Morgunblaðið - 31.05.1990, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAI 1990
41
Guðdómleg loforð
og uppfylling þeirra
eftirHákon
Jóhannesson
I biblíunni eru skráð orð Jesú
Krists:
„Þegar ég er farinn burt og hef búið
yður stað, kem ég aftur og tek yður
til mín svo að þér séuð einnig þar
sem ég er.“
Þessum orðum beindi hann til
sinna eigin fyrir uppstigningu sína.
Þetta er himneskt loforð sem mun
rætast. Það varðar endurkomu
Krists.
Guðdómleg loforð eru mikilsverð
heit og bindandi sem eru algjörlega
áreiðanleg. Með þeim sýnir Guð mik-
ilfengleik ástar sinnar og náðar
gagnvart manninum sem er æðsta
sköpunarverkið. Fyrsta loforð þess-
arar gerðar gaf Guð Adam og Evu
í Paradís. Djöfullinn hafði náð yfir-
ráðum yfir þeim er þau féllu í synd.
Guð lofaði að senda þeim endur-
lausnara. Þetta loforð var efnt þús-
undum árum seinna, er Jesú Kristur
fæddist.í millitíðinni notaði Guð spá-
mennina, t.d. Jesaja, til þess að halda
þessu loforði lifandi (Jesaja 7.14) og
á mörgum stöðum í gamla testa-
mentinu má lesa vitnisburð þeirra
um líf frelsarans (Jakaría 9).
í nýja testamentinu getum við les-
ið um líf og störf Jesú Krists. Við
getum lesið um störf postulanna í
frumkirkjunni og uppbyggingu
fyrstu kristnu safnaðanna. Við get-
um lesið um mátt hins Heilaga anda
hvemig hann vann í gegnum erind-
reka Krists og hvað hann opinberaði.
Loforð Drottins
Jesú mun rætast
Lóforð Krists, það að hann kæmi
aftur, var greypt djúpt í hjörtu hinna
fyrstu kristnu, þeirra sem endur-
fæðst höfðu í vatnsskírninni og með-
töku hins heilaga anda er lífandi
postuli Krists lagði hendur yfír þá
(postulasagan 8.14). Hvað eftir ann-
að í mæltu og rituðu máli minntu
postulamir söfnuðina á þetta him-
neska loforð. I Korintubréfinu skrifar
Páll postuli: „Hinir dauðu munu
upprísa óforgengilegir og vér munum
umbreytast." Þannig munu hinir
endurfæddu, bæði hinir framliðnu
og þeir sem enn eru í þessum heimi,
verða uppnumdir til þess að hitta
Jesús við endurkomu hans og vera
síðan með honum um alla framtíð.
(1 Þessaloníkbréf 4.17.)
Upprisa dauðra og umbreyting lif-
enda standa í órofa sambandi við
upprisu Krists sjálfs, eða eins og
postulinn ritaði til safnaðanna, að
Kristur hefði fyrst risið upp en þeir
myndu einnig endumýjast til nýrrar
tilveru. (Rómverjabréfíð 6.4-8.)
Jóhannes postuli skrifaði einnig:
„Það er ennþá ekki orðið bert hvað
vér munum verða. Vér vitum, að
þegar hann birtist, þá munum vér
verða honum líkir, því að vér munum
sjá hann eins og hann er. (1. Jóhann-
esarbréf 3.2.) Þeir sem munu eiga
hlut í fyrri upprisunni við endurkomu
Krists munu þess vegna öðlast sams
konar líkama og upprisulíkami Jesú
var.
Störf postula frumkirkjunnar
Guð opinberaði vilja sinn í frum-
kirkjunni í gegnum erindreka Krists,
postulanna með hinum Heilaga anda.
Kristur sagði: „Það emð ekki þér sem
talið, heldur andi föður yðar, er í
yður talar.“ (Matteus 10.20.) Hann
skipaði einnig postulana til þess að
fyrirgefa syndir er hann sagði:
„Hveijum sem þér fyrirgefíð syndirn-
ar, þeim em þær fyrirgefnar og
hverjum sem þér synjið, þeim er synj-
að.“ (Jóhannes 20.23.) I postulasög-
unni er sagt frá starfi þeirra, í vers-
um 14-15 í 8. kafla má lesa skýrum
stöfum hvernig þeir með bæn og
handayfirlagningu útdeildu hinum
Heilaga anda í sál hins trúaða. Drott-
inn Jesú hafði aðeins gefið þetta
umboð í hendur handhafa hins postu-
lega embættis.
Störf postula Krists í dag í
Nýju Postulakirkjunni
i ..... ... ' í
I' Það sem Dföttm ‘stöfnséttr 'sem
Hákon Jóhannesson
undirstöðu í sáluhjálp hinna fyrstu
kristnu manna er jafn mikilvægt í
iag. Af þessum sökum em handha-
far hins postulega embættis í dag
postular Jesú í Nýju postulakirkjunni
virkir í starfi sínu um allan heim.
Þeir halda áfram með það starf
sem Jesús skipaði þeim er hann
sagði: „Sá sem hlýðir á yður, hlýðir
á mig, og sá sem hafnar yður hafnar
mér; en sá sem hafnar mér hafnar
þeim sem sendi mig.“ (Lúkas 10.16.)
Hann útskýrði fyrir þeim að þeir
myndu ekki tala af sjálfum sér held-
ur myndi hinn heilagi andi tala í
gegn um þá. Nýja postuiakirkjan er
því kirkja Krists og henni er stjórnað
af Heilögum anda. Hið tmarlega
takmark hinna endurfæddu í Nýju
postulakirkjunni er hið sama og í
frumkirkjunni, nefnilega að vera
reiðubúnir endurkomu Drottins.
Þar sem postular Nýju postula-
kirkjunnar eru handhafar hins postu-
lega embættis sem Drottinn Jesú
stofnaði er starf þeirra hið sama og
postular frumkirkjunnar inntu af
hendi, boðunin er hin sama og tak-
markið er hið sama og söfnuðir kirkj-
unnar, eins og á tímum fmmkirkj-
unnar, halda sér stöðugt við kenn-
ingu postulanna og samfélagið og
brotning brauðsins og bænirnar.
Leiðtogi Nýju postulakirkjunnar,
Richard Fehr höfuðpostuli, sagði
nýlega: „Megi sá dagur brátt renna
upp þegar eign Jesú um heim allan
verður fullkomnuð. Þá verður ekki
lengur sagt: „Farið út um allan heim-
inn og prédikið ...“, heldur „komið
heim“.“
Höfundur er safhaðaiprestur Nýju
postulakirkjunnar á Islandi.
Verzlunarskóli
íslands
Innritun 1990-1991
Innritun í nóm skólárið 1990-1991 er hafin.
Tekiö er á móti umsóknum á skrifstofu skólans
frá kl. 9-18.
Grunnskólanemendur
Nýnemar í 3. bekk (1. námsár) skili umsóknum ásamt
prófskírteini (eða staðfestu Ijósriti) eigi síðar en 1.
júní. Umsóknum má einnig skila í Miðbæjarskólann
dagana 31. maí og 1. júní.
Verzlunarprófsnemendur
úr öðrum skólum en VI geta sótt um inntöku í 5.
bekk VÍ (3. námsár) og verða umsóknir þeirra metn-
ar sérstaklega. Umsóknum ásamt prófskírteinum
skal skilað á skrifstofu skólans í síðasta lagi 8. júní.
Öldungadeild
Tekið verður á móti umsóknum á skrifstofu skólans
1 .-7. júní gegn greiðslu innritunargjalds 2.000 kr.
Askriftarsíminn er 83033
—,---~—
AN
.
Eftirtaldir aðilar vönduðu valið og völdu VW Polo:
• O. Johnson & Kaaber hf.
• Faxamjöl
• Amatör ljósmyndavöruverslun
• Orka hf.
• Malarnám Njarðvíkur
• Hans Petersen hf.
• Nonni og Bubbi, Keflavík
HEKLAHF
JLaugavegi 170-174 Simi 695500
Skeljungur hf.
Natan & Olsen hf.
Hebron hf.
Alhliða pípulagnir
i Kurant hf.
A. Karlsson
i Gróco hf.
K.S. Rafmagnsverkstæði
Bæjarsjóður Garðabæjar
Kaupsel hf.
Vífilfell hf.
> Málningarþjónustan sf.
> Bflanaust hf.
»Skiparadíó
Kristján Ó. Skagfjörð
Tæknival hf.