Morgunblaðið - 31.05.1990, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.05.1990, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1990 Sambandið: Breytingar á skipu- laginu fyrir haustið STJÓRN Sambands íslenskra samvinnufélaga kemur saman til fiind- ar í dag og þar verður samþykkt að leggja fram tillögu fyrir aðal- fund Sambandsins í næstu viku þess efhis að Sambandið verði brot- ið upp í sex sjálfstæð hlutafélög. Þessar upplýsingar hefur Morgun- blaðið frá sfjórnarmönnum Sambandsins svo og að allir níu stjórnar- mennirnir séu þessari tillögu fylgjandi. Stjórnin býst fastlega við því að aðalfundurinn samþykki tillöguna. Stjórnarmenn í Sambandinu sögðu í gær að í viðræðum við lán- ardrottna Sambandsins að undan- fömu hefðu hugmyndir stjórnarinn- ar að skipulagsbreytingum ýmist fengið jákvæðar undirtektir eða væru til nánari skoðunar hjá við- komandi lánastofnunum, en engin lánastofnun hefði hafnað þeim. „Verði niðurstaða aðalfundar sú að samþykkja skipulagsbreytingamar þurfa tveir mánuðir að líða áður en hægt er að kalla saman fulltrúa- fund til þess að afgreiða málið end- anlega," sagði einn stjómarmanna. Hann sagði að mánuðina tvo myndu Þjófar gómaðir: Fíkniefiiakaup Qármögn- uð með þýfi ÞRÍR piltar, um og yfir tvítugt, hafa viðurkennt inn- brot í á þriðja tug einbýlis- húsa í Reykjavík sl. 6-7 vik- ur. Piltarnir hafa setið í gæzluvarðhaldi í rúma viku vegna rannsóknar málsins. Að sögn Jóns Snorrasonar deildarstjóra RLR höfðu pilt- arnir tæpar tvær milljónir upp úr krafsinu í peningum og er- lendum gjaldeyri. Auk þess tóku þeir fjöldamörg tæki, að- allega sjónvörp, myndbands- tæki og upptökuvélar. Sára- lítið hefur fundizt af þýfinu. Að sögn Jóns Snorrasonar liggur fyrir að þýfið var að einhveiju leyti notað til fíkni- efnakaupa. Piltamir hafa allir komið við sögu lögreglu áður. kaupfélögin hvert um sig nota til þess að kynna sínum félagsmönnum hugmyndimar og taka afstöðu til þeirra. „Það liggur í hlutarins eðli að forstjóraembætti Sambandsins þynnist þegar skipulagsbreyting- arnar verða komnar til fram- kvæmda, en það getur í fyrsta lagi orðið um miðjan ágúst,“ sagði ann- ar stjómarmaður. Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sambandsins, var spurður hver framtíð hans yrði hjá fyrirtækinu, ef aðalfundurinn þann 7. og 8. júní nk. samþykkir ofangreinda tillögu stjórnarinnar: „Ég hef ekki hug- mynd um það, og myndi ekki einu sinni ræða það, þótt ég hefði ein- hveija hugmynd um það,“ sagði Guðjón. Hann kvaðst telja að hér væri um mál að ræða, sem þyrfti að fá eins málefnalega umræðu og hægt væri og ekki bæri að blanda persónum manna inn í þá umræðu. Fyrstu gestimir á Listahátíö RÚSSNESKI píanóleikarinn Andrei Gavrilov kom til landsins í gær en hann leikur á fyrstu tónleikum Listahátíðar á laugardag, daginn sem hátiðin verður sett. Við komuna til Reykjavíkur tók á móti honum Pólveijinn Jacek Kaspszyk, fyrsti gestur hátiðarinn- ar, en hann stjórnar Sinfóníuhljómsveit íslands á tónleikum Gavr- ilovs í Háskólabíói. Andrei Gavrilov leikur á einum tónleikum og flytur verk eftir Ludvig van Beethoven, Sergei Rakhmaninov og Pjotr Tsjajkovskíj. Fáir miðar eru eftir á tónleikana. Andrei Gavrilov er einn af tugu en var aðeins 19 ára þegar fremstu píanóleikurum dagsins í hann sigraði í Tsjajkovskíj-sam- dag. Hann stendur nú á hálffer- keppninni í Moskvu og hefur síðan þá leikið með mörgum heims- þekktum hljómsveitum og stjórn- endum, þar á meðal Vladimir Ashkenazy. Jacek Kaspszyk hefur stjórnað hljómsveitum frá fjórtán ára aldri. Hann er nú búsettur í Bretlandi, þar sem hann hefur m.a. stjómað Lundúnafílharmón- íunni og Sinfóníuhljómsveit Lund- úna. Sjálfetæðismenn og jafiiaðarmenn sömdu um meirihluta á Dalvík Líkur á meirihluta D- og K-lista á Selfossi SJÁLFSTÆÐISMENN og jafhað- armenn undirrituðu í gærkvöldi málefnasamning um meirihluta- samstarf í bæjarstjóm Dalvíkur á næsta kjörtímabili. Samningurinn verður kynntur stuðningsmönnum flokkanna á næstu dögum. Trausti Þorsteinsson, efsti maður D-lista sjálfstæðismanna, sagði í gær- kvöldi, að samningurinn væri byggður á stefnuskrám listanna í kosningunum, en vildi ekki tjá sig frekar um hann að svo stöddu. Viðræður fulltrúa D-lista og K-lista Félagshyggjufólks á Selfossi voru það langt komnar í gærkvöldi, að taldar voru góðar líkur á myndun meirihluta þeirra í bæjarstjóm. Sjálfstæðismenn og framsóknar- menn í Kópavogi áttu fund í gær- kvöldi. Engar ákvarðanir voru teknar né samið um málefni, en annar fund- ur er boðaður í kvöld. Á Akranesi ræddust fulltrúar A- og B-lista við í gær eftir könnunar- viðræður á þriðjudag. í Borgamesi verður fundur sjálf- stæðis- og framsóknarmanna í kvöld í frámhaldi viðræðna á mánudag, sem vom vinsamlegar, að sögn Guð- mundar Guðmarssonar, B-lista. Í Ólafsvík hófust viðræður fram- sóknar-, sjálfstæðis- og alþýðu- Niðurstöður samræmdu prófanna: Lægst meðaleinkunn á Vesfc fjörðum, hæst í Reykjavík Margir Vestfírðingar sitja 9. bekk í öðrum fræðsluumdæmum Niðurstöður úr samræmdum prófum í íslenzku og stærðfræði, sem nemendur í níunda bekk um allt land þreyttu í vor, sýna að lægst meðaleinkunn er í Vestfjarðaumdæmi og hæst í Reykjavíkur- umdæmi. Hrólfúr Kjartansson, deildarsljóri skólaþróunardeilar í menntamálaráðuneytinu, segir að mikilvæg skýring á lakri útkomu Vestfjarða sé að margir unglingar sitji níunda bekk í öðrum fræðsluumdæmum, meðal annars vegna þess að sums staðar vanti níunda bekk í grunnskólana í umdæminu. Meðaieinkunn í íslenzku á landsvísu var 6,0. Meðaleinkunnir einstakra umdæma voru sem hér segir: Reykjavík 6,20, Reykjanes 6,01, Vesturland 5,97, Vestfírðir 5,08, Norðurland vestra 5,88, Norðurland eystra 5,88, Austur- land 6,14 og Suðurland 5,70. Með- aleinkunn í stærðfræði var 5,76. Einkunnir umdæma voru þannig: Reykjavík 6,20, Reykjanes 5,67, Vesturland 5,59, Vestfirðir 4,50, Norðurland vestra 5,64, Norður'- land eystra 5,47, Austurland 5,67 og Suðurland 5,46. Hrólfur Kjartansson sagði að hættulegt væri að draga ályktanir af hinum mikla mun, sem er á Vestfjörðum og öðrum fræðsluum- dæmum. „Við fórum ofan í saum- ana á Vestfjörðum fyrir tveimur eða þremur árum vegna þess að umdæmið hefur yfirleitt komið lak- lega út,“ sagði Hrólfur. „Þá kom- umst við að ýmsu, sem kom okkur dálítið á óvart, til dæmis það að 30% nemenda á Vestfjörðum, sem áttu að vera í 9. bekk, voru ein- hvers staðar annars staðar í skóla. í Vestfjarðaskólunum voru hins vegar um 16% nemenda úr öðrum umdæmum. Þessirtveirhóparvoru gerólíkir. Það virtist frekar vera ijóminn, sem fór út, en því var öfugt farið með þá, sem komu inn.“ Hrólfur sagði að þegar meðal- einkunn væri reiknuð eftir lög- heimili nemenda, kæmi í ljós að níundubekkingar, sem eiga lög- heimili á Vestfjörðum, næðu sízt verri árangri en nemendur úr öðr- um umdæmum. Að sögn Hrólfs eru unglingar af Vestfjörðum oft sendir burt í einn vetur til að ljúka grunnskóla- námi vegna erfiðra aðstæðna. „Það er kannski ekki níundi bekk- ur á staðnum og fólk sendir böm- in þá ef til vill til ættingja eða í heimavistarskóla. Það er til dæmis algengt að nemendur af Vestfiörð- um séu í Reykholtsskóla í Borgar- firði og í Reykjavíkurskólunum," sagði hann. Hann sagði að undan- farin ár hefði skólum með níunda bekk íjölgað og stefnan væri sú að koma alls staðar á heildstæðum grunnskóla í heimabyggð. Ennþá væri ástandið líklega verst í þeim efnum á Vestfjörðum. Aðspurður um hugsanlegar or- sakir fyrir betra gengi reykvískra nemenda en nemenda af lands- byggðinni sagði Hrólfur að margar skýringar væru á lofti, en engin hefði verið sannreynd. „Það hafa komið fram tilgátur um að það séu betri skólar á Reykjavíkursvæðinu, að þar séu almennt betur menntað- ir og hæfari kennarar, að skólam- ir séu betur búnir, eða þá að próf- in séu frekar miðuð við fjölmenna skóla en fámenna og svo framveg- is,“ sagði Hrólfur. Hann sagði að það væri staðreynd að leiðbeinend- ur, það er kennarar án kennslurétt- inda, væm fleiri við kennslu á landsbyggðinni en í Reykjavík og hlutfallslega flestir á Vestfjörðum. „Hvort það er nægileg skýring getur maður ekki fullyrt, því að athuganir liggja líka fyrir sem sýna að réttindalausir kennarar koma sízt verr út en hinir,“ sagði Hrólfur. bandalagsmanna á þriðjudag, héldu áfram í gær og í dag er boðaður fundur fulltrúa flokkanna. Á Isafirði var fundur fulltrúa A- og D-lista í gærkvöldi í framhaldi af viðræðum undanfarna daga. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins miðaði þeim viðræðum hægt, var rætt um starfshætti hugsanlegs meirihluta, en ekki farið að ræða pólitísk málefni. Á Siglufírði slitnaði upp úr viðræð- um sjálfstæðismanna, framsóknar- manna og F-lista Óháðra síðdegis í gær og hófu Óháðir í gærkvöldi við- ræður við alþýðuflokksmenn. Á Akureyri áttu sjálfstæðismenn og alþýðubandalagsmenn fund í gær um meirihlutamyndun og er boðaður annar fundur þeirra í dag. Á Húsavík hafa staðið yfír viðræð- ur framsóknar- og sjálfstæðismanna undanfarna daga og í gærkvöldi biðu framsóknarmenn eftir ákvörðun sjálfstæðismanna um samstarf. Á Eskifírði var boðaður fundur framsóknar- og alþýðubandalags- manna í gærkvöldi. Þá hafði Alþýðu- bandalagið hafnað tilboði sjálfstæð- ismanna um meirihlutamyndun. í Keflavík ræddu framsóknarmenn við alþýðuflokksmenn í gær og við sjálfstæðismenn í gærkvöldi. I dag ætla þeir að ákveða hvorum flokkn- um þeir bjóða formlegar viðræður. í Njarðvík hafa einungis farið fram könnunarviðræður milli D-lista og N-lista Samtaka félagshyggju. Jafiitefli hjá ís- lendingunum JÓN L. Árnason er í 7.-19. sæti á alþjóðlega skákmótinu í Moskvu með 4 vinninga þegar tefldar hafa verið sjö umferðir. Jón gerði jafntefli við Júgóslavann Nicolic í gær. Jóhann Hjartarson gerði einnig jafntefli við Boris Gulko og er með 3,5 vinninga. Efstir og jafnir á mótinu eru Sovétmaðurinn Bareev og Ungveijinn Portisch með 5 vinninga. Sjá Skák á bls. 39.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.