Morgunblaðið - 24.05.1990, Síða 60

Morgunblaðið - 24.05.1990, Síða 60
60 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAI 1990 ▼ „Man ekki efltir jafii góðum móttökum“ - sagði Ingólfiir Bárðarson efsti mað- ur á lista Sjálfstæðisflokksins í Njarðvík Keflavík. „KOSNINGABARÁTTAN hefur gengið ákaflega vel og ég man ekki eftir jafn góðum móttökum þau ár sem ég hef verið í fram- boði,“ sagði Ingólfur Bárðarson efsti maður á lista Sjálfstæðis- flokksins í Njarðvík i viðtali við Morgunblaðið um stöðu flokks- ins þar í bæ fyrir bæjarstjórnarkosningarnar á laugardaginn. í Njarðvík hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið í minnihluta, en stjórn bæjarins hefur verið í höndum Alþýðuflokk»;'og Fram- sóknarflokks. Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Ingólfur Bárðarson, efsti mac]ur á lista Sjálfstæðisflokksins í Njarðvík, í Skipasmíðastöð Njarðvíkur sem er einn stærsti atvinnu- rekandinn í bænum. Mörg ný nöfh á framboðslistanum Ingólfur sagðist fagna því að nú væru mörg ný nöfn á fram- boðslista Sjálfstæðisflokksins. Þetta væri að hluta til ungt, fjöl- hæft athafna og framkvæmda- fólk sem þegar hefði aflað sér víðtækrar reynslp í félags og atvinnumálum. „Ég hef sérstak- lega orðið var við að þetta unga fólk hefur höfðað til og átt mik- inn hljómgrunn meðal íbúanna sem hafa hrifíst af mælsku þess og þekkingu á þeim vinnustaða- fundum sem við höfum verið með að undanförnu.“ Ingólfur sagði að kosningabarátta Sjálfstæðis- flokksins hefði hafist með funda- herferð þar sem frambjóðendur flokksins hefðu kynnt sér skoð- anir og hugmyndir bæjarbúa um hvað bæri að leggja mest áherslu á í Njarðvik á næsta kjörtíma- bili. „Með hliðsjón af skoðunum og áherslum fólksins höfum við svo gert bæði víðsýna og góða stefnuskrá sem að hluta til eru skoðanir og óskir íbúanna sjálfra." Skuldir bæjarins hafa stóraukist Ingólfur sagði að atvinnu- og fjármálin væru helstu mál kosn- inganna í Njarðvík að þessu sinni auk umhverfis- og félagsmála. „Við höfum bent á að það er lítið hægt að gera þai* sem atvinnu- og fjármál eru ekki í lagi og það verður að segjast eins og er að þessir hlutir hafa farið illilega úr böndunum hjá stjórnendum Njarðvíkur síðastliðið kjörtíma- bil. Skuldir bæjarins hafa stór- aukist á síðustu fjórum árum og hafa hækkað úr 35 milljónum króna frá árinu 1986 í liðlega 158 milljónir króna í árslok 1989. Nú er svo komið að hver einasti Njarðvíkingur, þar með talin smábörn og gamalmenni, skulda rúmar 66 þúsund krónur. Um mitt ár 1986 þegar núverandi meirihluti tók við voru skuldir á hvern einstakling 14 þúsund krónur og til að sjá réttilégan mun á þessum tveim töium létum við framreikna krónutöluna frá árinu 1986 og í dag væri hún 27 þúsund krónur. Raunveruleg aukning skulda á hvern einstakl- ing er því um 144% sem varla getur talist ýtrasta hagsýni og sparsemi í fjármálum.“ Skýra stefnumörkun í atvinnumálum „Skýra stefnumörkun í at- vinnumálum þarf að gera í Njarðvík og raunar á öllum Suð- urnesjum til að hægt verði að tryggja því unga fólki sem kem- ur á vinnumarkaðinn á næstu árum bæði góð og fjölbreytt at- vinnutækifæri. Gera þarf átak til að laða að stór og smá iðnfyr- irtæki í bæinn sem myndu skapa traustan atvinnugrundvöll. Einn- ig þarf að styrkja þann atvinnu- rekstur sem fyrir er í bænum, án þess þó að gengið sé inn í rekstur fyrirtækjanna. Með til- komu álvers eða einhvers sam- bærilegs stóriðjufyrirtækis á Suðurnesjum myndu skapast fleiri þúsund atvinnutækifæri og við myndum skjóta traustri stoð undir atvinnulífið í heild. Dæmin sýna okkur að stóriðjan myndar umhverfi sem vekur upp nýjar hugmyndir og örvar menn til framkvæmda. Kostir Suðurnesja eru þegar talað er um stóriðju- fyrirtæki: 1. Góðar samgöngur allt árið. 2. Alþjóðaflugvöllur. 3. Góð hafnaraðstaða. 4. Nóg af tæknimenntuðu fólki. 5. Nóg af hita og raforku.“ Forgangsverkefiii að Ijúka tengivegi milli hverfa „Við höfum lýst því yfír að eitt af forgangsverkefnum okkar yrði að ljúka tengivegi milla innra og ytra hverfis með hjól- reiða- og gangbrautum. Málefni aldraðra hafa verið í umræðu og viljum við að byggðar verði hlut- deildaríbúðir fyrir aldraða í Njarðvík. Einnig munum við sinna íþrótta- og æskulýðsmál- um af myndarskap eins og alltaf þegar Sjálfstæðisflokkurinn hef- ur haldið um stjórnvölinn. Ég vil nefna að samskiptum stjórnenda bæjarins við fólírið hefur verið í ýmsu ábótavant. Þar hefur borið á samskiptaörðugleikum sem leitt hafa til málaferla sem hafa skaðað bæinn.“ Ingólfur Bárðar- son sagði að lokum að í kosning- unum sem nú færu í hönd höfð- aði stefna Sjálfstæðisflokksins greinilega til fólksins og hann væri sannfærður um að úrslit kosninganna yrðu í samræmi við það. - BB Morgunblaðið/Sturla Páll Brotnar girðingar á Suðureyri Garðar á Suðureyri koma illa undan snjónum. Til dæmis hefur tijágróð- ur farið illa og flestar trégirðingar umhverfís garða eru meira eða minna brotnar. Myndin sýnir girðingu við eitt hús og inni í garðinum er enn myndarlegur snjóskafl. Stykkishólmur: Athugasemd frá H-Iista DAVÍÐ Sveinsson, efsti maður á H-listanum við bæjarstjórnarkosning- arnar í Stykkishólmi, hefur beðið Morgunblaðið að leiðrétta það sem eftir honum er haft í kosningablaði Morgunblaðsins síðastliðinn þriðju- dag þar sem hann telur að ákveðin ummæli hafí ekki verið rétt efitir höfð. Leiðrétt er greinin þannig: „Við tökum á öllum málum í stefnuskránni, en skuldastaða bæjar- ins er slæm að okkar mati og við leggjum mikla áherslu á að laga hana. Það viljum við gera með því að leggja í aukna útgerð og auka atvinnu í bænum. Það þarf að koma íþróttahúsinu í notkun í haust og bíða síðan átekta. Við leggjum áherslu á að bæta samgöngumál á norðanverðu nesinu á milli staða, þannig að atvinnutæk- in samnýtist betur. Halda þarf áfram uppbyggingu ferðamálaþjónustunn- ar, sem er mikið verkefni, sérstak- lega eftir að nýi Baldur kom. Syst- urnar hafa unnið gott starf á barna- heimilinu og eiga hrós skilið. Það er stefna okkar qð rá,ða fóstrur við barnaheimilið, og auka menntum þeirra starfsstúlkna sem þar vinna. Samning við systumar þarf að end- urskoða eins og alla samninga sem gerðir eru. Við viljum efla félags- starf og reyna að halda úti unglinga- vinnu eins og fjárhagurinn leyfir. Þá leggjum við mikla áherslu á jöfnun orkukostnaðar á landinu. Þingmenn- irnir á Vesturlandi hafa lagt fram þingsályktunaitillögu um það mál, sem við styðjum heilshugar." Tvö nöfn á H-listanum misrituðust í kosningablaðinu og eru þau leiðrétt hér á eftir um leið og beðist er vel- virðingar á mistökunum: í öðru sæti listans er Ina H. Jónasdóttir verka- kona og í þriðja sæti Ásgeir Þór Ólafsson rafyejtustjóri.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.