Morgunblaðið - 24.05.1990, Page 51
oeer iam .rs íiuoAauTMMr? aiOAjaMuóflOM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 1990
Skýringar á lágu verði á íslenskum laxi:
Smár lax, lítið magn
og skipulagsleysi
- segir Friðrik Sigurðsson
ÚTFLUTNINGSVERÐMÆTI fersks íslensks lax til Bandaríkjanna
hefði aukist um 60 milljónir kr. á síðasta ári ef íslenskir framleiðend-
ur og útflytjendur hefðu náð sama meðalverði og Bretar. Samkvæmt
skýrslu Alþjóðaviðskiptaneftidar Bandaríkjanna fengu Bretar besta
meðalverðið, 4,11 dollara fyrir hvert enskt pund en Islendingar það
lakasta, 3,14 dollara.
Bretar fengu því um 30% hærra
verð en íslendingar. Norðmenn
fengu 3,73 dollara að meðaltaii fyr-
ir sinn lax á Bandaríkjamarkaði,
eða um 18% hærra verð en íslend-
ingar. Ef íslendingar hefðu náð
jneðalverði Norðmanna hefði út-
flutningsverðmætið verið 37 millj-
ónum kr. hærra en það varð á
síðasta ári.
Friðrik Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Landsambands fisk-
eldis- og hafbeitarstöðva (LFH),
nefndi þrjár skýringar á lágu meðal-
verði á íslenska laxinum á Banda-
ríkjamarkaði, smáan lax, lítið magn
og skipulagsleysi í markaðs- og
sölumálum.
Friðrik sagði að meginhluti
íslensku framleiðslunnar væri smá-
lax sem væri mun verðminni en
stórlaxinn og taldi hann að það
væri meginskýringin á þeim verð-
mun sem þama kæmi fram. Hann
sagði að íslendingar næðu ekki eins
góðum samningum og aðrir vegna
þess hvað við værum með litla fram-
leiðslu miðað við aðra, við gætum
því ekki verið með jafnt og mikið
framboð og hætta á að afhendingar
stæðust ekki. Á síðasta ári voru
38,6 milljónir enskra punda af
ferskum Atlantshafslaxi fiutt inn
til Bandaríkjanna. Markaðshlut-
deild Norðmanna var 65% og
Kanada 17%, en íslands 2,7%. Frið-
rik tók það sérstaklega fram að
íslenski laxinn væri ekki lakari að
gæðum en lax frá öðram löndum.
Friðrik sagði að hér væri skipu-
lagsleysi í markaðs- og sölumálum.
Margir smáir útflytjendur væru að
reyna fyrir sér og þýddi það í ýms-
um tilvikum lægra verð en efni
stæðu til. Hann sagði að LFH vildi
í samvinnu við Útflutningsráð
hrinda af stað vinnu við að kanna
framtíðarskipulag markaðs- og
sölumála greinarinnar. Væri verið
að reyna að fjármagna verkefnið.
Lag um skattpíningu ríkisstjórnarinnar:
Platan send öllum
ungum kjósendum
SKATTALAGIÐ svokallaða, lag og texti Árna Sigfússonar borgarfúll-
trúa hefiir verið gefíð út í 20.000 eintökum og sent öllum nýjum
kjósendum. Útgáfúfélagið Landsmenn gefa lagið út, en Samband
ungra sjálfstæðismanna sendir plötuna til kjósenda.
Árni Sigfýusson lýsti textanum sem
hugleiðingu um landnámsmennina,
sem flúðu ofríkið í Noregi og á það
bent að skattpíning og ofstjóm
núverandi ríkisstjórnar sé nokkuð
sem sé ekki í anda landnámsmann-
anna og því ekki heldur afkomenda
þeirra.
Gunnar Þórðarson útsetti lagið,
en söngvarar era fjópr: Sigríður
Beinteinsdóttir, Egill Ólafsson, Jó-
hanna Linnet og Pálmi Gunnarsson.
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
23. maí.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meftal- Magn Heildar-
verft verft verft (lestir) verft (kr.)
Þorskur 83,00 71,00 79,45 67,985 5.401.C26
Þorskur(smár) 36,00 34,00 34,72 0,296 10.276
Ýsa 75,00 45,00 63,59 35,774 2.275.015
Karfi 27,00 27,00 27,00 0,962 25.974
Ufsi 20,00 20,00 20,00 0,151 3.020
Steinbítur 33,00 20,00 25,44 3,223 81.993
Langa 29,00 29,00 29,00 0,071 2.059
Lúða 235,00 40,00 138,72 1,056 146.485
Grálúða 58,00 52,00 57,14 7,245 414.000
Koli 20,00 20,00 20,00 3,962 79.240
Keila 10,00 10,00 10,00 0,813 8.130
Skata 90,00 8,00 71,24 0,306 21.800
Skötuselur 122,00 107,00 114,10 1,844 210.410
Samtals 70,18 123,697 8.680.748
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavfk
Þorskur 98,00 30,00 70,08 17,661 1.237.673
Ýsa 106,00 31,00 55,26 34,425 1.902.166
Karfi 35,00 33,00 33,02 2,797 92.261
Ufsi 38,00 ( 20,00 37,24 20,284 • 755.345
Hlýri+steinb. 33,00 33,00 33,00 0,715 23.595
Langa 37,00 24,00 33,28 5,890 196.036
Lúða 208,70 130,00 166,48 1,811 301.495
Skarkoli 17,00 17,00 17,00 0,784 13.328
Keila 7,00 7,00 7,00 0,209 1.463
Skötuselur 120,00 115,00 115,00 1,385 159.275
Rauðmagi 12,00 12,00 12,00 0,067 804
Síld 5,00 5,00 5,00 0,057 285
Samtals 54,70 84,974 4.648.347
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 97,00 35,00 65,74 40,679 2.674.124
Þorskur(ósL) 76,00 40,00 72,44 10,105 731.982
Ýsa 76,00 20,00 51,29 41,550 2.131.290
Ýsa(ósl.) 74,00 40,00 72,96 5,545 404.550
Karfi 275,00 15,00 30,64 25,690 787.172
Ufsi 27,00 21,00 22,96 1,158 26.586
Steinbítur 15,00 15,00 15,00 1,381 20.715
Langa 38,00 26,00 37,53 0,608 22.816
Lúða 270,00 170,00 182,16 1,115 203.110
Skarkoli 28,00 28,00 28,00 1,636 45.808
Keila 18,00 7,00 17,89 0,942 16.857
Skata 72,00 61,00 71,23 0,301 21.441
Humar 999,00 675,00 865,46 1,200 1.038.550
Samtals 61,65 134,987 8.322.592
Vaðíjörn og ævintýraeyja
Borgarráð hefur samþykkt að umhverfi tjamarinnar neðan við Seljahlíð í Seljahverfi í Breiðholti verði
lagfært í sumar. I tillögu Jóhanns Pálssonar garðyrkjustjóra, er gert ráð fyrir bekkjum við tjörnina og að
hún verði að hluta það grunn að hana mætti vaða. Stiklur úr flötum steinum verða lagðar að „ævintýra-
eyju“ og út í tjörninni og með bakkanum verður rekaviður af Ströndum. Áætlaður kostnaður er um 4,8 >
milljónir.
*
allorka í sumarleyfmu
áaðeins 29.500 kr.
22. ntai
uppselt
29. mai
16 sæti laus
*Ein vika frá kr. 29.500,-*
Þrjárvikurfrá kr. 47.100,-
5.|uni
uppselt