Morgunblaðið - 24.05.1990, Síða 86
86
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 1990
Ifclk í
fréttum
Morgunblaðið/Sigurður H. Þorsteinsson
Lokaatriðið í ljóðaleiknum „Gleðilegt sumar“. Vetur konungur lengst
til vinstri en sumardrottningin lengst til hægri. A milli þeirra standa
svo blómálfarnir sjö. F.v.: Viktor Guðbrandsson, Sölvi Þ. Baldurs-
son, Steinar Þ. Baldursson, Bjarki Magnúsarson, Hrönn Magnúsar-
dóttir, Jóhanna Guðbrandsdóttir, Sigrún Arnardóttir, Aðalbjörg
Guðbrandsdóttir og Harpa Guðbrandsdóttir.
SKOLAR
Bömin í Klúkuskóla
sýndu tvö leikrit
Starfi Klúkuskóla í Bjarnarfirði
lauk á þessu skólaári þann 10.
maí sl. Auk venjulegra skólastarfa
fluttu nemendur tvö leikrit í vetur,
á litlu jólum og á sumardaginn
fyrsta, en þetta voru leikritin Asa,
sem er ævintýraleikrit úr lestrar-
bókum nemenda, og Ijóðaleikurinn
„Gleðilegt sumar“ eftir Guðmund
Guðmundsson skólaskáld.
Þessi leikritaflutningur tengdist
litlu jólunum, en þá var ævintýra-
leikurinn Ása fluttur, við góðar
undirtektir áhorfenda. Einnig var
sumardagurinn fyrsti notaður til
slíkrar skemmtunar og þá fluttur
ljóðaleikurinn „Gleðilegt sumar“
eftir Guðmund skólaskáld. Leik-
stjóm og hönnun búninga annaðist
Torfhildur Steingrímsdóttir, leið-
beinandi við skólann.
Auk þessa fluttu nemendur ýmis-
legt efni, bæði lásu þau upp eftir
aðra höfunda og frumsamdar sög-
ur. Var gerður hinn besti rómur að
flutningi þeirra.
Þá tók skólinn þátt í „Málrækt-
arátaki 89“ á ýmsan hátt. Fengu
t.d. allir nemendur eldri deildar og
einn nemandi yngri deildar birtar
eftir sig frásagnir og sögur í fjöl-
miðlum. Þá var gefið út veglegt
skólablað fyrir páskana.
- SHÞ.
VISINDI
Unglingar
mældu sýru-
stig regnvatns
Nemendur einnar bekkjar-
deildar 6. bekkjar í Mela-
skóla tóku þátt i sérstæðu verk-
efni á liðnum vetri. Melaskóli
hafði hlotið styrk úr þróunarsjóði
grunnskóla fyrir skólaárið 1989
til 1990 til þess að sinna tveimur
tilraunaverkefnum. Annað þess-
ara verkefna var raungreinaverk-
efni og mældu nemendur sýrustig
rigningarvatns, eða svokallað súrt
regn, sem er mikill skaðvaldur í
næsta umhverfí iðnaðarsvæða
heimsins. Stofnun nokkur sem
heitir Technical Education Rese-
arch Center í Massachusetts í
Bandaríkjunum hefur þróað
námsefnið sem um ræðir, en
National Geographic Society gef-
ur efnið út. Markmið með þessum
námseiningum eru meðal annars
að leyfa nemendum að starfa með
öðrum nemendum víðs vegar í
heiminum. Það eru gerðar töl-
fræðilegar athuganir, unnið á
tölvur og glímt við mál sem eru
brýn og þarfnast úrlausnar. Þann-
ig leggja nemendur sitt af mörk-
um í þágu vísindanna og úrlausna.
1CfACAíDC/Æ
SJÁLFSTÆÐISMANNA
FIMMTUDAGINN 24. MAÍ
Félög sjálfstæðismanna íHáaleitis-, Smáíbúða-, Bústaða- og Fossvogshverfum
efna tilfjölskylduhátíðar kl. 15.00 á uppstigningardag, fimmtudaginn 24. maí.
Hátíðin verður haldin á Háaleitisbraut 68, á opnu svæði milli Austurvers og
Grensáskirkju.
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík takaþátt íþessum vorfagnaði.
DAGSKRÁ:
'Kynnir:
Grímur
Sœmundsen,
lceknir.
1. Léttsveit Tónmenntaskóla Reykjavíkur undir stjórn
Sœbjörns Jónssonar hefur leik kl. 15.00.
2. Hátíðin sett: Þórarinn Sveinsson, lceknir.
3. Barnakór skólanna syngur undir stjórn Þorvaldar
Björnssonar, tónmenntakennara.
4. Avarp: Árni Sigfússon, borgarfulltrúi.
5. Pylsu- og Pepsíveisla hefst kl. 15.30 og stendur til
kl. 16.00. Brugðið á leik.
6. Emmess ís-kynning
7. Söngfélag Félags eldri borgara boðar komu vorsins
með söng undir stjórn Kristínar Pétursdóttur, tón-
menntakennara.
8. Hátíöarslit: Guðmundur Jónsson, vélfrœðingur.
Léttsveitin leikur milli atríða.
Allir velkomnir!