Morgunblaðið - 31.05.1990, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAI 1990
29
Lögum um
fóstureyðing■
armótmælt
arar frá Hong Kong
hengdir í Malasíu
Efnt var til mótmæla í
þinghúsinu í Ottawa,
höfuðborg Kanada, í gær er
þingið samþykkti lög, sem
takmarka fóstureyðingar, með
tíu atkvæða mun.
Mótmælendurnir vilja að
fóstureyðingar verði gefnar
frjálsar og sést einn þeirra
liggjandi á götunni eftir að
lögregla hafði borið hann úr
þinghúsinu.
^ Taiping. Reuter.
ÁTTA Hong Kong-búar voru teknir af lífi í Malasíu í gær fyrir eitur-
lyfjasmygl þrátt fyrir tilraunir bresku stjórnarinnar og fleiri til að
bjarga þeim.
Svo margir hafa aldrei verið
teknir af lífi í einu í Asíuríkinu.
Áttamenningarnir voru handteknir
á alþjóðaflugvelli landsins , 1982,
árið áður en lög voru sett í landinu
sem kveða á um að eiturlyfjasmygl
skuli varða dauðarefsingu. Þau
voru dæmd árið 1985 fyrir að eiga
12,7 kíló af heróíni í fórum sínum.
Áttamenningarnir, sjö karlar og
ein kona, voru hengdir í fangelsi
skammt frá höfuðborg landsins,
Kuala Lumpur. Konan hafði orðið
ástfangin af einum af mönnunum
sjö í fangelsinu og höfðu þau hug
á að ganga í hjónaband.
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, hafði farið þess á
leit við Mahathir Mohamad, forsæt-
isráðherra Malasíu, að áttamenn-
ingarnir yrðu náðaðir. Dómstólar
höfnuðu á þriðjudag beiðni lögfræð-
inga um að aftökunni yrði frestað.
; Alls hafa 90 manns, þar af tveir
Ástralíumenn, verið teknir af lífi í
Malasíu samkvæmt lögum, sem
kveða á um að allir þeir sem teknir
eru með meira en 15 grömm af
heróíni eða 200 grömm af kannabis-
efnum skuli hengdir. Fíkniefna-
neysla ungs fólks er mikið vanda-
mál í landinu.
Reuter
Reuter
Fjórir af eiturlyflasmyglurunum
átta, sem hengdir voru í Malasíu
í gær.
Við höfum opnað
glæsilega skóverslun í verslunarmiðstöðinni
Glæsibæ við Álfheima og bjóðum þar stór-
kostlegt úrval af heimsþekktum merkjum:
Alþjóðlegur tóbaksvarnadagur 3L maí
helgaður ungu kynslóðinni
Reykingar eru eins konar sm'itsjúkdómur sem berst frá einni kynslóð tii
annarrar, foreldri til bams, eldra systkini til yngra, einum félaga til annars.
Hvér og einn reykingamaður ber með sér „reykingabakteríuna" og setur þá í
mesta smithættu sem standa honum næstir.
Vemdum ungu kynslóðina. Stöðvum þennan hættulega faraldur.
Gefum börnunum tækifæri til að alast upp án tóbaks
4
Krabbameinsfélagið
TOBAKSVARNANEFND
Alþjóða heilbrigðismálastofnunin
GÆSIBÆ
ALFHEIMUM 74 - SlMI: 82966