Morgunblaðið - 24.05.1990, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAI 1990
73
Hornabolta húllumhæ
Kvikmyndir
Sæbjöm Valdimarsson
Regnboginn
Úrvalsdeildin - „Major Le-
ague“
Leiksljóri og handritshöfundur
David S. Ward. Aðalleikendur
Tom Berenger, Charlie Sheen,
Corbin Bernsen, Margaret
Whitton. Bandarísk. Paramo-
unt 1989.
Þess skal getið í upphafi að
Úrvalsdeildin líður grimmt fyrir
að ijalla mestmegnis um þá ala-
merísku íþrótt, hornaboltann. Hér
nýtur hann lítilla vinsælda og
vefst jafnvel fyrir manni í öllum
sínum einfaldleik.
Annars segir myndin frá átök-
um hofróðunnar Whitton sem erf-
ir hallærisliðið Cleveland Indians
eftir mann sinn. Hyggst hún koma
því í neðsta sæti deildarinnar
þetta tímabilið og geta því flutt
það niður í sólina í Flórída. Skrap-
ar saman hinum mestu vandræða-
gemlingum sem eru á góðri leið
með að uppfylla áætlanir ekkjunn-
ar er þeir komast að hinu sanna
í málinu. Og viti menn, þeir spjara
sig á endasprettinum og hofróðan
situr efir með sárt ennið.
Laglega gerð en rennur full
ljúft áfram, eiginlega átakalaust.
Ward, sem á árum áður hlaut
Óskarinn fyrir eftirminnilega gott
handrit hinnar margverðlaunuðu
The Sting, býr til þokkalegan
ramma en samtölin og uppákom-
urnar eru ótrúlega bragðlausar.
Þegar við bætist lítil þekking og
áhugi á aðalumfjöllunarefninu,
hornaboltanum, situr ósköp lítið
eftir í myndarlok. Hópur sóma-
samlegra leikara, sem á þó sam-
merkt að kunna illa fótum sínum
forráð, stendur sig vonum framar
í brandaraleysinu. Dæmigert
sumargrín.
Heimilisfriðurinn úti
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Allt á hvolfi („Madhouse").
Sýnd í Háskólabíói. Leiksijóri:
Tom Ropelewski. Aðalhlut-
verk: John Larroquette og
Kirstie Alley.
Bandarískar gamanmyndir
eiga það alltof mikið til að kála
því litla gríni sem þær byggja á
með yfirgengilegum hamagangi
og brambolti, oftast nær til að
hylma yfir skortinn á raunveru-
legri gamansemi. Afleiðingin er
sú að margar leiðast út í helbera
vitleysu, sem í stað þess að vera
fyndin er heimskuleg eða í besta
falli kjánaleg.
Dæmi er Allt á hvolfi með
John Larroquette og Kirstie Al-
ley, sem leika indælis hjón er
taka inná fyrirmyndar úthverfa-
heimilið sitt tvo óþolandi gesti til
dvalar í fimm daga. Áður en þú
veist af eru dagarnir orðnir sexíu
og óþolandi gestirnir a.m.k. sjö,
hús nágrannans brennur tií
kaidra kola, tíu lögreglubílar
umkringja húsið og brjótast inní
það með litlum skriðdreka, lög-
regluþyrla sveimar yfir húsinu,
fíll trítlar um lóðina, einn gestur-
inn er dópsmyglari sem ógnar
húsráðendum með hníf áður en
hann sprengir glæsilegan sportbíl
í loft upp, sami kötturinn er drep-
inn a.m.k. fimm sinnum og svo
mætti lengi telja. Allt á hvolfi
hefur örugglega kostað talsvert
en allt þetta sýnir sig ekki í
fyndnari og skemmtilegri mynd.
Flest af þessu er varla fimmaura-
brandara virði.
Ýmsar spaugilegar persónur
koma við sögu en þær ná hvergi
að setja mark sitt á myndina
áður en þær týnast í látunum.
Larroquette og Alley leika hjónin
hugulsömu, sem verða hjónin
hættulegu þegar þau hafa lóks
fengið nóg en þá er það of seint
og tilþrifin eru sáralítil. Einn af
aukaleikurunum er Robert Ginty
sem áður lék hörkutól í B-mynd-
um en virðist nú leita annarra
leiða. Grínmyndir sýnast samt
ekki hans fag.
Frá Vestur þýska fyrirtækinu
BÖTI
Undraefnið, sem er bæði sterkt og auðvelt í með-
förum, heldur vætu og vindi frá, en andar.
Litir: Rosa og karrý.
Kringlunni, s. 33300.
KEFLAVÍK • REYKJAVÍK • AKUREYRI • EGILSSTAÐIR • HÖFN • VESTMANNAEYJAR
SÍMI: 92-50200 SÍMI: 91-690500 SÍMI: 96-11005 SÍMI: 97-11210 SÍMI: 97-81250 SÍMI: 98-11521
;4|| * * '' ' (t "«V •
BÍLALEIGA FLUGLEIÐA
AUÐVELDAR FERÐALÖG UM LANDIÐ
- OPNUM ÚTIBÚ A AKUREYRI 25. MAÍ -
2J.i..... k ,
í-pSíS: :íÁiíí:iaSl
Él
m
Nú getur þú flogið norður og tekið splunkunýjan
bíl á leigu á Akureyrarflugvelli, farið allar þínar
ferðir og skilað bílnum í hvaða útibúi Bílaleigu
Flugleiða, sem þér hentar.