Morgunblaðið - 31.05.1990, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1990
43
Novella sólstóllinn er úr níðsterku plastefni,
staflast vel og hentar mjög vel hér á landi.
Novella sólstóllinn er einstaklega stöðugur og
er áreiðanlega með þeim sterkustu á markaðnum.
NOYA
Einkaumboð á íslandi.
i I m 1
g&gSJr N I g RM I S BKH
SB I I Bk I 8 9B
Gróðurhúsinu v/Sigtún Sími: 68 90 70
- þar sem sumarið er.
Grípandi
máining
á grípandi
verði
(diiiii
vríaa
Síðumúla 15, sími 84533
Sóley S. Bender
„Þegar metin er þörf
fyrir sérhæfða kyn-
fræðsludeild þarf m.a.
að skoða þungunartíðni
meðal ungs fólks og að
hve miklu leyti þjónusta
á sviði ijölskylduáætl-
unar hefiir náð til þessa
hóps.“
af þeim þá ályktun að leggja niður
deildina. Þvert á móti bera þær vitni
um það hversu lítið hefur verið
gert fyrir deildina frá því hún var
stofnuð.
Aðsókn að deildinni tengist
mörgum þáttum s.s. vitneskju um
tilvist hennar, staðsetningu, opnun-
artíma, biðtíma eftir þjónustu,
kostriaði, viðmóti starfsfólks, um-
hverfi hennar, hvernig staðið er að
innköllunum í eftirskoðanir o.s.frv.
Hér verður ekki reynt að rekja hvert
þessara atriða heldur aðeins laus-
lega minnst á nokkra þætti til út-
skýringar. Það er augljóst mál að
ungt fólk leitar ekki á deildina ef
það veit ekki hvar hún er né hvaða
starfsemi er á hennar vegum. Gera
má ráð fyrir því að skólahjúkrunar-
fræðingar og kennarar geti um til-
vist hennar þegár fjallað er m.a.
um getnaðarvarnir í kynfræðsluefni
skólanna. Engin veggspjöld eru
notuð til að láta vita um starfsem-
ina. Engir bæklingar eru til sem
útskýra starfssvið hennar. Opnun-
artími deildarinnar er frá 16.15-
18.00 á mánudögum og spurning
er um það hvort hægt sé að koma
nægjanlega til móts við þarfir ungs
fólks á þessu sviði með því að hafa
opið aðeins einu sinni í viku. Tel
ég hæpið að hafa svo stuttan opn-
unartíma m.a. vegna þess að ungt
fólk áætlar oft ekki fram í tímann
og þarf að geta fengið svör greið-
lega við spurningum og vandamál-
um. Heil vika er of langur biðtími.
Er þörf fyrir sérhæfða
kynfræðsludeild?
Þegar metin er þörf fyrir sér-
hæfða kynfræðsludeild þarf m.a.
að skoða þungunartíðni meðal ungs
fólks og að hve miklu leyti þjónusta
á sviði íjölskylduáætlunar hefur náð
til þessa hóps. Hér á landi hefur
þungunartíðni á undanförnum árum
meðal stúlkna 15-19 ára verið hæst
miðað við Norðurlönd. Árið 1984
var hún 53,3 hérlendis, í Danmörku
27,5, í Finnlandi 32,2, í Noregi
40,2 og í Svíþjóð 28,4 miðað við
1.000 stúlkur i þessum aldurshópi.
í aldurshópnum 15-19 ára voru
á íslandi samtals 21.065 árið 1989.
Gera má ráð fyrir því skv. erlendum
rannsóknum að einhver hjuti þeirra
sé kynferðislega virkur. I kringum
1970 var töluverð umfjöllun í
bandarísku samfélagi um þörf ungs
fólks fyrir þessa þjónustu. Á þeim
tíma var miðað við að um 40%
stúlkna og 65% drengja á aldrinum
15-19 ára væru kynferðislega yirk
og þyrftu á þessari þjónustu að
halda. Ef gengið er út frá þessu
sama viðmiði (þar sem skortir
íslenskar rannsóknarniðurstöður)
kemur í ljós að um 11.000 þurfa á
þessari þjónustu að halda hérlendis.
Gera má ráð fyrir að ungt fólk leiti
í einhveiju magni til kvensjúkdóma-
lækna, heimilislækna og á kyn-
fræðsludeildina til að fá þjónustu á
þessu sviði en um hlutfallslega
skiptingu milli þessara þjónustuað-
ila er ekki vitað.
Ef gengið er út frá því hugsan-
lega dæmi að um 30% ungra
stúlknafari til kvensjúkdómalækna,
um 30% til heimilislækna og um
40% á kynfræðsludeildina kæmi í
ljós að kynfræðsludeildin næði að-
eins að þjóna um 20% af þeim sem
þurfa á þjónustunni að halda og er
þá eingöngu miðað við að stúlkur
sæki þangað þjónustu. Með hliðsjón
af þessu hugsanlega dæmi þá hefur
aðsókn að kynfræðsludeild Heilsu-
verndarstöðvarinnar ekki verið að
endurspegla það að þörf fyrir þessa
þjónustu fari minnkandi heldur
frekar hitt að deildin hafi ekki náð
að þjóna þeim stóra hópi sem henni
var ætlað vegna þess m.a. að deild-
in hefur ekki þróast í takt við
tímann og að hún hefur ekki fengið
þá athygli frá stjórnvöldum sem
henni ber til að geta sinnt betur
hlutverki sínu.
Á sama tíma og verið er að ræða
þann möguleika hér á landi að
leggja niður einu kynfræðsludeild
landsins hefur verið vaxandi um-
ræða um það í nágrannalöndum
okkar hversu mikils virði það er að
ná til ungs fólks og veita þeim góða
þjónustu á þessu sviði. Ungt fólk
er álitinn sérstakur áhættuhópur í
þjóðfélaginu hvað varðar ótímabær-
ar barneignir og þarf því á sér-
stakri athygli að halda.
Alþjóðasamtök um fjölskyldu-
áætlun (lPPF=International
Planned Parenthood Federation)
hafa það á stefnuskrá sinni að
bæta þjónustu fyrir ungt fólk á
sviði fjölskylduáætlunar. Á alþjóða-
TILBOÐ
NOVELLA
SÓLSTÓLLINN
1.195,-
Verð aðeins kr.
þingi Evrópudeildar ÍPPF sem hald-
ið var í Varna í Búlgaríu 1989 kom
fram í tveggja ára áætlun samtak-
anna að eitt af megin forgangsverk-
efnum væri að mæta þörfum ungs
fólks á þessu sviði.
í stað þess að leggja niður kyn-
fræðsludeildina ætti það því að vera
metnaðarmál okkar þjóðar að
byggja upp markvissa ijölskyldu-
áætlunarþjónustu fyrir ungt fólk
sem þarf mjög mikið á fræðslu og
ráðgjöf að halda á þessu sviði.
Höfundur erlektor við Náusbraut
ílijúkrunarfræði við Háskóla
Islands.
UTI
MÁLNING
Matthea Jónsdóttir, listmálari
■ NÚ STENDUR yfir í Bókasafni
Kópavogs sýning á málverkum eftir
Mattheu Jónsdóttur, listmálara.
Mattahea hefur haldið 13 einkasýn-
ingar auk fjölda samsýninga hér
heima og erlendis. Þá hefur Matthea
nokkrum sinnum hlotið verðlaun fyr-
ir verk sín á alþjóðasýningum m.a.
í Frakklandi og Belgíu. Matthea
hlaut starfslaun Menntamálaráðs á
sl. ári. Sýningin í Bókasafni Kópa-
vogs stendur til 25. júní og er opin
á opnunartíma safnsins kl. 10—21
virka daga.