandar sér ekki í fy'ár- málastjórn sveitarfélaga nema í al- gjörum undantekningartilfellum né heidur gefur út tölulegar upplýsing- ar um fjárhag einstakra sveitarfé- laga. Alls ekkert tilefni er til slíks í Kópavogi. Höfundur er félagsmálaráðherra. Jóhanna Sigurðardóttir Laxeldi o g fiskeldi eftirJón Odd Þórhallsson Fiskeldi er samkvæmt núgildandi lögum um Iax- og silungsveiði skil- greint svohljóðandi: Fiskeldi er geymsla, fóðrun og gæsla eldis- físks. Fiskeldi er því lífbúskapur með fisk og laxeldi er ein grein innan fiskeldisins. Fólk virðist halda að allt sem heitir eldisfiskur sé Iax, en það er nú öðru nær. Hér á íslandi eru í eldi, auk Atlantshafslaxins (Salmo salar), Regnbogasilungur (Salmo gairdneri), urriði (Salmo trutta), bleikja (Salvelinus alpinus) og á tveim stöðum er hafið tilraunaeldi á lúðu (Hippoglossus hippoglossus). Það er þó allt á byijunarstigi. Einnig er hafið eldi á hörpudiski (Chlamys islandica) á Breiðafirði, kræklingaeldi er hafíð hjá Napa hf. í Hvalfirði, fluttur hefur verið inn sæsnigill frá Kalifomíu, svokallað sæeyra (Haliotis rufuscens) sem er í eldi á Stað í Grindavík. Loks hef- ur verið reynt eldi á risarækju (Macrobrachium rosenberii) í Keflavík. Að minnsta kosti tvö íslensk fiskeldisfyrirtæki stefna að því að hefja eldi á sandhverfu (Psetta maxima). Mikill áhugi er fyrir ræktun ála hér á landi og virðist sem þar sé óplægður akur, því mikil eftirspurn virðist vera eftir ál erlendis. (Eins og þið sjáið er orðið „físk- eldi“ svolítið víðtækara hugtak en orðið „laxeldi"). En nú spyija einhveijir e.t.v., hvers vegna verið sé að ala þessar áðurnefndu tegundir í kerum og kvíum, þegar hægt er að veiða þær í sjónum? Fyrir því geta verið nokkrar ástæður. 1. Erfítt getur verið að nálgast sumar tegundir með stórtækum veiðarfærum t.d. vegna dýptar, kóralrifja eða lítillar þekkingar á göngum og lífsháttum viðkom- andi tegundar. 2. Eldisdýrin geta verið það sjald- séð og verðmæt að framboðið anni ekki eftirspum. 3. Einnig getur farið svo að hafið geti ekki annað þeirri eftirspurn sem er eftir sjávardýram. Þarna komum við að mikilvægu atriði: „Það er ekki hægt að veiða endalaust upp úr sjónum.“ Þetta er staðreynd sem íslenskir sjómenn era farnir að hafa áhyggjur af, og hvers vegna haldið þið að Norð- menn (sem eru langt á undan okk- ur í laxeldinu) stefni á það að fram- leiða 100 þúsund tonn af þorski á ári? Mannfjölgunin í heiminum er ógnvænleg og ekki sér fyrir endann á henni ennþá. Hvert land hefur ekki nema takmarkaðan veiðikvóta á hveija fískitegund, svo hún of- veiðist ekki og svó að stofninn geti haldist stöðugur. Og þó að fólkinu fjölgi stöðugt þá geta kvótarnir ekki stækkað sem því nemur og þá verður eitthvað annað að koma í staðinn. Og svari nú hver fyrir sig. Jón Oddur Þórhallsson „Við verðum að vera þolinmóð og passa okk- ur á að dæma ekki allt sem heitir fískeldi þó að nokkrar laxeldis- stöðvar eigi I byrjunar- erfiðleikum.“ Ég er ekki að segja að íslending- ar eigi að fara að rækta þorsk í keijum og kvíum, heldur að þeir átti sig á því í hvað stefnir og þeir séu viðbúnir því sem koma skal. Ef við viljum stækka þjóðarkök- una verðum við að vera opin fyrir öllum nýjungum í atvinnulífinu og nýta þá möguleika sem hér era fyrir hendi. Þ.e. heitt vatn í jörðu, ferskt og gott kalt vatn og mikið af ómenguðum sjó. Þessa mögu- leika verðum við að nýta okkur eins og kostur er. Þegar talað er um fiskeldi halda margir að hér sé nú komið eitt loð- dýraævintýrið enn. Ég tel að það sé ekki hægt að bera saman dýrar tískuvörur og nauðsynlega matvöru (þá á ég við fisk almennt). En eru ekki allir farnir að fram- leiða lax, erekki markaðurinn löngu orðinn mettur? .. Eftir því sem þú ert með betri vöra í höndunum þeim meiri mögu- leika áttu á markaðnum. Og ég tel að íslendingar eigi ekki minni möguleika en aðrar þjóðir á sölu fískafurða erlendis, því hér er lítið um sjúkdóma og mengun miðað við aðrar þjóðir. Nokkrar ástæður fyrir framtíð fiskeldis hér á landi: 1. Flestar eldisstöðvar hér á landi nota grunnvatn til eldis, en það dregur úr líkum á því að hættu- leg smitefni berist inn í stöðina með villtum dýrum. 2. Öll hrogn eru sótthreinsuð áður en þeim er komið fyrir í klakhúsi. 3. ísland er landfræðilega einangr- ■. að í N-Atlantshafi, en það minnkar líkurnar á því að hættu- legir sjúkdómar og mengun ber- ist hingað frá öðrum löndum. 4. Innflutningur hrogna og lifandi ferskvatnsfiska er mjög tak- markaður og haft er strangt eftirlit með nýjum tegundum sem fluttar eru inn til landsins. En af hvetju er þá „allt á hausn- um“ fyrst við eigum svona mikla möguleika? Fólk þarf að átta sig á því að það fréttir bara af því sem fjöl- miðlar hafa áhuga á að birta, sem er oftast gjaldþrot eða gróðafyrir- tæki. Varla er hægt að segja, sam- kvæmt stöðunni í dag, að fiskeldis- fyrirtæki séu gróðafyrirtæki því nokkuð hefur borið á gjaldþrotum hjá laxeldisstöðvum víða um land. Auðvitað bregður fólki þegar það sér þær upphæðir sem laxeldisfyrir- tækin eru sögð skulda. En sannleik- urinn er sá að oftast era þetta sömu fyrirtækin sem eru í fréttunum og eiga mestu skuldirnar. Þetta era stærstu laxeldisstöðv- arnar sem tóku stór lán til að byggja stórar stöðvar, sem byggðar voru á skömmum tíma. Þær áttu lítið eigið fé í byrjun og nú eru vextirnir af lánunum, plús ófyrirsjá- anleg óhöpp, að setja þessar stöðv- ar á hausinn, en ekki það að stöðv- arnar geti ekki selt fiskinn. Hrogn verða ekki að stórum matfiski á einum degi og þess vegna geta fískeldisstöðvarnar ekki borg- að þessi lán á nokkrum mánuðum heldur þarf nokkur ár þangað til fyrirtækin geta farið að skila hagn- aði og þess vegna þurfa fískeldisfyr- irtækin að eiga kost á hagstæðum lánum. Róm var ekki byggð á einum degi svo að við verðum að vera þolinmóð og passa okkur á að dæma ekki allt sem heitir fiskeldi þó að nokkrar laxeldisstöðvar eigi í byrj- unarerfiðleikum, heldur verðum við að hugsa lengra fram í tímann. Höfundur er nemi á fiskeldisbraut að Hólum í Hjaltadal.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.