Morgunblaðið - 31.05.1990, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAI 1990
49
Hrefiia Brynjólfs-
dóttir — Kveðja Kristín Guðjohn-
Okkur systkinin langar til að
minnast elsku ömmu okkar, Hrefna
Biynjólfsdóttur, í nokkrum orðum.
Hún lést eftir erfið veikindi 18. maí
síðastliðinn. Sárt er að hugsa til
þess að ekki eigum við eftir að sjá
ömmu aftur svo lengi sem við lifum,
en mikill styrkur er í því að vita
að nú líður henni vel og er í góðum
höndum.
Blessuð sé minning hennar.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Megi góður Guð styrkja elsku
afa okkar á þessari sorgarstund.
Hreftia, Gísli, Maggi og ívar
sen - Kveðjuorð
Minning:
Páll Pálsson fyrrv.
bifreiðarstjóri
Fæddur 2. febrúar 1902
Dáinn 23. maí 1990
í dag, fimmtudaginn 31. maí,
verður jarðsunginn frá Háteigs-
kirkju föðurbróðir minn, Páll Páls-
son.
Foreldrar hans voru Páll Jónsson
í Bakkakoti á Rangárvöllum og
kona hans Salvör Jensdóttir.
Þau hjón eignuðust 13 börn og
var Páll sá 11. í röðinni. Öll náðu
börnin fullorðinsaldri nema ein
stúlka sem Ingibjörg hét og dó 13
ára. Páll er tólfti í röðinni sem kveð-
ur þennan heim en hin voru: Árni,
Vilhjálmur, Guðbjörg, Sigríður,
Guðrún, Þura, Hjörleifur, Jón,
Steingrímur og Guðrún. Eftir lifir
Jens, sem býr á heimili aldraðra við
Dalbraut.
Það hefur verið mikið vinna að
fæða og klæða svo stóran hóp og
munu börnin snemma hafa vanist
mikilli vinnu.
Páli var komið fyrir á Odda um
þriggja ára skeið hjá séra Skúla
Skúlasyni og Sigríði Helgadóttur.
Talaði hann oft um veru sína þar.
Síðan fór hann í Fróðholtshjáleigu,
þar til hann varð 16 ára, en þá fór
hann að starfa við allt það sem til
féll hverju sinni. Var hann mörg ár
á vertíðum i Vestmannaeyjum og
stundaði sjóróðra á árabátum.
Árið 1929 urðu þáttaskil í lífi
Páls, en þá fór hann að stunda bif-
reiðaakstur frá BSR. Varð það hans
ævistarf. Árið 1950 kvæntist hann
Huldu Maríu, vestur-þýskri konu,
og var sambúð þeirra farsæl og
reyndist Hulda manni sínum traust-
ur og góður lífsförunautur.
Börn þeirra eru fjögur: Guðríður,
gift Kristni Þorkelssyni, Hjörleifur,
Halldór og Páll Sölvi, kvæjltur
Fanneyju Ingvaldsdóttur. Áður
eignaðist Páll tvo syni: Reyni,
kvæntan Marie La Cour Hansen og
Einar. Öll eru börnin myndar- og
dugnaðarfólk. Páll frændi var stór
maður og þrekinn, kannske svolítið
htjúfur hið ytra, en ljúfur og lijarta-
hlýr hið innra.
Honum þótti vænt um alla sem
hann kynntist, og var sérlega barn-
góður og hjálpsamur, vildi hvers
manns vanda leysa. Alla tíð hefur
Páll verið hluti af lífi mínu. Hann
kom nær daglega til foreldra minna
á meðan heilsan léyfði, og saman
áttu þau, ásamt honum og Huldu,
margar ánægjustundir. Bræðurnir
Steingrímur, Hjörleifur og Páll spil-
uðu mikið brids og var móðir mín
fjórði maður. Þá ríkti mikil gleði
og oft hlegið dátt.
Páll var ekki bara frændi, hann
var einlægur vinur sem ég á margt
að þakka.
Við Hildimundur og börnin okkar
söknum vinar og biðjum honum
Guðsblessunar á nýju tilverustigi.
Aðalheiður Sigurdís
Steingrímsdóttir
Fædd 28. mars 1930
Dáin-19. maí 1990
Á einum bjartasta degi vorsins,
laugardaginn 19. maí sl., lést í
Landspítalanum Kristín Guðjohnsen,
sextug að aldri. Þann dag dimmdi í
hugum okkar, er höfðum beðið og
vonað, að hún fengi a.m.k. notið
sumarsins, en lokabaráttan í erfiðum
veikindum hennar varð ströng og
stutt.
Það eru mikil forréttindi að eiga
góða vini og því betri sem þeir eru
þeim mun erfiðara eigum við með
að sætta okkur við, að þeir séu frá
okkur teknir. Á æskuárum bundumst
við Stína vináttu- og tryggðarbönd-
um, sem entust allt þartil hún kvaddi
þetta tilverustig.
Stína var heilsteypt kona með já-
kvætt lífsviðhorf og skilur eftir sig
stórt skarð hjá þeim, er hún kynntist
á lífsleiðinni. Hún var óvenju hrein-
skiptin og hispurslaus, henni fylgdi
jafnan hressandi andblær og hún
átti einstaklega auðvelt með að ná
til annarra og skipti aldur þá engu
máli. Hún kom eins fram við alla og
fals og fláræði var ekki til í fari
hennar. Öllum, sem kynntust henni
var hlýtt til hennar og gilti einu hvort
um var að ræða fjölskylduna, skóla-
systkin eða vinnufélaga, allir vildu
eiga og áttu eitthvað í Stínu.
Margar eru minningamar er koma
upp í hugann, enda af nógu að taka.
Ég minnist þess er hún kom fyrsta
sinni á æskuheimili mitt, hve foreldr-
um mínum leist vel á þessa einarð-
legu stúlku, sem talaði kjarnyrta
norðlensku tæpitungulaust. Ég
minnist þess er hún og bekkjarsystk-
t
Útför mannsins míns og föður okkar,
SIGURÐAR JÓNASSOIMAR,
Stykkishólmi,
sem andaðist 25. maí sl., og sonar míns og bróður okkar,
ÞÓRIS ARNAR SIGURÐSSONAR,
Stykkishólmi,
sem andaðist 24. maí sl., verður gerð frá Stykkishólmskirkju föstu-
daginn 1. júní kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast þeirra, er bent á St. Fransiskussjúkrahúsið
í Stykkishólmi og líknarstofnanir.
Sætaferðir verða frá Umferðarmiðstöðinni kl. 9.00 sama dag.
Fyrir hönd aðstandenda,
Svava Oddsdóttir,
Anna Sigurðardóttir,
Ingveldur Sigurðardóttir.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
fósturfaðir, tengdafaðir og afi,
FLOSI GUNNARSSON
útgerðarmaður og skipstjóri,
Vesturbergi 53,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fella- og Hóla-
kirkju föstudaginn 1. júní kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hins láta, er bent á
Krabbameinsfélagið.
Alda Kjartansdóttir,
Guðmundur Örn Flosason,
Jakobína Flosadóttir, Mikael Nordal,
Anna Lilja Flosadóttir,
Rósa Dögg Flosadóttir,
Benedikt Franklínsson
og barnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug viö andlát og útför
JÓNS EYVINDSSONAR BERGMANNS
símamanns
frá Keflavík.
Fyrir hönd systra hans og annarra vandamanna,
Sína D. Wiium.
inin settu upp hvíta kollinn fyrir rétt-
um 40 árum, þá blasti lífið og ævin-
týrin við. Ég minnist góðra stunda
á heimili foreldra hennar, Snjólaugar
og Einars Guðjohnsen á Laugavegin-
um og Ægisíðunni, þar ríkti góður
andi og okkur var ævinlega tekið af
hlýju. Ég minnist hennar sem elsku-
legrar dóttur, stoð og stytta móður
sinnar, en þær bjuggu saman um
árabil eftir skyndilegt fráfall föður
hennar. Og myndin af henni geisl-
andi af hamingju með einkabarnið í
fanginu er skýr. Margar og góðar
eru stundirnar er við áttum í sauma-
klúbbnum þótt fámennur væri, sem
við Kiddí eigum vafalaust eftir að
ylja okkur við.
Sl. ár var Stínu erfitt, þótt hún
flíkaði því ekki. Styrkur hennar var
trúin, en hana átti hún, einlæga og
sanna. Hún starfaði ötullega að mál-
efnum kirkjunnar í Kvenfélagi Lang-
holtssóknar, þar sem bekkjarbróðir
hennar, sr. Sigurður Haukur Guð-
jónsson, var starfandi prestur.
Ævi- og starfsferil Stínu ætia ég
ekki að rekja, það gera vafalaust
aðrir, vil aðeins að leiðarlokum þakka
fyrir að hafa átt vináttu hennar.
Stína giftist eftirlifandi eigin-
manni sínum, Bolla Ólasyni loft-
skeytamanni, árið 1971. Einkabarn
þeirra er Gunnar, fæddur 10. ágúst
1972, hinn mesti efnispiltur, sem
sýnt hefur mikinn þroska í veikindum
móður sinnar.
Algóðan guð bið ég að blessa og
styrkja Bolla og Gunnar í þeirra
rnikla missi og aðra ástvini hennar.
Hvíli Stína mín í friði.
Gyða
Vegna mistaka í vinnslu síðastl.
þriðjudag birtist greinin hér á ný,
um leið og beðist er velvirðingar á
mistökunum.
+
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför
GERÐAR JÓNSDÓTTUR,
Akureyri.
Sérstakar þakkir færum við Félagi íslenskra bókagerðarmanna
og starfsfólki Prentverks Odds Björnssonar.
Helga Jónsdóttir,
Guðrún Jónsdóttir,
Bolli Gústafsson
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug
við andlát og útför
RANDÍAR ARNGRIMS,
Suðurhólum 24,
Reykjavík.
Gunnar Ólafsson,
Guðrún Arngrímsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Hinar innilegustu þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur
vináttu og hlýhug og vottuðu okkur samúð við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
STEFÁNS SNÆLAUGSSONAR,
Munkaþverárstræti 24,
Akureyri.
Óiafía Halldórsdóttir,
Snæiaugur Stefánsson,
Karólína Stefánsdóttir,
Ráðhildur Stefánsdóttir,
Óskar Stefánsson,
Anna Stefánsdóttir,
Sigrún Stefánsdóttir,
Kristín R. Stefánsdóttir,
barnabörn og
Margrét Sölvadóttir,
Karl F. Magnússon,
Daði Hálfdánsson,
Sigríður Halldórsdóttir,
Brynleifur Siglaugsson,
Birgir Stefánsson,
Þórður Jóhannsson,
barnabarnabarn.
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim,
er sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
STEINUNNAR MARTEINSDÓTTUR
frá Feyju, Neskaupstað,
siðar búsett í Bogahlið 13,
Reykjavík.
Ada Elisabet Benjaminsdóttifjriðrik Á. Magnússon,
Jón Benjamínsson, Gúðný M. Kjartansdóttir,
Benjamín Friðriksson, Birna Magnúsdóttir,
Baldur Friðriksson, Lilja Björnsdóttir,
Magnús Friðriksson, Bryndís Jónsdóttir,
Ragnheiður Jónsdóttir, Steinunn Jónsdóttir
og barnabörn.