Morgunblaðið - 24.05.1990, Síða 44

Morgunblaðið - 24.05.1990, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 1990 Póstur og slmi: Rekstur síðustu ára ínnan flárlagamarka - segir aðstoðarpóst- og símamálastjóri GUÐMUNDUR Björnsson aðstoðarpóst- og símamálstjóri, segir að rekstur Pósts og síma síðustu tvö ár hafí verið innan marka Qár- laga, og fjárfestingar umfram íjárlög hafi verið innan marka gengis- breytinga. Undirbúningur á nýju leikári LR er hafinn. Fyrsta sýning vetrarins verður Fló á skinni. LR undirbýr nýtt leikár í nýrri skýrslu Ríkisendurskoð- unar um Póst og síma er bent á að afkoma fyrirtækisins hafi verið tæpum 1.800 milljónum verri en gert var ráð fyrir á fjárlögum á tímabilinu 1982-1989, og fjárfest- ingar á þessu tímabili hafi farið 1.600 milljónum, eða að meðaltali 21,8%, fram úr áætlun. Guðmundur Björnsson sagði við Morgunblaðið að árið 1988 hefðu fjárfestingar farið 7% fram úr fjár- lögum og 9% árið 1989. Ef gert væri ráð fyrir frávikum á gengi ^væri þetta innan þeirra. Þá hefði rekstur Pósts og síma nánast verið samkvæmt fjárlögum á þessum tíma, m.a. hefði aðeins verið 0,8% frávik á launalið árið 1989, en laun væru um helmingur útgjalda fyrir- tækisins. „Við erum komin mjög nálægt fjárlögunum í fjárfestingum á síðustu tveimur árum. En við verð- um að fara fram úr þeim í ákveðn- um tilvikum. í skýrslunni er nefnd- ur ljósleiðarinn til Nesjavalla, en það er okkar mat, að við getum ekki sagt fyrirtækjum og einstakl- ingum að þeir fái ekki síma vegna þess að ekki er gert ráð fyrir því á fjárlögum," sagði Guðmundur. Ríkisendurskoðun bendir á að afskriftir Póst og síma hafi verið • 2.000 milljónum hærri en áætlað var á þessum árum. Guðmundur sagði að þegar afskriftir væru áætlaðar, væri byggt á spá Þjóð- hagsstofnunar um vísitölur og gengi. Ef sú spá brygðist, brygðust áætlanir um afskriftir sömuleiðis. Hann sagði í þessu sambandi, að árið 1987 hefði því verið spáð að launagjöld hækkuðu um 21% milli ára, en rauntölurnar hefðu verið 42%. Þá hefði því verið spáð að almennt verðlag hækkaði um 12% það ár, en raunin orðið 18%. Árið 1989 hefði því verið spáð að verð- lag hækkaði milli ára um 14% en raunin orðið 21%. í skýrslu ríkisendurskoðunar er frímerkjaútgáfan gagnrýnd, m.a. vegna þess að gjaldskrár hafi breyst strax eftir útgáfu sem hafi þar með ekki nýst. Talið er nauð- synlegt að gjaldskrársamþykktir liggi fyrir við útgáfú nýrra frímerkja. Guðmundur Björnsson sagði um þetta, að árlega væru gefin út 6-9 frímerki á ári. Frímerki væru mik- ið keypt af söfnurum og til að þetta væri söfnunarvara yrði að liggja fyrir hvaða útgáfur væru á hveijum tíma. í verðbólgu undanfarinna ára hefði orðið að giska á verðlagsþró- unina, auk þess sem stjórnvöld hefðu stundum dregið að heimila gjaldskrárhækkanir. Þá bendir Ríkisendurskoðun á, að útibú Pósts og síma í Leifsstöð á Keflavíkurflugvelli, og söludeild í Kringlunni séu rekin með halla. Guðmundur sagði að hallarekstur í Kringlunni væri réttlætanlegur vegna þjónustuhlutverks deildar- innar, en hann sagðist geta tekið undir ábendingar Ríkisendurskoð- unar um útibúið í Leifsstöð. Meirihluti bæjarráðs lét bóka að þeir teldu efnahagsreikninginn staðfesta í einu og öllu sterka fjár- hagsstöðu bæjarsjóðs. Nettóskuldir væru um 160 milljónir, og hefðu þær lækkað um 30 milljónir frá bráðabirgðauppgjöri. í bókun, sem bæjarráðsmenn Sjálfstæðisflokksins lögðu fram á bæjarráðsfundinum í gær, segir að ljóst sé að heildarskuld bæjarsjóðs hafi hækkað úr 848 milljónum sam- kvæmt bráðabirgðauppgjöri í 961 Hjá Leikfélagi Reykjavíkur er undirbúningur næsta leikárs haf- inn af fúllum krafti. Fló á skinni eftir Georges Feydeau verður fyrsta verkefni vetrarins. milljón, þótt þá hafí verið dregnar út 30 milljónir vegna Bæjarútgerð- ar Hafnarfjarðar, og hækkun skulda milli uppgjöra sé þannig 143 milljónir. Bent er á að eftir eigi að taka tillit til þess að tekjufærð hafa veirð gatnagerðargjöld af öllum lóð- aúthlutunum, en ekki séu skuld- færðar óunnar gatnagerðafram- kvæmdir fyrir á annað hundrað milljóna. Skuldaraukning bæjar- sjóðs sé því á sjötta hundrað millj- óna á árinu, á sama tíma og eign- Frumsýning er fyrirhuguð eftir miðj- an september. Fló á skinni var frum- sýnt fyrir um 18 árum í Iðnó og er ein af vinsælustu og mest sóttu sýn- ingum félagsins, en það var sýnt 270 færð fjárfesting samkvæmt upp- gjörinu sé 299 milljónir. í bókun- inni segir að ljóst sé að lausafjár- staða bæjarsjóðs sé mun verri en bæjarstjóri hafi haldið fram, og full ástæða sé til að hafa áhyggjur af þróun mála. Guðmundur Árni Stefánsson bæjarstjóri lét bóka að á bókun sjálfstæðismanna mætti sjá að hald- ið skyldi áfram villandi málflutn- ingi, og allt annað væri lesið úr ársreikningnum en hann segði. Á ferðinni væri kosningaskjálfti sjálf- stæðismanna, en ekki raunsönn umræða um reikninga bæjarins. Jóhann G. Bergþórsson, annar fulltrúa sjálfstæðismanna í bæjar- ráði, segir að niðurstöður efnahags- sinnum. 14 leikarar fara með hlutverkin. Leikstjóri er Jón Sigurbjörnsson. Leikmynd gerði Helga Stefánsdóttir og þýðandi er Vigdís Finnbogadóttir. reikningsins staðfesti það sem sjálf- stæðismenn hafi haldið fram um fjármál bæjarsjóðs Hafnarfjarðar. „Þarna er ekki um neina ófræging- arherferð að ræða, heldur ber okkur skylda til þess sem kjörnum bæjar- fulltrúum að vekja athygli bæjarbúa á því hvernig að málunum er stað- ið. Við teljum reyndar að framlagn- ing þessa uppgjörs hafi verið vegna þrýstings frá flokksmönnum bæjar- stjóra, því þeim hafí fundist það vera hulduverk að leggja þetta ekki fram. Sannleikurinn er því píndur fram að svo miklu leyti sem hann kemur þarna í ljós, en rekstarupp- gjör hefur ekki verið lagt fram þannig að ekki er gerð grein fyrir hvernig rekstrarafkoma bæjarsjóðs er.“ Hafnarfjörður: \ Skuldir bæjarsjóðs um áramót tæpur einn milljarður króna Á FUNDI bæjarráðs Haftiaríjarðar var í gær lagður fram áætlaður eftiahagsreikningur bæjarsjóðs HafnarQarðar fyrir árið 1989. Sam- kvæmt reikningnum voru heildarskuldir bæjarsjóðs um áramótin samtals 961 milljón króna, og höfðu þær hækkað um 500 milljónir frá árinu 1988. Veltufjármunir og langtímakröfúr voru tæplega 802 milljónir, en voru 385 milljónir árið 1988. Þýski nóbelsverðlaunahafínn Wolfgang Paul: Eðlisfræðin verður allt- af hagnýt fyrr eða síðar VESTUR-þýski prófessorinn og nóbelsverðlaunahafinn Wolfgang Paul var hér á landi fyrir skemmstu og flutti fyrirlestur við Há- skóla íslands á vegum Alexander von Humboldt-félagsins á ís- landi. í spjalli við Paul kom fram að hann telur að fyrr eða síðar vérði leitinni að smæstu einingum efnisins hætt vegna þess hve kostnaðarsöm hún er orðin. Hins vegar verði endaiaust hægt að gera eðlisfræðina hagnýta. Prófessor Paul var fyrst spurð- ur um stöðu þýskra raunvisinda í samanburði við önnur lönd. „Fyrstu tvo áratugina eftir stríð vorum við nokkuð langt á eftir öðrum. En núna má segja að við stöndum jafnfætis Bandaríkja- mönnum, Frökkum og Bretum. En því má ekki gleyma að vísind- in eru alþjóðleg og þekkja engin landamæri. Vandamál þýskra há- skóla hins vegar er nemendafjöld- inn. Margir setjast þar á skóla- bekk sem ekki hafa vísindalegan áhuga. Það er þörf á meiri sérhæf- ingu innan háskólanna sem full- nægir bæði þörfum þeirra sem vilja iðka vísindi og hinna sem eru að verða sér úti um starfsmennt- un.“ Wolfgang Paul sem nú er 76 ára gamall er hættur að kenna en er enn í fullu starfi við háskól- ana í Grenoble og Bonn. Á árun- um 1979-1989 var hann forseti Humboldt-stofnunarinnar í Bonn sem einkum styrkir erlenda vísindamenn til rannsókna í Þýskalandi. Wolfgang Paul er hvað þekktastur fyrir að hafa þróað gildru sem bindur hlaðnar frumeindir í rafsegulsviði og gerir þær þannig á vissan hátt sýnileg- ar. í gildrunni sem kennd er við Paul hefur tekist að mæla ljós frá einni frumeind óháðri öðrum fru- meindum en þvermál þeirra er einungis um 10.000 milljónasti hluti úr metra. Undanfarin ár hefur hann unnið að því að fanga nifteindir og rannsaka þær. Nif- teindir eru að því leyti erfíðari en frumeindir að þær eru ávallt óhlaðnar og bindast því ekki í rafsviði. Wolfgang Paul fékk Nób- elsverðlaunin í eðlisfræði árið 1989 ásamt Bandaríkjamönnun- um Hans Dehmelt og Norman Ramsey. Morgunblaðið/Bjarni Prófessor Wolfgang Paul. — Wolfgang Paul var að því spurður hvort hann minntist árekstra milli rannsókna sinna og samviskunnar. „Nei. í þá stöðu komst ég aldr- ei vegna þess að ég fékkst ein- göngu við undirstöðurannsóknir. En ég vil geta þess að í lok sjötta áratugarins sendu átján vestur- þýskir eðlisfræðingar frá sér áíyktun sem kennd er við Götting- en þar sem þeir lögðust gegn því að smíðuð yrðu vestur-þýsk kjarn- orkuvopn. Þetta varð til þess að vestur-þýska þingið féll frá því að leyfa smfði slíkra vopna. Ég skrifaði undir þessa ályktun á sínum tíma og var reyndar yngst- ur þeirra sem það gerðu.“ Hver er framtíð eðlisfræðinnar, ganga rannsóknarefnin ekki fyrr eða síðar til þurrðar? „Ef ég má taka dæmi af rann- sóknum á byggingu efnisins þá held ég að fyrr eða síðar hætti menn slíku vegna þess hve kostn- aðarsamt það verður að grafast fyrir um sífellt smærri einingar. Hins vegar er endalaust hægt að halda áfram að gera eðlisfræðina hagnýta. Núna er umhverfism- engun mæld með tækjum sem byggja á rannsóknum sem ég gerði á sjötta áratugnum. Guð má vita til hvers þær rannsóknir sem ég vinn að nú verða nýtileg- ar. En reglan er sú að það tekur um 30 ár að hagnýta þær. Niður- stöður í efnafræði eru t.d. hag- nýttar mun fyrr,“ sagði prófessor Paul að lokum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.