Morgunblaðið - 31.05.1990, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1990
Pakistan:
Hörð átök setja Ben-
azir Bhutto í vanda
Hyderabad. Reuter.
200 manns hafa fallið í hörðum
átökum í Sind-héraði í suðurhluta
Pakistans undanfarna fjóra daga.
Benazir Bhutto, forsætisráðherra
Benazsir Butto
Ognaröld í Perú
fyrir kosningar
landsins, kom í gær í heimsókn til
bæjarins Hyderabad, þar sem
átökin hafa verið hvað mannskæð-
ust, til að reyna að stilla til friðar.
Bardagarnir brutust út vegna
deilna mohajíra, múhameðstrúar-
manna sem flust hafa til landsms frá
Indlandi, og innfæddra sinda. Átökin
hafa valdið Bhutto talsverðum vancF
ræðum þar sem flokkur hennar, Þjóð-
arflokkur Pakistans, sem nýtur aðal-
lega stuðnings sinda, hefur í raun átt
í stríði við samtök innflytjendanna,
Þjóðarhreyfingu mohajíra, MQM.
Bhutto kom til Hyderabad frá
Karaehi, höfuðstað Sind-héraðs, þar
sem 24 féllu í bardögum í gær. Þótt
mohajírar séu í meirihluta í þessum
bæjum lýtur héraðið stjórn sinda, sem
einnig stjóma lögreglunni. Stjómar-
andstæðingar hafa lagt hart að
Bhutto að fara þess á leit við Ghulam
Ishaq Khan, forseta landsins, að
stjóm héraðsins verði sett af til að
hægt verði að stjórna héraðinu beint
frá Islamabad. Forsætisráðherrann
hefur þegar hótað héraðsstjóminni
því að hún verði svipt völdum takist
henni ekki að stilla til friðar.
Reuter
Misheppnuð árás
ísraelskir hermenn komu í gær í veg fyrir strandhögg palestínska hryðjuverkahópsins Frelsisfylking Pa-
lestínu (PLF) á Nitzamin-baðströndinni suður af Tel Aviv en þar var krökkt af fólki vegna frídaga í ísra-
el. Hryðjuverkamennimir vom alls 16 á tveimur hraðbátum. Annar bátanna með 11 mönnum náði til lands
en hinn var stöðvaður áður og fímm menn um borð teknir fastir. Af þeim sem komust til lands vora fjórir
felldir á hlaupum upp ströndina en sjö teknir fastir.
Kosningaúrslitin í Burma:
Almenmngur vísaði her-
foringjaklíkunni á bug
Lima. Reuter.
SKÆRULIÐAR úr röðum maó-
ista í Perú eru grunaðir um að
hafa myrt átta manns á undan-
íornum tveimur dögum, þar á
meðal einn af forystumönnum
Lýðræðisfylkingar forsetafram-
bjóðandans og rithöfúndarins
Marios Vargas-Llosa.
Flugumenn úr skæraliðahreyf-
ingunni Skínandi stígur era taldir
hafa myrt Delso Huaman, leiðtoga
Lýðræðisfylkingarinnar, samsteypu
hægri- og vinstriflokka, í borginni
Cerro dePasco í gær. Lögreglan
telur að hreyfingin hafi staðið fyrir
öllum morðunum átta.
Vargas Llosa, skáldsagnahöf-
undurinn kunni, og jarðræktar-
fræðingurinn Alberto Fujimori
verða í framboði í forsetakosning-
um, sem haldnar verða í landinu
10. júní. Leiðtogar Skínandi stígs
hafa hótað því að skapa ringulreið
fyrir kosningarnar með ofbeldis-
verkum. Þeir segja allar kosningar
„borgaralegan skrípaleik“ og boða
alræði verkalýðs og smábænda í
landinu.
Bangkok. Daily Telegraph, Reuter.
FYRSTU tölur úr þingkosning-
unum í Burma sl. sunnudag gáfú
til kynna yfirburðasigur stjórn-
arandstöðunnar en lokatölur eru
vart væntanlegar fyrr en í næstu
viku. Talsmaður herforingjaklík-
unnar er ræður landinu sagði
allt benda til að stjórnarandstað-
an hefði fengið um tvo þriðju
hluta atkvæða og þorra þing-
sæta. Þjóðlegi sameiningarflokk-
urinn, flokkur herforingjanna,
hlaut um þriðjung atkvæða. Ein-
hver þingsæti munu falla litium
stjórnarandstöðuflokkum í skaut
en langflest þeirra hlýtur Þjóð-
lega lýðræðishreyfingin sem
Aung San Suu Kyi, dóttir frelsis-
hetju Iandsins, er í forystu fyrir.
Hún hefúr verið í stofufangelsi
undanfarna mánuði. Óljóst er
hvort herforingjaklíkan muni
hlíta úrslitunum og fara frá en
herinn heíúr farið með stjórn í
landinu frá 1962.
Yfír 90 flokkar buðu fram en í
sumum borgum, þ. á m. Mandalay,
virtist Lýðræðishreyfingin hafa
fengið öll þingsætin og fyrstu tölur
fá höfuðborginni, Rangoon, bentu
til þess að hún fengi yfir 80% at-
kvæða þar. Allt bendir til að kosn-
ingarnar hafi farið heiðarlega fram.
Saw Maung hershöfðingi, oddviti
herforingjanna, hefur lýst yfir því
að herinn muni afhenda stærsta
flokknum völdin en ítrekaði fyrri
yfirlýsingar um að slíkt yrði ekki
gert fyrr en búið væri að semja
nýja drög að nýrri stjómarskrá.
Talsmenn herforingjastjómarinnar
segja að hún muni ekki segja þing-
inu fyrir verkum varðandi stjómar-
skrána. Sumir stjórnarerindrekar
gefa í skyn að það starf gæti tekið
tvö ár en flokkur Aung San Suu
Kyi hefur þegar samið drög sem
eru að mestu byggð á stjómarskrá
er Bretar settu landinu þegar landið
hlaut sjálfstæði eftir seinni heims-
styijöld. Yfirburðir flokksins á þingi
gætu einnig orðið til þess að um-
skiptin yrðu sneggri en spáð hefur
verið.
Aung San Suu Kyi situr enn í
stofufangelsi og sama er að segja
um ýmsa aðra forystumenn hreyf-
ingarinnar. Talsmenn herforingj-
anna vilja ekkert um það segja
hvenær breyting verði þar á.
Lífskjör í Burma, sem herforingj-
arnir vilja nefna Myanmar, eru ein-
hver hin lélegustu í heimi og efna-
hagurinn í kaldakoli.
Gabon:
Mótmæli brot-
in á bak aftur
Port Gentil. Reuter.
HERYFIRVÖLD í Vestur-Afríku-
ríkinu Gabon sögðu í gærkvöldi
að hermönnum hefði að mestu
tekist að brjóta á bak altur mót-
mæli í mikilvægasta olíubæ
landsins, Port Gentil.
Yfirvöldin sögðu að óbreyttur
borgari hefði beðið bana er hermenn
réðust til atlögu við mótmælendur
í bænum. Óstaðfestar fréttir herma
að átta manns hafi beðið bana í
árásinni.
Þetta eru mestu mótmæli í
landinu í þijá áratugi. Þau hófust
á mánudag og urðu til þess að draga
varð verulega úr vinnslu olíu. Mót-
mælin beindust gegn Omar Bongo
forseta, sem hefur verið einráður í
landinu í 22 ár.
Tékkóslóvakía:
KGB stóð fyrir mótmælum
sem leiddu til byltingar
Lundúnum. Reuter.
VACLAV Havel, forseti Tékkóslóvakíu, upplýsti í gær að sov-
éska öryggislögreglan KGB hefði staðið fyrir leynilegum að-
gerðum sem miðuðu að því að steypa stjórn Milos Jakes, fyrrum
leiðtoga tékkneska kommúnistaflokksins, og koma umbótasinn-
uðum kommúnistum til valda í fyrra. Embættismenn í kommún-
istaflokknum hefðu skipulagt mótmæli í þessu skyni en ekkert
hefði orðið úr valdatöku umbótasinna. Þess í stað hefðu lýðræð-
issinnar komist til valda í landinu.
Havel upplýsti þetta í viðtali,
sem sýnt var í þætti breska sjón-
varpsins BBC um byltinguna í
Tékkóslóvakíu í fyrra. Hann
sagði að embættismenn komm-
únistaflokksins hefðu „á einn eða
annan hátt“ lotið stjóm KGB. í
þættinum var því haldið fram
að embættismennimir hefðu
komið af stað námsmannamót-
mælum í landinu í þeim tilgangi
að undirbúa valdatöku manna,
sem aðhylltust svipaða stefnu og
Míkhaíl Gorbatsjov, forseti Sov-
étríkjanna. Ekkert varð hins veg-
ar úr þessum ráðagerðum þar
sem maðurinn, sem taka átti við
völdunum, neitaði að mynda nýja
stjóm skipaða umbótasinnum.
Ekki var upplýst hvað þessi
maður heitir en hann mun hafa
verið samstarfsmaður umbóta-
sinnans Alexanders Dubceks áð-
ur en honum var steypt eftir
innrás Varsjárbandalagsríkja í
landið 1968.
í kjölfar námsmannamótmæl-
anna brutust út fjöldamótmæli í
landinu og urðu þau til þess að
stjóm kommúnista hrökklaðist
frá völdum og andófsmaðurinn
fyrrverandi, Vaclav Havel, varð
forseti.
Vaclav Havel
Reuter
„Niðurstaða okkar er óhjá-
kvæmilega sú að sovésku vald-
hafarnir lögðu blessun sína yfir
ráðagerðirnar," sagði Milan
Huli, sem á sæti í tíu manna
nefnd sem tékkneska stjórnin
hefur skipað til að rannsaka at-
burðina í fýrra.
John Simpson, handritshöf-
undur þáttarins, ritaði grein í
breska dagblaðið Times þar sem
hann segir að nefndin hafi kom-
ist að því að háttsettir embættis-
menn kommúnistaflokksins og
yfirmaður tékknesku leynilög-
reglunnar, Alois Lorenc hers-
höfðingi, hafi haldið leynilegan
fund í lok ársins 1988 til að
skipuleggja valdatöku umbóta-
sinna. Þeir hafi meðal annars
lagt á ráðin með að látið yrði
líta út fyrir að lögreglumaður
hefði drepið ungan námsmann á
mótmælafundi. Tilgangurinn
hafi verið sá að fá almenning til
að rísa upp gegn leiðtoga
kommúnistaflokksins, Milos Ja-
kes, og stjórn hans.