Morgunblaðið - 31.05.1990, Síða 1
72 SIÐUR B
121. tbl. 78. árg.___________________________________FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1990_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Jarðskjálfti skók austanverða Evrópu:
Mikið mannvirkjatjón
og 9 menn biðu bana
Búkarest. Reuter.
ÖFLUGUR jarðskjálfti reið í gær yfir Austur-Evrópu á svæðinu frá
Eystrasalti að Svartahafi og olli miklu tjóni á mannvirkjum. Fréttir
af hugsanlegu manntjóni voru óljósar. I Búlgaríu dó kona úr hjarta-
slagi og rúmenska sjónvarpið sagði að þar í landi hefðu a.m.k. átta
menn beðið bana. Skjálftinn átti upptök um 160 km norður af Búkarest
í strjálbýlu héraði, Vrancea, í Karpataflöllum. Hann mældist 6,5 stig
á richter-kvarða og stóð yfir í 45 sekúndur. Upp úr iniðnætti að ísl.
tíma í nótt reið síðan annar snarpur skjálfti yfir Rúmeníu og olli
tjóni. Vaknaði fólk af svefhi og flýði fáklætt út á götur í Búkarest.
Hundruð Rúmena munu hafa slas-
ast í skjálftanum í gær, þar.af marg-
ir sem stukku fram af svölum húsa
af hræðslu. Þúsundir manna flúðu
skelkaðar út á götur í Búkarest
minnugar 7,2 stiga skjálfta sem
lagði stóra'hluta borgarinnar í rúst
og olli míklu manntjóni árið 1977.
Börn voru rekin út úr skólum og
opinberar stofnanir tæmdust. Eldar
kviknuðu í byggingum er gasleiðslur
brustu. Þá varð skjálftans vart í
Moskvu, sem er í 1.500 km fjarlægð
frá skjálftamiðjunni.
Sovéska fréttastofan TASS sagði
að skjálftinn hefði valdið miklu tjóni
á mannvirkjum í Moldavíu og þar
hefði einnig orðið manntjón en óljóst
væri hversu mikið. Míkhaíl Gorbatsj-
ov Sovétforseti sagðist í gær ekki
sjá ástæðu til þess að snúa heim
vegna skjálftans en hann kom í í
gærkvöldi til Washington til leið-
togafundar þeirra George Bush
Bandaríkjaforseta er hefst í dag. í
hitteðfyrra varð Gorbatsjov að
hverfa heim af fundi með Ronald
Reagan, þáverandi forseta, í New
York vegna jarðskjálfta sem ollu
iwmpaBgBúEEipgm
SVÍÞJÓÐt' i
/' i
1 ( FINLAND
/
PÖLLAND
"vaasjA ~ ■ V, \
þ > .. N
MIÐJA i' ..
HINS 6,9 "Jfv. '
STIGA i 'T 'i„ '
SKJÁLFTA * . fy?3’"aar
___laskast
m w ‘i
:'i' v \ >. i i
DRASOV^jW’ - |r j
BUCAfíFSr* “ ‘ ', l.J*/J J j
SVARTAHAF'
I
Fólkf
úr hús- / ;' /
Ulh TVRKLAND 'J'-’
V
miklu manntjóni í Armeníu.
Alþjóða kjarnorkumálastofnunin
(IAEA) í Vínarborg taldi ólíklegt í
gærkvöldi að tjón hefði orðið á kjarn-
orkuverum áskjálftsvæðinu. Skjálft-
inn olli rafmagnstrufiunum í Grikk-
landi, Tyrklandi og Búlgaríu og
skemmdir urðu á húsum og mann-
virkjum, m.a. slitnuðu símalínur.
Hræðsla greip um sig meðal íbúa í
þessum löndum en engin slys urðu
á fólki. Rannsakað var í gær hvort
tjón hefði orðið á Kozlodui-kjarn-
orkuverinu í Búlgaríu. Útvarpið í
Sófíu sagði að sjálfvirkur búnaður
hefði slökkt á kjarnakljúfum þegar
orkuverið tók að skjála.
Þá varð 5,8 stiga jarðskjálfti í
Perú í fyrrakvöid og biðu a.m.k. 100
manns bana í borginni Moyobamba
í vestuijaðri Amazon-skógarins.
Reuter
Gorbatsjov til
fundar við Bush
MÍKHAÍL Gorbatsjov Sovétfor-
seti kom í gærkvöldi til Washing-
ton D.C., höfuðborgar Banda-
ríkjanna, til viðræðna við George
Bush forseta. í gær átti Gorbatsj-
ov viðræður við Brian Mulroney,
forsætisráðherra Kanada, í
Ottawa. Deildu þeir hart um
framtíð Þýskalands bak við luktar
dyr en voru hins vegar einkar
brosmildir í upphafi fundar eins
og myndin ber með sér. Bush
hefur útilokað að semja sérstak-
lega við Gorbatsjov um framtíð
Þýskalands eftir sameiningu
þýsku ríkjanna, að því er Marlin
Fitzwater, talsmaður Bandaríkja-
forseta, sagði í gær. Á leiðtoga-
fundinum muni hann þó reyna að
finna leiðir sem Sovétmenn geta
sætt sig við miðað við að Þýska-
land verði í Atlantshafsbandalag-
inu (NATO). Gorbatsjov virðist
farinn að missa þolinmæði í
Þýskalandsmálinu því hann deildi
hart á afstöðu vestrænna ríkja í
gærkvöldi fyrir að vera ekki til
umræðu um hlutlaust Þýskaland.
Afstaða þeirra væri til þess fallin
að auka á spennu í sambúð aust-
urs og vesturs. Skoraði hann á
Vestui-veldin að hugsa málið á
nýtt í stað þess að „spila alltaf
sömu gömlu plötuna".
Sjá „Veik samningsstaða
Gorbatsjovs einkennir við-
ræðurnar" á bls. 28.
Jeltsín hvetur til afsagn-
ar sovésku stjórnarinnar
Segir þing Rússlands munu samþykkja lög um aukið sjálfræði gagnvart Kremlarvaldinu
Moskvu. Reuter.
BORIS Jeltsín, nýkjörinn forseti
Rússlands, gagnrýndi harðlega
efnahagsáætlanir Níkolajs
Ryzhkovs, forsætisráðherra Sov-
étríkjanna, í gær og hvatti til
þess að stjórnin segði af sér.
Jeltsín benti á að fyrri umbóta-
áætlun stjórnarinnar frá _því í
desember hefði brugðist. „Eg tel
að þegar áætlun hefúr mistekist
einu sinni eigi stjórnin að segja
af sér. Síðan eigi önnur stjórn
að leggja fram nýja áætlun,“
sagði forsetinn á fyrsta blaða-
mannafundi sínum eftir forseta-
kjörið. Boðaðar verðhækkanir
sovéskra stjórnvalda hafa valdið
kaupæði og öngþveiti í landinu,
einkum í stórborgunum. Jeltsín
lagði einnig áherslu á kröfúr um
aukið sjálfræði Rússlands.
Forsetinn sagði að hverfa ætti
Sænskar konur:
Þreföldun lungnakrabba
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins.
EKKERT lát er á aukningu krabbameinssjúkdóma í Svíþjóð en
jafnframt fjölgar þeim hlutfallslega sem fá bót meina sinna, að
sögn sænskra heilbrigðisyfirvalda. Er nú svo komið að annar
hver krabbameinssjúklingur nær fullum bata eftir meðhöndlun á
sjúkrahúsi.
Af krabbameinssjúkdómum
hefur hlutfallslega mest aukning
orðið á lungnakrabbameini hjá
konum og er ástæðan fyrst og
fremst rakin til aukinna reykinga.
Á undanförnum 20 árum hefur
tíðni lungnakrabba hjá körlum
minnkað en á sama tíma hefur
fjöldi kvenna með lungnakrabba
þrefaldast. Reykingar karla hafa
dregist saman á þessum tíma en
aukist hjá konum.
Þá fjölgar þeim stöðugt sem fá
húðkrabba og er orsökin sögð allt-
of mikil sólböð. Talið er að húð-
krabbi verði algengasti krabba-
sjúkdómurinn í Svíþjóð eftir 20
ár verði ekkert að gert. Hafa
vísindamenn nú í frammi aukinn
áróður gegp sólþöðum, einkum
barna og unglinga.
Samkvæmt skýrslum er
krabbamein í blöðruhálskirtli al-
gengasti krabbasjúkdómur meðal
sænskra karla eða 23% af öllum
flokkum sjúkdómsins.
Láta mun nærri að um 200.000
Svíar séu ýmist með eða hafi
þjáðst af krabbameini. Helmingur
sjúklinga á nú batavon og þá er
átt við að þeir séu enn lausir við
sjúkdómseinkenni fimm árum eft-
ir að læknismeðferð lýkur. Varð-
andi möguleika á bata hefur sjúk-
dómsgreining á frumstigi úrslita-
þýðingu.
frá miðstýringaráráttunni; Sov-
étríkin gætu aðeins verið sterkt ríki
ef hvert lýðveldi stæði á traustum
fótum. „Við eigum að hætta að
semja um fastákveðið verð í við-
skiptum okkar við hin lýðveldin og
láta heimsmarkaðsverð ráða,“ sagði
Jeltsín. Hann sagðist álíta að breyt-
ingin þyrfti ekki að taka meira en
ár. Rússar selja hinum Sovétlýð-
veldunum 14 ýrnis hráefni, olíu, gas
og iðnaðarvörur á lágu verði sem
ákveðið er án tillits til markaðs-
verðs. Miklar verðhækkanir gætu
orðið áfall fyrir sum lýðveldin, eink-
um lítt þróuð Mið-Asíulýðveldi.
Jeltsín sagði að rússneska þingið
myndi samþykkja innan skamms
lög um stóraukið sjálfræði gagn-
vart Sovétstjórninni. Drög að
slíkum lögum hafa verið rædd á
þinginu undanfarnar vikur.
Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseti,
er barðist gegn upphefð Jeltsíns,
sagði fréttamönnum í Kanada að
Jeltsín hefði síðustu daga breytt
áherslum í málflutningi sínum og
nálgast sjónarmið Sovétforsetans.
Gorbatsjov sagði rétt að bíða og sjá
hveiju fram yndi, nauðsynlegt yrði
að hefja samvinnu. Hann hafði eft-
ir Jeltsín að hann vildi styrkja sov-
éska ríkjasambandið og vinna með
Gorbatsjov; með þessum ummælum
hefði Jeltsín horfið frá „eyðilegg-
ingarstefnu". Gavríl Popov, um-
bótasinnaður borgarstjóri Moskvu
og _stuðningsmað_u_r_ Jelt_síns_,_ segir
að sigur hefði aldrei unnist í for-
setakjörinu ef Jeltsín hefði ekki
boðist til að vinna með harðlínuöfl-
um að myndun stjórnar í Rússlandi.
Noregur:
Olafúr kon-
ungnrá
sjúkrahús
Ósló. Frá Helge Sörensen fréttarit-
_ ara Morgunblaðsins.
OLAFUR Noregskonungur
var seint í fyrrakvöld lagður
inn á sjúkrahús vegna bólgu
við hjarta. Var líðan hans í
gær sögð eftir atvikum.
Ólafur
konungur
gegndi
síðast emb-
ættisverk-
um um
síðustu helgi
er hann fór
í opinbera
heimsókn til
Norður-Noregs þar sem hann
minntist m.a. þeirra sem féllu
í átökum við innrásarheri nas-
ista í Narvík í maímánuði árið
1940 eða fyrir 50 árum.