Morgunblaðið - 24.05.1990, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAI 1990
45
Sjálfstæðismenn í Keflavík:
Lækkun fasteignagjalda
um 10 af hundraði lofað
Sjálfstæðismenn í Keflavík
hafa heitið því að lækka fast-
eignagjöld í bænum um 10%,
komist þeir til valda eftir kosn-
ingar.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Ellert Eiríksson, efsti maður á lista
Sjálfstæðisflokksins í Keflavík, að
í kjölfar kjarasamninganna síðustu,
„þjóðarsáttarinnar“, hefði félags-
máiaráðherra í bréfi sínu til Sam-
bands’sveitarfélaga, veitt sveitarfé-
lögum heimild til að lækka fast-
eignagjöld um 10%. „Þetta treystu
kratar sér ekki til þess að gera og
hefur bæjarstjórinn ranglega haldið
því fram að þetta væri ekki unnt,
þar eð bærinn fái greiðslu úr Jöfn-
unarsjóði sveitarfélaga. Enginn
slíkur fyrirvari er á lækkunarheim-
ildinni."
Ellert gat þess að fjölmörg sveit-
arfélög hefðu nýtt þessa heimild;
helst þau sem sjálfstæðismenn
stjómuðu. „Veiti Keflvíkingar okk-
ur brautargengi, munum við koma
þeim kapauka sem um var samið í
þjóðarsáttinni strax til skila og
lækka fasteignagjöldin um 10%.“
Sagði Ellert að þeir myndu mæta
tekjumissinum með því einfaldlega
að hætta að borga dráttarvexti.
„Með hagsýni og aðgæslu má ná
stjórn á fjármálunum. Þegar náðst
hefur stjórn á þeim, leiðir af sjálfu
sér að vanskil hætta og bærinn
hættir að borga dráttarvexti. Sú
upphæð sem greidd er nú í dráttár-
vexti er jafnhá þeim tekjum sem
bæjarfélagið fær með því að lækka
ekki fasteignagjöldin, en það eru
8.3 milljónir,“ sagði Ellert J. Eiríks-
son, efsti maður á lista Sjálfstæðis-
flokksins í Keflavík.
Landgræðslu-
átak ’90 hefst
með plöntun
í Kópavogi
Landgræðsluátak ’90 hefst í
Kópavogi í dag, uppstigningar-
dag, með því að bæjarstjórn
Kópavogs gróðursetur trjáplönt-
ur í nýjum reit í spildu í hlíðum
Rjúpnahæðar, ofan við Leirdal.
Þar á að gróðursetja í sumar á
milli 60 og 70 þúsund plöntur sem
eru hlutur Kópavogskaupstaðar
úr Landgræðsluátaki ’90.
Átakið í Kópavogi hefst formlega
kl. 10.30 þegar undirritaður verður
samningur milli Kóavogskaupstað-
ar og Pósts og síma um afnot af
landinu, en rúmlega helmingur þess
er í eigu Pósts og síma. Einnig
verður undirritaður samningur milli
kaupstaðarins og Skógræktarfélags
Kópavogs um framkvæmd gróður-
setningarinnar. Að svo búnu verður
haldið akandi upp í Rjúpnahæð og
þar leggur fráfarandi bæjarstjórn
Kópavogs sitt af mörkum til land-
græðsluátaksins með því að gróður-
setja um 500 tijáplöntur. Með í
förinni verða fulltrúar fram-
kvæmdastjórnar Landgræðslu-
átaksins, Skógræktarfélags Kópa-
vogs, Pósts og síma og fleiri.
Eftir hádegi og næstu daga verð-
ur skógræktarstarfinu haldið áfram
af áhugamönnum úr bænum, fé-
lagasamtökum, skólanemum og
fleirum. Unglingar úr Vinnuskóla
Kópavogs munu síðan vinna við það
í sumar að ljúka verkinu. Aðallega
verður plantað þarna birki-, furu-
og grenitijám. Umrætt ræktunar-
svæði er alls 21,5 hektarar.
Morgunblaðið/Kári Jónsson
Sigurður Hallur, Hallgrímur og Jón Ingi við járnabindingu.
Uppsteypa Dýra-
flarðarbrúar hafín
Núpi, Dýrafirði.
BYRJAÐ var að steypa sökkla Dýrafjarðarbrúar á Lambadalsodda
á mánudag. Brúarflokkar lrá Vegagerð ríkisins vinna verkið og er
áætlað að brúarsmíðinni verði lokið 1. september. Ekki verður þó
hægt að aka yfir hana fyrr en eftir ár þar sem vegfylling verður
ekki tilbúin fyrr. Fullfrágenginn verður vegurinn siðan 1. ágúst 1992.
Verktakinn Suðurverk sf. hefur
nú hafið framkvæmdir við fyrsta
hluta vegfyllingar, verður það verk
unnið með skipum. Efni er tekið í
Ketilseyrarnámum þar sem útbúin
hefur verið sérstök höfn í þessum
tilgangi. Sumarið 1990 og 1991
verður unnið að undirbúningi náma
og gerð varnargarða og vegagerða
beggja megin fjarðar. Sumarið
1991 verður unnið við vegagerð af
landi og vegurinn síðan opnaður
fyrir umferð um haustið.
Vegfyllingin er sú næstmesta í
vegagerð á íslandi, 336 þúsund
rúmmetrar, næstum eins mikil og
yfir Borgarfjörð, 400 þúsund rúm-
metrar. Má með sanni segja að fólk
við Dýrafjörð horfi með vonaraug-
um til þessa verks sem staðið hefur
til síðastliðin 18 ár.
Kári
Mynd Karólínu Lárusdóttur, „Glugginn", hlaut verðlaun á alþjóð-
legri grafíksýningu á Italíu.
Alþjóðleg grafíksýning á Italíu:
Karólína Lárus-
dóttir hlýtur
sérstök verðlaun
„ÉG ER óskaplega ánægð, þessar fregnir gefa inér aukinn
kraft til að halda áfram í grafikinni," segir Karólína Lárus-
dóttir myndlistarkona um viðurkenningu sem hún hlaut ný-
lega á alþjóðlegri grafíkmyndasýningu á Ítalíu. Á sýning-
unni, sem kennd er við bæinn Biella, voru 8 verk af 466
verðlaunuð. ítalinn Bruno Lorenzo hreppti höfúðverðlaunin,
en 7 myndlistarmenn aðrir hlutu sérstök verðlaun og er
Karólína ein þeirra.
Ég var búin að steingleyma
þessari sýningu þegar mér barst
bréf um verðlaunin fyrir nokkr-
um dögurn," segir Karólína Lár-
usdóttir sem búsett er í Eng-
landi. „Þetta var náttúrulega
með skemmtilegri sendingum og
ekki spillti heldur að dálitlir pen-
ingar fylgdu. Myndin mín heitir
„Glugginn" og er æting og aqu-
atinta. Ég er ákveðin í að vinna
nú áfram í grafíkinni, svona við-
urkenning veitir aukið sjálf-
straust. Þetta var í fyrsta skipti
sem ég sendi mynd á stóra al-
þjóðasýningu og eiginlega þykir
mér verst að komast ekki sjálf
að skoða hana.“
Alþjóðlega grafíksýningin í
Biella hefur verið haldin reglu-
Iega í aldarfjórðung. Verðlaun
voru nú veitt í ellefta sinn, en
listakonan Sigrid Valtingojer
hlaut aðalviðurkenningu sýning-
arinnar fýrir tveimur árum. Auk
Karólínu eiga þrír fulltrúar Is-
lands myndir á sýningunni.
Þetta eru listakonurnar Lísa
Guðjónsdóttir, Jenný Guð-
mundsdóttir og Sigrid Valtingoj-
er. Listamenn frá 62 löndum
eiga verk á grafíksýningunni
sem nú stendur yfir í Biella.
Sýningunni lýkur 3. júní.
Braut rúður
í Alþingishúsi
UNGUR maður braut tvær rúður
í Alþingishúsinu í fyrrakvöld og
komst á hlaupum undan þing-
verði sem elti hann.
Lögreglu var gefin greinargóð
lýsing á manni þessum, sem braut
tvær rúður á framhlið hússins og
er hans nú leitað.
Landsþing
JC um helgina
í upphafi greinar Guðna Þórs
Jónssonar, blaðafulltrúa JC-ísland,
á blaðsíðu 51 í Morgunblaðinu í gær
segir að 29. landsþing samtakanna
verði um hvítasunnuna. Guðni bað
Morgunblaðið að leiðrétta þetta,
þingið verður haldið um næstu
helgi, og verður sett klukkan 17 í
dag, eins og fram kemur síðar i
greininni.
FEGRIÐ GARÐINN OG BÆTID
MEÐ SANDI,GRJÓTI OG ÁBGRÐl
SANDUR
SIGURSTEINAR VÖLUSTEINAR HNULLUNGAR
Þú færö sand og allskonar cjrjót hjá okkur.
Viðmokum þessumefnuma bílaeða
í kerrur og afgreiðum líka í smærri
einingum, traustum plastpokum sem
þú setur í skottið á bílnum þínum.
Afgreiðslan við Elliðaár er opin:
mánud.-föstud.: 7.30-18.00
laugard.: 7.30-17.00
Lokað í hádeginu laugard.
Nú bjóðum við enn betur: Lífrænan og ólíf-
rænan áburð, hænsnaskít, skeljakalk
og garðavikur . Öll þessi úrvals efni
eru sekkjuð í trausta plastpoka og
tilbúin til afgreiðslu.
BJÖRGUN HF.
SÆVARHÖFÐA 33
SÍMI: 68 18 33
EB. NÝfí DAGUR...SÍA