Morgunblaðið - 31.05.1990, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 31.05.1990, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAI 1990 Honda QO Civic Shuttle 4WD 116 hestöfl Verð frá 1180 þúsund. GREIÐSLUSKILMÁLAR FYRIRALLA. ÍHONDA VATNACÖRÐUM 24, RVl'K., SÍMI 689900 Sarðsnyrtitæki frá Skil eru byggð samkvæmt ströngustu öryggis- og neytendakröfum, viðurkennd af Rafmagnseftirliti ríkisins. SPÁÐU í VERÐIÐ! FALKINN SUÐURLANDSBHAUT 8, SlMI 84670 ÞARABAKKI 3, SÍMI670100 -í- Sýning á firanskri grafík SÝNING á grafiklist írá Frakk- landi verður opnuð í Listasafni ASÍ við Grensásveg, laugardag- inn 2. júní kl.l 7. Listasafiiið og sendiráð Frakklands standa að sýningxinni, en erlendir styrkt- ar- og kynningaraðilar eru franska utanríkisráðuneytið og L’association francaise, sem eru frönsk samtök til eflingar lista. í frétt frá Listasafni ASÍ segir að á grafíksýningunni séu myndir eftir fjölda þekktra myndlistar- manna af ýmsu þjóðerni. Listprent- stofurnar sem unnið hafa þéssar myndir, séu einnig frægar fyrir aftiurðagott handverk og listræn vinnubrögð. Franski píanóleikarinn Franco- ise Choveaux mun leika við opnun sýningarinnar. Hún verður opin GRAFIKLISTARMENN OG USTPRENTSTOFUR LISTASAFN ASI - SYNING FRA FRAKKLANDI virka daga utan mánudaga frá kl. 16 til 19 og um helgar frá 14 til 19. Sýningunni lýkur 1. júlí. Aðstoð við aðstandendur sjúklinga utan af landi eftir Guðbjörgu Þórðardóttur Sl. vetur fjölluðu ráðamenn þjóð- arinnar um mál sem snúa að að- standendum sjúklinga utan af landi. Annars vegar var um þau fjallað í sölum Alþingis íslendinga og hins vegar í tryggingaráði Trygginga- stofnunar ríkisins. Þessari umfjöll- un ber vissulega að fagna, þó meira þurfi til en þær breytingar sem nú er stefnt að, hvað varðar hagsmuni þessa fólks, en öll skref í rétta átt eru af hinu góða. Af þessu tilefni langar mig til að kynna málefnið fyrir lesendum. í starfi mínu sem félagsráðgjafi við Krabbameinslækningadeild Land- spítalans rekst ég svo til daglega á erfiðleika og nauðir fólks utan af landi sem þarf að sækja læknisþjón- ustu til Reykjavíkur. Má reyndar furða sig á því að Landspítalinn skuli eiga að þjóna allri landsbyggð- inni, þegar ekki er gert ráð fyrir því í hinu almenna tryggingakerfi nema að mjög takmörkuðu leyti. Þá er ég að tala um bæði ferða- kostnað fyrir sjúklinga og aðstand- endur hans, húsnæði og aðstöðu fyrir aðstandendur og bætur fyrir tekjumissi o.fl. Það er t.d. hreint ótrúlegt að ennþá skuli standa í lögum almannatrygginga að sjúkl- ingar þurfi að fara þrjár ferðir til Reykjavíkur til sérfræðings (sem ekki er völ á í heimabyggð) áður en til endurgreiðslu ferðakostnaðar kemur. Röskun á heimilishögum vegna veikinda Mun alvarlegri þykir mér sú staða sem sjúklingar og aðstand- endur þeirra lenda í við alvarleg veikindi sem krefjast langrar sjúkrahúslegu. Ekkert í lögum al- mannatrygginga gerir ráð fyrir að koma þurfi til móts við þá röskun sem slík veikindi hafa í för með sér fyrir viðkomandi fjölskyldu. Það þarf ekki stórkostlega auðugt hug- myndaflug til þess að setja sig í spor þess fólks sem í þessu lendir. Það er orðin viðurkennd stað- reynd að sjúklingum, sem hafa möguleika á því að hafa ástvini sína hjá sér í miklum veikindum, líður mun skár en þeim sem ekki hafa tök á því. Áfallið og erfiðleikarnir sem fylgja því að veikjast alvarlega eru nógu miklir út af fyrir sig þótt ekki komi til sú röskun að tvístra fjölskyldunni. Alvarleg veikindi hafa í för með sér langar fjarvistir frá heimili, húsnæðisvanda, vinnu- tap, launamissi og margháttuð ljár- útlát, m.a. vegna tvöfalds heimilis- halds og aðstoð við aukna barna- gæslu, ferðalög jafnvel oft á ári og svo mætti lengi telja. Þetta er því miður reynsla margra, sérstaklega íbúa Iandsbyggðarinnar, sem þurfa að sækja sérhæfða læknisþjónustu til Reykjavíkur. Slík reynsla er ævinlega þungbær og afar dýr þar sem aðstoð af hálfu samfélagsins er af mjög skornum skammti og raunar til mikillar skammar. Um það hljóta menn að sannfærast ef þeir kynna sér þessi mál. Við sem að málefninu störfum þekkjum vel þessa neyð. Dæmisaga úr raunveruleikanum Vil ég nú nefna ykkur dæmi um heimilisföður af norð-austurhorni landsins sem veikist alvarlega og þarf að fara suður til lækninga. Hann þarf að fara í þunga lyfjameð- ferð í 2 mánuði og eftir það í erfiða skurðaðgerð sem allt í allt tekur 3 mánuði. Reiknað er með því að þessi maður verði ekki vinnufær fyrr en að ári í fyrsta lagi. Eigin- kona hans er í fullu starfi og kemst ekki frá nema um helgar. Börn hans, 10 og 14 ára, eru í skóla í þorpinu. Tekjuöfiun fjölskyldunnar er að 2A hlutum bundin tekjum mannsins og helmingur af því var yfirvinna og tekjur konunnar eru '/i af tekjum heimilisins. Við veik- indin detta tekjur hans niður í að- eins föst laun í 3 mánuði og síðan alveg. Við taka örorkubætur sem eru að upphæð helmingur af föstum launum hans. Þannig að við veik- indi hans Iækka tekjur ijölskyldunn- ar um nákvæmlega helming og þá er aðeins tekinn inn í dæmið tekju- missir mannsins. Ef aftur á móti eiginkonan hefur hug á að vera manni sínum stuðningur í veikind- unum þessa 3 mánuði missir hún sínar tekjur alveg, fyrir utan mikinn aukakostnað svo sem ferðir, hús- næði og dýrt uppihald í Reykjavík. Sumir geta e.t.v. verið hjá ættingj- um í höfuðborginni en oft eru þeir ekki til staðar eða þeir búi svo þröngt að börn þurfi jafnvel að ganga úr rúmi fyrir þá. Það er augljóst að vandi þessarar fjöl- skyldu er mikill og í raun eru alvar- leg veikindi innan fjölskyldunnar mikið áfall, þótt ekki bætist við fjár- hagsvandræði, aðskilnaður fjöl- skyldunnar, ijarvistir frá heimili, vinnu- og tekjutap, margvíslegur aukakostnaður vegna ferðalaga o.fl. Aðstaða þessarar fjölskyldu er dæmigerð fyrir mjög margar fjöl- skyldur af landsbyggðinni sem ég hitti í starfi mínu. Viðurkenning á þörf sjúklinga fyrir nærveru ástvina sinna Tryggingalöggjöfin gerir ekki ráð fyrir því að sjúklingar þurfi á nærveru ástvina sinna að halda en sem betur ber er það þó orðið viður- kennd staðreynd meðal allra þeirra sem starfa með og fyrir krabba- meinssjúklinga. Krabbameinsfélag SML TOPP ▼ GÆÐI SLÁTTUORF - HEKKKLIPPUR íslands hefur haft frumkvæði að ( því að viðurkenna formlega þessa þörf með því að styrkja aðstandend- ur krabbameinssjúklinga utan af landi til þess að dvelja 14 daga á hóteli Rauða kross íslands. En því miður duga þessir 14 dagar skammt og er því nauðsynlegt að hið opin- bera komi þarna til móts við lands- byggðarfólk og vitanlega ætti það að vera sjálfsagður hlutur að við alvarleg og langvarandi veikindi fái aðstandendur sjúklinga greiddan ferðakostnað svo oft sem þurfa þykir. Hver ber ábyrgðina á högum sjúklinga utan af landi? Sjúkdómur eins og krabbamein getur komið fyrir hvern sem er og erþáekkispurtumbúsetueðafjár- | hag fólks. Sjúkdómurinn er stórt áfall út af fyrir sig og í allflestum tilvikum verður fólk fyrir verulegu 4 fjártjóni og þegar ofan á bætast fjarvistir frá heimahögum, þá er stuðningur samfélagsins við fjöl- skylduna meiri nauðsyn en að um það þurfi að fjölyrða. Þá eru vangavelturnar fremur í þá átt hvaða stofnun samfélagsins ber ábyrgð á því að létta undir með fólki; hvert er hlutverk Trygginga- stofnunar ríkisins gagnvart lands- byggðarfólki; hversu víðtæk á fé- lagsleg þjónusta ríkisspítala að vera o.s.frv. 1 raun eru þessi mál svo stórt landsbyggðarréttlætismál og svo langt yfir flokkadrætti hafin að ég get ekki ímyndað mér annað en að ráðamenn þjóðarinnar finni lausnir á vanda þessa hóps og það hið bráðasta. Höfundur er deildarfélagsráðgjafí á Krabbameinslækningadeild Landspítalans. Guðbjörg Þórðardóttir „Áfallið og erfíðleikarn- ir sem fylgja því að veikjast alvarlega eru nógu miklir út af fyrir sig þótt ekki komi til sú röskun að tvístra íjölskyldunni.“ ( IHVAÐA VEÐRISEMER Með Meco þarftu ekki að hafa áhyggjur af veðrinu, það er alltaf hægt að grilla. Hönnun MECO: Loftflæðið gerir Meco að frábæru útigrilli: • Það sparar kolin. • Brennur sjaldnar við. • Hægt er að hækka og lækka grindina frá glóðinni. • Tekur styttri tíma að grilla og maturinn verður safaríkari og betri. • Auðveld þrif. Heimilistæki hf SÆTÚNI8 SÍMI691515 ■ KRINGLUNNI SlMI 6915 20 I SOMUttíyjJtt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.