Morgunblaðið - 24.05.1990, Page 93
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 1990
93
Þessir hringdu ..
Of mikill hraði
Ökumaður hringdi.
„Það er árviss viðburður að
slysum fjölgar í umferðinni í sum-
arbyijun. Svo virðist sem ýmsir,
sérstaklega ungt fólk, kunni sér
ekki hóf og ekur a margföldum
leyfílegum hraða. Óðagotið er svo
mikið á sumum að þeir fara fram-
úr þar sem það er stór hættulegt
og setja þannig bæði sjálfa sig
og aðra í hættu. Ef ökumenn
fengjust til að sýna meiri aðgæslu
og minnka ökuhraða myndi öru-
lega draga mikið úr óhöppum í
umferðinni. Ég tel að banna ætti
svokallaða kaskó-tryggingu því
hún veldru því að menn verða
kærulausari í umferðinni en ella.
Þeir hugsa sem svo, að þó þeir
lendi í árekstri fái þeir allt tjónið
bætt. Undarlegt er hversu skyldu-
tryggingarnar eru háar miðað við
kaskó-trygginguna, sem virðist
mjög hagstæð. Það skyldi þó aldr-
ei vera að þarna séu færðir pen-
ingar á milli?“
Plastmappa
Glær plastmappa með þremur
barnasmásögum og mynd af
dreng gleymdist á bekk við
Brúnaveg sl. laugardag. Finnandi
er vinsamlegast beðinn að hringja
í síma 24265.
Bifhjól
Bifhjóli af gerðinni Yamaha
MR50 með númerinu R-1411 var
stolið frá Álfhólsveg 54 í Kópa-
vogi fímmtudagskvöldið 10. maí.
Hjólið er svart og rautt, árgerð
“84. Ef einhver hefur orðið var
við að unglingar hafi slíkt hjól
undir höndum eða varahluti úr
því, vinsamlegast látið lögregluna
í Kópavogi vita.
ÍJr
Karlmannsút fannst við Hæða-
garð fyrir skömmu. Einnig fannst
bamalyklakippa við Réttarholts-
veg. Upplýsingar í síma 687458
eftir hádegi.
Páfagaukur
Grænn páfagaukur fannst við
Eyjabakka föstudaginn 8. maí.
Upplýsingar í síma 76191.
Páfagaukur
Páfagaukur er í óskilum í Sæ-
bólshverfí í Kópavogi. Hann er
blár og mjög gæfur. Upplýsingar
í síma 45439.
BMX
Lítið silfrað BMX hjól hefur
verið í óskilum síðan í haust. Það
er með tveimur lásum á stýri og
er annar rauður en hinn grár.
Upplýsingar í síma 84799 á kvöld-
in.
Eyrnalokkur
Sérsmíðaður eyrnalokkur tap-
aðist 13. maí við Austurvöll.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 604566 að deg-
inum eða í síma 32181 að kvöld-
inu.
Kettlingar
Sjö vikna kassavandir kettling-
ar fást gefíns. Upplýsingar í síma
78557.
Fallegan níu vikna gamlan
kettling vantar gott heimili. Hann
er hvítur og svartur og einstak-
lega mannelskur. Upplýsingar í
síma 667081 eftir kl. 17.
Fjórír mánaðar gamlir kettling-
ar fást gefins. Upplýsingar í síma
673284.
Aparnir í Blómavali
Við systurnar Anna Lilja og Halla
Vilborg förum oft með afa og ömmu
út að keyra á laugardögum. Oft för-
um við í Blómava! þar sem amma
kaupir lauka og mold en afi kaupir
kartöflur og áburð í garðinn. Við
förum oft að horfa á litlu apana á
meðan og okkur fínnst illa farið með
þá, þeir eru í ljótu járnbúri og á
gólfinu er ljótur pappakassi með
ávöxtum í. Við vildum biðja mennina
sem eiga Blómaval að láta ttjágrein-
ar inn í búrið sem aparnir geta leik-
ið sér í og fallega körfu undir mat-
inn þeirra, þá mundi þeim lfða mikið
betur og það væri miklu meira gam-
an að horfa á þá.
Anna Lijja og Halla Vilborg
Jónsdætur.
Víkveiji skrifar
Um næstu helgi ganga menn í
kjörklefann og kjósa sér
sveitarstjórnir til næstu fjögurra
ára. Sums staðar kunna menn að
vera í miklum vafa um hvað kjósa
skal, en að viti Víkveija tala verkin
sínu máli í Reykjavík og hann velk-
ist ekki í vafa um hvað hann á að
kjósa.
Segja má, að Arnarhváll sé eins
konar musteri fjármagnsins hér á
landi, þar sem byggingin hýsir fjár-
málaráðuneytið og þar eru fjárhirzl-
ur ríkisins. Gjarnan, þegar.rætt er
um eitthvert málefni, er varðar fjár-
hag ríkisins birtast á sjónvarps-
skjám myndir af þessu húsi. En
hafa menn tekið eftir því, hvernig
húsið lítur út? Það er allt að grotna
niður í vanhirðu, múrhúð meðfram
þakskeggi er að hrynja af og bygg-
ingin virðist liggja undir stórfelldum
skemmdum. Því miður er þettaékki
eina dæmið um vanhirðu á eignum
ríkisins. Allir vita, að húsið í ná-
grenni Arnarhváls, Þjóðleikhúsið
sjálft, er óstarfhæft vegna vanhirðu
og nú fyrst frá árinu 1952, er leik-
húsið var tekið f notkun, fær það
viðhald. Hvað ætli ástand Þjóðleik-
hússins sé mikið að kenna van-
rækslu undanfarinna áratuga og
hvert væri eðlilegt viðhald hússins
ef það hefði fengið eðlilega umönn-
un? Sjálfsagt getur enginn svarað
því, en skemmdir eyðileggja út frá
sér og sé ekki eðlilegt viðhald, þarf
milljónahundruð til þess að gera
húsin upp að lokum, eins og dæmi
Þjóðleikhússins sannar.
Annað dæmi um vanrækslu eigna
ríkisins er Bessastaðastofa á helzta
höfuðbóli landsins, þar sem forseti
lýðveldisins býr. Ekki einu sinni þar
hefur ríkisvaldið og þeir sem því
stjórna séð sóma sinn í að hús
fengju eðlilegt viðhald. Og nú er
verið að gera upp Bessastaðastofu
með ærnum tilkostnaði, hefur meira
að segja verið byggt utan um hana
annað hús meðan á viðgerð stend-
ur. Þá má nefna Þjóðminjasafnið,
sem hefur ekki fengið eðlilegt við-
hald fremur en aðrar eignir ríkis-
ins. Það er hús sem þarf að laga á
næstu árum fyrir háar fjárhæðir
og Þjóðarbókhlaðan, sem stendur á
næstu grösum við safnið, á enn
langt í land að verða fullbúin, þrátt
fyrir hátt á annan tug byggingar-
ára.
Já fyrir Víkverja ber allt að sama
brunni. Eignir ríkisins eru látnar
grotna niður og þær samsteypu-
stjórnir, sem stjórnað hafa ríkisfjár-
málunum undanfarna áratugi, eiga
allar hér sína sök. Árið 1968 keypti
ríkissjóður Viðeyjarstofu, sem þá
hafði verið í einkaeign og hafizt var
handa um að bjarga þessari merku
byggingu frá glötun, en hún hafði
þá verið í niðurníðslu um alllangan
tíma. Menn sáu nú fyrir sér endur-
reisn Viðeyjar og stofunnar, en allt
kom fyrir ekki, aðeins var unnt að
lagfæra þak Viðeyjarstofu og búið
spil. Þarna stóð hún því allt fram
til 200 ára afmælis Reykjavíkur-
borgar árið 1986, að Sverrir Her-
mannsson þá ráðherra ákvað að
gefa borginni stofuna. Þetta var
einhver bezta ráðstöfun, sem unnt
var að gera, því að nú varð Viðeyj-
arstofa eign Reykjavíkurborgar og
tveimur árum síðar var hún opnuð
uppgerð og fín og við hana hafði
verið byggt neðanjarðar eldhús og
annað nauðsynlegt til þess að hún
gæti lifnað á ný og orðið rammi
um blómlegt líf. Við þessar fram-
kvæmdir hafði og orðið að ráðast
í miklar fornleifarannsóknir í eynni.
Allar þessar framkvæmdir voru
unnar af slíkum myndarskap að
allir sem kynntust dáðust að.
Það hefur löngum verið sagt um
menn, sem láta eignir sínar drabb-
ast niður, að þeir séu búskussar.
Slíka menn eiga menn ekki að kjósa
til vörslu eigna sinna. Stjórnendur
Reykjavíkurborgar hafa sýnt og
sannað, að þeir eru þeim vanda
vaxnir að stjórna Reykjavíkurborg.
Þessi litlu dæmi um umgengni við
arfleifð genginna kynslóða sannar
það og þess vegna er Víkverji m.a.
ekki í vafa um hvar hann setur
krossinn sinn í kjörklefanum á
sunnudag.
©1989 Umversal Ptets Syndicale
„ 4iiq ianqa^ sencfc afsnae/ís/cort
{.iL bróSut m/n£, /r>eð póst/crð/u. *
Með
morgunkaffinu
Slepptu þessu, vinur. Ég er
búinn að lagfæra sjónvarpið
hennar.
HÖGNI HREKKVÍSI
„HÍ-HÍ- hogni kann EKKI ae> TAPA.u
. .. Ef? Lt&RBGUiP'iLGO VIRKILBQA NAUE5CVN"
LEG?"