Morgunblaðið - 24.05.1990, Qupperneq 96
SAGA CLASS
Ferðafrelsi
FLUGLEIDIR
MERKI UM GÓBAN ÚTBÚNAÐ
'■C m wlm . tíASviSS : GjPB
VEIÐIHJÓL OG STANGIR
FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 1990
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Hækkun á gos-
drykkjum:
Verðlagsstofn-
un gerir ekki
athugasemd
VERÐLAGSSTOFNUN gerir
ekki athugasemdir við hækkun
Vífílfells hf. á gosdrykkjum.
Verksmiðjan hækkaði nýlega
verð á gosdrykkjum um 7% að
meðaltali.
Verðlagsstofnun fór yfir ástæður
hækkunarinnar með Vífilfelli þegar
fyrirtækið gerði henni grein fyrir
því að það ætlaði að hækka og sá
enga ástæðu til athugasemda vegna
hækkana sem orðið hafa á erlend-
um aðföngum, svo sem sykri, frá
því gosdrykkir voru síðast verðlagð-
ir.
Forsvarsmenn Öigerðar Egils
Skallagrímssonar og Sanitas vildu
ekki svara því hvort hækkanir á
verði þeirra framleiðslu væru í und-
irbúningi, sögðu einungis að þeir
hefðu ekki hækkað gosdrykkina.
Stórager ðismálið:
Yarðhald í
126 daga og
geðrannsókn
SAKADÓMUR Reykjavíkur úr-
skurðaði í gær mennina tvo, sem
setið hafa í gæsluvarðhaldi vegna
rannsóknar morðmálsins í Stóra-
gerði, í áframhaldandi gæslu-
varðhald til 26. september. Þá
var þeim einnig gert að sæta
geðrannsókn. Tveimur stúlkum
hafði áður verið sleppt úr haldi.
Fyrri gæsluvarðhaldsúrskurður
yfir mönnunum rann út í gær og
krafðist Rannsóknarlögregla ríkis-
*íhs áframhaldandi gæslu yfir þeim
í 126 daga, eða til 26. september.
Þórir Oddsson, vararannsóknarlög-
reglustjóri, sagði að rannsókn máls-
ins miðaði ágætlega, en ekki væri
ljóst hvenær málið yrði sent ríkis-
saksóknara. Bíða þyrfti niðurstöðu
úr rannsóknum, til dæmis á fatn-
aði, sem sendur var til útlanda.
Við rannsókn málsins hefur kom-
ið í ljós að mennirnir tveir brutust
fyrir nokkru inn í apótek og höfðu
á brott með sér ýmis lyf og efni.
Þýfið höfðu þeir grafið í jörð.
FYLLTIHJOLFORIN
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Þýskir og íslenskir verktakar vinna nú að því að fylla upp í hjólförin
á Reykjanesbraut á fimm kílómetra kafla. Þeir voru að vinnu við
Straumsvík í gær þegar þessi mynd var tekin. Nýrri aðferð er beitt
við lagninguna; möl, sementi, sérstöku bindiefni og vatni er blandað
saman um leið og fyllingin er lögð. Vatnið gufar þegar upp og tutt-
ugu mínútum síðar er hægt að keyra á fyllingunni. Síðar verður mal-
bikað yfir. Þýsku verktakarnir eru með tvær vélar og sex menn hér-
lendis við vinnuna og ætla sér tvo daga í verkið. Þeir munu síðan
leggja fyllingu á nokkrum stöðum á Stór-Reykjavíkursvæðinu og í
Keflavík.
Kaupendur taka sjálfír á sig
7% toll af íslenskum saltfíski
SÍF getur ekki annað eftirspurninni
„PORTÚGALAR, sem og aðrir saltfiskkaupendur, hafa fallist á að
taka sjálfir á sig 7% toll á íslenskum saltfiski, sem tók gildi 1. apríl
síðastliðinn. Það jafiigildir að sjálfsögðu 7% verðhækkun," sagði Sig-
urður Haraldsson, aðstoðaríramkvæmdastjóri Sölusambands
íslenskra fiskframleiðenda, á 57. aðalfundi samtakanna, sem lauk á
Hótel Sögu í gær. Hann sagði að eftirspurn eftir saitfiski væri mikil
og fyrirsjáanlegt væri að næstu mánuði yrði hún meiri en SIF gæti
annað.
Sigurður Haraldsson sagði á
fundinum að áætlað sé að þorskafl-
inn fyrstu 5 mánuði þessa árs verði
um 150 þúsund tonn og um 36%
af aflanum verði söltuð. Hins vegar
hefðu um 52% af þorskaflanum
Samningar um nýtt álver:
Líklegt að samkomulag
verði um 30% tekjuskatt
ÍSLENSKA álviðræðunefndin hefur í samningaviðræðum sínum við
fulltrúa Atlantsáls gert kröfu um það að ný álbræðsla á Islandi
greiði 35% tekjuskatt, en fulltrúar Atlantsál hafa enn ekki viljað
bjóða meira en 25% tekjuskattsgreiðslu. Ekki er talið ólíklegt, sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins, að niðurstaðan í þessum efnum
verði um 30% tekjuskattur.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er komið nokkurs konar
rammasamkomulag á milli aðila í
skattamálum, að tekjuskattsmálinu
undanskildu. Áhyggjur manna
beinast ekki fyrst og fremst að
ágreiningi um skattamál, heldur að
því að lítið sem ekkert er sagt hafa
þokast hvað- V.arðar satokomulag-
um raforkuverð. Atlantsál leggur
áherslu á að fá mikinn afslátt raf-
orkuverðs fyrstu árin, enda reikna
aðstandendur Atlantsáls ekki með
því að ný álbræðsla færi að skila
hagnaði fyrr en i fyrsta lagi árið
2003. Þeir gera kröfu um tíma-
bundinn.inikrnn raförkuverðafsláttj
og- benda- íslenskum -viðmælendum
sínum á að erfitt sé að verja fyrir
stjórnum hvers fyrirtækis fyrir sig
(Álumax, Granges og Hoogovens)
ákvörðun um byggingu slíks álvers
á íslandi, nema í boði séu hag-
kvæmir samningar um raforkuverð
í einhvern ákveðinn aðlögunartíma.
Ella muni það taka fyrirtækið mun
lengri tima að uppfylla þá arðsem-
iskröfu sem gera verði til nýrrar
álbræðslu.
Þótt stefnt sé að því að tilkynna
staðarval á fundunum hér á landi
í lok júnímánaðar, telja viðmælend-
ur Morgunblaðsins að því markmiði
verði ekki *n'áð,.óg að Istáðanialsi
ákvörðun geti.-dregistfram áhaust.
farið til söltunar á sama tíma síðast-
liðin ár. Sigurður sagði að skilaverð
til framleiðenda væri að meðaltali
15% hærra í Bandaríkjadölum í
þessum mánuði en á sama tíma í
fyrra en 35% hærra í krónum. Aft-
ur á móti hefði meðalsöluverðið
hækkað um rúm 20% í Bandaríkja-
dölum á sama tímabili.
SÍF seldi 56 þúsund tonn af salt-
fiski fyrir 181 milljón Bandaríkja-
dala, eða 10,4 milljarða króna, árið
1989, sem er tæplega 10%_minna
en árið áður, en þá seldi SIF rúm
61 þúsund tonn fyrir 223 milljónir
dala. SÍF fékk að meðaltali 3.200
dali fyrir tonnið af saltfiski árið
1989, sem er tæplega 19% lægra
verð en árið áður. Salan til Portú-
gals var um 22 þúsund tonn í fyrra,
eða um 15 þúsund tonnum minni
en næstu tvö ár á undan en þá
fóru um 60% af framleiðslunni
þangað. Birgðir í Portúgal voru hins
vegar óvenju miklar í ársbyijun
1989, eða 30-35 þúsund tonn.
Sigurður sagði að SÍF hefði selt
of hátt hlutfall til Portúgais, þar
sem þessi markaður gæti snúist á
tiltölulega skömmum tíma úr mjög
hagstæðum í slakan markað, eins
og hefði gerst í upphafi síðastliðins
árs. Stjórnarmenn í SIF hefðu því
verið sammála um að í framtíðinni
beri að leggja meiri áherslu á fram-
leiðslu fyrir aðra markaði, enda
þótt Portúgal yrði áfram stærsti og
mikilvægasti saltfiskmarkaður Is-
lendinga.
„Kaupendum Portúgalsfisks hef-
br vérið gerð gfcein 'fyrir að saml
drátturinn- í söltuninni--er miklu -
meiri það sem af er árinu en gert
var ráð fyrir í upphafi ársins þegar
samningar voru undirritaðir, enda
hafa allar magnforsendur í samn-
ingnum brostið vegna mikils út-
flutnings á ferskum, flöttum fiski
og tímabundnu útflutningsleyfi til
annarra en SIF á svokölluðum létt-
söltuðum fiski,“ sagði Sigurður.
Hann sagði að einungis væri
búið að afskipa um einum fjórða
af því magni, sem samið hefði ver-
ið um að Portúgalar keyptu, og
þeim hefði nú verið gerð grein fyr-
ir að engar líkur væru til að hægt
yrði að afhenda umsamið magn á
þessu ári. Þetta hefði valdið bæði
Portúgölum og öðrum kaupendum
miklu tjóni, þar sem þeir hefðu ráð-
ið fólk í vinnu og gert samninga
við sína viðskiptamenn á grundvelli
samninga við SIF.
„Enda þótt Portúgalar hafi allan
rétt til að krefjast þess að við stönd-
um við samninga féllust þeir á að
endurskoða samninginn. Þessari
afstöðu þeirra réð fyrst og fremst
áhyggjur vegna framtíðarinnar en
einnig mikil reynsla þeirra af við-
skiptum við SÍF og gagnkvæmt
traust, sem ríkt hefur í þeim við-
skiptum. Frá og með miðjum maí
til ágústloka verðum við að afhenda
Portúgölum um 8 þúsund tonn af
fiski en söluverðið mun hækka í
áföngum á þessum tíma. í lok ágúst
verða málin endurmetin að nýju.“
Guðjón Indriðason Tálknafirði og
Elvar Einarsson Höfn í Hornafirði
voru kosnir í stjórn SIF á fundinum
í gær í stað Hallgríms Jónassonar
Reyðarfirði óg Kristjáns Óláfs'sohalr
Ðalvík-, -sem gáfu ekki kost-á sér.