Morgunblaðið - 31.05.1990, Blaðsíða 59
59
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1990
KNATTSPYRNA / EVRÓPUKEPPNI LANDSLIÐA
ÍÞfém
FOLK
I RÉTT fyrír landsleikinn kom í
ljós að búið var að þurrka þjóðsöng
Albaníu út af segulbandssnældu,
sem geymdi hann. Starfsmenn
Laugardalsvallarins leituðu þá til
Ríkisútvarpsins, sem bjargaði
málunum og lánaði snældu með
þjóðsöngnum á.
H ALBANIR voru búnir að semja
við Henson, um að leika í búningum
frá fyrírtækinu, sem þeir máttu
síðan eiga. Þeir voru í buxum og
sokkum frá Henson og æfinga-
galla, en þegar þeir fóru úr þeim
áður en leikurinn hófst, kom í ljós
að þeir voru í gömlu landsliðspeys-
unum sínum, en ekki peysum frá
Henson.
H HALLDOR Einarsson, eigandi
Henson, var að sjálfsögðu ekki
ánægður með framkomu Alban-
anna og eftir leikinn urðu leikmenn
Albaníu að skila búningunum sem
þeir fengu fyrir leikinn.
H ATLI Eðvaldsson skoraði
síðast mark í landsleik gegn Nor-
egi 1987, þegar ísland vann, 1:0,
í Osló.
H EINN leikmaður Albaníu, Ro-
land Iliadi, fékk ekki leyfi til að
fara inn á sem varamaður á 78.
mín., þar sem takkamir undir skóm
hans voru ólöglegir. Takkarnir voru
hættulegir; höfðu greinilega verið
notaðir svo lengi að skein í bert
járnið. Hlífðarhimnan varekki leng-
ur til staðar. Hann skipti þá um skó
og fékk að fara inn á tveimur mín.
seinna.
H BIRKIR Kristinsson, mark-
vörður, gaf markverði Albaníu,
Fotaq Strakosha, markmannshan-
skana sína eftir leikinn. Birkir
sagði að Strakosha hafi komið til
sín fyrir leikinn og beðið að gefa
sér hanskana. „Hann kom síðan
strax eftir leik og rukkaði um
hanskana, sem ég lét hann hafa
með glöðu geði,“ sagði Birkir.
H SONUR Péturs Ormslev kom
til pabba síns í búningsklefann
strax eftir leikinn og sagðist hafa
séð hann í Frambúningnum, en
landsliðið lék í bláum treyjum og
hvíum buxum eins og bikarmeistar-
arnir. Stráksi bætti síðan við: „Ég
var líka í mínum.“
H ÞAÐ vakti furðu fyrir leikinn
að Eggert Magnússon, formaður
KSÍ, lét heiðursgestina Steingrím
Hermannsson og Asgeir Sigur-
vinsson heilsa fyrst upp á leikmenn
íslenska landsliðsins, en ekki leik-
menn gestanna, eins og sjálfsögð
kurteisi er.
Ásgeir Sigurvinsson veifar til
áhorfenda fyrir leikinn.
H ÁHORFENDUR fögnuðu Ás-
geiri ákaft þegar hann gekk inn á
leikvöllinn og af honum. Áhorfend-
ur stóðu þá upp í stúkunni og klöpp-
uðu. Eggert Magnússon, formaður
KSÍ, sæmdi Ásgeir gullmerki KSÍ
úti á vellinum áður en leikurinn
hófst.
„Eigum erfidan
leik fyrir höndum“
- sagði Platini, þjálfari franska landsliðsins, sem fylgdist með leiknum
„ÞETTA var ekki góður leikur
og með smá heppni hefðu
Albanar getað skorað og þá
er aldrei að vita hvernig leik-
urinn hefði þróast. En
íslenska liðið er gott og við
eigum erfiðan leik fyrir hönd-
um 5. september," sagði Mic-
hel Platini, þjálfari franska
landsliðsins í samtali við
Morgunblaðið. Hann var
meðal áhorfenda í gær,
ásamt tveimur aðstoðar-
mönnum sínum sem skrifuðu
óspart niður athugasemdir
um íslenska liðið, fyrir leik
þjóðanna í Reykjavík í haust.
Platini sagði að íslenska liðið
hefði leikið vel í síðari hálf-
leik og átt mjög góða kafla. „Við
vitum að við þurfum að hafa mik-
íð fyrir sigri í Reykjavík og mun-
um undirbúa okkur mjög vel fyrir
leikinn. Reynslan hefur sýnt okk-
ur að það er ekki auðvelt að sækja
sigur til íslands og við þurfum
nauðsynlega á honum að halda
enda yrðu það mér mikil von-
brigði ef við kæmumst ekki í loka-
keppnina," sagði Platini.
Michel Platini fylgist með
leiknum á Laugardalsvelli í
gærkvöldi.
Morgunblaðiö/Einar Falur
Pétur Pétursson átti hörkuskalla aö marki Albana þegar hálftími
var liðinn af síðari hálfleik, en Sulejman Demollari, markvörður,
varði meistaralega í horn.
„Ekkihægtað
hætta við!“
- sagði Atli Eðvaldsson um mark sitt
Þetta var fínt. Það er ekki hægt að segja annað. Okkur gekk vel í
síðari hálfleik og ég var að sjálfsögðu ánægður með markið. Það
var ekki hægt að hætta við í svona færi,“ sagði Atli Eðvaldsson, fyrirliði
íslenska landsliðsins, eftir leikinn, brosandi út að eyrum.
Þetta var fyrsti leikur okkar með nýrri leikaðferð og nýjum þjálfara og
ég held að við getum verið sáttir við útkomuna. Auðvitað voru byrjuna-
rörðugleikar enda ekki við öðru að búast. En ég hef trú á að við eigum
eftir að styrkjast með hverjum leik,“ sagði Atli.
„Réðum ekki
við pressuna“
- sagði BoJohansson, landsliðsþjálfari
Vissulega er ég sáttur við sigur
í fyrsta leiknum en fyrri hálf-
leikurinn var afar slæmur. Við réð-
um einfaldlega ekki við pressuna
og þurftum að breyta leikaðferð
okkar í síðari hálfleik,“ sagði Bo
Johansson, þjálfari íslenska lands-
liðsjns.
Ég átti von á meiri tækni og
varð fyrir voribrigðum með fyrri
hálfleikinn. En það var ánægjulegt
að sjá baráttuandann og sigurvilj-
ann í síðari hálfleik. Þá pressuðu
tveir til þrír leikmenn og það gafst
mun betur.“
Johansson sagði að liðið vantaði
betri tengingu milli vamar og sókn-
ar og það mætti rekja til fárra
æfinga. „Ég tel líklegt að við reyn-
um að halda leikstíl okkar, eins og
hann var í síðari hálfleik, í næstu
leikjum. En þegar á heildina er litið
get ég ekki annað en verið ánægð-
ur og þakkað fyrir stigin tvö,“ sagði
Johansson.
Rangers og Ander-
lecht í viðræðum
„Líklegast að ég fari til Rangers," segir Arnór. „Frakkland kemurtil greina"
gang mála,“ sagði Amór. Hann
sagðist ekki eiga von á að Num-
berg héldi áfram tilraunum sínuxn
til að kaupa liann en sagði að
franskt lið kæmi til greina.
„Mér líst best á Rangers. Liðið
fjársterkt og er í Evrópukeppni
meistaraliða. Það hefur mikið að
segja og Evrópukeppni freistar,“
sagði Amór.
Meðai áhorfenda i gær var að-
stoðarþjálfari Frakka, HoulJier,
og hreifst hann mjög af Amóri.
Hann var áður þjáifari hjá Paris
Saint Germain, og gerði liðið að
nieisturum, en það reyndi ákaft
að fá Amór fyrir nokkrum árum.
ANDERLECHT, lið Arnór
Guðjohnsen, og Glasgow
Rangers eiga í viðræðum um
hugsanleg kaup skoska liðs-
ins á Arnóri. „Ég veit ekkert
um hvernig gengur en bíð
eftir svari frá Anderlecht,“
sagði Arnór. Hann sagði einn-
ig að það kæmi til greina að
leika með frönsku liði en vildi
ekki gefa upp hvaða lið væri
um að ræða.
Eins og staðan er í dag er
líklegast að ég fari til Ran-
gers en það er þó alls ekki víst.
Liðin hafa verið að ræða málin
en ég veit satt að segja lítið um
Arnér Guðjohnsen.
ÍÞR&mR
FOLK
■ ELLERT B. Schram, stjómar-
maður jUEFA, sagðist reikna með
að KSÍ fengi aðvömn og einnig
sekt vegna atviksins í byrjun leiks-
ins, er nakinn maður hljóp inn á
völlinn. „Þetta er í annað skiptið á
stuttum tíma sem þetta gerist á
Laugardalsvellinum. Síðast fékk
KSÍ aðvörun,“ sagði Ellert.
■ NOKKRIR áhorfendur voru
handteknir eftir leikinn fyrir að
vanvirða íslenska fánann. Áð sögn
varðstjóra hjá lögreglunni í
Reykjavík voru þeir ítrekað beðnir
um að láta af því. Þessir sömu
áhorfendur vöktu einnig athygli og
hneykslan fyrir að kasta bjórdósum
og fleiru inná völlinn.
H NÆSTI „leikur" GuðnaBergs-
sonar , landsliðsmanns, verður í
Dómkirkjunni á laugardaginn.
Guðni mun þá giftast Elínu
Konráðsdóttur. ;