Morgunblaðið - 31.05.1990, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 31.05.1990, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1990 13 Kvikmyndafrum- varp ráðherra eftir Birgi ísleif Gunnarssorí Það vakti óneitanlega nokkra athygli í vetur þegar Þráinn Bert- elsson, kvikmyndagerðarmaður, náinn samstarfsmaður Svavars Gestssonar og fyrrverandi ritstjóri Þjóðviljans, lýsti yfir því að Svavar Gestsson væri að ganga af íslenskri kvikmyndagerð dauðri. Svavar brást hart við og sagði að nú skyldu menn sjá: Hann myndi brátt kynna það sem dygði til að tryggja framtíð íslenskrar kvik- myndagerðar. Þar átti hann við frumvarp það um Kvikmynda- stofnun íslands sem hann lagði nokkru síðar fram á Alþingi. frumvarpið væri gjörsamlega óað- gengilegt og vinna þyrfti málið upp að nýju. Minni tekjustofii En hvað gerði frumvarpið svona slæmt fyrir utan hin hroðvirknis- legu vinnubrögð? Alvarlegasta ádeiluefnið var að frumvarpið gerði ráð fyrir minni tekjustofni til kvik- myndagerðar en núgildandi lög. Þau kveða á um að Kvikmyndasjóð- ur fái í tekjur áætlaðan söluskatt af kvikmyndasýningum. Frumvarp- ið gerði ráð fyrir að eðli málsins samkvæmt yrði þessu breytt í áætl- aðan virðisaukaskatt af kvikmynda- sýningum. Sérfræðingar um skatta- mál bentu á að greiddur virðisauka- skattur af kvikmyndasýningum væri lægri en söluskattur, þar sem kvikmyndahúsin gætu dregið svo- nefndan innskatt frá. Um þetta fengust þó engar tölur lagðar fram þrátt fyrir tilmæli. Nú er það að vísu svo að hinar lögboðnu tekjur Kvikmyndasjóðs hafa ávallt verið skertar en þó mjög mismunandi eftir árum. Það gefur hins vegar augaleið að ef minnka á tekjustofninn þá eru ekki miklar líkur á að aukið fjármagn fáist til þessarar listgreinar í framtíðinni.. Áhugafólk um kvikmyndir hefur lagt áherslu á að sjóðurinn fengi einnig áætlaðan virðisaukaskatt af útleigu myndbanda og sjónvarps- auglýsingum. Sjálfstæðismenn fluttu breytingartillögur um það efni á Alþingi nú. Birgir ísleifur Gunnarsson „Það gefiir hins vegar augaleið að ef minnka á tekjustofiiinn þá eru ekki miklar líkur á að aukið Qármagn fáist til þessarar listgreinar í framtíðinni.“ Flókið stjórnkerfi Annað gagnrýnisatriði á frum- varpið var ótrúlega flókið stjórn- kerfí sem setja átti upp yfír Kvik- myndastofnun íslands. Fækkað var í stjórn og Félag kvikmyndaleik- stjóra og Bandalag íslenskra lista- manna útilokað frá því að tilnefna fulltrúa. Jafnframt átti að lögbinda tvær úthlutunarnefndir, A og B, sem skyldu úthluta úr sjóðnum samkvæmt nánari reglum sem fram komu í frumvarpinu. Fleiri gagn- rýnisefni komu og fram sem of langt mál væri að telja upp hér. Frumvarpið var keyrt í gegnum menntamálanefnd neðri deildar undir mikilli pressu frá ráðherra. Mikill ágreiningur var í nefndinni sem þríklofnaði. Fluttar voru 12 breytingartillögur við frumvarpið en sjálft frumvarpið var 'þó ekki nema 13 greinar. Niðurstaðan varð sú að málið náði ekki fram að ganga. Var lítill sómi að þessum málatilbúnaði. Höfundur er alþingismndur Sjáifstæðisflokksins í Reykjnvíkurkjördæmi. Vonbrigði Það frumvarp olli miklum von- brigðum og það sem verra var: Frumvarpið bar vott um mikið virð- ingarleysi fyrir þessari ungu list- grein á íslandi. Frumvarpið var ótrúleg hrákasmíð, morandi í villum og ljóst var að gera hefði þurft á því miklar breytingar til að koma einhveiju viti í málið. Menntamálanefnd neðri deildar fékk frumvarpið til athugunar. Fékk hún ýmsa kunnáttumenn til viðtals við sig. Þangað komu full- trúar kvikmyndagerðarmanna og kvikmyndaframleiðenda. Einnig fulltrúar úr stjórn Kvikmyndasjóðs og úthlutunamefnd sjóðsins. Allir luku upp einum munni um það að I SKÓLAGARÐAR borgarinnar starfa nú á sjö stöðum í borginni. Við Sunnuveg í Laugardal, í Árbæ, Ásenda, við Jaðarsel og Stekkjarbakka, í Skildingarnesi og í Foldahverfi (Kotmýri) fyrir austan Logafold. Innritun í þessa garða fer fram föstudaginn 1. júní og þriðjudaginn 5. júní og hefst hún' kl. 8 í hveijum garði, Skólagarðam- ir eru ætlaðir fyrir börn fædd árin 1972—1982. Innritunargjald verður kr. 400 og kr. 700. Börn 8—9 ára fá 12 fermetra garða, en börn 10—12 ára fá 24 fermetra og mið- ast innritunargjald við stærð garða. Treystum á hjartagæsku manna eftir Sigurð Helgason Merkjasala á vegum Landssam- taka hjartasjúklinga fer fram dag- ana 31. maí, 1. júní og 2. júní nk. En slík sala á merki félagsins fer fram annað hvert ár og er í raun aðaltekjulindin. Talið er að 43% deyi úr hjartasjúkdómum og er hann því langskæðasti sjúkdómur sem heijar mannkynið í dag. Skipu- lagðar rannsóknir og fræðsla und- anfarin ár hafa þó fyllt fólk meiri bjartsýni og nýjustu upplýsingar sýna_ að verulegir sigrar hafa unn- ist. í dag eru helstu áhættuþættir hjarta- og æðasjúkdóma þekktir svo sem sígarettureykingar, hár blóð- þrýstingur, há blóðfita, streita, litl- ar líkamshreyfingar, mikil líkams- þyngd og rangt fæðuval. Ef fólk sem á við ofangreind vandamál að stríða gerir ráðstafanir í tíma er hægt að bægja hættunni frá að fullu í flestum tilvikum. Við sem höfum fengið hjartasjúkdóma get- um einnig haldið sjúkdómnum í skefjum og náð góðri heilsu að nýju, ef við breytum lífsmynstri og drögum þannig úr þeim áhættuþátt- um sem fyrir eru. Helsta baráttumál Landssam- taka hjartasjúklinga var í upphafí að mestur hluti hjartaaðgerða skyldi gerður hér heima. Það vekur að sjálfsögðu athygli að það voru einmitt hjartasjúklingar, sem flestir höfðu farið í aðgerðir erlendis, sem höfðu forystu um að skurðaðgerð- irnar yrðu gerðar hér á landi. Fæst- ir gera sér grein fyrir því álagi, sem mætir þeim sjúklingum og aðstand- endum þeirra, sem fóru í þessar aðgerðir og þeim fjölmörgu vanda- málum, sem við var að glíma. En það sem eflaust var þýðingarmest var að með þessari breytingu var mikil þekking á hjartasjúkdómum flutt heim, sem aldrei verður metin til fulls. Við höfum því harðlega mótmælt þeirri ákvörðun heilbrigð- isráðherra og fjármálaráðherra að hætta fjölgun hjartaaðgerða hér á landi og teljum við með þessu sé alls ekki verið að spara, því að að- gerðum muni ekki fækka. Landssamtök hjartasjúklinga hafa og aflað fjár til þess að bæta tækjakost á sjúkrastofnunum og tækja til rannsókna á hjartasjúk- dómum. Það er einróma álit þeirra, sem hafa tekið við þessum gjöfum að þær hafi komið að ómetanlegum notum. Landssamtökin hafa í góðri samvinnu við Hjartavernd og SÍBS komið upp endurhæfingarstöð á „ Við heitum því á alla landsmenn að veita okkur lið í baráttunni við skæðasta sjúkdóm- inn í dag og snúum vörn í sókn eins og reynslan hefiir sýnt að hægt er að gera.“ Háaleitisbraut 11-13 í Reykjavík og er aðsókn mikil. Eitt af fram- tíðarverkefnum Landssamtaka hjartasjúklinga verður að styðja að því að endurhæfingarstöðvar rísi víðar á landinu. Landssamtök hjartasjúklinga standa þéttan vörð um heilbrigðisþjónustu og hags- munamál hjartasjúklinga. Við ger- um okkur grein fyrir að mjög marg- ir úr okkar hópi verða óvinnufærir og staða þeirra í þjóðfélaginu rask- ast verulega. Brýnt verkefni í fram- tíðinni er að geta betur sinnt fjöl- mörgum vandamálum, sem við blasa hjá mörgum einstaklingum og fjölskyldum. Ég vil því skora á alla félags- menn að taka þátt í merkjasölunni, sem fram fer í dag, 1. júní og 2. júní nk. En að sjálfsögðu stendur og fellur þessi söfnun með því að almenningur í landinu kaupi merki og styðji þannig að öflugra starfí í framtíðinni. Við heitum því á alla landsmenn að veita okkur lið í bar- áttunni við skæðasta sjúkdóminn í dag og snúum vörn í sókn eins og reynslan hefur sýnt að hægt er að gera. Höfundur er formaður Landssamtaka bjartasjúklinga. f Iff (4%lAip jy HlfvflrvvfllE ÞJONUSTAN AUGLYSIR 1. Sætaferöir til Keflavíkurflugvallar, kr. 2000 pr. sæti. Sækjum farþega heim og ökum til Leifsstöövar og öfugt. 2. Fyrir brúökaup og önnur hátíöleg tækifæri. 3. Sendum bíla í feröir hvert á land sem er gegn fyirfram umsömdu veröi. 4. Gerum tilboö í allan akstur okkar út um allt land fyrir 5-9 farþega. Bílstjórarnlr tala ensku, þýsku og Noröurlandamál. Símar i öllum bfíum. Kynniö ykkur hagkvæma greiösluskilmála. Kreditkortaþjónusta. Opiö frá kl. 7-23.00. » p Malarhöföa 2, sími 674040
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.