Morgunblaðið - 24.05.1990, Síða 64

Morgunblaðið - 24.05.1990, Síða 64
64 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAI 1990 STÚDENTASTJARNAN HÁLSMEN MEÐ KEÐJUKR. 2.980,- - 4? Jcíi cgDsksp LAUGAVEGI 70 • SÍMI 24910 HAIR mottii litsins með Ápollo hái Framleiðendur í Ameríku bjóða nú upp ó sórsaukahusa og lyfjalauso lausn, sem bætir útlitið. Evrópskir og amerískir sérfræðingar hafa komið from með þessa lausn, eftir 26 óra rannsóknir, sem er fléttuð í hórið þitt og er sem hluti afsjólfum þér allan sólorhringinn. Eiofalt og liáfliagslega ylirstígaoleot. Fóið sendan Apollo - myndabækling. RAKARA- OG HARGREIÐSLUSTOFAN ^ GRKIFIM HRINGBRAUT 119 S 22077 G115 veitir fólki aukinn þrótt til aö standast líkamlegt og andlegt álag. Það eflir einbeilingu og vinnur gegn streitu. Éh Póstsendum eilsuhúsiö NEYTENDAMAL Hinn heillandi heimur heilsufæðis Á seinni árum hefur komið fram mikil hvatning til al- mennings um neyslu á heil- næmara fæði með neyslu heilsufæðu sem er allt í senn „heilnæm, lífræn og náttúru- Ieg“ og leiða á til heilbrigðara lífs. Heilsufæða þessi er sögð vera bæði hollari og betri en önnur fæða. Neytendur eiga þó mjög erfitt með að meta, hvort gæði matvöru sem aug- lýst er og seld sem lífræn og náttúruleg sé i raun annarri matvöru hollari og betri. Þar getur komið til góð sölu- mennska og talsverðir íjár- munir. Af þeim ástæðum er nauðsynlegt að ákveðnar regl- ur gildi um hvað leyfilegt sé í þeim efhum. í íslensku reglugerðinni um notkun aukefna og merkingu neytendaumbúða fyrir matvæli og aðrar neysluvörur er ákvæði (í 6. gr.) sem segir að upplýsing- ar á umbúðum skuli ekki á neinn hátt vera blekkjandi fyrir kaup- anda eða móttakanda varðandi uppruna, tegund, samsetningu, þyngd, eðli eða áhrif vörunnar. Við ættum því að vera „gull- tryggð" hér í þeim efnum. Erfiðara getur reynst að festa í reglugerðir samskonar öryggis- þætti handa neytendum þegar kemur að lífrænni ræktun fæðu- tegunda, því að um leið og fæðu- tegundir ræktaðar á lífrænan hátt eru teknar af akrinum er engin leið að aðskilja þær frá öðrum sem ræktaðar hafa verið með tilbúnum áburði. Rætur plantna draga til sín ólífræna næringu úr jarðvegi hvaðan sem hún kemur. Ekki hefur tekist að staðfesta neinn gæðamun á fæðutegundum sem ræktaðar eru á lífrænan hátt og þeim sem ræktaðar eru með til- búnum áburði. Mismunur á nær- ingarinnihaldi piantna sömu teg- undar byggist á erfðaþáttum, loftslagi, næringarefnum og þroskastigi plantna við upp- skeru. Gulrætur hafa verið tekn- ar sem dæmi um grænmeti sem inniheldur mismikið A-vítamín eftir tegundum og ræktunarað- stæðum. Einn stærsti ávinningurinn af lífrænni ræktun plantna á að vera sá, að ekki sé notað skor- dýraeitur við ræktunina og af þeim ástæðum sé sú fæða sem þannig er ræktuð laus við leifar skordýraeiturs. Raunin er aftur á móti sögö vera sú, að margar þessar fæðutegundir innihalda leifar skordýraeiturs, jafnvel þó ekkert skordýraeitur hafi verið notað við ræktunina. Kemur það til af því, að leifar margra kem- ískra efna geta legið í jarðvegin- um árum saman eftir síðustu notkun. Leifar þessar eru þó ekki meiri en svo að þær eiga að vera neytendum skaðlausar. Þar sem þær fæðutegundir, sem ræktaðar eru á lífrænan og efnafræðilegan hátt, eru í engu frábrugðnar í útliti og bragði éða efnasamsetningu verður neyt- andinn að treysta á heiðarleika ræktenda og seljenda vörunnar um að vörumerkið „lífrænt rækt- að“ standi undir merki. Flestum er ljóst, að eftir því sem fólk veit meira um fæðu dg næringarinnihald hennar þeim mun meiri líkur eru á því að það móti með sér heilbrigðari matar- venjur sem síðan geta leitt til betri heilsu. Þess vegna er fræðsla á gæðum matvæla og öryggi í ræktun og meðferð matvæla mjög mikilvæg. Margir laðast að heilsufæði, vegna þess að þeir telja að það sé náttúrulegt og því einnig heil- næmara og fullkomlega öruggt — a.m.k. öruggara en venjuleg matvæli. Rökin eru kannske ekki fullkomlega traust vegna þess að hundruð eiturefnasambanda geta á náttúrulegan hátt komið fyrir í fæðutegundum. Má þar nefna aflatoxin, það er myglu- tegund sem getur vaxið við sér- stakar aðstæður í fæðutegund- um eins og maís, hnetum, möndl- um og og öðrum korntegundum. Eins og neytendur muna voru gráfíkjur teknar af markaði hér fyrir nokkrum árum vegna af- latoxins sem í þeim fannst. Hnet- ur og möndlur sem hafa beiskt bragð á ekki að borða vegna þess að þær geta innihaldið af- latoxin sem talið er öflugur krabbameinsvaldur. Ákveðnar reglur gilda t.d. í Bandaríkjunum um hámark aflatoxins, þessa náttúrulega eiturefnis, í fæðu- tegundum eins og t.d. hnetu- smjöri og í mjólk. Jurtate ýmiss konar er mjög vinsælt meðal unnenda heilsu- fæðis. Margar þessar tetegundir geta innihaldið hundruð efna- sambanda sem ekki hafa verið efnafræðilega rannsakaðar hvað öryggi snertir. Blý, arsenic, cadmium og aðrir þungamálmar geta á náttúrulegan hátt verið til staðar í matvælum í litlu magni. Magnið getur verið meira ef fæðan er í samanþjöppuðu formi. í beinamjöli (stórgripa) hefur t.d. fundist talsvert magn af blýi. Þangtöflur sem oft eru seldar í heilsufæðiverslunum geta einnig innhaldið arsenic. Mörg efnasambönd er einnig að finna í venjulegum matvælum hvort sem þau eru seld í heilsu- verslunum eða í venjulegum verslunum, má þar nefna oxal- sýru sem er í mörgum fæðuteg- undum, m.a. spínati og rabar- bara. Gulrætur, salat, kínakál og sellerilauf innihalda bæði nit- rit og nitrat-sambönd, það þýðir þó alls ekki að hættulegt sé að neyta þessara fæðutegunda. Ör- uggast er því að gæta varkárni og nota eigin hyggindi, borða fjölbreytta fæðu og gæta hófs í neyslu einstakra fæðutegunda. M. Þorv. ÚTSÝNISHÚS Á ÖSKJUHLÍÐ verður til sýnis almenningi fimmtudaginn 24. maí fró kl. 14.00-17.00. Hitaveila Reykjavikur Kringlan @ 689266 Skólavörðustig @ 22966 n ni 1111 ii m 11111 ii ii i f i h h i í í i h TnTnnuninTniiniii
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.