Morgunblaðið - 31.05.1990, Qupperneq 58
58
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1990
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI LANDSLIÐA
Óskabyrj-
un en bet-
urmáef
duga skal
Arnór og Atli gerðu glæsileg mörk
og tvö stig eru komin í sarpinn
ATLI Eðvaldsson, fyrirliði íslands, kórónaði stórgóðan leik sinn
fjórum mín. fyrir leikslok í gærkvöldi gegn Albaníu á Laugardals-
vellinum með því að gulltryggja sigurinn — 2:0 — er hann henti
sér fram og skallaði knöttinn glæsilega í netið eftir frábæran
undirbúning Sigurðar Grétarssonar og Ólafs Þórðarsonar. Atli
var besti maður íslenska liðsins og átti í raun ekkert ógert í leikn-
um nema að skora. Fyrirliðinn átti svo sannarlega skilið að kom-
ast á blað. En þrátt fyrir sigurinn var leikur íslenska liðsins ekki
nógu sannfærandi. Fyrri hálfleikurinn var mjög slakur en sá
síðari reyndar mun líflegri. Það er Ijóst að betur verður að leika
gegn „sterku" þjóðunum í riðlinum. Það vita auðvitað engir bet-
ur en strákarnir í liðinu. En sigur er alltaf sigur og það er frá-
bært að byrja þátttökuna í Evrópukeppninni að þessu sinni á
sigri. Stigin tvö verða ekki tekin af liðinu.
mönnum greinilega mjög á óvart
með því að leggja alls ekki áherslu
á vörnina! Reyndu að sækja, héldu
boltanum vel á miðjunni og voru
skeinuhættir. Fjórum sinnum skap-
aðist veruleg hætta við íslenska
markið í fyrri hálfleik og það var
algjörlega gegn gangi leiksins er
Amór Guðjohnsen skoraði fallegt
mark á 42. mín.
Ljós í myrkrinu
En það verður ekki af Arnóri
tekið að hann stóð vel að markinu
og var um algjört einstaklings-
framtak að ræða. Varnarmaður
komst inn í sendingu Amórs til
Islenska liðið lék afleitlega í fyrri
hálfleik. Samvinna varnar og
sóknar var varla til staðar. Leik-
menn virkuðu óöruggir, hálf ráð-
villtir og sendingar
Skapti voru oft á tíðum til-
Hallgrímsson viljanakenndar. Lið-
skrífar jg var ekki nógu
samstillt. Hreyfing
á leikmönnum ekki nægjanleg,
þannig að allt of mikið var um lang-
ar og háar sendingar. Sú leikaðferð
að taka á móti andstæðingnum
framarlega á vellinum gekk einfald-
lega ekki upp. Albanir voru hins
vegar hreyfanlegir, léttleikandi,
liprir og snöggir, og nýttu breidd
vallarins vel. Þeir komu okkar
Morgunblaöiö/Einar Falur
Arnór Guðjohnsen kemur íslendingum á bragðið í gærkvöldi á lokamínútum fyrri hálfleiksins. Vel
var að markinu staðið hjá Arnóri.
Péturs Péturssonar á miðjum vall-
arhelmingi Albana, en Arnór náði
knettinum strax og skaust fram
völlinn. Það var strax augljóst hvert
takmarkið var; sprengikrafturinn í
honum var gríðarlegur. Hann óð
áfram með knöttinn og skoraði ör-
ugglega með fallegu skoti yst úr
teignum. Mark Arnórs var ljós í
myrkrinu og menn önduðu léttar
þegar flautað var til leikhlés.
Allt annað eftir hlé
.Allt annað var að sjá til íslenska
Iiðsins eftir hlé. Það var meira með
knöttinn, lék skynsamlegar og
gamli góði baráttuandinn kom vel
í ljós. Kristján Jónsson kom inn á
í stað Þorvaldar, sem hafði ekki náð
sér á strik, og fór í stöðu vinstri
bakvarðar, en Ólafur Þórðarson
framar á völlinn í stað Þorvaldar.
Leikskipulaginu var breytt eftir hlé
og það gafst betur. Arnór átti fljót-
lega gott skot sem varnarmaður
bjargaði á síðustu stundu í horn,
eftir að Pétur skallaði knöttinn til
hans og eftir hálftíma leik kom
aðeins snilldarmarkvarsla í veg fyr-
ir að Pétur kæmi knettinum í netið.
Sóknin var glæsileg. Ólafur Þórðar-
son sendi frá vinstri yfir til hægri
í vítateiginn þar sem Sævar skall-
aði strax til Péturs. Hann skallaði
þegar í stað að marki af stuttu
færi, en markvörðurinn henti sér
fimlega á eftir knettinum og sló
hann í horn. Mjög góð tilþrif hjá
öllum sem hlut áttu að máli.
Tæpum fimm mín. fyrir leikslok
kom svo markið hans Atla; frábært
mark. Ólafur og Sigurður léku
skemmtilega í gegnum vörnina
vinstra megin og Sigurður sendi
síðan inn á markteiginn þar sem
Atli kom fljúgandi og hamraði
knöttinn í netið með höfðinu.
Stórglæsilega að þessu staðið.
Þó að fyrri hálfleikur hafi verið
slakur og margt athugavert við leik
íslenska liðsins má finna ýmislegt
ánægjulegt. Atli var stórgóður og
Arnór og Ólafur náðu sér vel á strik
á köflum. Einnig Pétur Ormslev.
Birkir var öruggur í markinu og
Guðni stóð vel fyrir sínu. Þá báru
innáskiptingarnar árangur en Orm-
arr kom einnig inn á, fyrir Guð-
mund Torfason. Líta verður á þá
staðreynd að með nýjum þjálfara
koma nýjar hugmyndir og tíma tek-
ur að fínpússa leik liðsins. Arnór
og Guðmundur léku þarna í fyrsta
skipti undir stjórn þjálfarans, og
ef til vill hafa menn verið spenntir
vegna mikilla væntinga gegn Al-
baníu, sem talið er slakt lið þó ann-
að hafi komið í ljós. Skýringarnar
á slökum fyrri hálfleik kunna að
vera margar og spekingar þessa
lands eiga eflaust eftir að halda
þeim lofti. Sigurinn er það sem
skiptir mestu máli. Bo og strákarn-
ir eru komnir af stað í alvöru, Ar-
nór skoraði loks í sigurleik lands-
liðsins og því hlýtur að mega líta
björtum augum á framtíðina þrátt
fyrir allt!
Island - Albania
Laugardalsvöllur, undankeppni EM - 1. riðill, miðvikudaginn
30. maí 1990.
Mörk íslands: Arnór Guðjohnsen (42.), Atli Eðvaldsson (86.).
Gul spjöld: Mirel Jose og Sulejman Delmollari, Albaníu.
Dómari: F. McKnight frá Norður-írlandi.
Áhorfendur: 5.250.
ísland: Birkir Kristinsson, Ólafur Þórðarson, Atli Eðvaldsson
(fyrirliði), Þorvaldur Örlygsson (Kristján Jónsson 46.), Sigurð-
ur Grétarsson, Sævar Jónsson, Guðni Bergsson, Pétur Ormslev,
Arnór Guðjohnsen, Guðmundur Torfason, (Ormarr Örlygsson
vm. 67.), Pétur Pétursson.
Albanía: Fotaq Strakosha, Pjerin Noga, (Roland Iliadhi 80.),
Artut Lekbello, Naun Kove, Rudi Vata, Fatbardh Jera, Ylli
Shehu, (Arben Arberi 46.), Mirel Jose, Lefter Millo, Eduard
Abazi og Sulejman Delmollari.
Morgunblaðiö/Einar Falur
Atli Eðvaldsson horfir á knöttinn þenja út netmöskva albanska marksins á lokamínútunum. Ánægjan í andliti fyrirliðans ieynir sér ekki, enda ekki furða. Hann lék
frábærlega, sá um að reka smiðshöggið á vel heppnaða sókn — og gulltryggði þar með sigurinn.