Morgunblaðið - 31.05.1990, Page 23

Morgunblaðið - 31.05.1990, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAI 1990 23 Reitur A: Skattskyld velta, þ.m.t. úttekt til eigin nota, sala rekstrar- fjármunaog innborganir fyrir afhendingu. Fjárhæöin færist án virðisaukaskatts. Reitur B: Undanþegin velta. Hérer m.a. átt við útflutning, sölu dagblaða og aðra sölu sem ber „núllskatt". Ekki skal færa hér upplýsingar um undanþegna starfsemi. \skw Reitur C: Útskattur, sá skattur sem á uppgjörs- tímabilinu hefur fallið á skattskylda veltu, þ.e. reiknaður útskattur af allri sölu eða afhendingu skv. reit A. Reitur D: Innskattur, sá skattur sem á uppgjörs- tímabilinu hefur fallið á kaup eða eigin innflutning á vörum eða þjónustu til nota í rekstrinum, þ.e. aðföng sem varða sölu á vöru, vinnu eða þjónustu skv. reitum Aog B. ReiturE: Fjárhæðtilgreiðslueða inneign. Ef útskattur, skv. reit C, er hærri en innskattur, skv. reit D, skal merkja við í reitinn „Til greiðslu" en ef innskattur er hærri en útskattur skal merkja við í reitinn „Inneign". Athygli skal vakin á því að ef skilafjárhæð er núll eða engin starfsemi hefur farið fram á tímabilinu ber samt að fylla skýrsluna út og skila henni. 5. júní er gjalddagi virðisaukaskatts! Fyrirfram áritaðir gíróseðlar \^rðisaukaskattsskyrslan er í formi gíróseðils. Gjaldanda ber að nota þá skýrslu sem honum berst árituð. Berist skattskyldum aðila ekki árituð skýrsla skal hann nálgast hana hjá skattstjóra eða innheimtumanni í sínu umdæmi og árita hana. Hvenær á að skila skýrslu? G jalddagi virðisaukaskatts er 5. júní. Til að komast hjá álagi þarf greiðsla að hafa borist á gjalddaga. Athygli skal vakin á því að ekki nægir að póstleggja greiðslu á gjalddaga. Hvar má greiða? C kýrslum til greiðslu, þ.e. þegar útskattur er hærri en innskattur, og núllskýrslum má skila til banka, sparisjóða eða pósthúsa. Einnig má greiða hjá innheimtumönnum ríkissjóðs en þeir eru tollstjórinn í Reykjavík, sýslumenn og bæjarfógetar í kaupstöðum, bæjum og sýslum, og lögreglustjórinn á Keflavíkurflugvelli. Athygli skal vakin á því að bankar, sparisjóðir og pósthús taka aðeins við skýrslum sem áritaðar hafa verið af skattyfirvöldum. Ef aðili áritar skýrsluna sjálfur eða breytir áritun verður að skila henni tii innheimtumanns ríkissjóðs. Inneignarskýrslur E f innskattur er hærri en útskattur, þ.e. gjaldandi á að fá endurgreiðslu á virðisaukaskatti, skal skila skýrslunni til skattstjóra í viðkomandi umdæmi. V •* I.-:. ' v ' ->„ . V • X/' - C £CJ!T . • v-.V'v -. ,% Æ'„i.:- 91-624422 : vM:, . V ' " m . y >-' • 'V'' Jx' ■ 4ÍS». ‘-v? : RSK RÍKISSKATTSTJÓRl lUtuiTnU HVÍTA HÚSIO / SÍA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.