Morgunblaðið - 31.05.1990, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1990
Þjóðræknisfélagið hyggst skrá alla íslendinga erlendis:
Talið að yfir 50 þúsund
íslendingar búi í útlöndum
STJÓRN Þjóðræknisfélags íslendinga í Reykjavík hefur verið
falið að afla upplýsinga um íslendingafélög erlendis og félags-
menn þeirra, sem og aðra íslendinga sem búsettir eru utanlands,
og er sú vinna þegar hafin með fulltingi menntamálaráðuneytis-
ins og með aðstoð Hagstofú íslands. Talið er að yfir fimmtíu
þúsund íslendingar séu nú búsettir utanlands en engar nákvæm-
ar tölur eru til yfir þá.
Á þjóðræknisþingi sem haldið
var í Winnipeg fyrir nokkrum
Amarflug l’ær
iokaviðvörun
FRESTUR Arnarflugs hf. til að
gera upp ógreidda reikninga
vegna húsaleigu og sameiginlegs
kostnaðar í Flugstöð Leifs Eiriks-
sonar rann út í gær.
Pétur Guðmundsson, flugvallar-
stjóri, sagði í gær að bærist greiðsla
ekki þann dag verði félagið borið
út úr flugstöðinni. Skuld Amarflugs
nemur 4,3 milljónum króna.
dögum gerði Þjóðræknisfélagið
samning_ við Þjóðræknisfélagið
vestra. í samningnum er meðal
annars gert ráð fyrir að félögin
vinni sameiginlega að skráningu
allra íslendinga í Vesturheimi,
Kanada og Bandaríkjum Norður-
Ameríku. Þá er ennfremur gert
ráð fyrir að félögin komi á laggirn-
ar upplýsinga- og þjónustuskrif-
stofum vestan hafs og hér á landi.
í samningnum er gert ráð fyrir
að félögin beiti sér fyrir auknum
samskiptum á sviði menningar og
lista, efli málrækt og stuðli að
íslenskukennslu, efni til ráð-
stefnuhalds, m.a. um þjóðræknis-
mál, og lýst er áhuga á að halda
árlegan íslendingadag.
í framhaldi af samningunum
við Þjóðræknisfélagið vestra fól
menntamálaráðuneytið Hagstof-
unni að aðstoða Þjóðræknisfélagið
í Reykjavík við að skrá alla íslend-
inga sem búsettir eru erlendis.
Þjóðræknisfélagið var stofnað
fyrir 50 árum og var megintil-
gangur þess að efla samhug með
Islendingum sem flust höfðu vest-
ur um haf en þá var það um
fimmtungur íslensku þjóðarinnar.
Nú hefur þetta breyst og nær nú
starfssvið Þjóðræknisfélagsins til
allra Islendinga sem búsettir eru
erlendis, hvar svo sem það kann
að vera í heiminum.
Allar ábendingar og upplýsing-
ar eru vel þegnar. Skrifstofa Þjóð-
ræknisfélagsins í Reykjavík er í
Hafnarstræti 20.
VEÐUR
ÍDAGkl. 12.00:
F Heimilí: Veðurstiía Islands
(Bygqjrá veðurspé kl. 16.1JT i gær)
VEÐURHORFUR í DAG, 31. MAÍ
YFIRLIT í GÆR: Norður við Jan Mayen er 1018 mb hæð, sem
þokast austur, en minnkandi 1005 mb lægð á sunnanverðu Græn-
landshafi. Um 1400 km suður í hafi er 995 mb lægð á hreyfingu
norður.
SPÁ: Þykknar upp með austan kalda og síðan stinningskalda og
rigning með suðurströndinni en úrkomulítið um norðan- og vestan-
vert landið. Heldur hlýnandi veður.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Hæg breytileg átt.
Hætt við skúrum með suðurströndinni, annars þurrt og víða bjart
veður á landinu. Hiti 7 til 15 stig.
TÁKN:
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
^ Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrírnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r #
r * r * Slydda
r * r
* * #
* * * * Snjókoma
# * #
10° Hitastig:
10 gráður á Celsíus
y Skúrir
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
|7 Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veöur
Akureyri 7 súld
Reykjavik 10 skýjaö
Bergen 14 skýjað
Helsinki 13 léttskýjað
Kaupmannahöfn 16 léttskýjað
Narssarssuaq vantar
Nuuk 7 skýjað
Osló 16 léttskýjað
Stokkhólmur 15 hálfskýjað
Þórshöfn 10 rigning
Algarve 26 iéttskýjað
Amsterdam 21 skýjað
Barcelona 22 mistur
Berlln 17 léttskýjað
Chicago 17 heiðskírt
Feneyjar 19 léttskýjað
Frankfurt 19 skýjað
Glasgow 16 skýjað
Hamborg 17 léttskýjað
Las Palmas 23 skýjað
London 17 skýjað
Los Angeles 20 léttskýjað
Luxemborg 18 léttskýjað
Madríd 26 skýjað
Malaga vantar
Mallorca vantar
Montreal vantar
New York 15 rigning
Orlando 33 heiðskírt
París 19 skýjað
Róm 23 léttskýjað
Vín 15 úrkomatgrennd
Washington 17 léttskýjað
Winnlpeg 24 skýjað
Myndin er tekin í Winnipeg þegar samstarfssamningur milli Þjóð-
ræknisfélagsins í Reykjavík og Þjóðræknisfélagsins í Vesturheimi
var undirritaður. Neil Bardal, forseti félagsins vestra, er vinstra
megin á myndinni og Jón Ásgeirsson, forseti Þjóðræknisfélagsins í
Reykjavík, er hægra megin.
G-listinn í Keflavík
kærir kosningarnar
AÐSTANDENDUR G-Iistans í Keflavík hafa ákveðið að kæra úrslit
bæjarstjórnakosninganna til bæjarfógeta vegna úrskurðar kjörstjórn-
ar um gild og ógild atkvæði. Að sögn Sigríðar Jóhannesdóttur um-
boðsmanns G-listans verður kæran fyrst og iremst lögð fram til að
fá úr því skorið í eitt skipti fyrir öll hvernig beri að úrskurða vafaat-
kvæði, en deilur um það hafi áður risið í Keflavík.
Fulltrúi G-Iistans við talningu
atkvæða krafðist endurtalningar
þar sem hann var ósáttur við hvern-
ig kjömefnd úrskurðaði um gild og
ógild atkvæði, en fyrri úrskurður
kjörnefndar stóð óbreyttur að lok-
inni endurtalningu á sunnudaginn.
„Sama kjörstjómin annaðist end-
Fjárfestingar-
félagið selur hluta-
bréf í Vogalaxi hf.
Fjárfestingarfélag Islands hf.
heftir selt öll hlutabréf.sín í Voga-
laxi hf. og er félagið því ekki
lengur aðili að hafbeitarstöðinni.
Á aðalfundi Fjárfestingarfélags-
ins fyrir skömmu voru hlutabréf
þess I Vogalaxi hf. afskrifúð eins
og kunnugt er.
Söluverð var 9 milljónir króna
en kaupsamningur er þannig upp-
byggður að ef rekstur Vogalax hf.
gengur mjög vel í framtíðinni
hækkar söluverð bréfanna verulega
og kemur þannig Fjárfestingarfé-
laginu til góða. Kaupendur bréf-
anna era einstaklingar í Reykjavík.
urtalninguna, þannig að þar var í
raun og veru um lögleysu að ræða.
Okkur var tjáð af félagsmálaráðu-
neytinu að við yrðum að bera fram
kæru með löglegum hætti, og það
yrði að skipa nýja hlutlausa kjör-
stjórn til að fara yfir þetta. Ef við
verðum ekki sátt við úrskurðinn að
því loknu getum við skotið málinu
til félagsmálaráðuneytisins,“ sagði
Sigríður.
Fjórum atkvæðum munaði á
efsta manni G-listans og flórða
manni D-listans, og sagði Sigríður
því ljóst að mun fleiri atkvæði
þyrftu að dæmast af D-listanum til
þess að G-listinn kæmi manni að.
„Þetta er því í rauninni ekki
spurningin um það hvort við náum
manninum inn, heldur viljum við fá
úr því skorið hvernig beri að úr-
skurða vafaatkvæðin. Þetta virðist
vera mjög á reiki, og það sem er
gilt í einu bæjarfélagi er dæmt
ógilt í öðru, þannig að þarna virðist
ekki vera neitt samræmi. Það þarf
að komast alveg á hreint í eitt
skipti fyrir öll hvað er gilt og hvað
er ógilt atkvæði,“ sagði hún.
Bókasöfliin:
Margir nýta sér
sektalausa viku
Sumar bækur hafa verið í láni í áraraðir
EINS OG bókaormum er sjálfsagl, kunnugt stendur nú yfir sekta-
laus vika á öllum bókasöfnum á landinu. Hægt er að skila bók-
um, sem komnar eru í vanskil, í söfnin án þess að greiða sekt-
ir. Hægt er að skila bókum í næsta safn þó þær tilheyri safiii
annars staðar á landinu. Söfnin sjá um að koma þeim til réttra
eigenda.
„Jú, það er töluvert um að fólk
komi með vanskilabækur,“ sagði
Ingvi Þór Kormáksson, bóka-
safnsfræðingur í aðalsafni Borg-
arbókasafnsins. „Oftast er um
að ræða bækur sem gleymst
hafa í einhvern tíma en við fáum
líka bækur sem hafa legið hjá
fólki í áraraðir og það þorir ekki
að koma með. Annars þarf fólk
ekki að óttast mjög háar sektir
því þær verða aldrei hærri en
1.000 krónur.“ Kormákur sagði
að sektalausar vikur hefðu verið
áður á söfnunum en þær væru
óvæntar og ekki endilega á
hveiju ári.
Hann sagði að sífellt færðist
í vöxt að fólk notfærði sér þjón-
ustu bókasafnanna og ætti það
sérstaklega við um fræðsluefni.
Á sumrin væri þó mikið sóst eft-
ir reyfuram og ástarsögum. „Júlí
er t.d. oft sterkur mánuður hjá
okkur. Þá leitar fólk eftir ein-
hverju létt til að lesa í sumarfr-
íinu,“ sagði Ingvi Þór. í Borgar-
bókasöfnunum era 380.970
bækur, þar af eru 128.697 bæk-
ur í aðalsafninu.
Þess má að lokum geta að
söfnin bjóða upp á mjög fjöl-
breytta þjónustu. Auk bóka,
blaða og tímarita hafa'sum söfn-
in á boðstólum hljómplötur,
snældur, myndbönd, geisladiska,
tölvuforrit og fleira.