Morgunblaðið - 24.05.1990, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 24.05.1990, Blaðsíða 70
70 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAI 1990 20. landsmót UMFI í Mosfellsbæ: Búist við tugþúsundum gesta á glæsilegan, nýjan íþróttaleikvang íjölbreyttasta landsmótið með íþróttum og skemmtidagskrá ÞAÐ er reiknað með um 20 þúsund gestum í Mosfellsbæ á 20. landsmóti Ungmennafélags Islands sem haldið verður þar dagana 12.-15.júlí, en bæjar- yfirvöld í Mosfellsbæ hafa sýnt landsmótinu mikinn áhuga og til þess að efla íþrótta- og æskulýðsaðstöðu í Mosfellsbæ og hafa sem besta aðstöðu fyr- ir landsmótið svo að það geti farið vel fram, er búið að byggja upp glæsilegasta frjáls- íþróttaleikvang á íslandi í kring um nýjan knattspyrnu- grasvöll þeirra Mosfellsbæ- inga. A íþróttasvæði Mosfells- bæjar er nú fúllkomin aðstaða til keppni í margs konar íþrótt- um, góð sundlaug, skólar og annað tilheyrandi. Búið er að leggja gerviefni á allar hlaupa- og atrennubrautir svo sem tíðkast á fúllkomnustu braut- um heims. Landsmótið er 20. landsmót UMFI og stendur Ungmennasamband Kjalarnes- þings fyrir mótinu, en 50 ár eru nú liðin síðan landsmótin voru endurvakin í Haukadal árið 1940. Um 3.000 keppend- ur verða á mótinu að sögn Sæmundar Runólfssonar fram- kvæmdastjóra Landsmótsins. Páll Guðjónsson bæjarstjóri í Mosfellsbæ sagði í samtali við Morgunblaðið að kappkostað hefði verið að byggja upp sem besta aðstöðu á hinu fagra íþróttasvæði Mosfellsbæjar, enda bæri mönnum saman um að hvergi á landinu væri önnur eins aðstaða fyrir hendi. „Þáttur Mosfellsbæjar í lands- mótinu er að leggja til alla að- stöðu svo að mótið getið farið fram á sem myndarlegastan hátt,“ sagði Páli Guðjónsson bæjarstjóri. „Það var ákveðið fyrir fjórum árum að taka við mótinu og þá lá fyrir að við áttum ýmsa góða hluti, en til þess að tryggja að þetta yrði glæsileg- asta landsmót fyrr og síðar ák- váðum við að láta gamlan draum rætast og byggja hér glæsilegan íþróttaleikvang fyrir ftjálsar íþróttir og það má geta þess að hugmyndin um leikvang á þess- um stað er 40 ára gömul. Að „Við reiknum með um 3.000 keppendum á landsmótið og starfsmenn verða um 1.500, allir klæddir í sérstaka einkennisbún- inga,“ sagði Sæmundur Runólfs- son framkvæmdastjóri 20. lands- móts UMFÍ, „en hins vegar má búast við að minnsta kosti um 20 þúsund gestum á mótið þá daga sem það stendur, því marg- þætt og skemmtileg dagskrá verður auk keppni í 20 sérgrein: um, í tæplega 100 flokkum.í ftjálsum íþróttum verður keppt í Morgunblaðið/RAX Æskufólk í Mosfellsbæ nýtur þess að taka sprettinn á hinum fullkomnu hlaupabrautum. dóttir. Á fimmtudagskvöldinu verður rokkhátíð með Stjórninni, Sálinni hans Jóns míns, Síðan skein sól og Nýrri danskri. Dans- leikir með leik Stjórnarinnar og fleiri hljómsveita verða á fimmtu- dags-, föstudags- og laugardags- kvöld. Meðal sérstakra atriða er ætlunin að hafa keppni í spjót- kasti þar sem þrír íslendingar keppa við þtjá erlenda spjótkast- ara og reiknað er með að heims- Loftmyndin sýnir íþróttasvæðið í og skólana þar sem íþróttahúsið Mosfellsbæ, frjálsíþrótta- og knattspyrnuvöllinn nýja, sundlaugina er einnig. Tjaldstæðin verða við Ieikvanginn. meistarinn Patrik Bode verði þar með. Kvöldvaka opin öllum verð- ur síðan á laugardagskvöldinu. Keppt verður í 73 greinum á landsmótinu frá morgni til kvölds alla dagana fjóra, en í fyrsta skipti verður keppt i fimleikum, hestaíþróttum og golfi. Þá verður sérstök sýning á ruðningsbolta, bandarískum fótbolta, á opnun- arhátíðinni 13. júní. Þátttaka á þessu landsmóti fer langt fram úr fyrri landsmótum og nú þegar hafa um 70% fleiri skráð sig en á síðasta landsmót á Húsavík 1987, en landsmótin eru á þriggja ára fresti og næsta verð- ur á Laugarvatni 1993. Lands- mótið er stærsti íþróttaviðburður á Islandi á árinu og ekki er að efa að Mosfellsbæingar og íbúar nágrannabyggðanna munu fjöl- menna á leikana, en m.a. er búið að skipuleggja mjög góð tjald- stæði fyrir þá sem vilja setjast að á svæðinu mótsdagana. Sam- keppni var um merki mótsins meðal grunnskólanema landsins og verða úrslit kynnt innan tíðar, en samkvæmt langtíma veðursp- ám er útlit fyrir besta veður mótsdagana." öðru leyti vorum við vel í stakk búnir með íþróttahús, grasvelli, sundlaug, skólamannvirki og þetta verður allt lagt undir auk þess að bæði hestamenn og golf- menn leggja sína aðstöðu til. Framkvæmdimar á Varmár- svæðinu með íþróttasvæðinu, skrúðgarði, tjaldstæðum, áhorf- endastúku og fleira kosta alls um 100 milljónir króna en það er álika og kostar að byggja vandað íþróttahús. Beinn kostnaður vegna landsmótsdaganna vegna aðstöðusköpunar, bílastæða og slíks er um 5 millj. kr., en því er ekki að neita að við erum mjög ánægðir með árangurinn af þessari uppbyggingu og erum alveg með nebbann upp í loft út af þessu.“ 16 karlagreinum og 14 kvenna- greinum. Þá verður keppt í 7 starfsgreinum, allt frá pönnu- kökubakstri til dráttarvélaakst- urs. Mótið verður opnað með komu forseta íslands, frú Vigdís- ar Finnbogadóttur, en hún er vemdari mótsins. Opnunarhát- íðin verður á föstudagskvöldinu. Þá munu m.a. koma fram Grétar Örvarsson og Sigríður Beinteins- Sæmundur Runólfsson framkvæmdasljóri 20. landsmóts UMFÍ í Mosfellsbæ og Páll Guðjónsson bæjarsljóri í Mosfellsbæ á hinum nýja glæsilega ftjálsíþrótta- og knattspyrnuleikvangi. Spjall við sjálfan sig (og aðra) eftirBaldur Baldursson Ein heild eða sundraður fjöldi er sú spurning sem efst er í huga mínum (og annarra) er kosningar nálgast í Reykjavík. Sundraður flokkur í poka segist vera sá eini sanni til að reka Reykjavík. Frá mínum bæjardyrum séð (og ann- arra) er þessi flokkur langt frá því að geta stjómað sjálfum sér, hvað þá heilli borg. Flokkur í poka gum- ar af þeirri einstæðu reynslu að hafa haft opið prófkjör, sem endaði síðan, er úrslit lágu fyrir, allt að því með handalögmálum. Sér er nú hver sáttin og samlyndið á þeim bæ. Hugsandi um að pólitísk hrossakaup eigi sér stað í stjórnmál- um, þá er auðvelt að gera sér í hugarlund að komist flokkur í poka í stjórn, þá munum við sjá slík kaup eins og þau gerast best (verst). Sameiningarhugsun þessa flokks er engin, enda uppbyggður úr allt að öllum flokkum landsins. Verði úrslit sú að flokkur í poka næði meirihluta, hver á þá að stjórna? Ekkert borgarstjóraefni hefur verið valið, enda verða slík kaup gerð eftir á. Miðað við hvernig fór við úrslit prófkjörsins, þá verða nanda- lögmál, bitlingar, hrossakaup og óstjórn það sem við verðum vitni að. Einungis það að þetta fólk svífst einskis við að ota sínum tota, send- ir kaldan hroll niður bak mér. Þetta fólk sem hoppar á milli flokka, hugsjóna og skiptir um skoðun eins og aðrir skipta um nærbuxur, fólk sem stundar slíkan hlaupagang, er ekki hæft til að setja í stöður sem „Reykvíkingar, förum á kjörstað með það í huga að við kjósum einn borgarstjóra, tökum at- kvæði okkar alvar- lega.“ stjórna lífi Reykvíkinga. í spjalli við sjálfan mig (og aðra) er sú hugsun að kosningar standi um eina sterka heild og einn borgar- stjóra. Einungis borgarstjóra sem stjórnar Reykjavík af krafti, dugh- aði, eljusemi og hörku, borgarstjóra sem gerir Reykvíkinga stolta af borginni. Það sem að kjósendum snýr er kosning á einum borgar- stjóra. Ef flokkur í poka lumar á sínum borgarstjóra þá er í tíma að Baldur Baldursson sá eða sú stígi fram og sýni sitt rétta andlit fyrir en ekki eftir kosn- ingar, því sá borgarstjóri, sem flokkur í poka lumar á að þeirra sögn, er sá sem kann allt, getur allt og veit allt. Því miður kemur hann ekki fram fyrr en eftir kosn- ingar, sem þá er of seint fyrir Reyk- víkinga, því næstu kosningar eru ekki fyrr en eftir 4 ár, nema að það eigi að verða fleiri en einn borgar- stjóri hjá þessum „ágæta“ flokki. Að fara í verslun, framvísa pening og biðja um bland í poka er hættu- laust, en að kjósa pólitíska frama- gosa og eiginhagsmunaseggi sem flokk í poka er ákvörðun sem við lifum við í 4 ár. Reykvíkingar, för- um á kjörstað með það í huga að við kjósum einn borgarstjóra, tök- um atkvæði okkar alvarlega, kjós- um ekki pólitíska framagosa, fólk sem veit ekki hvað það vill eða bland í poka. Kjósum Davíð Oddsson. Höfuiidur er verknmaður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.